Morgunblaðið - 11.05.1983, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983
Hjólreiðadagur 1983:
Sex þúsund
hjólandi
börn á
Lækjartorgi
BÚIST KR viö ailt að sex þúsund
hjólandi börnum á Lækjartorg
hinn 28. maí næstkomandi, en þá
verður haldinn Hjólreiðadag-
urinn 1983. Nemendur grunn-
skóla í Reykjavík, Hafnarfírði,
Garðabæ, Kópavogi, Mosfelis-
sveit og Seltjarnarnesi vinna nú
að fjársofnun til styrktar starf-
seminni í Keykjadal í Mosfells-
sveit, en þar er rekið sumardval-
arheimili fyrir fotluð börn.
Er söfnuninni lýkur, munu
börnin hjóla með söfnunarkort
sín á Lækjartorg, þar sem þau
afhenda söfnunarféð og fá að
launum viðurkenningarskjal.
Það er Styrktarfélag lam-
aðra og fatlaðra, sem skipu-
leggur Hjólreiðadaginn, og er
þetta þriðja árið sem hann er
haldinn. I fyrravor komu milli
fjögur og fimm þúsund hjól-
andi börn á Laugardalsvöll, og
samkvæmt upplýsingum er
Morgunblaðið fékk í gær hjá
skipuleggjendum Hjólreiða-
dagsins í ár, er stefnt að enn
meiri þátttöku nú, eða um sex
þúsund barna.
Fjölbreytt skemmtidagskrá
verður á Lækjartorgi á Hjól-
reiðadaginn 1983, þar sem
landskunnir skemmtikraftar
og hljómsveitir koma fram, og
dregin verða út fjölbreytileg
verðlaun handa þeim börnum
er þátt taka í söfnuninni, sem
eins og fyrr segir rennur öll til
styrktar fötluðum börnum.
Fasteignaverð
hækkar minna
en verðbólgan
TÖLUVERT hefur dregið úr almennum verðhækkunum á
fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæöinu undanfarna mánuði,
samkvæmt upplýsingum í fréttabréfi Fasteignamats ríkisins.
I»ar segir, að verðhækkunin á tímabilinu október 1982 til
febrúar 1983 hafi verið um 11%.
Lánskjaravísitala hækkaði á
þessu sama tímabili um liðlega
21%, þannig að fasteignaverð hef-
ur ekki fylgt almennum verð-
hækkunum. A sama tímabili árið
á undan hækkuðu fasteignir um í
kringum 30% í verði.
f fréttabréfinu segir, að al-
mennt bendi sölukannanir til þess,
að ekki sé þensla á markaðnum,
framboð sé ríflegt og að verð fari
lækkandi þegar reiknað er á föstu
verðlagi.
Þá segir, að athugun á auglýs-
ingum fasteignasala bendi til
óvanalega mikils framboðs af ein-
býlishúsum og raðhúsum upp á
síðkastið, en ennfremur virðist
framboð á tveggja herbergja íbúð-
um vera mjög takmarkað.
Hluti gamla Vesturbæjarins:
Hámarkshraði
lækkaður í 30
kflómetra á klst.
Borgarráð samþykkti á
fundi sínum í gær með sam-
hljóða atkvæðum að lækka
hámarkshraða bifreiða úr 50
kílómetrum á klukkustund í
30 kílómetra á klukkustund á
ákveðnu svæði í gamla Vest-
urbænum. Svæðið afmarkast
af Suðurgötu, Hringbraut,
Ananaustum, Mýrargötu,
Grófinni og Aðalstræti.
og annars staðar séu hrein íbúð-
arhverfi, þar sem hraðakstur sé
óæskilegur vegna slysahættu og
hávaða. Eitt þessara hverfa sé
gamli Vesturbærinn, en þar hafi
fólki fjölgað á síðustu árum. Tals-
verður gegnumakstur sé um
hverfið, bæði umferð að og frá
Seltjarnarnesi, sem eðlilegra sé að
fari um Hringbraut eða Ána-
naust/Mýrargötu. Því sé lögð til
áðurgreind breyting.
Æ-
Obreytt staða
við Suðurlínu
„STAÐAN er í sjálfu sér óbreytt,"
sagði Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, í samtali við Mbl.,
er hann var inntur eftir stöðu mála
varðandi framkvæmdir við Suður-
línu, þannig að það kemur til verk-
stöðvunar í sumar að öllu óbreyttu.
Aðilar hafa þó verið að ræða
málin og ráðuneytin hafa lýst
áhuga sínum á því að leysa fjár-
mögnunarvandamálið, þannig að
takast megi að ljúka framkvæmd-
um í ár. Ef hins vegar ekki tekst að
leysa málið kemur því til uppsagna
liðlega 30 starfsmanna, eins og
skýrt hefur verið frá. RAX, ljós-
myndari Mbl. tók þessa skemmti-
legu mynd af framkvæmdum við
Suðurlínu á Skeiðarársandi á dög-
unum.
í greinargerð með tillögunni,
sem áður hafði verið samþykkt í
umferðarnefnd Reykjavíkur, segir
að hámarkshraði á götum borgar-
innar sé alls staðar miðaður við 50
km/klst. nema á einstaka hrað-
braut, þar sem leyfilegt er að aka
á 60 km/klst. hraða. í mörgum
borgarhverfum séu götur ekki
hannaðar fyrir nútíma bílaumferð
Davíð A. Gunnarsson um stöðuna á spítölunum í sumar:
Lendum í vandræð-
um eins og endranær
Þrennt á
sjúkrahús
Akureyri, 9. maí.
HARÐUR árekstur varð á mótum
Höfðahlíðar og Skarðshlíðar á Akur-
eyri sl. laugardagskvöld á áttunda
tímanum.
Rákust þar á tvær fólksbifreiðir
og varð að flytja þrennt í sjúkra-
hús. Meiðsli munu þó ekki eins al-
varleg og virtist í fyrstu. Báðir eru
bílarnir nánast ónýtir.
Ljósmynd: G.Berg.
„VIÐ LENDUM í vandræðum með
hjúkrunarfræðinga eins og endranær,
en ástandið er þó ekki farið að nálgast
neitt hættustig. Við munum mæta þess-
ari manneklu, eins og áður með því að
loka deildum tiltekinn tíma og færa
starfsfólk á milli," sagði Davíð Á.
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ríkis-
spítalanna í samtali við Mbl., er hann
var inntur eftir því hvernig gengi að
manna sjúkrahúsin í sumar.
Davíð sagði að deildum væri yfir-
leitt lokað í mánaðartíma í senn og
starfsliðið fært á milli. Með því tæk-
ist að halda uppi nauðsynlegri þjón-
ustu, auk þess að fá mun meiri nýt-
ingu út úr starfsliðinu en ella.
Davíð sagðist hins vegar sjá fram
á skort á hjúkrunarfræðingum f
framtíðinni með opnun nýrra stofn-
ana og benti á B-álmu Borgarspítal-
ans í því sambandi.
Aðspurður um áhrif orlofsleng-
ingar starfsfólks, sagði Davíð þau
enn nokkuð óljós. Reynslan myndi
skera úr um það. Hins vegar væri
auðvitað ljóst, að orlofslengingin
myndi skapa ákveðin vandamál, en
ekki væri hægt á þessu stigi að segja
um hversu mikil.
Stöðugildi hjá Ríkisspítölunum
eru um 1.800, en starfsmenn eru um
2.300 talsins um þessar mundir, þar
af töluverður fjöldi í hlutastörfum.
Reyna karfa-
sölu til Japan
Skagstrendingur hf. á Skagaströnd
sendi fyrir skömmu hálfa lest af heil-
frystum karfa fíugleiðis til Japans.
Með því er verið að kanna möguleika á
Hveragerði:
Sinueldur í skógræktinni
Hveragerdi, 10. maí.
SLÖKKVILIÐIÐ í Hveragerði var
kallað út síðdegis í gær til að
slökkva sinueld í skógræktargirð-
ingu bæjarins, sem er í hlíðinni
sunnan í Hamrinum. Höfðu lítil
börn verið þarna að leik.
Fréttaritari Morgunblaðsins
hitti að máli Bjarna Eyviridsson,
slökkviiiðsstjóra, og sagði hann,
að vel hefði gengið að ráða niður-
lögum eldsins, en þarna hefði ver-
ið heilmikið bál. Skemmdir hefðu
orðið nokkrar á gróðri, en þó
hefðu þær orðið meiri, ef kviknað
hefði í austar í hlíðinni, þar sem
trén eru eldri og stærri. Plantað
var í staðinn, sem brann í fyrra-
sumar og plöturnar því smáar.
Bjami kvað svona útköll árleg-
an viðburð, á hverju vori væri
kveikt í sinu. Til dæmis hefði oft
verið kveikt í skógræktinni á
Reykjum í Ölfusi. Á síðasta
sumri hefði slökkviliðið barizt við
eld í gróðri á Hellisheiði í margar
klukkustundir. Var álitið að fóik,
sem var þar rétt áður á gangi
milli sumarbústaða, hefði af van-
gá fleygt logandi vindlingi í þurr-
an mosann. Kvaðst Bjarni vilja
koma þeirri beiðni á framfæri, að
fólk færi með gætni um heiða-
löndin, þar væri víða ófært með
öll slökkvitæki og gæti því einn
lítill vindlingastubbur valdið
miklu tjóni. Þá væri aldrei of
brýnt fyrir foreldrum, að gæta
vel að eldfærum á heimilum sin-
um, svo börn næðu ekki til þeirra,
sjálfum sér og öðrum til tjóns.
slíkum útflutningi í talsverðum mæli.
Ekki er enn Ijóst hver árangur af þess-
ari tilraunasendingu hefur orðið.
Að sögn Sveins Ingólfssonar,
framkvæmdastjóra Skagstrendings,
er hér um þá nýbreytni frá fyrri
sölutilraunum í Japan að ræða, að
karfinn er heilfrystur og hreinsaður
um borð í frystitogara fyrirtækisins,
Örvari. Með því móti er karfinn
frystur aðeins um klukkusstund eft-
ir að hann veiðist. Með því varðveit-
ist betur hinn rauði litur karfans,
sem Japanir sækjast svo mjög eftir.
I fyrri tilfellum hefur verið reynt að
selja Japönum karfa, sem legið hefur
í togskipum einhverja daga og hefur
það dregið bæði úr gæðum fisksins
°8lit;- . . .
Sagðist Sveinn vonast til, ef til-
raun þessi tækist vel, að fá mætti
nokkru hærra verð fyrir karfann en
hér heima. Ef af þessu yrði, yrði
karfinn fluttur sjóleiðis til Japans i
frystigámum.