Morgunblaðið - 11.05.1983, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983
1000
KfíÓNURÚT
Philips ryksugur.
2JA ÁRA BYRGÐIR AF POKUM
Félagslegi grunnurinn lyk-
illinn að ódýrari ferðum
eftir Eystein Helga-
son
Ingólfur Guðbrandsson, for-
stjóri Útsýnar, kveður sér enn á
ný hljóðs í Mbl. sl. fimmtudag og
að þessu sinni hverfur hann nokk-
ur ár aftur í tímann til þess að
leita snöggra bletta á Samvinnu-
ferðum-Landsýn. Auðvitað gætu
aðrar ferðaskrifstofur í langan
tíma dundað sér við álíka sögu-
rannsóknir á starfsemi Útsýnar á
liðnum árum, þaðan sem margs er
að minnast, en Samvinnuferðir-
Landsýn a.m.k. kemur ekki auga á
nokkurn tilgang með skrifum um
slíkt á opinberum vettvangi. Hér
verða því ekki eltar ólar til þessar
langsóttu tilraunir við að kasta
rýrð á Samvinnuferðir-Landsýn,
SYNINGARFERÐ
MEÐ
SÍÐUSTU
LAPPANA
Síðustu Lapplanderbílarnir frá Volvo verða seldir
næstu daga á sérstöku verði, aðeins 198.496.00
krónur (gengi 6/5 ’83, óyfirbyggðir). Kristján
Tryggvason, þjónustustjóri Veltis hf. verður með tvo
glæsilega Volvo Lappa í ferð sinni til umboðsmanna
víðsvegar um landið.
Kristján sýnir Lapplander Turbo með vökvastýri,
læstu drifi og innbyggðu spili. Hann kynnir líka
möguleika á stálhúsi auk blæjuhúss. Þetta er
einstakt tækifæri fyrir bændur og aðra fram-
kvæmdamenn, hjálparsveitir og fjallamenn - og alla
þá sem vilja notfæra sér þetta einstæða tækifæri.
Kristján sýnir Lappana:
10. maí Höfn í Hornafirði
11. - 12. maí Suðurfirðir
og Fáskrúðsfjörður
en óhjákvæmilegt er engu að síður
að benda á örfá atriði sem máli
skipta fyrir þá sem e.t.v. hafa
áhuga á að fylgjast með þróun í
íslenskum ferðamálum.
(itsýnarsætin hjá
Úrval og Atlantik
Ingólfur rifjar upp þá löngu
liðnu tíð er Samvinnuferðir-
Landsýn keypti sæti af Utsýn til
Spánar. Síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar og eðlilegt er að
láta þess getið um leið og horfið er
þannig aftur í tímann að í dag er
staðan sú að samdráttur í sólarl-
andaferður Útsýnar er verulegur.
Þannig hefur Útsýn orðið að fella
niður eigin ferðir til Mallorca allt
fram í ágústmánuð og kaupir í
staðinn nokkur sæti af Úrval og
Atlantik í hverri ferð. Leiguflugið
til Sikileyjar var sömuleiðis fellt
niður löngu áður en Etna fór að
gjósa en á sama tíma heldur
Samvinnuferðir-Landsýn uppi
sjálfstæðum vikulegum ferðum af
fullum krafti til sólarstranda á
Rimini og Grikklandi auk hinna
ómissandi ferða til Portoroz.
Heiðarleg satnkeppni
öllum til góðs
Útsýnarforstjórinn notar ótrú-
legustu aðferðir og svífst einskis
til þess að gera lítið úr hinum fé-
lagslega grundvelli sem Sam-
vinnuferðir-Landsýn starfar á. Sá
grunnur er einmitt helsta stolt
ferðaskrifstofunnar. Hún hefur,
ólíkt keppinautum sínum, allt
annað en hámörkun ágóða að leið-
arljósi. Einmitt þess vegna hefur
tekist að bjóða ódýrari ferðir, fjöl-
breyttara ferðaval og ýmsar nýj-
ungar, t.d. sama verð fyrir alla
landsmenn. Margsinnis hefur
komið í Ijós að sú samkeppni sem
Samvinnuferðir-Landsýn veitir í
sívaxandi mæli hefur orðið öðrum
ferðaskrifstofum hvatning og ís-
lenskum ferðalöngum til góðs.
Sumarhúsin aldrei vinsælli
Allar upplýsingar um minnk-
Eysteinn Helgason
„Eðlileg viðmiðun við
3ja vikna leiguflugferðir
til sólarlanda getur aldr-
ei verið fullt áætlunar-
flugfargjald flugfélag-
anna. Til þess eru sér-
fargjöldin alltof mörg.“
andi aðsókn í sumarhús eru bein
og vísvitandi ósannindi. Sam-
vinnuferðir-landsýn hefur f ár
stóraukið framboð sitt á sumar-
húsum frá því sem verið hefur og
mun alls verða með 127 hús á
fastri leigu yfir alla sumarmánuði
þessa árs og raunar 170 hús alls
þegar mest er. Hvorki meira né
minna en um fimm þúsund íslend-
ingar munu dveljast í þessum hús-
um og þrátt fyrir þetta stóraukna
framboð hafa sumarhúsin aldrei
selst jafn hratt. Strax í aprílmán-
uði var raunar orðið uppselt í nær
allar ferðir bæði til Danmerkur og
Hollands.
Útsýnar-sumarhús
á næsta ári?
Sölustjóri Sporthuis Centrum í
Hollandi, Tom Tielroy, hefur stað-
fest að fulltrúi Útsýnar hafi í
febrúarmánuði sl. hringt og falast
eftir sumarhúsum strax á þessu
ári. Fékk hann þau svör að Sam-
vinnuferðir-Landsýn hefði tryggt
sér einkarétt á sölu þeirra næstu
þrjú árin skv. samkomulagi frá
því í ágúst 1982. Vonandi verður
Útsýn fyrr á ferðinni í leit sinni að
alvöru sumarhúsum í Evrópu fyrir
árið 1984. Samkeppni á þessu sviði
ferðalaga er sjálfsögð og íslensk-
um ferðalöngum vafalaust fagnað-
arefni.
Verðblekkingar Útsýnar
Réttlæting Útsýnar á verð-
blekkingum sinum er afar máttlít-
il vekur hneykslan allra þeirra
sem til ferðamála þekkja. Eðlileg
viðmiðun við 3ja vikna leiguflugs-
ferðir til sólarlanda getur aldrei
verið fullt áætlunarflugsfargjald
flugfélaganna. Til þess eru sérfar-
gjöldin alltof mörg. Þau eru hinn
eini eðlilegi viðmiðunargrund-
völlur og með því að halda ein-
hverju öðru til streitu er Ingólfur
Guðbrandsson annað tveggja að
villa mönnum vísvitandi sýn eða
afhjúpa opinberlega algjöra van-
þekkingu sína á „fargjaldafrum-
skóginum".
Punktur
Samvinnuferðir-Landsýn setur
hér með punkt aftan við ritdeilur
við Ingólf Guðbrandsson um
markaðsmál. í stað gífuryrða er
íslenskum ferðaskrifstofum áreið-
anlega hollara að snúa bökum
saman og vinna sameiginlega að
því marki að opna Islendingum
sem greiðasta leið til annarra
landa og ekki síst þegar illa árar í
þjóðfélaginu. Þá reynir einmitt á
útsjónarsemi og samstöðu.
Höíundur greinarinnar, Eysteinn
Helgason, er íramkræmdastjóri
Samvinnuferda-Landsýnar.
Álafoss kynnir ullarfatnað í Frakklandi
París í aprfl.
NÝJUNG var á ferðinni hjá Álafoss
hf. í París f síðustu viku. Þetta var
kynningá ullarfatnaði frá fyrirtæk-
inu sem tískuframleiðsluvara undir
nafninu Álafoss, og sagði Sigurður
B. Sigurðsson, sölustjóri hjá Ála-
fossi, að með svona kynningu væri
von sín, að nafnið Álafoss yrði þekkt
framleiðslumerki frá íslandi.
Svona sýningar hefur Álafoss
verið með í Bandaríkjunum og
Skandinavíu og ef vel tekst í Par-
ís, mun fyrirtækið reyna þessar
sýningar víðsvegar um Frakkland.
Nýja lína Icewool hefur breyst,
hún hefur fengið tískuyfirbragð
en hinar sigildu vörur seljast allt-
af.
Heimsókn forseta íslands til
Frakklands hefur haft mikið að
segja á sölu islenskrar vöru í
heild, en Frakkar gera sér ekki
grein fyrir því hvað við getum
boðið," bætti Sigurður við. „Með
svona kynningum er verið að
mennta viðskiptavininn og skapa
áhuga á landi og þjóð.“
Á sýningunni lágu frammi fal-
legir bæklingar í litum frá Flug-
leiðum. Model 79 sýndi fatnaðinn
og eiga þau hrós skilið fyrir sinn
þátt í kynningunni en hópurinn er
afar líflegur og samstilltur.
Hann skipa Brynja Norkvist,
Helga Möller, Kristín Davíðsdótt-
ir og Reynir Kristinsson.
Anna Nissels