Morgunblaðið - 11.05.1983, Síða 1
56 SÍÐUR
105. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaösins
Vatnaíþróttir?
Þau eru mörg hver ótrúleg og furðuleg tiltckin sem fólk tekur upp á til
að vekja á sér athygli og komast í heimsmetabók Guinness. Þetta eru
þau hjónin Vicky og Larry Kikuchi og ætla þau sér að setja nýtt
heimsmet. Og fólk kann að spyrja hvað þau aðhafast: Þau eru að leika
matador á botni sundlaugar. Þegar myndin var tekin í gsr voru þau að
Ijúka 134. klukkustundinni, en metið sem þau stla að slá er upp á 42
daga. Símamvnd AP.
Frelsissveitir gjalda
afhroð í Afganistan
lnUmahul. Paltititin. 10. m*í. AP.
Islamabad, Pakistan, 10. maí. AP.
SOVÉSKAR herdeildir og afganski
stjórnarherinn hafa staðið fyrir
stórkostlegum hernaðaraðgerðum í
Shomali-héraðinu norður af höfuð-
borginni Kabúl að undanförnu.
Vestrsnir diplómatar sögðu í gsr að
sóknin vsri einhver sú harðasta í
sögu átakanna milli stjórnarhersins
og Rússa annars vegar og frelsis-
sveita hins vegar. í kjölfarið hafa vel
flestir íbúar Shomali flúið til Kabúl.
Skipta flóttamennirnir þúsundum,
auk þess sem manntjón hefur verið
mikið. T.d. mátti borgin Herat þola
tveggja vikna stanslausar sprengju-
árásir, allt að 50 á dag, og diplómat-
ar sögðu að minnst 3.000 óbreyttir
borgarar hefðu látið þar Iffið. Mun
fleiri hafa fallið ef á heildina er litið
í vor.
Shomali hefur frá upphafi átak-
anna haft mikla hernaðarlega
þýðingu, því um héraðið liggur að-
alsamgönguæðin norður til landa-
mæra Afganistan og Sovétríkj-
anna. Hafa frelsissveitirnar staðið
þar nokkuð traustum fótum þar til
nú, því umræddir diplómatar
segja þær hafa goldið umtalsvert
afhroð og ekki sé víst að þær geti
sameinað krafta sína á ný. Gkki
síst vegna þess að þær eru vopn-
litlir orðnir og erfitt um vik að
bjarga því máli.
Þeir segja einnig að skýrt hafi
komið fram að fólki verður ekki
gert kleift að lifa eðlilegu lífi á
þessum slóðum, þannig hafi nær
öll þorp verið jöfnuð við jörðu þar
sem talið er að íbúar standi með
frelsissveitunum og þann 30. apríl
myrtu stjórnarhermenn 30 konur
og börn er þau reyndu að mót-
mæla árásunum.
Kabúl er aðeins 16 kílómetrum
sunnan við vígstöðvarnar en átökin
miklu standa yfir og heyrist
sprengju- og kúlnahríðin mæta
vel. Ástandið er sagt bágt í höfuð-
borginni, rafmagnsskömmtun og
erfiðleikar með vaxandi fjölda
flóttamanna af landsbyggðinni.
Leyniþjónustumaður
flúði A-Þýskaland
Bonn, 10. maí. AP.
HAITSETTUR foringi í austur-þýsku leyniþjónustunni flúði fyrir skömmu til
Bandaríkjanna og hafði með sér mikið magn af hernaðarlega mikilvsgum
skjölum, eftir því sem vestur-þýska dagblaðið Die Welt greindi frá í gsr.
Segir blaðið að umræddur
Austur-Þjóðverji hafi verið
major og nefnir hann Manfred
G. Hafi hann starfað í skjaladeild
austur-þýska öryggismálaráðu-
neytisins. Að sögn blaðsins setti
majorinn sig 1 samband við
bandarísku leyniþjónustuna og
Vaxandi spenna í Miðausturlöndum:
Sýrlendingar og Palestínu-
menn stórauka heraflann
bað um að vera fluttur strax til
Bandaríkjanna og vestur-þýska
leyniþjónustan hafi enga milli-
göngu haft um málið. Talsmenn
stjórnvalda í Vestur-Þýskalandi
vildu lítið tjá sig um mál þetta í
gær, en voru sammála um að þar-
lend stjórnvöld hafi ekkert haft
með málið að gera.
Die Welt leiðir getum að því að
meðal þess sem majornum verði
gert að svara, verði hvort hugsan-
legt sé að Austur-Þjóðverjar hafi
staðið á bak við fölsunina á dag-
bókum Hitlers sem svo mikið hef-
ur verið rætt um í Evrópu síðustu
vikurnar.
— og sovéskt sendiráðsfólk flutt frá Beirut
New York, Beinit og Tel-Avi*, 10. m*i. AP.
BANDARÍSKA sjónvirpsstöðin ABC
greindi frá í fréttatíma sínum á mánu-
dagskvöldió, að skæruliðar Palestínu-
araba hefðu streymt í skjóli myrkurs yfir
sýrlensku landamærin inn f Líbanon. Á
fóstudaginn fóru 40 herflutningavörubflar
yfir landamærin með 5—600 hermenn
PLO, sem allir voru gráir fyrir járnum. Þá
hafði stöðin eftir vestrænum diplómötum
að allt að 2.000 hermenn PLO hefðu
laumast inn í Líbanon frá Sýrlandi síð-
ustu vikurnar. Margir hinna palestfnsku
hermanna snúa til baka til Líbanon tæpu
ári eftir að þeim var vísað þaðan f kjöl-
farið á innrás fsraela í Líbanon.
Alexander Solzhenitsyn:
Gagnrýnir harðlega
kirkjur Vesturlanda
Lundúnum, 10. m*í. AP.
Alexander Solzhenitsyn, hinn
landrski sovéski rithöfundur og nób-
elsverðlaunahafi, tók á móti Temple-
ton-verðlaununum svokölluðu úr
hendi Filipusar prins, eiginmanns
Elísabetar Bretadrottningar, í Buck-
ingham-höllinni í gsr. 170.000 dollar-
ar fyrir að vera „endurskinsmerki
vonarinnar" eins og dómnefndin
komst að orði. Þetta var ellefta veit-
ing þessara verðlauna sem eru veitt
til cinstaklinga sem með einum eða
öðrum hstti gera veg trúarinnar sem
mestan.
1 hófi að afhendingunni lokinni
tók Solzhenitsyn til máls og var
ómyrkur í máli. Gagnrýndi hann
harðlega hina kristnu kirkju Vest-
urlanda og fordæmdi sfðan harð-
lega séra Billy Graham, sem síðast
hlaut verðlaunin. Graham sótti
m.a. Sovétrfkin heim og hélt þar
marga fyrirlestra. Þegar heim kom
sagði hann að hann hefði ekki orð-
ið var við ofsóknir þær sem trúað
fólk mætti þola í landinu. „Þannig
hjálpaði hann ómetanlega lygum
kommúnista um þessi mál. Megi
Guð einn vera dómari hans,“ sagði
Solzhenitsyn og bætti við hvað eft-
ir annað: „Heimurinn allur hefur
gleymt Guði og þess vegna gekk
hann í gegn um tvær styrjaldir á
þessari öld og vofu kjarnorkustríðs
nú á dögum.“
Þá sakaði hann alþjóðlega
kirkjuráðið um að styðja við bakið
á ótal uppreisnarhópum I þriðja
heiminum, en gleyma þrotlausri og
vonlítilli baráttu trúaðs fólks í
Sovétríkjunum. „Allar þær hreyf-
ingar í átt til samstöðu kirkjunnar
sem merkja má eru góðra gjalda
verðar, en þróunin er allt of hæg,
heimurinn er að tortímast þúsund
sinnum hraðar. Kirkjan verður að
ná samstöðu gegn trúleysi og skera
upp herör.“
Fleira sagði Solzhenitsyn, en
ræðuna endaði hann með þessum
orðum: „Heimsálfurnar fimm eru f
greipum hvirfilvinds. En þegar
mest á reynir fær mannkynið sitt
besta tækifæri til að sýna hvers
það er megnugt. Ef við tortfmumst
getum við sjálfum okkur um
kennt.“ í ræðulok reis fólk úr sæt-
um með dynjandi lófaklappi.
Mikil spenna er nú á þessum slóðum
og óttast margir að ísraelsmönnum og
Sýrlendingum kunni að lenda saman.
ABC-sjónvarpsstöðin greindi einnig frá
því að Sýrlendingar hefðu stóraukið
herafla sinn f Libanon sfðustu vikurn-
ar. Þeir hafi styrkt setuliðið með 10.000
nýjum hermönnum þannig að um
50.000 sýrlenskir hermenn eru nú f Lfb-
anon. Er áætlað að PLO-skæruliðar séu
nú 12—15.000 talsins. Til samanburðar
eru fsraelsmenn með 15.000 manna
herlið i landinu. Þá hafa Sovétrfkin
stóraukið vopnasendingar sfnar til
Sýrlendinga, þannig hafa þeir á tæpu
ári sent þeim vopn að andvirði 2 millj-
arða dollara, auk þess sem „ráðgjaf-
arnir" sovésku hafa aldrei verið fleiri
en nú, eða 5.000 talsins.
Ekki óttast allir að til strfðs sé að
draga, ýmsir vestrænir diplómatar
telja líklegra að Sýrlendingar og Pal-
estfnumenn hafi f huga að standa eins
föstum fótum og hugsast getur áður en
reynt verður fyrir alvöru að fá sam-
þykki þeirra fyrir tillögum Bandarfkja-
stjórnar um brottflutning herja frá
landinu. Það eru einkum Sýrlendingar
sem geta boðið tillögunum byrginn og
vitað er að þeir eru mjög andsnúnir
tillögunum og muni heimta umtals-
verðar breytingar og tryggingar.
Litið hefur verið á það sem dæmi um
spennuna á þessum slóðum, að Sovét-
menn hafa sent heim til Sovétríkjanna
allt að 142 manns, aðallega konur og
börn, fjölskyldur sendiráðsstarfs-
manna. Sovétmenn hafa sagt að fólkið
hafi farið til heimalandsins f sumar-
leyfi, en ekki vegna yfirvofandi strfðs-
hættu. lsraelsmenn hafa ekki treyst
sér til að túlka brottför sovésku þegn-
anna, en Amin Gemayel forseti Lfban-
on hefur undirstrikað skýringar Sov-
étmanna.
Sjá nánar bls. 14.
Sprenging
í kirkju
Svona var aðkoman að Santa
Cruz-kirkjunni í Mexíkó eftir síð-
ustu helgi, eftir að 315 kíló-
grömm af flugeldum og byssu-
púðri höfðu sprungið í loft upp
innan kirkjuveggjanna meðan á
messu stóð. Var guðshúsið troð-
fullt af fólki og létust 19 manns
að því að vitað er og 100 aðrir
meiddust meira og minna. Enn
var fólks leitað í rústunum í gær.
Ekki fylgdi sögunni hvers vegna
svo mikið sprengiefni var geymt í
kirkjunni. Símamynd AP.