Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ1983 5 íslenska óperan: Sérstakar sumar- sýningar til að bæta stöðuna FJÁRHAGUR fslensku óperunnar er bágborinn um þessar mundir. Veldur þar mestu kostnaður vegna breytinga á Gamla bíói sem ekki hefur tekist að greiða niður þó að sýningar í vetur hafi gengið nokk- uð vel. Að sögn Maríu Sigurðar- dóttur, framkvæmdastjóra óper- unnar, verður farið af stað með sérstaka sumardagskrá í júlí og ág- úst til að rétta fjárhaginn við svo unnt verði að fara af stað með sýn- ingar í haust. Sumardagskráin verður þann- ig að haldnar verða kvöldvökur með al-islenskri dagskrá. Á kvöldvökunum verður sungin ís- iensk tónlist og sýndar verða ís- lenskar kvikmyndir. Þá verður málverkasýning í kaffistofu, sem innreítuð hefur verið í gömlu bíóstjóraíbúðinni á efstu hæð Gamla bíós. Á föstudags- og laugardagskvöldum kl. 21:00 syngur 14 manna hópur úr óper- ukórnum íslensk þjóðlög og önn- ur lög íslenskra höfunda. þá munu kórfélagar stíga nokkur þjóðdansaspor. Á hverri sýningu koma einnig fram tveir íslenskir einsöngvarar. Að söngdag- skránni lokinni verður sýnd kvikmyndin „Days of Destruct- ion“, sem Kvik hf. gerði um gosið á Heimaey. Auk þessarar kvöldvöku verða kvikmyndasýningar alla daga vikunnar kl. 21:00, nema á föstu- dögum og laugardögum, þá verða þær kl. 18:00. Auk myndarinnar frá gosinu á Heimaey verða sýndar kvikmyndirnar „Three Faces of Iceland" eftir Magnús Magnússon og „From The Ice Cold Deep“ sem gerð var af Lif- andi myndum hf. Þess má geta að á málverkasýningunni í kaffi- stofunni eru málverk eftir Ás- grím Jónsson, Jón Stefánsson og Jóhannes Kjarval. Á stigagöng- um er sýndur vefnaður eftir Vigdísi Kristjánsdóttur. Allur ágóði sumardagskrár- innar rennur til rekstrar Óper- unnar. Söngvarar sem fram koma gefa vinnu sína í þeirri von að þetta framtak megi verða til styrktar frekari uppbyggingu operulífs í landinu. Sr. Olafur Þór kjörinn í Mælifells- prestakalli PRESTSKOSNING fór fram í Mæiifellsprestakalli í Skagafjarðarprófastsdæmi sl. sunnudag. Atkvæði hafa nú verið talin á biskupsstofu. Umsækjandi var einn, séra Ólafur Þór Hallgrímsson í Ból- staðarhlíð. Á kjörskrá voru 198, 97 greiddu atkvæði. Séra Ólafur hlaut 83 atkvæði en 14 kjörseðl- ar voru auðir. Séra Ágúst Sigurðsson, sem nú er prestur íslendinga í Danmörku, þjónaði áður Mæli- fellsprestakalli. o I)r. Tumi Tómasson Doktor í fiskifræði TUMI Tómasson, fiskifræðingur, lauk doktorsprófi f aprfl síðastliðn- um frá Rhodes University, Grahams- town í Suður-Afríku. Doktorsritgerðin fjallar um við- komu, vöxt og stofnsveiflur nokk- urra fisktegunda í uppistöðulón- um og dragám þeirra. Nefnist rit- gerðin „The biology and manage- ment considerations of abundant large cyprinids in lake Le Roux, Orange river, South Africa". Tumi fæddist í Reykjavík 31. maí 1952, sonur Tómasar heitins Tryggvasonar, jarðfræðings, og Kerstin Tryggvason, bankafull- trúa. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1972. Árið 1976 lauk hann fil. kand.-prófi í ferskvatnslíffræði frá háskólanum í Umeá í Svíþjóð. Mastersprófi lauk Tumi frá Oreg- on State University, Corvallis í Bandaríkjunum vorið 1978. Tumi vann við Veiðimálastofn- unina áður en hann hélt til Suð- ur-Afríku og mun veita forstöðu útibúi frá þeirri stofnun sem verð- ur staðsett á Hólum í Hjaltadal. Tumi er kvæntur dr. Allison MacDonald, kennslufræðingi, og eiga þau eina dóttur. Sýningu Helga Jósepssonar að Ij'úka Sýningu Helga Jósepssonar í fé- lagsmiðstöð Samhjálpar að Hverfls- götu '2 lýkur á morgun, laugardag- inn 2. júlí. Á sýningunni eru 32 verk, unnin í olíu, vatnslit, grafík og leir. Er helmingur myndanna seldur. Þetta er níunda einkasýning Helga, en hann stundaði nám við Myndlista- og handiðaskóla Is- lands árin 1970 til 1974, og auk þess kvöldskóla við Myndlista- skóla Reykjavíkur, þar sem hann lagði stund á vatnslitun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.