Morgunblaðið - 11.05.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983
Fáksfélagar
Hin árlega Hlégarðsferö verður fimmtudaginn 12. maí.
Lagt af stað frá Víðivöllum kl. 13.30.
He8tamannafélagiö Fákur.
Eftirtöldum félögum, sem gert hafa mig undirritaöan
aö heiöursfélaga sínum á undanförnum árum, þakka ég
heiöur þann og velvilja sem þau hafa sýnt mér:
Stúkan Víkingur nr. 101*, Verslunarmannafélag Reykja-
víkur, Sölumannadeild VR., Átthagafélag Sandara,
Stúkan Andvari nr. 265, Sjálfstæöisfélagiö í Hóla- og
Fellahverfi.
Ennfremur þakka ég öllum þeim, sem heimsóttu mig og
færöu mér blóm og gjafir, eöa sendu mér heillaóska-
skeyti á 95 ára afmæli mínu þann 30. ajrríl sl.
Lifiö heil.
Axel Clausen.
KÆRLEIKUR
og
SUBSTRAL
er allt sem
blómin þín þurfa.
HEILDSÖLUBIRGÐIR
ÍSLEMZKA VERZLUHARrÉLAGlÐ HF
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
ÁRMÚLA 24 - P.O. BOX 1391
SlM119943
105 REYKJAVÍK
SUBSTRAL og BLOMIN
GEFA BLÓMUNUM ÞÍNUM
.LENGRA OG BETRA LÍF.
Womin
Blomin
* t
Handunnar Olíukolur
í steinleir.
VERÐ AÐEINS
GLIT KR. 148,-& 245,-
Höfðabakka 9,
Reykjavík. S. 85411
Mannlegt —
en ekki stór-
mannlegt
Tíminn segir m.a. í for-
ystugrein í gær:
„Þegar formadur Sjálf-
stæðisflokksins ræddi við
forystumenn Alþýðubanda-
lagsins í upphafi þeirra við-
ræðna, sem fram hafa farið
að undanfornu, drógu Al-
þýðubandalagsmenn upp
gömiu duluna um herinn
og álið og flugstöðina og
notuðu það sem átyllu til
þess að komast hjá þvf að
ræða efnahagsvandann af
ábyrgð við aðra flokka. Er
nú almennt talið að Al-
þýðubandalagsmenn ætli
sér hvað sem tautar og
raular að vera utan stjórn-
ar það erfiðleikatímabil,
sem framundan er í efna-
hagsmálum. Það mun þá
ætlun þeirra að græða
flokkslega á þeim erflð-
leikum sem við er að fást
og stefna svo að því að setj-
ast í ráðherrastólana þegar
aðrir flokkar hafa unnið
það verk að vinna bug á
erflðleikunum."
Eftir Ijögurra ára sam-
starf við Alþýðubandalagið
þykjast framsóknarmenn
þess umkomnir að lesa for-
ystumenn þess „ofan í
kjölinn“. Vera má að und-
ansláttur Alþýðubanda-
lagsins sé mannlegur, en
ekki er hann stórmannleg-
ur. „Heybrókarháttur" hét
slfk hlédrægni á alþýðu-
máli fyrrum.
„Flýr af hólmi
og felur sig“
Tíminn heldur áfram að
sálgreina Alþýðubandalag-
ið:
„f raun og veru þarf
þessi afstaða Alþýðubanda-
íagsins ekki aö koma á
óvart l»að hefur alltaf ver-
ið stcfna þess flokks að
vera í stjórn þegar vel árar
og ausa úr þeim sjóðum,
sem til eru, en hverfa síðan
í stjórnarandstöðu þegar
crflðleikar steðja að, eins
og nú þegar aflabrestur og
sölutregða snarminnkar
m litur raunsatt á
| manna þingflokkur með un-
a bak við sif
«/s7«3
•»«ði við okkur. þá
ar að stefnu eigin
•» fyrr kosnmgar
hafa haldið. að
„...aft þríggja manna þingflokkur með
ung samtök á bak við sig hefur ekkert i
nkisstjorn að gera, nema því aðeins að hann
geti sýnt fram á verulegan árangur og það
tiltöluiega fljétt...” „Fréttir MorgunbiaOams
Svo s*m venja er hafa frettir af'
■ stjómmálaviðræðum undanfarna
" daga einkennst af getgatum. og
morgum tllvflium hyfur vetlð um
n geti syM fram a vrrulegan V—-|" MMMT* fð raða esatim i
ir og það tikoiUega fljott Af ^
að vera fastar fynr
áreiðanleika I
blaðs af
lulkruar gon.ki flokkanna viðræðum eru ,.fnáre.ðanlegar og
l raunar ekki hafa gert ser þw. vrf*oma KvennahManum,
gretn fynr markmiðum er auglpmlega ekki hið mmnaU
fnnalislans. enda ef tU vtU ekki mark á þeun Ukandi Þetta bið fg
Iþvi að buast Eins og formaður aUa stuðmngsnænn KvennaUsUns
" aöhafai huga
ÆUa mætti. að óábyrg skrif
Morgunblaðsins hafi þann tUgang að
reyna að skapa ðemmgu innan
imtaka um kvennaltsU Su tilraun
Orökstudd gífuryrði
Það er að vonum fylgst með því, hvert er
innlegg nýrra þingflokka í þjóðmála-
umræðu, sem gjarnan mætti járóast til
meiri ábyrgðar og háttvísi. Kristín Hall-
dórsdóttir, þingmaður kvennalista, lætur
Ijós sitt skína í kjatlara Dagblaösins Vísis
í fyrradag. Þar segir hún m.a.: „Svo sem
venja er hafa fréttir af stjórnmálaviðræð-
um undanfarna daga einkennst af get-
gátum, og í mörgum tilvikum hefur verið
um hreinan uppsþuna að ræða, einkum í
Morgunblaöinu, sem hæst gumar viö
hvert tækifæri af ábyrgð sinni og áreið-
anleika ...“ — Ekki sýnir þingmaöurinn
lesendum sínum þá lágmarksháttvísi að
finna orðum sínum stað, tína til dæmi
þeim til staðfestingar, heldur slær fram
órökstuddum gífuryrðum. Það er einmitt
umræða af þessu tagi sem sem er sýn-
ishorn af því lága og lítilmótlega í íslenzk-
um stjórnmálum og blaðamennsku.
Kristín Halldórsdóttir og samherjar henn-
ar á vinstra kantinum hafa haft alla
möguleika á því aö koma sjónarmiðum
sínum á framfæri hér í blaðinu og leið-
rétta það, sem þeim hefur þótt aflaga
fara. En blaðinu er ókunnugt um nokkra
tilburði í þá átt — og hefur ekki komið á
framfæri öðrum fréttum af stjórnarmynd-
unarviðræðum en þeim er það veit rétt-
astar. Hitt er annað mál, eins og fram
kom í kosningabaráttunni, að pólitískur
kompás sumra samherja Kristínar Hall-
dórsdóttur hefur verið misvísandi og
stefnan óljós í þeim tilgangi einum, að
atkvæðaveiðar bæru meiri árangur en
málefnaleg stefnumótun í viðkvæmum og
erfiðum pólitískum málum. Af þeim sök-
um hefur stundum verið erfitt fyrir fjöl-
miðla að festa hönd á grundvallarsjón-
armiðum þessarar nýju hreyfingar
kvenna úr öllum stjórnmálaflokkum. Þær
ættu marka sína stefnu, t.d. í varnar- og
öryggismálum eða efnahagsmálum, svo
að óyggjandi sé.
þjóðartekjur landsmanna."
Já, Ijótt er ef satt er lýst
gangi mála í fráfarandi rík-
isstjórn. En eftirtektarvert
er að Tíminn talar ekki um
„móðuharðindi af manna-
völdum“, eins það eitt sinn
hét á þeim bæ. En höldum
áfram með lýsingu hans á
Alþýöubandalaginu.
„Alþýöubandalagiö er
hins vegar sá eini hinna
hefðbundnu stjórnmála-
flokka, sem flýr af hólmi
og felur sig í stað þess að
ræða af ábyrgö við aðra
flokka um það, sem gera
verður til þess að halda
framleiöslunni gangandi,
tryggja fulla atvinnu og
verja lífskjör þeirra sem
lakast eru settir. Þetta
ábyrgðarleysi Alþýðu-
bandalagsins, sem nú sker
það frá öðrum stjórnmála-
flokkum, eiga landsmenn
að dæma að verðleikum
næst þegar þeim gefst
tækifæri til í almennum
kosningum ... Alþýðu-
bandalagið hefur enn sem
komið er forðast eins og
heitan eldinn að leggja
fram raunhæfar tillögur
um nauðsynlegar aðgerðir
1. júní. Leggi þeir ekki
fram slikar tillögur allra
næstu daga hafa þeir dæmt
sig úr leik sem ábyrgt
stjómmálaafl."
Að ganga
rösklega
til verks
Alþýðublaðið segir í leið-
ara í gær „að mikilvægt sé
að ganga rösklega til verks
við myndun nýrrar ríkis-
stjórnar. Því miður verður
ekki séð að slík vinnu-
brögð hafl verið í heiöri
höfð...“ Getur verið að
Alþýðublaðið sé hér undir
rós að gera lítið úr því
„innleggi" þingflokks Ai-
þýðuflokksins til „rösk-
Íegra vinnubragða" í
stjórnarmyndunarviðræð-
um, að krefjast þess að Al-
þýðuflokkurinn, eða það
lítilræði sem eftir er af
honum, fái forsætisráð-
herra í komandi ríkis-
stjórn?
Gamlir hjallar rifnir
NÚ ER búiA að rífa gömul íbúðar-
hús, sem Reykjavíkurborg átti
vestast á Vesturgötunni. Þar bjó
áður fólk, sem borgin útvegaði hús-
næði, en þar sem húsin voru ekki
fbúðarhæf voru þau rifin.
Það var hreinsunardeild borg-
arinnar, sem sá um að rífa húsin,
en beiðni um það barst bygginga-
nefnd ekki fyrr en það var búið.
Vegna þess gerði bygginganefnd
þá bókun á fundi sínum þann 4.
maí, að hún harmaði, að ekki
hefði verið farið að starfsreglum
og sótt um leyfi fyrr en að niður-
rifi loknu. Þá lá fyrir beiðni um
niðurrif og var hún samþykkt
þrátt fyrir áðurnefnda ann-
marka.
Samkvæmt reglum bygginga-
nefndar skal sækja um leyfi til
niðurrifs húsa og fylgja hug-
myndir um hvað komi í staðinn.
Bygginganefnd leitar síðan álits
umhverfismálaráðs áður en
niðurrif er samþykkt. Ekki ligg-
ur fyrir hvað komi í stað hús-
anna.