Morgunblaðið - 11.05.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983
47
Æskulýðsráð Reykjavíkur:
Fjölbreytt dagskrá fyr-
ir börn og unglinga
ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavíkur
hefur skipulagt sumarstarfið og
hefur bæklingi verið dreift í
grunnskóla borgarinnar. Sumar-
starfinu er skipt í tvennt, skipulegt
námsskeiðastarf á daginn og starf
byggt á frjálsri þátttöku á kvöldin.
Samkvæmt upplýsingum
Æskulýðsráðs er boðið upp á eft-
irfarandi hjá ráðinu í sumar
fyrir börn og unglinga:
1. SIGLINGAR
Frá 30. maí—19. ágúst eru
byrjendanámskeið í siglingum
fyrir 8—12 ára börn. Hvert nám-
skeið tekur tvær vikur og eru 40
nemendur á hverju. Kennd er
meðferð og sigling á seglbátum,
einfaldar siglingareglur, varúð
og viðbrögð við óhöppum á sjó og
umhirða búnaðar.
Frá 30. maí—19. ágúst eru
framhaldsnámskeið í siglingum
fyrir 11—14 ára. Hvert námskeið
er tvær vikur og henta nám-
skeiðin vel þeim sem nokkuð
kunna um meðferð seglbáta,
hafa t.d. verið á byrjendanám-
skeiðunum. í sumar er opið starf
í Nauthólsvík fyrir almenning á
mánudögum, þriðjudögum og
miðvikudögum kl. 17.00—19.00, á
fimmtudögum kl. 17.00—22.00 og
á laugardögum kl. 13.00—16.00.
Hægt er að fá leigða róðrar- og
seglbáta og sigla um Fossvog.
2. REIÐSKÓLI ÆSKULÝÐS
RÁÐS REYKJAVÍKUR OG
FÁKS í SALTVÍK
Reiðskólinn starfar í júní, júlí
og ágúst. Hvert námskeið tekur
tvær vikur og eru börnin allan
daginn í Saltvík. 60 börn eru á
námskeiði í einu.
Á laugardögum í júlí er hesta-
leiga í Saltvík og er þá hægt að
fá leigða hesta og fara í stuttar
reiðferðir um jörðina Saltvík.
3. BÚSTAÐIR
Leikja- og starfsnámskeið
fyrir 6—12 ára börn. Hvert nám-
skeið tekur eina viku. Þau
standa frá 30. maí—12. ágúst og
eru 50 þátttakendur á hverju
námskeiði. Námskeiðin eru allan
daginn eða frá kl. 10.00—16.00.
Þátttökugjald er kr. 300. For-
stöðumaður Bústaða er Her-
mann Ragnar Stefánsson.
4. FELLAHELLIR
Útistarf hliðstætt og í Bústöð-
um en hvert námskeið tekur
tvær vikur. Starfið er frá 6.
júní—12. ágúst og er daglegt há-
mark 40 börn. Þátttökugjald er
kr. 500. Forstöðumaður Fella-
hellis er Sverrir Friðþjófsson.
5. ÞRÓTTHEIMAR
Dagnámskeið fyrir 6—12 ára
börn. Hvert námskeið tekur
tvær vikur. Þau standa frá 30.
maí — 19. ágúst og daglegt há-
mark er 40 börn. Námskeiðin eru
allan daginn eða frá kl.
10.00—16.00. Þátttökugjald er
500 kr. Forstöðumaður Þrótt-
heima er Skúli J. Björnsson.
6. ÁRSEL
Dagnámskeið fyrir 6—12 ára
börn. Hvert námskeið tekur 2
vikur. Þau standa frá 30.
maí—19. ágúst og eru þátttak-
endur 40 á hverju námskeiði.
Námskeiðin eru allan daginn eða
frá kl. 10.00-16.00. Þátttöku-
gjald er kr. 500. Forstöðumaður
Arsels er Árni Guðmundsson.
7. TÓNABÆR
Dagnámskeið fyrir börn 6—12
ára. Hvert námskeið tekur tvær
vikur. Þau standa frá 6.
júní—12. ágúst og eru 30 þátt-
takendur á hverju námskeiði.
Námskeiðin eru allan daginn eða
frá kl. 10.00-16.00. Þátttöku-
gjald er kr. 500. Forstöðumaður
Tónabæjar er Ólafur Jónsson.
8. DAGNÁMSKEIÐ í FÉLAGS-
MIÐSTÖÐVUM
Leiðbeinendur starfa með
.'ltiai jiueiw)ii tur, j. ol
Sumar
starf'-
börrt og unglinga
1983
börnum og unglingum að skipu-
lagningu leikja og ýmiss konar
útistarfs á leikvöllum og útivist-
arsvæðum. Föndur innandyra I
slæmu veðri. Kostnaður vegna
skoðunar- og kynnisferða er
innifalinn í þátttökugjaldinu.
9. KVÖLDSTARF I FÉLAGS-
MIÐSTÖÐVUNUM
í félagsmiðstöðvunum Fella-
helli, Bústöðum, Þróttheimum,
Árseli og Tónabæ er starfsemi
fyrir unglinga 13 ára og eldri. Er
þar um að ræða klúbbastarf,
diskótek, opið hús, leiktæki og
fleira.
Opið hús er á þriðjudagskvöld-
um í öllum félagsmiðstöðvum og
diskótek á föstudagskvöldum.
Aðgangseyrir er enginn.
Þá er einnig fyrirhugað að
bjóða unglingum í útivistarferð-
ir um Reykjavík og nágrenni.
Þetta starf verður á miðvikudög-
um i Bústöðum og Fellahelli og á
fimmtudögum í Þróttheimum,
Árseli og Tónabæ.
10. KYNNISFERÐ í SVEIT
Kynnisferð í sveit á vegum
Æskulýðsráðs Reykjavíkur og
Sambands sunnlenskra kvenna.
Dvalið verður þrjá daga, 6., 7. og
8. júní á sveitaheimilum á Suð-
urlandi. Dvölin er ókeypis en
þátttakendur skuldbinda sig til
að veita jafnöldrum úr sveitinni
fyrirgreiðslu í Reykjavík. Aldur
10—12 ára. Verð: Fargjald ca.
300 kr.
11. ÍÞRÓTTA- OG LEIKJANÁM-
SKEIÐ
Vornámskeið íþróttaráðs,
Æskulýðsráðs, Leikvallanefndar
og Iþróttabandalags Reykjavík-
ur á íþróttavöllum borgarinnar
fyrir börn 6—12 ára 30. maí—15.
júní. Kenndar verða frjálsar
íþróttir, knattspyrna og ýmsir
aðrir leikir. Þátttökugjald er kr.
70.
Námskeiðunum lýkur með
íþróttamóti á frjálsíþróttavellin-
um í Laugardal 16. júní kl. 13.00.
Kennt verður á Melavelli,
Laugardalsvelli, Ieikvelli við
Árbæjarskóla, íþróttavelli við
Fellaskóla, leikvelli við Álfta-
mýrarskóla, leikvelli við Breið-
holtsskóla, leikvelli við Selja-
skóla og leikvelli við
Austurbæj arskóla.
Gert klárt fyrir löndun úr Sveinborgu GK 70.
Mynd MbL/Arnðr.
Sveinborg GK 70
landar í Garðinum
GarAi, 6. maí.
UPP ÚR miðnætti í gærkvöldi lagðist togarinn Sveinborg GK 70 að
bryggju hér í Garðinum, en togarinn er í eigu ísstöðvarinnar hf.
Skipið var með um 130 lestir af fiski og var byrjað að landa upp úr
skipinu í dag. Eftir því sem best er vitað er þetta einsdæmi að
landað sé úr togara hér enda hafnarskilyrði slæm.
ísstöðin hf. stendur í nokkurra
skrefa fjarlægð frá bryggjunni og
er því ekki um langan veg að fara
með aflann. Á undanförnum árum
hafa verið gerðar nokkrar endur-
bætur á bryggjunni og í vor var
hlaðinn varnargarður út á miðja
bryggju og upp að nýbyggingu
semlsstöðin er að byggja. Ekki er
þó talið líklegt að nokkrun tíma
verði gerð góð höfn í Garðinum,
enda þótt nokkrir bátar og einir 4
togarar séu gerðir út héðan. En
hver veit?
Sveinborg GK er 300 lesta skip
smíðað árið 1968 og hét áður Guð-
mundur í Tungu.
Arnór.
Þýsku sumarhúsin eru
í tæplega klukkustundar
fjarlægð frá Luxemborg
Flugleiðir benda þér á bráð-
skemmtllegan mögulelka á þægi-
legu sumaiieyfl í fallegu umhverfl.
Flugferð tll Luxemborgar og bíla-
leigubíll í 3. vlkur kostar frá 9.549.-
krónum fyrir manninn. Þar að auki
bjóðum við vlkudvöl í sumarhúsi í
Þýskalandi í aðeins 45 mínútna
akstursfjarlægð frá Luxemborg
fyrlr aðelns 1.470.- krónurtll viðbótar.
Þaö má að vísu segua að Luxemborg
sé lítill blettur á landakortinu,
þvi landið er aðeins 3587 ferkílómetrar að
stærð, en þettaflugnágrannaland okkarer
lika einn fallegasti bletturinn í Evrópu
Landið er bæði fallegt og bragðgott, ef svo
mætti segja. Matargerð í Luxemborg er
rómuð, og ekki eru vinkjallarar þeirra
Luxemborgarmanna af verri endanum
Matsölustaðir eru margir og góðir.
Þó er stærsti kostur Luxemborgar fynr
okkur sennilega staðsetningin Þar er tilvalið
að hefja ökuferð um Evrópu, t.d. aka eftir
Rhonedalnum niður að Miðjarðarhafi, eftir
Rivierunni og upp til Parísar Alpafjöllin eru
lika freistandi og siðan italia eða suður-
Þýskaland. Flugleiðir bjóða hótelgistingu í
Luxemborg á Aerogolf Sheraton, Holidav
Inn, Novotel, Citv, Alfa og Italia, ódýra
bilaleigubíla og margskonar ódýrar ferðir
með Luxair til sólarlanda.
FLUGLEIÐIR
Gott tólk hjá traustu télagi
LUX
i j; j - f 3 I 11 í í t í li g 3 >
j} i i | í r i (þi jlíiol > tí j.'í t i