Morgunblaðið - 13.04.1983, Side 37

Morgunblaðið - 13.04.1983, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1983 37 Reksturinn mjög þungur þótt verk- efnin séu næg — sagöi Ólafur Þorsteinsson, formaöur Verktakasam- bandsins m.a. í ræðu á aðalfundi sambandsins „ÞEGAK litiö er til baka yfir starfs- árid má segja að verkefni hafi veriö nægjanleg hjá byggingarverktökum sunnanlands. en of lítil hjá jarð- vinnuverktökum nú í vetur, frá októ- ber-nóvember og marga vantar verk- efni nú,“ sagöi Olafur Þorsteinsson, formaöur Verktakasambands ís- lands, m.a. í ræöu sinni á aðalfundi sambandsins á dögunum. „En það er alvarlegra mál að hvort sem fyrirtæki hafa næg verkefni eða ekki reynist rekstur- inn mjög þungur, og það svo, að tvö byggingarfyrirtæki úr okkar sambandi hafa neyðzt til að stöðva rekstur vegna fjárhagserfiðleika, og ber að harma slíkt. En þarna erum við komnir beint að þjóðfélagsástandinu. Einn ráðherrann okkar sagði nálægt áramótunum. „Við erum komnir út á yztu nöf í efnahagsmálum." margir aðrir hafa sagt þessu líkt en mig langar aðeins að leggja orð í belg. Það hlýtur að vera farið að reyna á þolrif verktaka og allra atvinnufyrirtækja þegar ráða- menn segja þessi orð. Það hlýtur að reyna á þolrif verktaka í 80% verðbólgu og lánskjarastefnu samkvæmt því. Það hlýtur að reyna á þolrif verktaka þegar skattheimtan er því líkust að nat- in húsmóðir ryksugaði heima hjá sér. Það hlýtur að reyna á þolrifin þegar stórlega skortir á að lands- feður og almenningur skilji að arðsamur atvinnurekstur er allra hagur. Það hlýtur að reyna á þol- rifin þegar hugsanagangurinn er slíkur hjá fjölda manna, að rekir þú fyrirtæki með tapi, ertu aum- ingi, en ef þú græðir ertu þjófur," sagði Ólafur Þorsteinsson. „Við verðum að stuðla að upp- byggingu, ég vil segja endurhæf- ingu efnahagslífsins. Við gerum það með vönduðum vinnubrögð- um, vönduðu verktakasiðferði. Við gerum það með áróðri og fræðslu, ekki bara á námskeiðum, heldur alltaf og allstaðar. Við höfum þok- að mörgum okkar stóru málum í rétta átt. Skilningur ráðamanna fer vaxandi á því að opinbert fé nýtist bezt í framkvæmdir með því að fela verktökum verkin. En endanlegum árangri náum við ekki fyrr en búið er að gjörbreyta afstöðu fólks í landinu til atvinnu- rekstrar, og það verður að gerast allar götur frá barnafræðslunni," sagði Ólafur Þorsteinsson, for- maður Verktakasambands ís- lands, ennfremur. Alþjóda gjaldeyrissjóðurinn: Samdráttur varð í milli- ríkjaviðskiptum iðnríkja 1982 annað árið í röð Um 5,3% samdráttur í útflutningi og 6,1% í innflutningi MILLIRÍKJAVIÐSKIPTI iönaöar- ríkja heimsins minnkuöu á síðasta ári, annað árið í röö, samkvæmt upp- lýsingu, sem Alþjóða gjaldeyrissjóö- urinn birti í síðustu viku. Sagði tals- maöur sjóösins þessa staðreynd cndurspegla það ástand, sem ríkt hefði í efnahagsmálum heimsins á síöustu árum. Talsmaðurinn sagði útflutning iðnríkja heimsins hafa verið að verðmæti um 1.160 milljarða Bandaríkjadollara, sem væri um 5,3% samdráttur frá fyrra ári. Hins vegar hefði innflutningur iðnríkjanna dregizt saman um 6,1% frá fyrra ári og hefði verið að verðmæti um 1.220 milljarðar Bandaríkjadollara á síðasta ári. Útflutningssamdrátturinn var mestur í Bandaríkjunum, eða 9,2%. Samdrátturinn í Frakklandi var 9,1%, í Japan 8,2% og sam- drátturinn í útflutningi Breta var um 6%. í Vestur-Þýzkalandi var hins vegar nokkuð stöðugt ástand, þar sem útflutningur landsmanna jókst um 0,2% á síðasta ári. Verðmætasamdráttur í útflutn- ingi olíuframleiðsluríkja varð um 19.9% á síðasta ári, en sem dæmi varð um 33% verðmætasamdrátt- ur í útflutningi Saudi-Araba. Innflutningsminnkunin varð mest í Japan eða um 8%. í Banda- ríkjunum varð samdrátturinn um 6,8%, um 5,2% í Vestur-Þýzka- landi, um 4,3% í Frakklandi, og um 2,3% í Bretlandi. Loks má geta þess, að verð- bólguhraðinn í iðnríkjum heims- ins var í febrúar sl. um 5,3%, borið saman við 5,6% á sama tíma í fyrra. Reykjavíkurflugvöllur — perla höfuðstaðarins — eftir Halldór Jónsson, verkfrœðing Margt breyttist „hérna morgun- inn 1940 því þá var komið stríð hingað", eins og Jón heitinn Eyj- ólfsson orðaði það. Eitt af því, sem helltist yfir okkur þá, var að Bretar gerðu 2 flugvelli hér. Kaldaðanesflugvöll, sem auðvitað var ómögulegur vegna flóðahættu, en Bretar skildu ekki, og Reykjavíkurflug- völl, sem var byggður á Vatnsmýr- inni, á þeim stað sem íslendingar höfðu þegar hafið flug á. Vanefnin voru hinsvegar svo mikil, að Örn Johnson, Agnar Kofoed og Siggi flug þurftu að bruna á farkostum sínum yfir trébrú á skurði, sem lá þvert yfir miðja flugbrautina. Stríðið og máttur stórveldisins breyttu öllu á stuttum tíma, Reykjavíkurflugvöllur, þetta gíf- urlega mannvirki, var gerður á skömmum tíma. Hefur hann þjón- að okkur dyggilega til þessa dags og er nú samofinn vitund allra íbúa höfuðborgarsvæðisins, bæði manna og fugla. Auk þess er hann sá staður, sem landsbyggðarfólk kemur fyrst og síðast á í höfuð- staðarreisum, sjúkt eða heilbrigt. Tilvist og framtíð Flugvallarsvæðið er um margt sérstætt eins og það lítur út i dag. Það er víðsýnt og friðsælt og mikil óspillt náttúra. Mikil fuglaparadís er innan svæðisins og varplönd fjölbreytilegra tegunda, útivist- arsvæði gæsa, máva og fjölda ann- arra tegunda fugla. Þarna eru ennfremur leyfar stríðsins; sóða- legir kumbaldar, skítur og drasl, flugvélaflök gjaldþrota flugfélaga, og ýmislegt svínarí til skammar fyrir borgina og háðungar þeim yfirvöldum, sem hafa átt að standa fyrir umgengni þarna. Að sumu leyti hefur tíminn staðið kyrr í 40 ár á sumum svæð- um flugvallarins. Á öðrum stöðum er nútíminn kominn. Loftleiðahót- elið er menningarmiðstöð. Flug- garðar, glæsilegt og snyrtilegt framtak einkaflugmanna, sóma sér vel á svæðinu. Ennfremur eru þær byggingar, sem Flugleiðir hafa til umráða, afgreiðsla innan- landsflugs og Skýli 4 snyrtilegar. Flugturninn er glæsihús, þó máln- igin mætti vera betri. Auk þess sem Skýli 1 hefur verið málað til prýði. Hafa verið góð mannvirki Bretans, þegar þau eru.svo góð sem raun ber vitni nú 40 árum eftir að þau risu til bráðabirgða. Já sólítt er Bretinn alltaf, þessi gamla vinaþjóð okkar. Hugmyndir okkar unga og efni- lega flugmálastjóra um byggingu einfaldrar afgreiðslubyggingar fyrir innanlandsflug í tengslum við Loftleiðahótelið eru athyglis- verðar. Aðeins sýnist mér ekki þurfa að rífa neitt til þess, þessir „fingur" geta gengið til norðurs á óbyggt svæði. Yfir flugvöllinn gnæfir Öskju- hlíðin, sem Skógræktarfélagið og Reykjavíkurborg hafa breytt í hreina paradís á sumardögum. í skóginum er mikið líf og marg- víslegt. Telja flugmenn ýmsir að- flug yfir Öskjuhlíð geta verið afar hættulegt á sólskinssunnudögum vegna athyglisrænandi sjónar- spila í rjóðrunum fyrir neðan vængina! Göngustígar liggja um 4 metra háan skóg, sem hefur sprottið þarna á um 20 árum og vex hröð- um skrefum. Þarna er notalegt að vera á sólskinsdögum og horfa á rellurnar hringsóla, Fokkerana koma og fara og horfa á borgina, fjöllin og sjóinn. Þarna er kyrrð og friður, sann- kölluð náttúruvin inní miðri borg. Þarna vaxa bláber, krækiber og hrútaber og fjöldi annarra teg- unda auk trjánna, birkis, furu og sitka- og rauðgrenis. Lækurinn í Nauthólsvík er sér- „Flugvöllurinn, höfuð- borgarsvæðið og ég höfum nú lifað saman í meira en 40 ár. Það hefur farið vel á með okkur og ég vona fyrir mitt leyti að við verð- um hér saman önnur 40 ár. Ég vildi óska þess að sem flestir skynjuðu flugvöllinn og umhverfi hans á sama hátt og ég, þá yrði þessi náttúruparadís varðveitt innan höfuð- borgarinnar.“ stætt baðhús og hefur mikinn að- dráttarkraft, þegar fráskrúfað er. Ættu borgaryfivöld að sýna hon- um meiri sóma. Siglingaklúbbar unglinga starfa í Nauthólsvík en Fossvogskirkjugarður er á aðra hönd með tign sína, frið og fagran gróður. Ströndin geymir náttúru- undur mikil og skeljalög í sjávar- kömbum, sem fæstir hafa séð vegna skorts á göngustígum. Þeir, sem vilja njóta náttúru- fegurðar þurfa ekki að fara iangt yfir lækinn að sækja vatn, hana er að finna í Öskjuhlíð. Margt mætti gera á þessu svæði til yndisauka fyrir lítið fé. Fjar- lægja ruslaandstyggðina af vellin- um, leggja göngu- og hjólreiða- stíga meðfram ströndinni og planta skógi á milli flugbraut- anna. Ef til vill má gera golfvöll þar sem nú er andstyggðarport Esso og slökkviliðsins, jafnvel smásundlaug undir Öskjuhlíð í tengslum við lækinn, snyrta og fegra þetta perlusvæði höfuðborg- arinnar. Öðru hverju rjúka upp arkitekt- ar og teikna 5 hæða blokkir á flugbrautunum, vindmyllur til orkuframleiðslu í stað vindpok- anna, gervitjarnir í fuglavarp- landið og fleiri norrænuhús f mýr- ina. Allt til þess, að mér skilst, að það sé styttra í Landsbankann í Austurstræti og atvinnutækifærin þar. Þó er mýrin það lág að skolp myndi ekki renna til sjávar frá henni víðast hvar. Og almennt at- vinnulíf líka löngu flúið bíla- stæðalausan, kyrrstæðan, húsfrið- aðan miðbæinn í Kvosinni hans Flosa. Flugvöllurinn, höfuðborg- arsvæðið og ég Flugvöllurinn, höfuðborgar- svæðið og ég höfum nú lifað sam- an í meira en 40 ár. Það hefur farið vel á með okkur og ég vona fyrir mitt leyti að við verðum hér saman önnur 40 ár. Ég vildi óska þess að sem flestir skynjuðu flug- völlinn og umhverfi hans á sama hátt og ég, þá yrði þessi náttúru- paradís varðveitt innan höfuð- borgarinnar. Ég vildi líka óska þess, að yfir- völd létu nú hendur standa fram úr ermum og fegruðu vallarsvæðið og bættu það með ræktun og jafn- vel einhverjum byggingum fyrir arkitekta. Þetta getur allt rúmast þarna í sátt og samlyndi við fugl- inn, kyrrðina og vornóttina, þegar Akrafjall og Skarðsheiði blasa við sem fjólubláir draumar frá björk- unum í Beneventum. Það er hægt að enda þessar árs- tíðabundnu deilur um flugvöllinn með því að menn fari í Öskjuhlíð með jákvæðu hugarfari og reyní sjálfir að sjá fyrir sér hver fram- tíð þessa svæðis á að verða. Ég held að jafnvel blindir skipulags- fræðingar og reglustikumenn geti fengið sýn í Öskjuhlíðarskógi nú í maí. Eftirmáli í rauninni er hörmulegt hversu illa er búið að íslenskum flugmál- um. Aðeins tæplega 4 flugvellir á landinu eru með bundnu slitlagi og því stórskaðlegir flugvélum. Ég hef ekki skilið það enn, hvers vegna varnarliðið þarf að fljúga yfir þvert ísland frá Keflavík, til þess að fljúga í veg fyrir Rússana austur af landinu. Því hafa þeir ekki aðsetur á Egilsstöðum líka og byggja þar boðlegan flugvöll, sem við myndum nota líka? Svo gæti það verið gott fyrir þá að hafa Sauðárkrók til vara, sem þá þyrfti að vera malbikaður líka með fín- ustu græjum. Og gott væri fyrir NATO að hafa varavelli á Höfn í Hornafirði og Vestmannaeyjum með góðum útbúnaði. Og flug- björgunarsveitir okkar og Land- helgisgæsla þurfa líka að hafa besta útbúnað með tilliti til varna landsins. Er þetta ekki nauðsynlegt ör- yggi landsins og samrýmanlegt því sem talað er um við kosningar, að við verðum sjálfir að vera virk- ari í varnarmálum þessa lands? Við skulum vona, að það verði aldrei komið hingað stríð, einn morguninn þegar við vöknum. En til þess að draga úr líkum á því að svo fari, þurfum við að halda vöku okkar og vera viðbúnir hinu versta, því hið góða mun ekki skaða okkur. 7. aprfl,1983, Halldór Jónsson verkfr. Halldór Jónsson, verkfræóingur, er einn af forstjórum Steypustöðvar- innar hf. Samband ísl. sveitarfélaga: Fulltrúaráðsfund- ur haldinn á Hellu Fulltrúaráðsfundur Sambands ís- lenskra sveitarfélaga verður haldinn í Verkalýðshúsinu á Hellu, Rangár- vallahreppi, dagana 14. og 15. þ.m. Á fulltrúaráðsfundinum verður að venju gerð grein fyrir starfsemi sambandsins sl. ár og fjallað um reikninga og fjárhagsáætlun sam- bandsins. Þá verða á þessum fundi kosnir fulltrúar sambandsins í stjórnir Lánasjóðs sveitarfélaga og innheimtustofnunar sveitarfé- laga til næstu 4ra ára. Auk þess verður fjallað um hagræðingu og aukna framleiðni í opinberum rekstri, byggðaráætlanir og reynsluna af þeim og stefnumörk- un varðandi sameiningu sveitarfé- laga. Fundurinn hefst kl. 10.30 fimmtudaginn 14. þ.m. og fundar- lok eru áætluð um hádegi föstu- daginn 15. þ.m.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.