Morgunblaðið - 01.07.1983, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983
Vilhjálmur G. Vilhjálmsson, varaborgarfulltrúi:
Fólk er orðið jákvæðara
gagnvart heyrnarlausum
Fyrir skömmu sat í fyrsta skipti borgarstjórnarfund
heyrnarlaus maður. I»aö var varaborgarfulltrúi Sjálfstædis-
flokksins, Vilhjálmur G. V ilhjálmsson. Vilhjálmur nýtur
aðstoðar fööur síns, Vilhjálms B. Vilhjálmssonar, við túlk-
un á fundum borgarstjórnar og átti blaöamaður Mbl. stutt
spjall við þá feðga nýverið um þetta nýja starf Vilhjálms og
málefni heyrnarlausra.
Vilhjálmur G. er 28 ára gam-
all og hefur verið heyrnarlaus
frá fæðingu. Hann hóf námsferil
sinn í Heyrnleysingjaskólanum
við Öskjuhlíð, en að loknu námi
þar, fór hann í Myndlista- og
handíðaskóla íslands og útskrif-
aðist þaðan sem auglýsinga-
teiknari árið 1977. Cr Myndlist-
arskólanum lá leið Vilhjálms til
Danmerkur og lauk hann
tveggja ára framhaldsnámi við
skóla fyrir nytjalist þar í landi.
Þegar heim kom, fékk Vilhjálm-
ur starf sem auglýsingateiknari
hjá Auglýsingastofunni hf. og
hefur starfað þar síðan.
Þar sem Vilhjálmur hefur ver-
ið heyrnarlaus frá fæðingu hefur
leið hans gegnum skólakerfið og
þjóðlífið yfirleitt verið með
nokkuð öðrum hætti en gengur
og gerist, en fjölskylda hans hef-
ur aðstoðað hann mjög mikið.
Faðir hans, Vilhjálmur B. Vil-
hjálmsson túlkar nokkuð fyrir
hann m.a. þegar hann situr
fundi borgarstjórnar.
Aðspurður kvaðst Vilhjálmur
ekki hafa starfað mikið að fé-
lagsmálum í skóla, en aftur á
móti hefði hann haft mörg verk-
efni með höndum fyrir Félag
heyrnarlausra. Fyrir síðustu
borgarstjórnarkosningar leitaði
Sjálfstæðisflokkurinn til hans
og bað hann að taka 24. sæti á
lista flokksins. Vilhjálmur sagði
að sem varamaður sæti hann
ekki mjög oft borgarstjórnar-
Vilhjálmur við störf hjá Auglýsingastofunni hf.
fundi, en sagði þó að samskipti
hans við aðra borgarstjórnar-
fulltrúa gengju vel, þrátt fyrir
að hann væri mjög háður túlki á
slíkum fundum. Vilhjálmur situr
einnig í umhverfismálaráði og
þar sagði hann að allt gengi bet-
ur fyrir sig, þar sem betra væri
að einbeita sér í litlum hópi og
grípa allt sem sagt væri.
Eins og áður sagði, vinnur
Vilhjálmur sem auglýsinga-
teiknari og sagðist hann ekki
mæta miklum erfiðleikum í því
starfi, þar sem hann þekkti alla
vel á vinnustaðnum og oft væri
tengiliður milli hans og við-
skiptavinanna.
Varðandi fordóma gagnvart
heyrnarlausu fólki, kvaðst Vil-
hjálmur ekki verða svo mjög var
við þá og taldi fólk vera orðið
miklu jákvæðara í hugsunar-
hætti og einnig væru heyrnleys-
ingjar orðnir ófeimnari við að
nota táknmál og því frjálslegra í
allri umgengni, en áður.
Vilhjálmur fylgist vel með
stjórnmálum landsins og þá sér-
staklega borgarmálefnum. Ekki
kvaðst hann þó farinn að hugsa
til þingmennsku enn, þó vissu-
lega yrði það mikill sigur fyrir
heyrnarlausa að eiga mann á Al-
þingi.
Haukur Vilhjálmsson, bróðir
Vilhjálms, er einnig heyrnar-
laus. Hann er tvítugur að aldri
og stundar nám í Bandaríkjun-
um. Að sögn Vilhjálms vegnar
Hauki vel þar ytra, en hann er í
sérstökum skóla fyrir heyrnar-
lausa í Washington.
Málefni heyrnarlausra eru
ofarlega á baugi hjá fjölskyldu
Vilhjálms, eins og gefur að
skilja, og nú hefur hún tekið að
sér erlendan skiptinema sem er
algerlega heyrnarlaus. Hver veit
nema fjölskyldan eignist svo
þingmann á komandi árum?
hgj-
Gyða Eyjólfsdóttir líffræðingur, sem er bóndadóttir úr Hrunamannahreppnum, útskýrir rann- Sigurður Þórðarson framkvstj. laxeldisstöðvarinnar í Kollafirði fóðrar eldisbleikjur.
sóknir sínar hjá RALA á Keldnaholti fyrir sveitungum sínum.
Sunnlenskir bændur kynna
sér stofnanir landbúnaðarins
Sydra-Lant;holti, 27. júní.
í FYRRAVÖR tók Búnaðarsamband
Suðurlands upp þá nýbreyt.ii að
skipuleggja hópferðir bændafólks á
félagssvæði sínu til tilraunasiöðva
og stofnana landbúnaðarins. Er hér
um eins dags ferðir að ræða, þar
sem of viðamikið og tímafrekt er
talið að fara í margra daga bænda-
farir í aðra landsfjórðunga eins og
sumstaðar hefur tíðkast. Reyndar
skipulagði Búnaðarsamband Suður-
lands eina fyrstu ferðina af þessu
tagi þegar sunnlenskir bændur fóru
mikla bændaferð til Norðurlands ár-
ið 1938.
í fyrravor voru Tilraunastöðin á
Sámsstöðum, skógrækt ríkisins á
Tumastöðum, Gunnarsholtsbúið
og Þykkvibærinn heimsótt og voru
þátttakendur 411. Nú dagana
20,—24. júní voru svo skipulagðar
hópferðir búnaðarfélaganna í
kynnis- og fræðsluferðir til nokk-
urra stofnana sem tengdar eru
landbúnaðinum og eru á Reykja-
víkursvæðinu. Þeir staðir sem
heimsóttir voru eru Oí.ta- og
smjörsalan, Áburðarverk.'.miðjan,
Rannsóknastofnun landlúnaðar-
ins á Keldnaholti, Rannsó.tnar- og
gróðrarstöðvar ríkisins á Mógilsá
og laxeldisstöð ríkisins í Kolla-
firði. Á öllum þessum stöðum var
uppbygging og rekstur þessara
stofnana kynnt og gestir gengu
um byggingar sem margar eru
stórar og glæsilegar. Forstöðu-
menn tóku á móti bændunum með
ávarpi og þáðar voru veitingar.
Um kvöldið óku svo hóparnir heim
um Þingvelli, en þar var snæddur
kvöldverður.
Það er mikils virði fyrir bænda-
fólkið að fá þetta tækifæri til að
kynnast þessum stofnunum, sem
það þekkir raunar lítið nema af
afspurn, og þó að dvölin væri ekki
löng á hverjum stað er hægt að fá
nokkra nasasjón af því sem það
fjölmarga fólk sem vinnur á þess-
um stöðum er að aðhafast. Það er
einnig kærkomin tilbreyting að
líta upp úr búskaparamstrinu en
nú er helst tími til þess, þegar
skepnur eru komnar af húsi og
heyskapur ekki hafinn.
Við Hreppamenn vorum í þess-
ari ferð miðvikudaginn 22. júní en
hittum starfsbræður okkar úr
Ása- og Djúpárhreppum á Þing-
völlum. Öllum bar saman um að
þessi ferð hefði verið fróðleg og
skemmtileg og hygg ég að mér sé
óhætt að mæla svo fyrir hönd
allra þátttakenda í þessum ferð-
um, en þeir voru á sjöunda hundr-
að. Flytja ber þakkir til forystu-
manna búnaðarsamtakanna á
Suðurlandi fyrir að skipuleggja
þessar ferðir svo og þeirra sem
tóku vel á móti okkur fyrir vestan
Heiði.
Búnaðarsamband Suðurlands
verður 75 ára þann 6. júlí næst-
komandi, en það samanstendur af
35 búnaðarfélögum. Sennilega
verður afmælisins minnst við
fleiri tækifæri í sumar.
Sig. Sigm.
Rangeyskir bændur ræða málin nndir borðum í Valhöll.
ijtem.: Sig. stgm. Runólfur Þórðarson verksmiðjustjóri gengur með bændunum um Áburðar-
verksmiðjuna.