Morgunblaðið - 13.04.1983, Page 23

Morgunblaðið - 13.04.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983 23 Sigurvegararnir f.v.: Richard Attenborough, Meryl Streep og Ben Kingsley. sim»mynd ap • Heiðurs-Óskarinn að þessu sinni féll í hlut Mickey Rooney, en í 60 ár hefur hann leikið meira og minna í kvikmyndum. Símamynd AP „Gandhi“ Attenboroughs fékk 8 Óskarsverðlaun Los Angeles, 12. aprfl. AP. KVIKMYNDIN „Gandhi" sópaði að sér verðlaunum er Óskarsstytt- urnar voru afhentar við mikla við- höfn í Los Angeles i fyrrinótt. „Gandhi“, sem fjallar um ævi og störf Indlandsleiðtogans hreppti alls átta Óskarsverðlaun, þ.m.t. tit- ilinn „besta mynd ársins 1983,,. Ben Kingsley, nýliði að heita má í leikarahópnum, fékk Óskarsverð- laun fyrir leik sinn, en hann fór með hlutverk Gandhis i myndinni. Richard Attenborough, sá er leikstýrði myndinni var kjörinn besti leikstjóri ársins, en auk þess fékk myndin styttur fyrir eftirtalin ágæti: besta handritið, ET varð hálf- drættingur með fjórar styttur besta sviðsmyndin, besta kvik- myndunin, bestu búningarnir og mestur frumleikinn. Óskarsverðlaun fyrir besta að- alkvenhlutverkið fékk Meryl Streep fyrir hlutverk sitt i kvikmyndinni „Sophies Choice", en þar leikur hún unga konu sem lifir af hörmungar gereyðingar- búða nasista. Besta aukakven- hlutverk lék Jessica Lange í myndinni Tootsie. Luis Gossett lék besta aukahlutverk karls í myndinni „An officer and a gentleman." Þetta er annað árið í röð sem bresk mynd hreppir Óskarsverð- laun sem besta mynd ársins. Síð- ast var það „Chariots of fire“ sem kom sá og sigraði. Sú mynd söls- aði þó ekki undir sig styttur í jafn ríkum mæli og „Gandhi". Besta erlenda myndin, þ.e.a.s. mynd með öðru tali en ensku, var kjörin „Volver a empezar", spænsk kvikmynd um rithöfund sem er i útlegð á tímum Francos, en kem- ur síðan heim er stjórn hans er öll. ET, kvikmyndin um geimbúann meinlausa sem óvart er skilin eft- ir á jörðu niðri þar sem hann vingast við nokkur börn, hjó næst „Gandhi" í verðlaunasöfnuninni. „ET, the Extra Terrestrial", fékk alls fjögur Óskarsverðlaun. Margar styttur voru veittar fyrir hin ýmsu tækniatriði, t.d. fékk mynd þeirra Costa Garvas og Donald Stewart, „Missing", ein slík verðlaun og „Quest for fire“ fékk styttu fyrir bestu förðunina. Þá fékk gamla kempan Mickey Rooney heiðurs-óskarinn. Hubner jafnaði Vestur-þýzki stórmeistarinn Ro- bert Hiibner jafnaði metin í einvígi sinu við Vassily Smyslov í Velden í Austurríki með því að vinna níundu og næstsíðustu skákina á sunnudag- inn í 36 leikjum. Hvor um sig hefur nú hlotið fimm vinninga, því í gær lauk tíundu skákinni með jafntefli. Fjórar aukaskákir þarf því til að skera úr um sigurvegara, en ef þá verður enn jafnt, verður dregið um hvor komist áfram. í Bad Kissingen í V-Þýzkalandi gerðu þeir Viktor Korchnoi og Laj- os Portisch jafntefli í sjöundu skák sinni. Staðan er nú þannig að Korchnoi hefur hlotið fimm vinn- inga en Portich aðeins tvo og næg- ir Korchnoi þvi eitt jafntefli til viðbótar til þess að bera sigur úr býtum. Sigurvegarinn í þessu ein- vígi mætir Sovétmanninum Garry Kasparov í undanúrslitum áskor- endakeppninnar. Zoltan Ribli frá Ungverjalandi og Eugenio Torre frá Filippseyjum hafa farið rólega af stað í einvígi sínu sem hófst í Alicante á Spáni fyrir viku. Fyrstu fjórum skákun- um lauk með jafntefli, öllum eftir litla baráttu að sögn skák- skýrenda. í fyrstu og fjórðu skák- inni sömdu keppendur jafntefli eftir aðeins 14 leiki. I Alicante fer einnig fram eitt af áskorendaeinvígjum kvenna. Þar mætast þær Alexandria frá Sov- étríkjunum og Lematschko, sem baðst hælis sem pólitískur flótta- maður í Sviss að loknu Ólympíu- mótinu í haust. Lematschko er fædd og uppalin í Sovétríkjunum, en giftist síðar búlgörskum manni og fluttist til Búlgaríu þar sem hún bjó þar til hún flýði land. Hún vann fyrstu skákina í einvíginu, en Alexandria tvær þær næstu. Veður víða um heim Akurayri Amsterdam Aþana Barcelona Berlin BrUssel Chicago Dublin Feneyjar Frankfurt Fasreyjar Genf Helsinki Hong Kong Jerúsalem Jóhannesarborg Kaupmannahöfn Las Palmas Lissabon London Los Angeles Madrid Mallorca Malaga Mexíkóborg Miami Moskva Nýja Delhí New York Ósló París Peking Perth Reykjavík Rio de Janeiro Rómaborg San Francisco Stokkhólmur Tel Aviv Tókýó Vancouver Vínarborg 7 skýjað 10 skýjaó 26 skýjaó 14 léttskýjaó 4 súld 92 rígning 7 skýjaó 10 heióskfrt 1 19 lóttskýjeð 16 rigning 7 skýjaó 16 skýjaó 5 skýjað 26 skýjaó 15 heiósklrt 25 heiðskfrt 5 rigning 23 Mttskýjaó 19 skýjaó 10 heióskírt 16 rigning 19 heióskfrt 15 Mttskýjaó 19 alskýjaó 28 heióskírt 24 heióskfrt 9 rigning 32 rigning 15 skýjaó 8 heióskfrt 8 skýjaó 21 heióskírt 24 heióskfrt 1 snjókoma 29 skýjaó 23 heióskfrt 13 skýjaó 9 heióskfrt 21 heióskfrt 31 heióskfrt 10 skýjaó 16 rlgnlng Hersveitir Víetnama sauma að kambódískum flóttamönnum Bangkok, Thailandi, 12. apríl. AP. HERSVEITIR Víetnama í Kambódíu hafa hreiðrað um sig við tvær flótta- mannabúöir á landamærum Kamb- ódíu og Thailands eftir því sem hern- aðaryfirvöld í Thailandi herma. Er vfetnamska liðið mjög öflugt og styrkt með miklu skriðdreka og fall- byssuliði. Búðirnar sem um ræðir eru Ban Sangae, búðir KPNLF, en þar eru um 23.000 óbreyttir borgarar, og Nong Samet-búðir KPNLF-hóps- ins, sem er andsnúinn kommúnist- um. f búðunum eru um 77.000 manns. KPNLF mynda sam- steypuútlagastjórn undir Shian- ouks prins, sem stjórnar sínum hóp, en rauðu Khmerarnir skipa þriðja hópinn. Yfirmenn KPNLF-armsins hafa lýst yfir að þeir hafi yfir 11.000 hermönnum að ráða og séu þeir í báðum búðunum sem nú eru í hættu. Er víetnamska árásarliðið í seilingarfjarlægð frá búðunum og þykir sýnt að þeir muni gera árás. Son Sann, leiðtogi KPNLF hefur verið á þönum milli búðanna að undanförnu og skipulagt vörnina. Þá hafa verið gerðar ráðstafanir til að senda tugi þúsunda flótta- manna yfir landamærin til Thai- lands ef á þarf að halda, en þegar hafa 45.000 Kambódíumenn flúið yfir landamærin. Þá sendi Son Sann skeyti til Sameinuðu þjóðanna um helgina og óskaði eftir rannsókn á meint- um fjöldamorðum víetnamskra hermanna í flóttamannaþorpinu Shianoukville. f skeyti sínu til framkvæmdastjóra SÞ, Javier Per- ez de Cuellar, segir Son Sann, að víetnamskir hermenn hafi ráðist fyrirvaralaust á þorpið, smalað 300 saklausum borgurum ofan í skurð, varpað handsprengjum á þá, og stungið síðan til bana með byssustingjum þá sem eftir lifðu. Mn ..-££2*1» Byggt yfir Mary Rose Hér má sjá hvernig byggt hefur verið yfir leifar miðaldahcr- skipsins Mary Rose í l'ortsmouth í Englandi. Skipsskrokkurinn er úðaður látlaust með söltu vatni til að hann fúni ekki. Skrokk- urinn verður öndvegisgripurinn á safni sem stofnað hefur verið um sögu miðaldaflotans. Galtieri í varðhald Buenos Aires, 12. aprfl. AP. YFIRMAÐUR landhers Argentínu hefur úrskurðað Leopoldo Galtieri hershöfðingja, sem fyrirskipaði innrás- ina í Kalklandseyjar þegar hann var forseti í fyrra, í 60 daga varðhald. Ástæðan er gagnrýni Galtieris á frammistööu yfirmanna í stríðinu í við- tali við dagblað á ársafmæli innrásar- innar. Galtieri hefur búið einangraður í íbúð á 19. hæð stórhýsis í Buenos Aires síðan honum var vikið frá völdum. Hann hefur ekki áður látið í ljós álit sitt á stríðinu síðan því lauk. Flest svör hans í viðtalinu fól- ust í ásökunum um að samstarfs- menn hans bæru ábyrgð á ósigrin- um. Hann sagði að landstjórinn á Falklandseyjum, Menendez hers- höfðingi, bæri höfuðábyrgðina. „Menendez olli mér vonbrigðum. Það er eitt að deyja og annað að tala um að deyja," sagði Galtieri. Hann sagði einnig að hann hefði Leopoldo Galtieri undrazt hve fall Port Stanley hefði borið brátt að. „Ég hélt við hefðum getað veitt harðara viðnám," sagði hann. Menendez hefur líklega krafizt handtöku Galtieris. Samkvæmt arg- , entínskum herlögum má ekki ófrægja heraflann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.