Morgunblaðið - 01.07.1983, Page 2

Morgunblaðið - 01.07.1983, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR1. JÚLÍ 1983 Dómur fallinn í Kleppsvegarmálinu: Manndráp af ásetningi í GÆRMORGUN gekk dómur í Sakadómi Reykjavíkur þar sem Þórður Jóhann Eyþórsson var dæmdur í 13 ára fangelsi fyrir að hafa ráðið Óskari Árna Blomsterberg bana aðfaranótt 1. janúar s.l. að Kleppsvegi 42 í Reykjavík. Þórður var sakfelldur fyrir brot á 211. grein hegningarlaganna, sem lýtur að manndrápi af ásetningi. Dómurinn taldi ástæðu til refsilækk- unar ekki vera fyrir hendi. Dómurinn taldi sannað að ákærði hefði orðið Óskari að Verða að leggja málið fyrir Alþingi „Hvað varðar fjármála- ráðherra verður að leggja þetta fram í fjárlagafrumvarpi vegna fjárveitingarinnar og skattfrels- is verðlaunanna og reyndar verður menntamálaráðherra einnig að leggja það fram, ef setja á lög um svona veitingu," sagði Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra er Mbl. spurði hann hvort ríkisstjórnin myndi leggja fram bókmennta- verðlaunamálið fyrir Alþingi í haust. í baksíðufrétt blaðsins segir forsætisráðherra þetta mál ekki endanlega afgreitt fyrr en Alþingi hefur gefið sam- þykki sitt, en hann hafði einn- ig eftirfarandi að segja varð- andi það hvernig málið yrði lagt fyrir Alþingi: „Það er undir þessum ráðherrum komið, hvort þeir kjósa að gera það þannig, en auðvitað hefði verið sjálfsagt og rétt að ganga frá þeim málum áður.“ Forsætisráðherra sagði í lok- in, að hann vonaðist til að mál þetta yrði afgreitt án þess að frekari leiðindi hlytust af. bana. Bæði lægi fyrir játning ákærða og framburður vitna. óskar Árni var stunginn fjórum hnífsstungum. Dómurinn taldi ekki að ásetningur hefði verið fyrir hendi fyrr en ákærði veitt- ist að Óskari Árna og hlaut að gera sér ljóst hvaða afleiðingar það hefði. Ákærði var undir áhrifum áfengis þegar atburður- inn átti sér stað, 2,83 prómill reyndust vera í blóði hans. Gæsluvarðhald frá 1. janúar dregst frá dómnum og ákærði var dæmdur til að greiða allan kostnað sakarinnar, þar með tal- in saksóknaralaun, 25.000, og 25.000 til skipaðs verjanda síns. Málinu verður áfrýjað til Hæsta- réttar, svo sem mælt er um fyrir í lögum. Dóminn kvað upp Birgir Þorm- ar sakadómari. Skreiðarútflutningur: Ljósmynd Mbl./ RAX. Ragnar S. Halldórsson, formaður Verzlunarráðsins, afhendir Albert Guðmundssyni, fjármálaráðherra, vegg- spjaldið. Viðstadddur er Árni Árnason, framkvæmdastjóri Verzlunarráðsins. „Spilið sem allir tapa“ VERZLUNARRÁÐ ÍSLANDS hef- ur gefið út veggspjald undir heit- inu: Spilið sem allir tapa. Ragnar S. Halldórsson, formaður Verzlun- arráðsins, afhenti Albert Guð- mundssyni, fjármálaráðherra, fyrsta eintakið af spilinu í gærdag, með þeirri ósk, að það yrði haft til hliðsjónar við stjórn efnahagsmála í framtíðinni. Ragnar S. Halldórsson sagði, þegar hann afhenti Albert veggspjaldið, að á því væri sýnt með einföldum skýringarmynd- um hvað hefði gerst og hefur reyndar verið að gerast þegar stjórnvöld og hagsmunahópar neita að horfast í augu við viður- kenndar staðreyndir í efnahags- lífinu. Það er spilið sem allir tapa. Tilgangurinn með útgáfunni er að vekja fólk til umhugsUnar og umræðna um nauðsyn þess að snúa blaðinu við og leita nýrra leiða við stjórn efnahagsmála til hagsbóta fyrir alla. Sjá ennfremur veggspjaldið á bls. 29. StaÖan er ekkí leg og útlit var eins fyrir alvar- áÖur — Frekar um greiðslutregöu en sölutregöu að ræöa, segir Magnús Friðgeirsson NOKKUR hreyfing virðist nú vera komin á skreiðarútflutning til Níg- eríu, og að sögn Magnúsar Frið- geirssonar, hjá sjávarafurðadeild Margeir og Jón L. í 3.-9. sæti Margeir Pétursson og Jón L. Arnason höfnuðu í 3.—9. sæti á alþjóðlega skákmótinu í Bella Crkva í Júgóslavíu, sem lauk í gær. Allir íslenzku þátttakendurnir gerðu jafntefli í gær. f lokaumferð- inni tefldu þeir Margeir og Jón L. saman, en hinir við Júgóslava. Sigurvegari í mótinu varð Júgóslavinn Martinovic sem hlaut 10,5 vinninga af 13. Annar varð Murshed frá Bangladesh með 10 vinninga og í 3.-9. sæti með 9,5 vinninga urðu Margeir, Jón L., Júgóslavarnir Karaklaic, Sahovic, Velimirovic og Marino- vic og Grikkinn Skembris. Karl Þorsteins hlaut 8 vinn- inga á mótinu, Jóhann Hjartar- son og Elvar Guðmundsson 7. SÍS, eru horfur á því að staðan í árs lok verði talsvert betri en menn þorðu að vona í upphafi árs. Fyrir skömmu fór stór farmur hausa og skreiðar utan og væntanleg er í þess- um mánuði önnur stór útskipun. Að sögn Magnúsar fór utan í maí síðastliðnum stór farmur á vegum Sambandsins og Skreiðar- samlagsins, og í síðasta mánuði fóru 17.000 pakkar af hausum og 5.200 pakkar af skreið á vegum Sambandsins að verðmæti rúm- lega 71 milljón króna. Þá er fyrir- hugðuð í samvinnu Sambandsins og Skreiðarsamlagsins útskipun á 20.000 pökkum af hausum og 9.610 pökkum af skreið í þessum mán- uði. Fyrir því eru komnar banka- ábyrgðir og er sá farmur að verð- mæti um 112 milljónir króna. Sagði Magnús, að nú gengi bet- ur að selja hausana, þeir væru ódýrari og auk þess í hærri gæða- flokki hér en hjá Norðmönnum og kæmi því meira af hausakvótan- um í okkar hlut, en skreiðin virtist skiptast jafnar. Stæðust þeir sam- ningar, sem menn teldu sig hafa náð, yrði staðan í lok ársins mikl- um mun betri en menn hefðu þor- að að vona í upphafi ársins, þó ekki þannig að skreiðin yrði öll seld, en staðan væri ekki eins al- varleg og útlit var fyrir. Þá gat Magnús þess, að vanda- málið virtist ekki lengur vera hrein sölutregða, heldur frekar greiðslutregða. Upphæðir, sem nefndar væru, kæmu ekki í hendur okkar fyrr en allt að einu ári eftir útskipun. Hinn eiginlegi greiðslu- frestur væri allt að 6 mánuðum, og við það bættist, að tekið gæti allt upp í 6 mánuði að fá gjaldeyr- isyfirfærslu í Nígeríu. Hallgrfmur Sigurósson formaður félags flugumferöastjóra: „Erum beinlínis neyddir á aukavaktir“ — Vinna allt að 400 stundir í mánuði á sumrin „ÞAÐ ER í raun enginn mannskapur til á þessa aukavakt, og það er heldur ekki gert ráð fyrir henni í vaktakerfinu, hún er utan við allar aðrar vaktir og aukavaktir. Það sem gerðist var einfaldlega það að engir fengust til að standa vaktina í gærkvöldi," sagði Hallgrímur Sigurðsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, vegna takmörkunar á flugi um Reykjavíkurflugvöll. Tveir menn fengust þá ekki á aukavakt frá 19.30 til 23.30 og flugumferðarstjórinn, sem standa átti til næsta morguns, gat aðeins sinnt áætlunarflugi og öðru nauðsynlegu flugi. Flugumferðarstjórar eru mót- fallnir því að vinna á þessari aukavakt, m.a. vegna óánægju raeð greiðslu fyrir þær. Hallgrímur sagði að flugum- ferðarstjórar væru beinlínis neyddir til að standa þessar vaktir í beinu framhaldi af sínum venju- legu vöktum, sem væru 12 tíma Iangar. Ætlast væri því til að þeir ynnu allt að 16 tíma vinnudag, á sama tíma og látið væri að því liggja að þeir þyrftu að vinna skemur vegna flugöryggisins. „Með þessu fyrirkomulagi er ætlast til að við vinnum allt að 10 daga í röð, 12—16 stundir í einu. Síðan fáum við tveggja daga frí áður en önnur eins törn byrjar. Og það eru dæmi um að menn hafi verið að vinna hátt í mánuð án þess að fá nokkurn frídag. Starf flugumferðarstjóra er hrein þrælavinna og álagið gífur- legt eins og sést best á því að al- gengt er yfir sumartímann, þegar umferðin er þrisvar sinnum meiri en yfir veturinn, að menn vinni 24 —26 daga, 12—16 tíma á dag, eða kannski allt að 400 stundir í mánuði. Það eru engin ákvæði um hámarksvinnu flugumferðarstjóra eins og til dæmis flugmanna, sem ekki mega fljúga yfir 100 stundir í mánuði," sagði Hallgrímur. Hallgrímur sagði marga flug- umferðarstjóra vera ófúsa til aukavinnu þar sem vinnuálagið væri nóg fyrir og dæmi um að ungir menn yrðu að gefast upp í starfinu af heilsufarsástæðum. Þá sagði hann fjölda flugumferðar- stjóra of lítinn miðað við sumar- umferðina, en ef þeim yrði fjölgað í samræmi við hana yrði um of mikinn mannskap yfir veturinn að ræða. Finna þyrfti einhvern með- alveg þarna. Þá sagði Hallgrímur að í hópi flugumferðarstjóra væru margir eldri menn sem þegar hefðu náð eftirlaunarétti vegna starfsaldurs, en af fjárhagslegum ástæðum treystu þeir sér ekki til að hætta, þar sem eftirlaun væru ákveðið hlutfall af grunnlaunum, sem hann sagði mjög lág. Flugumferð- arstjórar fengju sínar háu tekjur í formi vaktaálags og mikillar aukavinnu. Hallgrímur sagði flugumferðar- stjórana fá um 700 krónur fyrir hina umræddu aukavakt á kvöld- in, en þar af færu yfir 500 í skatt. Vaktin væri ekki eftirsóknarverð í framhaldi af annarri 12 tíma. Laun flugumferðarstjóra hafa oft verið til umræðu og kvað Hall- grímur sínar tekjur ekkert laun- ungarmál. Hann hefði öll réttindi sem hugsanleg væru í heiminum. Grunnlaun sín væru um 18 þúsund krónur, flugumferðarstjórar væru í 21. launaflokki BSRB. Kvaðst hann hafa reiknað út í gær að hann yrði með um 400 þúsund krónur í árstekjur 1983 og væri þá reiknað með öllu vaktaálagi. Féll í klett- um í Grímsey Fimm ára piltur slasaðist talsvert er hann hrapaði í klettum í Grímsey í gærkvöldi. Meiðsli hans voru þó ekki fullkönnuð er blaðið fór í prentun.Pilturinn, einn þríburanna í eynni, var fluttur í sjúkrahús á Akur- eyri. Slysavarnafélagi íslands barst aðstoðarbeiðni vegna slyssins og var haft samband við Landhelgis- gæzluna, en varðskipið Þór var statt utarlega í Eyjafirði með þyrlu innanborðs. Fór þyrlan þegar í loftið og var til taks í Grímsey ef flugvél frá Akureyri með lækni innanborðs gæti ekki lent þar. Fannst lát- • • inn í Orfirisey MAÐUR um sjötugt fannst í sjón- um utan við vestari hafnargarð Reykjvíkurhafnar snemma í gær- morgun. Lögregla og slökkvilið komu á staðinn sem er nyrst í Örfirisey, en þar logaði eldur í bíl, sem tal- inn er hafa verið í eigu mannsins. Ekki var hægt að fá uppgefið nánari tildrög þessa atburðar hjá Rannsóknarlögreglunni, þegar Morgunblaðið kannaði málið í gærkvöldi. Maðurinn var eitthvað brunninn, þegar komið var að honum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.