Morgunblaðið - 11.05.1983, Side 3

Morgunblaðið - 11.05.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983 35 Steingrímur Ingason og Svavar Gestsson skiluðu þessum Datsun 1800 frem- ur óvænt í þriðja sætið, eftir harða keppni við BMW Jóns S. Halldórssonar og Hjalta Hafsteinssonar, sem urðu fjorðu. skemmtilegasta rallkeppni, sem fram hefur farið hérlendis. Til- tölulega nýstofnaður klúbbur, Akstursíþróttafélag Suðurnesja skipulagði rallið og fórst þeim það vel úr hendi undir stjórn Magnúsar Jenssonar, keppnis- stjóra. Leiðin lá um gamla Keflavíkurveginn, Reykjanes, Is- ólfsskálaveg og tvær leiðir við Kambana. Rallið tafðist nokkuð vegna þess að hluti skipulagðrar leiðar var ónothæfur vegna þess að keppendur vildu ekki skemma þungfæra vegina við Herdísar- vík og var leiðinni því breytt dá- lítið. Nokkrir áhorfendur þurftu af þessum sökum að bíða full- lengi eftir að sjá keppnisbílana á nokkrum leiðum. Omar og Jón Rangarssyni tóku forystu strax f upphafi og eins og Morgunblaðið spáði fyrir um, lét Jón ómar auka hraðann um miðja keppni. Fannst Jóni Ómar ekki keyra nógu hratt á einni leiðinni og sagði honum að gefa í. ómar svaraði að bragði. „Já er það ekki bara,“ og steig bensíngjöf- ina djarfar en áður og sleppti ekki fyrr en þeir komu í mark sem sigurvegarar! Skæðustu keppinautar bræðranna voru þeir Halldór Úlfarsson og Tryggvi Aðalsteinsson á Toyota Corolía 1600. Eftir Isólfsskála voru þeir þó orðnir mínútu á eft- AUCLÝSINCASTOFA MYNDAMÓTA HF ir bræðrunum og náðu ekki að vinna upp þann mun, þrátt fyrir góða tilraun. Hefði ekkert mátt útaf bera hjá Ómari og Jóni. Skiptu þeir af þeim sökum tví- vegis um öll dekk undir Renault- inum til þess að eiga ekki á hættu að eitthvert þeirra springi. Húsavíkingarnir Steingrímur Ingason og Svavar Gestsson óku lítið breyttum Datsun 1800. Þeir byrjuðu rólega að sögn Steingríms, en á þremur síðustu leiðunum þurftu þeir að setja á fulla ferð til að halda Jóni S. Halldórssyni og Hjalta Hafsteinssyni á BMW 2002 fyrir aftan sig í baráttunni um þriðja sætið. Gerði Jón allt sem hann gat til að hremma andstæðing- inn, fór m.a. 30—40 metra langa flugferð á Reykjanesi, vegna þess hve greitt hann ók, en allt kom fyrir ekki. Var reyndar talið á tímabili að Jón hefði náð þriðja sætinu á undan Stein- grími, en þá gleymdist að reikna með refsingu, sem Jón fékk við skoðun keppnisbílanna fyrir rallið. Óskuðu þeir hvor öðrum því alloft hamingju með þriðja sætið, en Steingrímur varð á endanum hlutskarpari. Sigur- vegarar síðasta ralls, Jón Sig- þórsson og Halldór Gíslason á Lancer 1600 fylgdu forystubílun- um eins og skuggi og urðu ekki nema hálfri mínútu á eftir Jóni S. Halldórssyni, þannig að hann hefur ekið geysivel. Það voru hvorki meira né minna en rúmar 12 mínútur í næstu keppnisbíla. Subaru 1600 GFT Stefáns Magn- ússonar og Ægis Ármanssonar nældi I sjötta sætið, aðeins sek- úndu á undan beygluðum Escort Gunnlaugs Rögnvaldssonar og Tómasar Hannssonar, sem valt á Reykjanesi. Bjástruðu þeir við að rétta bílinn við ásamt þriðja manni, en þegar bíllinn var rétt kominn á hliðina rann hann niður allbratta brekku, en þeim tókst þó að lokum að koma hon- um á hjólin og héldu áfram keppni. Tryggðu þeir sér klúbb- meistaratitil Akstursíþróttafé- lags Suðurnesja með því að vera- á undan Eiríki Hjartarssyni og Birni Ólafssyni á Datsun 1200, sem varð níundi í keppninni á fremur máttlausum bil. Á undan honum í áttunda sæti voru félag- arnir Árni Ó. Friðriksson og Ragnar Kristjánsson á Escort 1600, en þeir afrekuðu það m.a. að fljúga fimm metra í loft upp og 10 metra áfram í loftköstum er þeir lentu útaf á Isólfskála- vegi. Þetta atvik ásamt biluðum framdempara á einni leiðinni gerði það að verkum að ofar komust þeir ekki. Keppendur sem á eftir komu voru á bílum, sem höfðu tapað miklum tíma vegna bilana. - GR. Það var ekki svo lítið sem gekk á þegar reynt var að gera við Escort Hafsteins og Birgis á ísólfsskála, en framfjöðrunin bilaði þar. Bfllinn var reyndar sífellt bilandi í rallinu, en þetta var ekki venjulegi keppnisbfll þeirra félaga. Ljósm. Mbl. Gunnlaufrur Rögnvaldsson. esiö reglulega af ölmm fjöldanum! IVECO/ ÍIMIÍSP Höfðabakka 9 Simi 8-52-60 LOKSINS AISLANDI! MAGIRUS DEUTZ / IVECO Við höfum nú tekið að okkur umboð á íslandi fyrir hina heimsþekktu Iveco vörubílasamsteypu. Iveco er næststærsti framleiðandi vörubíla í Evrópu. Vörubílar frá Iveco eru ráðandi á mörgum sviðum í Evrópu, en hvað þekktastir eru þeir fyrir mikið úrval sterkbyggðra vinnubíla með drifi á öllum hjólum. Hafðu samband við okkur og kannaðu hvort við höfum ekki rétta sex eða tíu hjóla bílinn fyrir þig, með eða án framdrifs. Iveco bílar eru sterkbyggðir vinnuþjarkar sem komast leiðar sinnar í misjöfnu færi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.