Morgunblaðið - 11.05.1983, Side 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MA{ 1983
Mikil gróska
í hestamennskunni á Hólum
Að lokinni dagskrá voru verðlaun afhent og stilltu þá allir þátttakendur skeifu-
keppninnar sér upp á tamningatrippunum fyrir framan kirkjuna, sem segja má
að sé andlit Hólastaðar.
Þann tuttugasta og fimmta aprfl
síðastliðinn var haldinn að Bænda-
skólanum á Hólum hin árlega
skeifukeppni þar sem keppt var um
Morgunblaðsskeifuna. Á Hólum er
hestamennska og hrossarækt val-
grein og gildir skeifukeppnin ‘/s af
heildareinkunn. Flest þau hross sem
nemendur tömdu eru í cígu Kyn-
bótabúsins á Hólum. Það voru ellefu
neraendur sem kepptu að þessu
sinni og þar á meðal var stúlka sem
aðeins einu sinni hafði komið á hest-
bak áður en hún hóf tamningu í vet-
ur. Blíðskaparveður var daginn sem
keppnin var haidin og töldu menn að
langþráð vorið væri loks komið.
Einnig var gæðingakeppni á dag-
skránni og að síðustu naglaboðreið
þar sem nemendur kepptu við kenn-
ara og starfsmenn búsins.
Skeifuna að þessu sinni hlaut
Sveinn Orri Vignisson frá Ás-
mundarstöðum en hann tamdi í
vetur hest sem hann á sjálfur og
heitir Gjafar. Ásetuverðlaun Fé-
lags tamningamanna hlaut Harpa
Baldursdóttir og Eiðfaxabikarinn
sem veittur er fyrir bestu hirðingu
hlaut Þorvarður Friðbjörnsson. í
gæðingakeppninni sigraði Fluga
frá Sóleyjarbakka, eigandi Þór-
munur Hjálmtýsson en knapi var
Sigurbjörn Þórmundsson. I öðru
sæti varð Skelmir frá Sunnuhvoli,
eigandi Ingimar Ingimarsson en
knapi Grétar Geirsson. Og í þriðja
sæti varð svo Magga frá Kolkuósi,
eigandi Kynbótabúið á Hólum en
knapi var Ingimar Ingimarsson.
Engar einkunnir voru gefnar held-
ur riðið svipað og gerist í firma-
keppni. Að iokinni keppni voru
verðlaun afhent.
Fullkotnið hesthús
lyftistöng fyrir hesta-
mennsku á Hólum
Fyrir rúmu ári var tekið í notk-
un nýtt hesthús á Hólum og er það
að öllum líkindum eitt það besta
hér á landi. Er það byggt í tveim
áföngum og verður hafist handa
um byggingu seinni áfanga á
þessu ári. Áfanginn sem upp er
kominn rúmar um fjörutíu hross
en alls eru um sjötíu hross á húsi
á staðnum. Tamningar annast þau
Ingimar Ingimarsson og Anna
Bryndís Tryggvadóttir og sjá þau
einnig um hirðingu og fóðrun. Álls
eru þau með um tuttugu hross frá
búinu í tamningu. Þess má geta að
Anna Bryndís hlaut skeifuna síð-
astliðið vor og hóf störf við búið að
loknum skóla. Að sögn Ingimars
voru hross tekin á hús seinni part-
inn í janúar og hófust tamningar
fljótlega upp úr mánaðamótum.
Þegar gengið er um hesthúsin
kemur í ljós margt nýstárlegt. Má
þar fyrst nefna fóðurganginn en
hann er um einum metra hærri en
básarnir og engir stallar eru eins
og tíðkast hefur í hesthúsum til
þessa. Undir húsinu er svo stórt
haughús og lúgur í flórunum
þannig að skítmokstur tekur lít-
inn tíma. Sambyggð húsinu er
flatgryfja en það mun vera hug-
myndin að fóðra í framtíðinni á
votheyi. Að því er Ingimar sagði
hefur heyskapur oft gengið illa í
dalnum vegna tíðra fjallaskúra. í
flatgryfjunni verður grabbi á
braut í loftinu og leysir hann fóðr-
ið og flytur á vagn sem síðan er
dreginn eftir fóðurganginum og
Það er mikið verk að hugsa um fjörutfu hross og ekki hvað síst ef með fylgja
járningar. Hér hjálpast Anna og Ingimar að við járningu á eini hryssunni.
Ásetuverölaun hlaut Harpa Baldursdóttir og situr hún hér hestinn Jazz, sem er
í eigu Kynbótabúsins.
I lokin var svo farið í naglaboðreið og fylgdi því mikill darraðardans og læti.
Hér reyna þeir Þorvaldur Árnason og Olafur Ásmundsson að ná hömrunum en
hestarnir virðast ekki alveg með á nótunum.
Myndir: Valdimar KristinsNon.
síðan mokað af með kvísl, þannig
að mannshöndin kemur hvergi
nærri heyinu. Stefnt er að því að
byrja á seinni áfanga í sumar eins
og áður sagði og mun mannvirkið í
heild sinni mynda U og verður
byggt yfir svæðið á milli húsanna
og gerði þetta notað til tamninga í
slæmum veðrum.
Boðið upp á hrossarækt og
hestamcnnsku sem valgrein
Eins og áður sagði er hrossa-
rækt valgrein og eru þeir er hana
velja skyldugir til að temja eitt
trippi og taka þátt í skeifukeppn-
inni. Kennslu í hrossaræktinni
hafa þeir Þorvaldur Árnason og
Ingimar annast, sér Þorvaldur um
það bóklega og kynbótadóma en
Ingimar sér um tamningakennsl-
una. Alls eru um tuttugu og fimm
tímar í hrossaræktinni eða tveir
tímar á viku.
Blaðamanni gafst kostur á að
fylgjast með kennslu í kynbóta-
dómum og var farið í dóma á hæfi-
leikum. Þau Ingimar og Anna sáu
um að ríða hrossunum sem dæmd
voru. Nemendur gáfu síðan ein-
kunnir með aðstoð Þorvalds og
meðal þeirra hrossa sem dæmd
voru má nefna stóðhestinn Neró
frá Bjarnarhöfn og Eldey sem
sýnd var á síðasta landsmóti auk
annarra minna þekktra hrossa.
Reiðskóli íslands á Hólum
í grein sem nýlega birtist um
skeifukeppnina á Hvanneyri var
lítillega minnst á hugmyndina um
opinberan reiðskóla og þegar fjall-
að er um aðstöðuna á Hólum kem-
ur manni í hug hvort nokkur ann-
ar staður sé eins vel til þess fall-
inn að hýsa alhliða reiðskóla þar'
sem kennd yrði reiðmennska,
hrossarækt og allt er viðkemur
hestamennsku. Á Hólum er eitt
fullkomnasta hesthús landsins,
þar er starfrækt tamningastöð í
tengslum við kynbótabúið og að
síðustu er Skagafjörður höfuðvígi
íslenskrar hrossaræktar.
i
Horft heim að hesthúsinu nýja. Milli hlöðu og hesthússins er Iftil rétt til að viðra hrossin í. Vinstra megin veröur yBrbyggt
gerði eða reiðhöll eins og viö sunnlendingar köllum það.