Morgunblaðið - 11.05.1983, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ1983
Minnkandi fylgi
við Mitterrand
París, 10. maí. AP.
EF EFNT væri til kosninga í Frakklandi nú myndu 23% þeirra, sem kusu
Mitterrand forseta í sídustu kosningum, ekki kjósa hann aftur. Kemur þetta
fram í skodanakönnun, sem birt var í dag.
Könnunin var gerð fyrir tíma-
ritið Paris Match og náði til 970
kjósenda, sem kusu Mitterrand í
síðustu kosningum árið 1980. 63%
kváðust mundu styðja hann aftur,
15% voru óákveðnjr en 23% ætl-
uðu að kjósa -annan flokk. Fyrir
einu ári sögðust 83% stuðnings-
manna Mitterrands 1980 mundu
kjósa hann aftur.
Mjög hefur hallað á Mitterrand
og jafnaðarmenn í skoðanakönn-
unum að undanförnu og er það
fyrst og fremst rakið til efnahags-
erfiðleikanna og strangra að-
haldsaðgerða stjórnarinnar. Rúm-
um helmingi vinstrisinnaðra kjós-
enda í Frakklandi finnst stjórnin
hafa staðið sig illa og aðeins 20%
gefa henni gott orð. Miklar mót-
mælaaðgerðir hafa verið gegn
ráðstöfunum stjórnarinnar en
Mitterrand hefur hvatt fólk til að
virða „vald ríkisins" og dregur
enga dul á, að hann ætli að sjá til
að svo verði.
Reagan Bandaríkjaforseti:
Hvetur þingið til
að fallast á MX
PBRIKEICTBMR— - —
"HERRfl PRLME í É(x HELD É6 SÉ BÚINN R9 FINNR EINN"
Kosningabaráttan í Bretlandi á fulla ferð:
Breska íhaldsflokknum
er spáð öruggum sigri
Lundúnum, 10. maí. AP.
KOSNINGABARÁTTAN í Bretlandi er þegar í stað komin á fullan skrið.
Þingkosningarnar, sem boðaðar hafa verið 9. júní eru þær 12. í röðinni í
Bretlandi frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Axhland, Ohio, 10. maf. AP.
RONALD Reagan, Bandaríkjafor-
seti, sagði í ræðu í gær, mánudag, að
ef MX-eldflaugunum yrði ekki kom-
Fjórar spreng-
ingar í Belfast
Belfast, 10. maí. AP.
FJÓRAR sprengjur sprungu á
nokkrum mínútum í Belfast í gær-
kvöld að sögn lögreglu. Þá var sveit
sprengjusérfræðinga hersins kvödd
á vettvang til að fást við fimmtu
sprengjuna.
Að sögn lögreglunnar bárust
nafnlausar hringingar, þar sem
varað var við sprengingunum, sem
öllum var komið fyrir í viðskipta-
byggingum. Sprengjurnar sem
sprungu voru í ýmsum verslunum.
Talið er að sprengingar þessar
kunni að standa í tengslum við
dauða Bobby Sands, sem svelti sig
til bana innan fangelsismúranna
til þess að mótmæla aðbúnaði
fanga.
ið upp myndi það hafa afdrifaríkari
afleiðingar fyrir öryggi Bandaríkj-
anna en nokkuð það, sem væri á
færi erlends stórveldis.
Reagan flutti ræðuna í Ashland
í Ohio og hvatti þingið til að koma
ekki í veg fyrir endurnýjun í
kjarnorkuvopnaheraflanum, að
samþykkja MX-áætlunina og
smíði lítiilar eldflaugar með ein-
um kjarnaoddi.
„Ég trúi því staðfastlega, að
þetta sé nauðsynlegt til að komið
verði á raunhæfu eftirliti með
vígbúnaði og til að tryggja fram-
tíðaröryggi þjóðarinnar. Þá aðeins
semja Sovétmenn þegar þeir eru
vissir um, að okkur er alvara. Við
smíðum ekki eldflaugar til að
koma af stað stríði, heldur til að
halda friðinn," sagði Reagan.
Þingið mun ákveða í lok þessa
mánaðar hvort af smíði hinna
stóru MX-eldflauga verður en þær
eru búnar 10 kjarnaoddum hver.
Þingið skar niður fjárveitingar til
þeirra á síðasta ári og var það ekki
síst áætlað fyrirkomulag eða stað-
setning þeirra, sem því olli.
Sendisveinar og sjálfboðaliðar
flokkanna sáust víða á þönum um
borgir og bæi, þar sem þeir voru
ýmist að hengja upp áróðursspjöld
eða að bera kosningabæklinga í
hús. Mikið liggur við því undir-
búningstími hefur aldrei verið
skemmri í breskri kosningasögu.
„Það var orðið óþolandi fyrir
fólkið, að vita ekki upp á hár
hvaða dag kosið yrði,“ sagði Mar-
grét Thatcher, forsætisráðherra,
við fréttamenn loks þegar endi var
bundinn á tveggja mánaða óvissu-
tímabil.
Þrátt fyrir þau ummæli Michael
Foot, leiðtoga Verkamannaflokks-
ins, að Thatcher hafi verið neydd
af almenningi til þess að efna til
kosninga bendir ekkert til annars
en að hún og íhaldsflokkur hennar
verði yfirburðasigurvegarar í
kosningunum.
f þeim skoðanakönnunum, sem
fram hafa farið, fær íhaldsflokk-
urinn 8—13% meira fylgi en
Verkamannaflokkurinn. Þá þykir
fréttamönnum vert að veita stöð-
unni hjá veðmöngurunum athygli.
Þeir eru greinilega fullvissir um
sigur Thatcher því veðmálin eru
yfirleitt 1 gegn 5 eða 2 gegn 9.
Farþegar
þotunnar
heim á leið
Seoul, 10. maf. AP.
FARÞEGAR kínversku þotunnar, sem
rænt var í innanlandsflugi og flogið til
Seoul, flugu allir heimleiðis í dag eftir
6 daga dvöl í Suður-Kóreu. Alls er um
95 farþega að ræða, auk áhafnar vélar-
innar. Samkomulag náðist í gær á milli
yfirvalda í Suður-Kóreu og Kína, um
að þotunni, með öllum farþegunum og
áhöfn vélarinnar, yrði flogið aftur til
heimalandsins.
Upphaflega stóð til, að þotan sneri
heimleiðis í fyrradag, en þá komu
upp einhverjir erfiðleikar, sem
seinkuðu brottför vélarinnar. Þetta
er í fyrsta sinn sem opinbert sam-
komulag af einhverju tagi er gert á
milli yfirvalda í Kína og Suður-
Kóreu. Talið er, að samkomulag
þetta kunni að ryðja brautina fyrir
frekari tengsl á milli þjóðanna.
Tveir af áhöfn vélarinnar særðust
í flugráninu og liggja enn á sjúkra-
húsi í Seoul. Öðrum þeirra verður
leyft að halda heimleiðis innan
skamms, en hinn þarf að ganga und-
ir erfiða aðgerð áður en honum verð-
ur leyft að fara til síns heima.
Af flugræningjunum sex er það að
segja, að þeir verða geymdir á bak
við lás og slá í Seoul þar til þeir
verða dregnir fyrir dóm. Flugrán
þetta er hið fyrsta í sögu Kína.
Atvinnuleysið
3,6% í Noregi
Osló, 10. maí. AP.
ATVINNULEYSI f Noregi reyndist
3,6% í apríl og hefur aukist um 2,2% á
aðeins einu íri. Þó er hér um jákvæð
tfðindi fyrir Norðmenn að ræða því at-
vinnuleysið var 4% í mars.
Þótt fækkun hafi orðið á milli
mánaða hefur atvinnulausum á með-
al ungs fólks fjölgað meira en 50%
frá því í apríl á sfðasta ári.
Samningaviðræðunum f Líbanon miðar hægt:
Skilyrði Sýrlendinga og PLO
tefja fyrir brottflutningi
Beirút, 10. maí. AP.
NÚ ÞEGAR samkomulag við fsraela um brottflutning herja þeirra frá
Líbanon er nánast komið í höfn hyggur Amin Gemayel, forseti landsins, á
enn frekari þrýsting á Sýrlendinga til þess að fá þá til að kalla her sinn til
baka.
Þó svo fsraelar hafi samþykkt
tillögur um brottflutning „að
nafninu til“ er næsta víst að þeir
hreyfa ekki við '25.000 manna
herliði sínu fyrr en ljóst er, að
Sýrlendingar og PLO muni fara
að dæmi þeirra og fylgja í kjöl-
farið.
Bæði Sýrlendingar og PLO-
menn hafa þegar gagnrýnt sam-
komulag Líbana og ísraela harð-
lega og nefna það uppgjöf af
hálfu Líbana og að í því felist
óviðunandi viðurkenning á inn-
rás ísraela í landið fyrir ári.
Róðurinn hertur
Gemayel hefur skipað svo
fyrir, að þráðurinn verði tekinn
upp að nýju í viðræðum við sér-
lega sendimenn Bandaríkja-
stjórnar, þá Philip C. Habib og
Morris Draper, I þessari viku, til
þess að varpa frekara ljósi á þau
atriði, sem fsraelar hafa krafist
að skýrð yrðu betur.
Ljóst er af öllu, að Gemayel
ætlar sér að flagga undirskrifuð-
um samningum við fsraela áður
en hann leggur út í frekari við-
ræður við Sýrlendinga með ein-
dreginni ósk um að þeir fylgi
fordæmi ísraelanna. Gemayel
hefur lýst því yfir, að hann muni
ekki sætta sig við neitt gæslu-
liðshlutverk Sýrlendinga né ann-
arra á líbönsku yfirráðasvæði.
Þótt enn bóli ekkert á brott-
flutningi herja §ýrlendinga og
PLO hafa báðir þessir aðilar lýst
því yfir fyrir löngu, að þeir séu
reiðubúnir til að senda herlið
sitt á brott hvenær sem er.
Það var hins vegar ekki fyrr
en nálgast tók samkomulag í við-
ræðum Bandaríkjamanna, fsra-
ela og Líbana, að Sýrlendingar
og PLO gerðu skilyrði sín fyrir
brottflutningi ljós.
Yfirmenn PLO gerðu það að
kröfu sinni, að öryggi þeirra Pal-
estínumanna, sem yrðu eftir í
Líbanon, yrði tryggt með hlið-
sjón af fjöldamorðunum í flótta-
mannabúðunum við Beirút í
september síðastliðnum. Síðan
fylgdi, að PLO myndi yfirgefa
Líbanon um leið og Israelar
væru farnir, en fyrr ekki.
Fylgja Sýrlendingum
Þrátt fyrir yfirlýsingar PLO-
manna telja flestir vestrænir
diplómatar og fréttaskýrendur,
Forseti Sýrlands, Hafez Assad (tv.) á fundi með George P. Schultz,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
að þeir muni fylgja ákvörðun
Sýrlendinga í einu og öllu, óháð
því hver hún kann að verða.
Sýrlendingar hafa á hinn bóg-
inn lýst því yfir, að þeir muni
ekki samþykkia neitt, sem feli í
sér ávinning ísraela af einu eða
öðru tagi. Þá ekki heldur neitt,
sem felur í sér átroðning á líb-
önsku yfirráðasvæði eða stofnar
öryggi Sýrlands á einhvern hátt
í hættu.
Þá benda Sýrlendingar einnig
á þá staðreynd, að þar sem vera
herliðs þeirra í Líbanon frá ár-
inu 1976 hafi verið samþykkt á
toppfundi Arababandalagsins
með þeir orðum, að um væri að
ræða „gæslulið Araba“, gæti að-
eins samþykkt samskonar fund-
ar skipað þeim að hafa sig á
brott.
Gemayel hefur brugðist illa
við þessari röksemdafærslu
Sýrlendinga og undirstrikqð, að
Líbanon sé frjálst ríki, sem tek-
ur sínar eigin ákvarðanir og líð-
ur ekki íhlutun erlendra ríkja í
innanlandsmálefni. Virðist
greinilegt á flestum ummælum
forsetans þessa dagana, að hann
beini spjótum sínum að þeim
viðhorfum Sýrlendinga, að þeim
sé mjög annt um öryggi Líbana.