Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR 146. tbl. 70. árg. ____________________________FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Walesa viðloðandi áfram, segir Glemp Róm, 30. júní. AP. PÓLSKI kardínálinn Jozef Glemp skýrði frá því í Róm í dag, að Lech Walesa yrði ekki rutt af sjónarsviði pólskra stjórnmála, en gaf jafnframt í skyn að óvissa ríkti um væntanlegt hlutverk leiðtogans. Kardínálinn kom óvænt til fundar við páfa í dag ásamt öðrum pólskum biskupum. Foringjar pólsku rithöfundasamtak- anna héldu samtímis úrslitafund með embættismönnum í Varsjá eftir að fregnir bárust um að samtökin kynnu að verða bönnuð fyrir andóf gegn stjórnvöldum. Glemp kardínáli lét í ljós bjartsýni um að herlögum þeim, sem enn gilda, yrði aflétt innan skamms og staðfesti fréttir um að leiðtogar ríkis og kirkju í Póllandi væru að semja um stofnun sjóðs til styrktar pólskum bændum. Heimildir í Varsjá herma hins vegar að stjórnvöld hafi sent yfir- Bandaríkin sýna Gandhi vinahót Nýju-Delhí, 30. júní. AP. UTANRÍKISRÁÐHERRA Bandaríkjanna, George P. Shultz, lofaði stjórn Indiru Gandhi í dag að Bandaríkin myndu sjá Indverjum fyrir varahlutum í kjarnorkuver nærri Bombay, ef hlutirnir væru ófánanlegir annars staðar. Indverjar neituðu árið 1968 að undirrita alþjóðasamning um takmarkanir við útbreiðslu tækni er gerði öðrum en stórveldunum kleift að framleiða kjarn- orkuvopn. Shultz sagði í Nýju-Delhí í dag að Reagan Bandaríkjaforseti væri „staðráðinn í að stofna til árang- ursríkari tengsla við Indland". Kosið verður í Guatemala Guatemala City, 30. júní. AP. HERSTJÓRNIN í Guatemala hefur tilkynnt að kosningar til stjórnlagaþings muni fara fram í landinu á næsta ári og virðist hún með þessu vilja drepa á dreif kröfum um að Efrain Rios Montt forseta verði steypt af stóli. Jorge Elias Serrano, for- maður framkvæmdanefndar herstjórnarinnar, sagði að ákveðið hefði verið að kosn- ingarnar færu fram 29. júlí 1984, og að þingið kæmi sam- an 15. september. Rios Montt forseti hefur áður gefið loðnar yfirlýsingar um kosningar á næsta ári og er þetta í fyrsta skipti, sem háttsettur starfs- maður stjórnarinnar skýrir frá dagsetningu kosninganna. í framkvæmdanefnd stjórnar- innar sitja þrjátíu og sex menn og er hún herstjórninni til ráðgjafar um ýmis þjóðfé- lagsmál. Einnig var tilkynnt að hæstiréttur Guatemala myndi skipa fimm manna kjörstjórn til að koma í veg fyrir svik þegar að atkvæða- talningu kemur. Forsetinn afnam í gær öll lýðréttindi og tjáningarfrelsi fjölmiðla eftir að fyrrverandi meðlimur herstjórnarinnar, Francisco Martinez ofursti, skýrði frá því opinberlega að hann hefði í hyggju að koll- varpa stjórninni. Þingmenn úr flokki demókrata hafa hvatt forsetann að undan- förnu til að láta Indverjum ekki varahlutina í té. Bandarísk lög banna útflutning á kjarnorku- varningi til ríkja, sem neituðu að undirrita alþjóðasamninginn 1968, en forsetanum mun þó heimilt að fara fram á undanþágu frá við- komandi lögum. Er talið að Reag- an muni reyna að réttlæta ákvörðun sína með því að leggja áherzlu á að umræddir varahlutir þjóni öryggi og heilsu starfs- manna kjarnorkuversins við Bombay. Grunsemdir um að Ind- verjar væru að smíða kjarnorku- vopn komu fyrst fram árið 1974 er þeir sprengdu kjarnorkusprengju í tilraunaskyni. Stjórnin í Nýju- Delhí fullyrðir þó að kjarnorku- áform Indverja séu friðsamlegs eðlis einvörðungu. Shultz fer á lauardag til Pakist- an til viðræðna við Zia ul-Haq hershöfðingja um stríðið í Afgan- istan. Er talið að þeir muni einnig ræða samskipti Indlands og Pak- istan, en grunur er enn á kreiki um að Pakistanar vinni að smíði kjarnorkuvopna. Stjórnvöld í Washington hafa lýst því yfir að þau muni svipta Pakistan allri efnahagsaðstoð ef kjarnorkuvopn verði smíðuð í landinu. Kafbátsleitin árangurslaus Osló, 30. júní. AP. LEIT að dularfullum kafbát, sem staðið hefur yfir í Andenes-firði I Noregi í tvo daga, hefur verið hætt að sögn yfirstjórnar hersins í Norður-Noregi. Talsmaður hersins, Terje Övergaard majór, sagði að leitin hefði verið stöðvuð þar eð ekki hefði orðið vart við neitt á hljóð- bylgjutæki síðan freigátan „Nar- vik“ skaut á miðvikudagskvöld. sex flugskeytum í áttina að hlut, sem talinn var vera kafbátur. mönnum kirkjunnar gögn, sem endurspegli sjónarmið valdhafa og hugsanlega nokkrar athuga- semdir við áformin. í Páfagarði hefur því verið neitað að nokkurt samband sé á milli stofnunar sjóðsins og stöðu Walesa. Rithöfundasamtökin í Póllandi voru opinberlega afnumin í des- ember 1981, þegar herlög voru sett. Leiðtogar samtakanna hafa þó haldið áfram að ögra stjórn- völdum og hafa af þeim sökum sætt harðvítugum árásum mál- gagns kommúnistaflokksins, Tri- buna Ludu. Málgagnið sakaði samtökin í dag um að hafa komið í veg fyrir að árangur næðist í við- ræðum við stjórnvöld. Samkvæmt herlögum verða stjórnvöld að ákveða nú hvort samtökin verða bönnuð eða viðurkennd á ný. Banni þau samtökin hafa valdhaf- ar tekið í sínar hendur umsjón nær allra þátta menningarlífs í Póllandi. Yfirmaður kaþólsku kirkjunnar í Póllandi, Jozef Glemp kardfnáli, við kom- una til Leonardo da Vinci-flugvallar í Róm í dag. Erindi Glemps mun vera að ræða við páfa um eftirköstin af ferð hans um Pólland fyrir skemmstu. Bræðravíg enda í Bekaa-dal um sinn Beirut, 30. júní. AP. ANDSTÆÐINGAR og stuðningsmenn Yasser Arafats, leiðtoga Frelsissam- taka Palestínumanna, sömdu um vopnahlé í Bekaa-dal í austurhluta Líban- ons í dag, og skipuðu sjö manna nefnd til að sjá um að friður haldist. Það voru fulltrúar átta stærstu skæruliðafylkinganna innan sam- takanna, sem tilkynntu um vopna- hléssáttmálann eftir fund sinn í borginni Baalbek í Bekaa-dal. Flutningabifreiðum var ekið fram og aftur um svæðið með hátölur- um og voru bardagamenn hvattir til að leggja niður vopinin. 1 sáttmálanum er kveðið á um að skæruliðabúðir beggja vegna Beirut-Damaskus þjóðbrautarinn- ar verði fjarlægðar. Samkomulag er um að málum verði komið í sama horf og áður en uppúr sauð með skæruliðum á mánudags- kvöld, og að öllum föngum verði sleppt. Hvatt er til að „viðræður í lýðræðislegum anda“ verði hafnar milli Arafats og uppreisnarmanna undir foyrstu Saeed Mousa ofursta. Sagt er að Mousa hafi verið með í ráðum þegar sáttmál- inn var gerður og hafi hann heitið að halda hann. Hins vegar er enn ekki ljóst hvort stuðningsmönnum Arafats verður leyft að koma sér upp bækistöðvum aftur gengt herjum Israelsmanna í Bekaa-dal. Tilkynnt var um vopnahléð fá- einum klukkustundum eftir að Arafat kallaði saman neyðarfund framkvæmdanefndar samtaka Palestínumanna í Túnis, en til- gangur fundarins var að hafa hemil á uppreisnarmönnum, sem njóta stuðnings Sýrlendinga. Talið er að framkvæmdanefndin muni halda áfram fundi sínum og ræða m.a. tilraunir Saudi-Arabíu, Alsír og Skipulagsráðs Múhameðstrú- arríkja til að miðla málum milli Arafats og Fatah-skæruliða og Arafats og Sýrlendinga. u Óvirða að vera „trallandi prins Seattle, Wa.shington, 30. júní. AP. SAUDI-ARABÍSKUR prins á ferð um Bandaríkin í góðgerðarskyni sagð- ist í dag vera gramur og hissa vegna fréttamyndar sem sýndi hann „eins og rokksöngvara að leika á rafmagnsgítar“. Myndin birtist m.a. í dag- blaði í San Francisco þar sem vísað var til hans sem „trallandi Saudi- Araba“. Prins Sand Talal Bin Abdul Aziz Al Prinsinn, sem ber heitið Talal Bin Abdul Aziz A1 Saud, var staddur á vísindasafni í San Francisco þegar myndin var tek- in. Safnið mun vera ætlað börn- um svo þau geti sannað í verki vísindalegar kenningar. Var prinsinum afhent raftæki, sem líktist gítar að lögun, og reyndi hann að fá tón úr tækinu. Ljósmyndarinn brá skjótt við og smellti af mynd þar sem prins- inn stóð og lagði við hlustir. I tilkynningu, sem úmboðs- maður prinsins gaf út í dag, er myndinni mótmælt og sagt að hún sé táknræn um /'lrnig blöðin geti skrumskælt veruleik-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.