Morgunblaðið - 11.05.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983
27
Úr nýtísku hænsnabúi. Hér á landi eru 108 þúsund varphænur í fjórum
stærstu búunum.
Offramleiðsla á eggjum:
Myndi nánast verða
úr sögunni með
betra dreifíngarkerfí
— segja talsmenn einkasölukerfis á eggjum
orframleiðsla er nú á eggjum hér á landi, samkvæmt upplýsingum er fram
komu á blaðamannafundi sem Framleiðsluráð landbúnaðarins og nefnd á
vegum eggjaframleiðenda um stofnun einkasölu á eggjum, boðuðu til nýlega. Á
fundinum kom einnig fram, að offramleiðslan væri mestmegnis bundin við
landshluta, sem unnt væri að komast að verulegu leyti fyrir, með stofnun
dreifingarmiðstöðvar á eggjum, er tæki til alls landsins. Á fundinum kom
einnig fram, að hin síðari ár hefur aðeins einu sinni orðið skortur á eggjum hér
á landi, en það var í eina til tvær vikur fyrir jól 1980.
Blaðamannafundurinn var að
sögn þeirra er til hans boðuðu,
einkum til að leiðrétta ýmislegt,
sem sagt hefur verið og skrifað um
stofnun eggjasölusamlags og veit-
ingu heildsöluleyfis til Sambands
eggjaframleiðenda. Sögðu fundar-
boðendur margt í þessari umræðu
„byggt á vanþekkingu og sumt á
misskilningi". Væri tímabært að
skoða málið í ljósi staðreynda „en
ekki tilfinninga eða ímyndana
einna“. Á fundinum kom fram, eins
og áður hefur verið gerð grein fyrir
í fréttum Morgunblaðsins, að
ágreiningur er innan Sambands
eggjaframleiðenda, um hvort koma
skuli á einkasölu á eggjum eða
ekki. Andstæðingar þess að Sam-
bandi eggjaframleiðenda verði
fengið heildsöluleyfi segja m.a. að
slíkt sé óþarft, og muni leiða til
stórhækkaðs eggjaverðs. Jón Guð-
mundsson á Reykjum, Jón Gíslason
á Hofi og fleiri, sem til fundarins
boðuðu í gær, kváðu á hinn bóginn
einsýnt, að eggjaeinkasala myndi
lækka eggjaverð þegar til lengri
tíma væri litið, þar sem núverandi
Vöttur afla-
hæstur á
Eskifirði
Flskifirði, 9. maí.
FLESTIR netabátar hafa nú tek-
ið upp netin og hætt veiðum eftir
frekar rýra vertíð. Þó heldur
einn áfram og hefur aflað sæmi-
lega. Mestan afla á vertíðinni
hefur Vöttur, um 500 lestir.
Skipstjóri á Vetti er Þórir
Björnsson.
Votaberg fékk 473 lestir, Sæljós
463, Guðrún Þorkelsdóttir 459,
Sæborg 337 en Sæborgin byrjaði
mun síðar á vertíðinni en aðrir
bátar. Aflinn hefur að mestu farið
í salt og verið verkaður í fimm
fiskverkunarstöðvum.
Ævar.
undirboð á eggjum myndi fyrr eða
síðar koma fjölda framleiðenda á
hausinn, sem svo aftur þýddi að fá-
ir stórir framleiðendur yrðu eftir,
sem þá gætu ráðið markaðsverði á
eggjum. Núverandi dreifingarkerfi,
þar sem hver bóndi fer með sín egg
á markað, væri dýrt og óhag-
kvæmt, og gerði verð á eggjum dýr-
ara en vera þyrfti. Ingi Tryggvason
formaður Stéttarsambands bænda,
sem einnig sat fundinn, sagði það
vera í fullu samræmi við aðra
þróun hér á landi, að komið væri á
eggjaheildsölu og dreifingarkerfi.
Óþolandi væri að bændur byðu
niður vöru hverjir fyrir öðrum, og
slíkt leiddi til óöryggis á markaðn-
um, auk þess sem bændum væru
ekki tryggðar lágmarkstekjur.
Á fundinum í gær var einnig
dreift bréfi frá yfirdýralækni, þar
sem hann segir eðlilegt að haft sé
eftirlit með eggjadreifingu, vegna
þess hve egg séu viðkvæm matvæli.
Hér á landi eru nú um 290 þús-
und varphænur. 270 þúsund þeirra
eru á búum, sem hafa fleiri en 100
fugla. Þar af eru 58 þúsund hænur
á búum með 100 til 2000 hænur, en
23 bændur hafa 2 til 10 þúsund
hænur, samtals 104 þúsund fugla.
Á fjórum stærstu búum landsins
eru 10 þúsund hænur eða fleiri,
samtals um 108 þúsund fuglar.
Ferming í
Súðavík
Ferming í Súðavíkurkirkju 12.
maí, uppstigningardag, kl. 14.00.
Prestur: Sr. Jakob Ág. Hjálmarsson.
Fermd verða:
Davíð Pétur Steinsson,
Túngötu 9.
Hans Aðalsteinn Sigurgeirsson,
Túngötu 16.
Jenný Elva Árnadóttir,
Túngötu 7.
Karl Guðmundur Kjartansson,
Aðalgötu 56.
Kristófer Heiðarsson,
Árnesi.
íitóöur
á moruun
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 2 á degi
aldraöra. Sr. Jakob Jónsson, dr.
theol. predikar. Sr. Hjalti Guö-
mundsson þjónar fyrir altari. Eftir
messu er eldri borgurum, 60 ára og
eldri boðið til kaffidrykkju í Odd-
fellowhúsinu. Þar syngur Sigríöur
Gröndal einsöng við undirleik
Marteins H. Friðrikssonar, dómorg-
anista.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl.
10. Organleikari Birgir Ás Guö-
mundsson. Sr. Hjalti Guömunds-
son.
ÁRBÆ JARPREST AK ALL: Guös-
þjónusta í Safnaöarheimili Árbæj-
arsóknar kl. 2. Eldra fólki í söfnuö-
inum sérstaklega boöiö til guös-
þjónustunnar. Kirkjukaffi Kvenfé-
lags Árbæjarsóknar eftir messu.
Sr. Guömundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Guðsþjónusta á
Hrafnistu kl. 13.30. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPREST AK ALL: Há-
tíöarsamkoma í kirkjubyggingunni
kl. 14.00. Helgistund sr. Lárus Hall-
dórsson. Formaöur byggingar-
nefndar, Siguröur E. Guðmunds-
son, flytur ræöu. Krikjukór Breiö-
holtskirkju syngur. Lúörasveit Ár-
bæjar- og Breiöholtsskóla leikur
frá kl. 13.45. Kaffiveitingar. Sam-
skot til kirkjubyggingarinnar. Sókn-
arnefndin.
BÚSTADAKIRKJA: Guösþjónusta
kl. 2. Einsöng syngur Ingibjörg
Marteinsdóttir, organleikar Guöni
Þ. Guömundsson. Að messu lok-
inni veröur opnuö sýning á munum
unnum í vetur í félagsstarfi aldr-
aöra í kirkjunni. Hátiöarkaffi í tilefni
dagsins og mun kór Árnei;-
Dagur
aldraðra
íkirkju
íslands
ingafélagsins í Reykjavík koma og
syngja undir stjórn Guömundar
Ómars Óskarssonar. Sr. Ólafur
Skúlason, dómprófastur. Fundur
veröur í Bræörafélagi Bústaöa-
sóknar mánudagskvöld.
DIGR ANESPREST AK ALL: Guös-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 2. Sr.
Þorbergur Kristjánsson prédikar,
sr. Árni Pálsson þjónar fyrir altari.
Kirkjukaffi á degi aldraöra veröur í
Safnaðarheimili Kárnessóknar aö
lokinni guösþjónustu. Sr. Þorberg-
ur Kristjánsson.
FRÍKIRKJAN f REYKJAVÍK: Barna-
messa kl. 11. Guöspjalliö í mynd-
um. Barnasálmar og smábarna-
vers. Framhaldssaga.
KVEDJUSAMKOMA fyrir Willý
Hansen kl. 20.30 á vegum Krossins
í Kópavogi. Willý Hansen prédikar
og syngur viö undirieik hljómsveit-
ar. Sr. Gunnar Björnsson.
Elliheimilió GRUND: Messa kl. 10.
Sr. Lárus Halldórsson.
GRENSÁSPRESTAKALL: Messa á
uppstigningardag á Grensásdeild
Borgarspítalans kl. 20.00. Sr. Hall-
dór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRK JA: Messa kl. 11.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Á upp-
stigningardag er einnig ferð á veg-
um opins húss til Þorlákshafnar og
Strandakirkju. Lagt veröur af staö
frá kirkjunni kl. 13. Þátttaka til-
kynnist safnaöarsystur í síma kirkj-
unnar 10745 eða heimasíma
39965.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson.
KÁRNSNESPRESTAKALL: Guös-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 2. Sr.
Þorbergur Kristjánsson predíkar,
sr. Árni Pálsson þjónar fyrir altari.
Kirkjukaffi á degi aldraöra verður í
safnaöarheimili Kársnessóknar aö
lokinni guösþjónustu. Sr. Árni
Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guósþjón-
usta kl. 14. Eiríkur Stefánsson pre-
dikar. Samkoma kl. 15. Söngur —
upplestur — kirkjukaffi. Þeir sem
óska aðstoöar viö aö komast til
guösþjónustunnar hringi í síma
35750 milli kl. 10 og 12 á uppstign-
ingardag. Sýning á handavinnu
þeirra sem tekið hafa þátt í starfi
aldraöra í vetur. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
14. Sigurbjörn Einarsson fv. biskup
prédikar. Halldór Vilhelmsson
syngur einsöng. Kaffisala Kvenfé-
lagsins í nýja Safnaöarheimilinu
eftir messu. Fjölbreytt dagskrá. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson.
NESKIRKJA: Guósþjónusta kl. 14.
Hrefna Tynes predíkar. Kór aldr-
aðra syngur. Sr. Guómundur Óskar
Ólafsson.
DÓMKIRKJA KRISTS konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30. Há-
messa kl. 10.30 og lágmessa kl. 14.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl.
11.
KAPELLA ST: Jósefssystra I
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
FRÍKIRKJAN Hafnarfiröi: Messa kl.
14. Safnaóarstjórn.
KAPELLAN ST. Jósefsspítala:
Messa kl. 10.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga er messa kl.
8.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa kl.
14. Sóknarprestur.
SIGLUFJARÐARKIRKJA: Guös-
þjónusta kl. 14. Guöbrandi Magn-
ússyni kirkjuveröi og meöhjálpara
þakkaö 25 ára starf í kirkjunni. Sr.
Vigfús Þór Árnason.
JUNCKERS
INDUSTRIER a/s
í samvinnu við Egil Árnason hf., Timburverslunina
Völund hf. og Húsasmiðjuna hf, býður til kynningar-
fundar á Juncers parketi, borðplötum og lökkum í
húsakynnum Byggingarþjónustunnar, Hallveigarstíg
1, Reykjavík, föstudaginn 13. maí 1983 kl. 17.00.
Fulltrúi Juncers Industrier A.A., Lars Olsen, kynnir
framleiðslu fyrirtækisins á massívu parketi og borð-
plötum svo og hinum ýmsu lakkgerðum fyrir gólf og
innréttingar og svarar fyrirspurnum, sem fram kunna
að koma.
Vonast er eftir þátttöku sem flestra áhugamanna um
gólfefni.
EGILL ÁRNASON H.F.
HÚSASMIÐJAN HF.
w Timburverzlunin
Volundur hf.