Morgunblaðið - 01.07.1983, Síða 3

Morgunblaðið - 01.07.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983 3 Alþingi: Nýju flokkarnir fá þingflokksherbergi FORMENN þingflokkanna sátu fund með skrifstofustjóra Aiþingis í gær, þar sem fjallað var um undirbúning þingstarfa í haust og húsnæðismál Alþingis. Nýju stjórnmálasamtökin, Randalag jafnaðarmanna og Samtök um kvennalista, hafa ekki haft sérstök herbergi til þingflokksfunda eins og gömlu flokkarnir, en á fundinum í gær kom m.a. fram, að Bandalagið fær þingflokksherbergi í Vonarstræti 8, en Samtök um kvennalista á þriðju hæð í bórshamri. Á fundinum var einnig rætt um samkomudag Alþingis og var full- trúum stjórnarflokkanna falið að kanna hvort samkomudegi yrði hugsanlega flýtt, en reglulegur Esja seld til Græn- höfðaeyja samkomdagur er 10. október. Þá voru einnig nokkrar spurningar lagðar fram varðandi starfshætti þingsins fram að þingbyrjun svo sem varðandi forseta Alþingis, fjárveitinganefnd og utanríkis- málanefnd. Davíð Aðalsteinsson, sem sat fundinn í fjarveru Páls Péturssonar formanns þingflokks Framsóknarflokksins, tók að sér að bera spurningarnar inn á þing- flokksfund Framsóknar, sem haldinn verður að viku liðinni. Hannes Pétursson skáld. Ný ljóðabók eftir Hannes Pétursson IÐUNN hefur gefíð út nýja Ijóða- nefnist 36(jóðoger áttunda Ijóða- bók eftir Hannes Pétursson. Hún bók nháhWns, hin fyrsta síðan Heimkynni við sjó kom út 1980 og var tilnefnd til bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs. Um 36 ljóð segir svo í kynn- ingu forlagsins á kápubaki: „Þessi nýja ljóðabók Hannes- ar Péturssonar heldur fram áþekkri stefnu og Heimkynni við sjó. Munurinn er ef til vill sá að þar seni ljóðin í fyrri bókinni voru einkum hnituð um staði í umhverfi ssáldsins í náttúrunni, er hér fremur augum beint að stundum sei.i það hefur lifað og magnar fyrir tilstilli nærfær- innar orð'istar upp í minnilega listræna skynjun. 1 hverju ljóð- inu á fætur öðru sækir skáldið' í sjóð minninganna, smíðar úr þeim fagurmótaðar myndir. Sjaldan hefur Hannes ort jafn nákomin Ijóð, en þau bera engu að síður birtu langt út frá sér, á það sem manninum reynist tíð- um óbilugast í uggvænlegum heimi." 36 ljóð er fimmtíu blaðsíður. Káputeikningu gerði Auglýs- ingastofa Kristínar hf. Prent- smiðjan Oddi hf. prentaði. ESJA, strandferdaskip Skipaútgerð- ar ríkisins, hefur verid seld til Grænhöfðaeyja. Að sögn Guðmund- ar Einarssonar, forstjóra Skipaút- gerðarinnar, er það einkaaðili á Grænhöfðaeyjum sem keypt hefur skipið fyrir jafnvirði rúmlega 17 milljóna íslenskra króna og mun hann ætla að hafa það í siglingum á milli eyjanna í Grænhöfðaeyjaklas- anum og einnig til Vestur-Afríku og Portúgal. Esjan verður afhent kaupand- anum í lok júlímánaðar. Hekla, sem ekki hefur verið í notkun um skeið og einnig er á söluskrá, verð- ur í ferðum í stað Esjunnar þar til nýja Esjan, sem er í smfðum í Englandi, verður tekin í notkun. Kirkjustjórn hefur ekki kært útgefanda Spegilsins AF gefnu tilefni skal það tekið fram að Kirkjustjórnin hefur eng- in afskipti haft af ákæru þeirri sem fram er komin á hendur út- gefenda Spegilsins. FrétUtilkynning. Laxárvirkjun formlega í Landsvirkjun GENGIÐ verður formlega frá sam- einingu Laxárvirkjunar við Lands- virkjun á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar Landsvirkjunar, sem hald- inn verður á Akureyri í dag. Iðnað- arráðherra, Sverrir Hermannsson, verður viðstaddur. Þessi fyrsti stjórnarfundur er haldinn á Akureyri í tilefni af inn- göngu Laxárvirkjunar. Formaður stjórnar Landsvirkjunar er Jó- hannes Nordal seðlabankastjóri, forstjóri er Halldór Jónatansson. Grásleppuvertíð í Stykkishólmi góð Stykki.shólmi, 30. júní. HÉR HEFUR verið mjög góð grá- sleppuvertíð í vor og fram á sumar, sú langbezta í mörg ár. Róa þetta þrír og fjórir á hverjum bát. Dæmi er um að þrír menn á bát hafi fengið á annað hundrað tunn- ur af hrognum, en gert er ráð fyrir að sjómennirnir fái um sjö þúsund krónur fyrir tunnuna. \AUK \DYF/t og fœistandi Sérlega Ijúffeng með óscetu kexi, kartöfluflögum og öðru ,,pakkasnarli“. i 1 Einnig œttirðu að reyna hana með hráu grœnmeti, s.s. selleríi, gulrótum, og gulrófum. Skerðu grœnmetið í mjóar lengjur og berðu það fram vel kalt með ídýfunni. ídýfan er úr sýrðum rjóma sem kryddaður er með franskri kryddblöndu. Hún er einkar fersk og létt sem þakka má sýrða rjómanum og í hverri matskeið eru aðeins 29 hitaeiningar. Frönsk laukídýfa — ein semgott er að eiga í ísskápnum. Mjólkursamsalan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.