Morgunblaðið - 11.05.1983, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983
29
Guðný Þórarins-
dóttir - Minning
Fædd 24. janúar 1905
Dáin 5. maí 1983
í dag fer fram frá Kópavogs-
kirkju útför ömmu minnar, Guð-
nýjar Vigdísar Þórarinsdóttur,
sem lést aðfaranótt 5. þ.m. í
Landspítalanum eftir tiltölulega
skamma en erfiða sjúkralegu.
Hún var fædd á Nesi við Norð-
fjörð (síðar Neskaupstað) 24.
janúar 1905. Foreldrar hennar
voru hjónin Kristín Stefánsdóttir
og Þórarinn Hávarðsson, útgerð-
armaður. Þau Kristín og Þórarinn
áttu alls fimm börn: Stefán, Há-
varð, Ólöfu (sem lést kornung),
Guðnýju Vigdísi og Rannveigu, en
hún er nú sú eina af systkinunum
sem enn er á lífi.
Amma missti föður sinn meðan
hún var barn að aldri, en hann
drukknaði í Norðfjarðarflóa. Við
fráfall hans stóð Kristín, móðir
hennar, ein uppi með fjögur börn
og þurfti að sjá þeim farborða.
Var það að sjálfsögðu erfitt á
þeim tímum og urðu börnin að
fara að vinna fyrir sér jafnskjótt
og þau urðu vinnufær. Setti þessi
lífsreynsla mark sitt á ömmu.
Vandist hún því að vinna hörðum
höndum og féll henni, að ég man,
sjaldan verk úr hendi. Þá bar hún
alla tíð mjög fyrir brjósti hag
þeirra sem minna mega sín í þjóð-
félaginu.
Árið 1925 gekk hún að eiga Ei-
rík Ármannsson, skipstjóra og út-
gerðarmann, sem jafnan var
kenndur við Dagsbrún á Norðfirði.
Bjuggu þau framan af ævi á Norð-
firði, en síðustu árin í Kópavogi.
Þau áttu eina dóttur, Þóru Krist-
ínu. Þá dvöldu lengstum á heimili
þeirra langamma mín, Kristín, og
Stefán, elsti bróðir ömmu. Eirík-
ur, afi minn, lést árið 1967.
Þar eð móðir mín var eina barn
þeirra afa og ömmu og við bræð-
urnir þar af leiðandi einu barna-
börnin, voru samskiptin okkar á
milli, að ég held, enn nánari en
gengur og gerist. Eftir að þau
fluttu hingað suður má segja að
um hafi verið að ræða eina stóra
fjölskyldu.
Amma var mjög sterk í trú
sinni, allt til hinstu stundar. Hún
trúði því statt og stöðugt að dauð-
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig vcrður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. f
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
cinnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
inn fæli ekki í sér endalok, heldur
upphaf á annarri tilveru. Um leið
og við bræðurnir og fjölskyldur
okkar þökkum henni allt það, sem
hún var okkur, biðjum við henni
guðs blessunar.
„Kom til að lífga, fjörga, gleðja, f«ða
og frelsa, leysa, hugga, sefa, græða.
í brosi þínu brotnar dauðans vigur,
í blíðu þinni kyssir trúna sigur."
(Matth. Jochumsson)
Eiríkur Tómasson
Ég minnist Guðnýjar Þór,
frænku minnar, fyrst frá bernsku-
árum mínum á Norðfirði. Hún bjó
þá ásamt eiginmanni sínum, Ei-
ríki Ármannssyni, föðurbróður
mínum, í Efri-Dagsbrún. „Nabba",
eins og við krakkarnir vorum van-
ir að kalla hana, sennilega vegna
þess að Guðný Björnsdóttir,
frænka okkar, kallaði hana svo,
var í miklu uppáhaldi hjá okkur
börnunum. Hún var blíðlynda
konan sem alltaf átti handa okkur
vingjarnlegt bros eða glaðværan
hlátur og ósjaldan lumaði hún á
einhverju góðgæti handa okkur.
Ég minnist þess t.d. óljóst að hafa
einhverju sinni setið hjá henni í
Efri-Dagsbrún og gætt mér á sjóð-
andi heitum nýjum blóðmör.
Ég var enn barnungur er þau
Guðný og Eiríkur fluttu suður og
reistu sér tvíbýlishús við Digra-
nesveg í Kópavogi ásamt Þóru,
dóttur sinni, og Tómasi Árnasyni,
eiginmanni hennar. Leiðir okkar
lágu ekki saman aftur fyrr en á
skólaárum mínum í Reykjavík en
öll þau ár stóð heimili þeirra góðu
hjóna mér opið.
Digranesvegur 30 og 32 varð
mitt annað heimili. Þar átti ég
alltaf öruggt athvarf og þar mætti
ég svo miklum innileik og hlýju að
mér fannst ég vera sonur þeirra
Guðnýjar og Eiríks og það sama
var raunar upp á teningnum í hin-
um enda hússins, hjá þeim Þóru
og Tómasi.
Nokkrum árum síðar, er ég festi
ráð mitt, hófum við hjónin búskap
í kjallaranum hjá Guðnýju og þar
bjuggum við þegar eldri dóttir
okkar, Guðný, fæddist. Guðný Þór
var þá orðin ekkja og mörg kvöld
sátum við uppi hjá henni, horfðum
á sjónvarp eða röbbuðum í eldhús-
inu yfir kaffibolla og borðuðum
ástarpunga. Lífsgleðin geislaði af
henni. Hún átti enn sinn dillandi
hlátur og rak upp stórar hláturs-
rokur þegar hún rifjaði upp
skemmtileg atvik frá liðinni tfð
eða heyrði góða sögu. Sami inni-
leikinn og hlýjan einkenndi allt
hennar fas. Það var ekki hægt
annað en að láta sér þykja vænt
um þessa konu og maður hlaut að
finna að henni þótti vænt um
mann. Raunar elskaði hún lífið og
ég held að lífið hafi elskað hana.
Hún var áreiðanlega hamingju-
söm kona. Lífið hafði gefið henni
mikið og hún kunni að meta gjafir
þess. Þóra, Tómas og drengirnir,
eiginkonur þeirra og barnabörnin,
öll reyndust þau henni einstaklega
vel. Samband þeirra var óvenju
náið og þó hún byggi ein síðustu
æviárin, þannig vildi hún hafa
það, var hún aldrei einmana,
tengsl hennar við ættingja og vini
voru of sterk til þess. Hún var
elskuð af öllum sem kynntust
henni.
Dætur okkar litu á hana sem
ömmu sína og syrgja hana sem
slíka. Við hjónin erum forsjóninni
þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast slíkri konu. Hún hefur
auðgað líf okkar og margra ann-
arra. Henni eigum við mikið að
þakka. Minningin um Guðnýju
Þór mun ylja okkur um mörg
ókomin ár.
Þóru, Tómasi, drengjunum og
fjölskyldum þeirra sendi ég hjart-
anlegar samúðarkveðjur frá fjöl-
skyldu minni, móður, systkinum
og fjölskyldum þeirra.
Guðni Stefánsson
NORDSJÖ
Það er dýrt að mála
— Þess vegna borgar sig að nota aðeins
bestu fáanleg málningarefni.
— Reynslan hefur sýnt að NORDSJÖ acryl-
málning stenst betur grindvíkst veðurfar
en nokkur önnur utanhússmálning.
— Frábær litheldni — flagnar ekki né
springur — sjálfhreinsandi gljáhúð —
„Tintorama“-litakerfi.
Haukur Guðjónsson málarameistari,
sími 8200, Grindavík.
Superfiller
OÐRUVISI
radialhjólbarðar
Bridgestone Superfiller radialhjólbarðarnir eru með
sérstyrktum hliðum, sem er síður haett við
skemmdum, er ekið er á misjöfnum vegum.
Hliðarnar eru ennfremur mýkri og sveigjanlegri
en þekkist og bætir það fjöðrun
við akstur á malarvegum.
Valið er því ekki erfitt
— BRIDGESTONE Superfiller
undir bílinn.
BRIDGESTONE á íslandi
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99