Morgunblaðið - 11.05.1983, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 11.05.1983, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983 Systraminning: Guðný Þórðardóttir Helga Þórðardóttir Guðný fædd 5. ágúst 1909 dáin 29. apríl 1983 Helga fædd 2. nóvember 1905 dáin 19. desember 1981 Hinn 29. apríl sl. lést í Borg- arspítalanum föðursystir mín, Guðný Þórðardóttir, eftir langa og erfiða sjúkdómslegu. Er nú skammt stórra högga í milli því ekki er nema rúmt ár síðan önnur föðursystir mín, Helga Þórðardóttir, lést á St. Jós- efsspítala í Hafnarfirði, 19. des- ember 1981, einnig eftir langa og erfiða sjúkdómslegu. Þær systur voru dætur hjón- anna Sigríðar Grímsdóttur og Þórðar Þórðarsonar er síðustu æviár sín bjuggu í Hafnarfirði. Barnahópur þeirra Sigríðar og Þórðar var stór, því alls urðu systkinin tíu, fimm drengir og fimm stúlkur. Næstyngsta barn þeirra, Steingrímur Gunnar, lést aðeins níu ára gamall en níu systkinanna komust til fullorðins- ára. Helga var næstelst þeirra, fædd að Breiðabólstöðum á Álfta- nesi 2. nóvember 1905, Guðný, sem var fjórða í röðinni, fæddist á Bessastöðum á Álftanesi 5. ágúst 1909. Fyrstu bernskuárum sínum slitu þær systur á þeim sögufræga stað, Bessastöðum, þar sem faðir þeirra var ráðsmaður í nokkur ár. Eftir því sem barnahópurinn stækkaði varð erfiðara fyrir for- eldrana að framfleyta fjölskyld- unni sem vinnufólk í sveit. Þau fluttu því til Hafnarfjarðar 1915, en þaðan hóf faðir þeirra að stunda sjómennsku. Fátæktin var mikil eins og títt var á alþýðu- heimilum á árunum upp úr alda- mótum. Eldri systkinin urðu því snemma að fara að hjálpa til við heimilishaldið og síðan að vinna utan heimilisins til þess að endar næðu saman. Árið 1925 drukknaði faðir þeirra með togaranum Róbertson frá Hafnarfirði. Helga var þá tví- tug að aldri, og kom það í hennar hlut að vera heima við og hjálpa til við uppeldi stórs barnahóps. Guðný giftist 1942 Guðmundi Jóhanni Gíslasyni bókbindara. Þau bjuggu fyrstu hjúskaparár sín í Unuhúsi í Reykjavík, en lengst af bjuggu þau í Kópavogi. Þau eign- uðust tvö börn, Sigurlaugu, fædda 1943 og Þórð, sem fæddist 1945, og eiga þau hvort um sig tvo drengi. Guðný og Guðmundur reistu sér einbýlishús að Vallargerði 6, í Kópavogi. Það var reist af stórhug á erfiðleikaárum er ber gott vitni dugnaði þeirra hjóna. Kringum hús þeirra er einstaklega fagur og vel hirtur garður, sem vitnar um þá natni og umhyggju er ríkti á heimili þeirra. Veit ég að bæði hafa þau hjón átt margar ánægju- stundir við þessa ræktun um- hverfis síns. Guðný var félagslynd og ein- staklega tilfinningarík og hjarta- hlý kona, sem var gædd þeim sjaldgæfa eiginleika, að tala aldrei illa um nokkurn mann. Hún var og mjög rómantísk og gladdist af ein- lægni yfir hamingju og velgengni annarra. Guðný var höfðingi heim að sækja og var auðfundið að hún gladdist yfir komu gesta. Voru og margir er höfðu samband við heimili þeirra hjóna vegna félags- málastarfa Guðmundar og ein- stakrar greiðasemi þeirra beggja. Guðmundur Jóhann átti við erf- ið og langvarandi veikindi að stríða um tíma nú á seinni árum. Tók Guðný þeim erfiðleikum af miklu æðruleysi og dugnaði. Dóttursynirnir höfðu frá barn- æsku hænst mjög að afa og ömmu og voru þeir mikið á heimili þeirra. Veit ég að nærvera þeirra veitti Guðnýju ótaldar ánægju- stundir, má enda segja að barna- börnin öll hafi verið sem sólar- geislar í lífi þeirra beggja. Sjá þau nú á bak mjög ástríkri ömmu og votta ég þeim, foreldrum þeirra og t Eiginkona mín, SVEINSÍNA JAKOBSDÓTTIR, Hlíöarvegi 20, (aafiröi, veröur jarösungin frá ísafjarðarkirkju föstudaginn 13. maí kl. 2. F.h. barna, tengdabarna og barnabarna. Óli Pétursson. t Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför systur okkar, GUOBJARGAR ÞÓRARINSDÓTTUR frá Úlfsá. Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunar- og starfsfólks á Sólvangi. Systkinin. t Þökkum samúö og vinarhug viö andlát og útför fööur okkar. NIELS CARLS NIELSEN frá Seyöisfiröi. Ingibjörg Nielsen, Þorsteinn Nielsen. t Þökkum innilega vinsemd og hlýjar kveöjur viö andlát og útför, útför. GUORÚNAR EINARSDÓTTUR, Skólavöröustíg 26. Kristín Kristjónsdóttir, Gunnar Kristjónsson, Jón G. Jónsson, Kristín Hagalínsdóttir, Oddgeir Báröarson, Már Kristjónsson, Halldóra Guömundsdóttir, Guörún Hagalínsdóttir. Guðmundi Jóhanni mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Lífsferill Helgu frænku minnar varð með nokkru öðru móti en Guðnýjar systur hennar. Helga giftist aldrei og eignaðist ekki börn sjálf. Hún var hinsvegar ein- staklega barngóð kona og börn hændust mjög að henni. Hún var mjög náin mér og systrum mínum og síðar börnum okkar, en þeim reyndist hún sem mjög góð amma. Aðstæður höguðu því þannig, að nánari samskipti urðu milli mín og Helgu, en almennt gerist milli frændfólks. Sigríður móður Helgu byggði ásamt börnum sínum hús að Selvogsgötu 1 í Hafnarfirði og bjó þar síðan til dauðadags 1949. Þá voru enn á heimilinu þrjú systkinanna, Helga, Guðmundur og Herdís. Við fráfall Sigríðar ömmu minnar fluttu foreldrar mínir á neðri hæð hússins, en á efri hæð þess bjuggu þá Helga ásamt Guðmundi og Herdísi. Sam- gangur var ætíð mikill milli þess- ara tveggja heimila enda hafði Helga verið föður mínum sem önnur móðir er hann var að alast upp. Samband mitt og systra minna við þetta frændfólk á efri hæðinni varð óvenju sterkt og eru ýmsar ástæður til þess. Mætti þar nefna, að þau voru öll ógift og létu sér mjög annt um systinabörn sín auk þess sem faðir minn veiktist mikið er ég var á barnsaldri og var lengi frá vinnu. Móðir mín þurfti því að vinna úti til að sjá heimil- inu farborða. í þessum erfiðleik- um var Helga fjölskyldu minni ómetanleg stoð og stytta. Helga var mjög ákveðin og ráð- andi persónuleiki. Mun ekki ofsög- um sagt að hún hafi verið það systkinanna sem allir virtu hvað mest og gátu jafnframt ætíð leitað til ef erfiðleikar steðjuðu að. Gestrisni Helgu var viðbrugðið og heimili hennar að Selvogsgötu 1 var oft þéttsetið af ættingjum og vinum er fundu að til hennar voru Minningarorð: Guðmundur í. Guðmundsson Fæddur 7. júlí 1902 Dáinn 3. maí 1983 Nú er vinur minn Guðmundur horfinn. Á haustdögum ævi okkar beggja lágu leiðir okkar fyrst saman, er við urðum nábúar í sama fjölbýlishúsinu. Kynni okkar urðu ekki löng, aðeins rúm 11 ár. Þessi fátæklegu orð eru skrifuð til þess að þakka öldnum vini og fé- laga einlæga og trygga vináttu, sem aldrei bar skugga á. Ber þar hæst þá miklu tryggð og vináttu sem hann sýndi eiginmanni mín- um Helga, sem nú er látinn. Guðmundur var eiginmanni mínum ómetanlegur styrkur síð- ustu ár hans er hann barðist við sjúkdóm, sem að lokum lagði hann að velli. Þær eru ótaldar stundirn- ar sem hann sat hjá honum, spjallaði við hann og stytti honum þannig erfitt ævikvöld. Þrátt fyrir að erfiður sjúkdómur og hrörnun ellinnar legðust æ þyngra á vin okkar Guðmund, leið varla sá dag- ur að hann liti ekki inn til okkar. Hin síðari ár fór heilsu Guðmund- ar hrakandi og dvaldi hann þá oft í sjúkrahúsi. Á síðasta ári kom þó að því að hann gat ekki lengur búið einn og fluttist hann þá að Droplaugarstöðum, þar sem hann fékk þá hjálp og umönnun sem hann þurfti. Hann lét það þó ekki aftra sér frá áframhaldandi vin- áttutengslum. Allt fram á síðustu daga hringdi hann og spjallaði um allt milli himins og jarðar. Að Ieiðarlokum kveð ég góðan vin og félaga með söknuði, þakk- læti og virðingu. Nú bíða háns önnur heimkynni án þjáninga. Það Nefnd um eflingu snjóflóðavarna Félagsmálaráðherra skipaði hinn 3. maí eftirtalda menn til að gera tillögur um að efla varnir gegn snjóflóðum í landinu: Ásgeir Ólafsson, forstjóra, sem tilnefndur er af Viðlagatryggingu íslands. Guðjón Petersen, fram- kvæmdastjóra, sem tilnefndur er af Almannavörnum ríkisins. Helga Björnsson, jöklafræðing, sem tilnefndur er af Raunvísinda- stofnun Háskólans. Helga Hall- grímsson, forstjóra tæknideildar, sem tilnefndur er af Vegagerð ríkisins. Hlyn Sigtryggsson, veð- urstofustjóra, sem tilnefndur er af Veðurstofu fslands. Loga Krist- jánsson, bæjarstjóra, sem til- nefndur er af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Zóphónías Pálsson, skipulagsstjóra, sem tilnefndur er af Rannsóknastofnun Byggingar- iðnaðarins, og Magnús Hallgríms- son, verkfræðing, sem jafnframt hefur verið skipaður formaður nefndarinnar. Hlutverk nefndarinnar er að samræma störf opinberra aðila í þeim tilgangi að koma, svo sem unnt er, í veg fyrir tjón og slys af völdum snjóflóða og skriðufalla. Nefndin skal í starfi sínu leita samráðs við sveitarfélög og aðra allir velkomnir. Helga var trúuð kona og brýndi fyrir okkur frændsystkinum sín- um að lifa í sátt og samlyndi við guð og menn. Hún hafði og ákveðnar stjórnmálaskoðanir sem miðuðust við það að þeir sem bet- ur mættu sín í þjóðfélaginu ættu að hjálpa þeim sem stæðu höllum fæti. Helga lifði sjálf alla tíð eftir þessari trú sinni og þó að Helga hafi sjálf átt minna en flestir aðr- ir af veraldlegum efnum, þá taldi hún ætíð sjálfsagt að hún veitti alla þá hjálp og aðstoð sem eftir var Ieitað. Guðmundur, bróðir Helgu, byggði ásamt föður mínum hús að Ölduslóð 28, Hafnarfirði. Fluttu þau systkinin sem búið höfðu sam- an á Selvogsgötu 1 þangað. í nálægð hins nýja heimilis Helgu var klaustur Karmelita- reglunnar. Helga hafði áður kynnst þeim tveimur nunnum úr klaustrinu er samband máttu hafa við fólk utan reglunnar, og við nálægðina tókst með þeim mikil vinátta sem stóð uns yfir lauk. Saga Helgu eins og svo margra annarra íslenskra kvenna verður seint skráð á spjöld íslandssög- unnar. f hugum okkar sem nutum ástúðar hennar og umhyggju mun minningin um mikla konu þó lifa áfram. Helga átti við erfið veikindi að stríða síðustu æviár sín. Eins og ætíð neitaði hún þó að gefast upp og hélt reisn sinni og virðingu til hinstu stundar. Þó að okkur ættingjum hennar væri löngu ljóst að hverju drægi var fráfall hennar engu að síður öllum mikill harmur, ekki síst þeim Guðmundi og Dísu er misstu ekki einungis góða systur heldur einnig þá konu sem hafði búið þeim gott og ástríkt heimili um áratugi. Blessuð sé minning hennar. Sigríður G. Sigurbjörnsdóttir er von mín og trú að þar megi þeir hittast vinirnir og taka upp þráð- inn þar sem frá var horfið. Sonum hans, tengdabörnum og öðrum afkomendum votta ég mína innilegustu samúð. Blessuð sé minning Guðmundar í. Guðmundssonar. Megi hann hvíla í friði. Bergljót Bjarnadóttir aðila, sem hagsmuna eiga að gæta eða hlutverki að gegna í þessu efni. Einnig á nefndin að beita sér fyrir frakvæmdum á þeim sviðum, sem m.a. eru rakin í ályktun Al- þingis um heildarlöggjöf, skipulag og varnir gegn hættu af snjóflóð- um eða skriðuföllum. Áhersla er lögð á, að framkvæmdir á einstök- um liðum þingsályktunar, sem samþykkt var á Alþingi 2. apríl 1981, hefjast sem fyrst á grund- velli gildandi laga. Ef störf nefnd- arinnar leiða í ljós að þörf sé breytinga á gildandi lögum eða setningu nýrra laga, þá ber henni að gera tillögu þar um. Néfndin skal gera heildaráætl- un um aðgerðir í þessu efni svo og tillögur um tímamörk til fram- kvæmda og fjármögnun og skila fyrstu yfirlitstillögum sínum fyrir septemberlok 1982. (FrétUtilkynninK)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.