Morgunblaðið - 01.07.1983, Side 16

Morgunblaðið - 01.07.1983, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö. Betur má ef duga skal Sú staðreynd að íslend- ingar verða allra karla og kerlinga elztir í heiminum undirstrikar það, að hér muni á undanförnum áratugum hafa verið nokkuð vel að mál- efnum aldraðra staðið. En lengi má gera betur." Þannig mælir dr. Ólafur Bjarnason, prófessor, í forystugrein Heil- brigðismála, sem Krabba- meinsfélag íslands gefur út. Undir þetta skal tekið. Á þess- um akri hafa fjölmargir aðilar lagst á plóginn, einstaklingar, félagasamtök, sveitarfélög og ríki. Margt hefur vel verið gert, en betur má ef duga skal. Hér skulu enn tíunduð nokkur at- riði, sem miklu skipta í stefnu- mótun um málefni aldraðra: • Fullorðið fólk þarf að hafa störf við hæfi, geta tekið þátt í önn dagsins meðan það hefur vilja og heilsu til. Að loknum starfsdegi þurfa eftirlaun og/eða ellilífeyrir að tryggja viðunandi afkomu. • Fullorðið fólk á að geta dvalið eins lengi í heimahús- um og heilsufar þess leyfir og vilji þess stendur til. Það þarf að eiga völ á heimilishjálp og heimahjúkrun. Slík þjónusta er samfélaginu mun hagstæð- ari en bygging og rekstur dvalarheimila, sem þjóna engu að síður mikilvægu hlutverki. • Ýta þarf undir byggingu húsnæðis, sem hentar öldruð- um, bæði eignar- og leigu- íbúða, sem og dvalar- og sjúkrastofnana. Á þessum vettvangi þurfa að vera val- kostir til að hægt sé að virða og mæta mismunandi vilja viðkomenda. • Verulega hefur skort á sjúkrarými fyrir öldrunar- sjúklinga. Öldrunarlækninga- deild Landspítala, sem skipt er í þrjár legudeildir og dagspít- ala, hefur lyft Grettistaki í störfum, þó betur hafi mátt búa að henni. B-deild Borg- arspítala, sem að hluta til hef- ur verið tekin í notkun, leysir fullbúin úr brýnni þörf. Skort- ur á hjúkrunarrými fyrir öldr- unarsjúklinga er vanvirða í velferð samtímans. • Að loknum löngum starfs- degi þarf fólk að finna sér hugðarefni til að fylla tóma- rúm, sem flestum mætir: fé- lagsskap, föndur, ferðalög o.s.frv. Fyrr á tíð, meðan stór- fjölskyldan var og hét, vóru tengsl fyrstu og þriðju kyn- slóðar á heimili báðum gagn og gaman. Ef til vill má endur- nýja þessi tengsl í einhverju formi. — Sveitarfélög, einkum Reykjavík, hafa margt á prjónunum til að mæta tóm- stundaþörfum fullorðins fólks, en alltof víða er lítið sem ekk- ert gert. Fyrst og síðast verður að hafa í huga, að allir, ekki sízt hinir öldnu, hafa þörf fyrir félagsskap og tengsl við vini og vandafólk. Því hefur verið haldið fram að bezti mælikvarðinn á menningu þjóðar sé, hvern veg hún býr að hinum öldruðu. Það er þörf fyrir allnokkurn menningarauka að þessu leyti í samfélagi okkar. Þjóðkirkja Prestastefnu íslands 1983 lauk í fyrri viku. Megin- efni stefnunnar var að þessu sinni “Hinn lútherski arfur í kirkju samtímans", en 500 ár eru liðin frá fæðingu Marteins Lúthers. Fjallar ályktun prestastefnunnar, sem vænta mátti, fyrst og fremst um starf og kenningar hans, en jafnframt um hlutverk kirkj- unnar á líðandi stund. Lögð var áherzla á að nýta „nútíma boðunarleiðir" til að ná til hins breiða fjölda; á skyldu kirkjunnar til að standa vörð um rétt mannsins til lífs, frelsis og mannréttinda; að varast rányrkju eða ofnýtingu á Guðs gjöfum; — og vinna að auknum skilningi, vináttu og friði þjóða á milli. Öll eiga þessi stefnumið ríkt erindi við okkar í dag. Um leið og vestrænar þjóðir. tryggja öryggi sitt með nauðsynlegu varnarsamstarfi og varnar- búnaði verða þær að halda öll- um friðarleiðum opnum; knýja á um gagnkvæma afvopnum austurs og vesturs. — En kirkjan á ekki síður að knýja á um frið inn á við: frið í ís- lenzku samfélagi, frið í sam- skiptum byggðarlaga og starfsstétta, frið í samskiptum manns við mann, frið í hugum okkar sem einstaklinga. Heitið þjóðkirkja er rétt- nefni, þar eð þorri íslendinga hefur skipað sér undir hennar merki. Er það vel, bæði kirkju og þjóðar vegna. Vonandi ber kirkjan gæfu til að vera áfram þjóðkirkja, trúarlegt samein- ingartákn landsmanna; styrkja )á brú friðar og samstarfs við íinn þögla meirihluta þjóðar- innar, sem svo miklu skiptir. Rannveig Marfa Níelsdóttir, nýútskrifaður foringi f Hjálpræðishernum: „Ég er stolt af því að til- heyra slíkri hreyfingu" „ÉG ER uppalin í Hjálpræöishernum og hann hefur verið mitt andlega heimili frá því ég var barn. Mér fannst það vera verkefni mitt að boða mína trú og starfa fyrir Guð og sú var ástæða þess að ég valdi Hjálpræðisherinn sem mitt starfssvið,“ sagði Rannveig María Ní- elsdóttir í samtali við Morgunblaðið, en hún er ný útskrifuð frá foringjaskóla Hjálpræðishersins í Noregi. Hún er komin hingað til lands ásamt tilvonandi eiginmanni sínum, Dag Albert Baarnes, til þess að gifta sig, en þess má geta að með Rannveigu var í skólanum í Noregi bróðir hcnnar, Erlingur Níelsson. Þess má geta aö áður en Rannveig hélt til náms í Noregi, starfaði hún sem blaða- maður á Morgunblaðinu. „Starf innan Hjálpræðishersins skiptist í þrjár aðal greinar; safnað- arstarf, félagslegt starf og trúboðs- starf. Ég vinn við safnaðarstörf, þó segja megi að Hjálpræðisherinn sé ekki eiginlegur söfnuður, hvorki hér né í Noregi, heldur er um félag að ræða. Fyrir tveimur árum fór ég í For- ingjaskóla Hjálpræðishersins í Osló og að mér og bróður mínum meðtöld- um eru níu íslenskir starfandi for- ingjar á því svæði Hjálpræðishersins sem er ísland, Noregur og Færeyjar. í skólanum lögðum við einkum stund á biblíufræði, trúarsetningar Hjálp- ræðishersins og sálusorg, en einnig leggjum við stund á aðrar greinar, til Toppandar- og húsand; eftirsóttust í andagarð; Rætt við Leif Hallgrímsson, en hann hefur leyfi menntamálaráðuneytisins til að flytja út andaegg „ÞESSI viðskipti ganga þannig fyrir sig að við söfnum eggjunum á vorin, mest hér í Vogum, en kaupum einnig af öðrum bændum og síðan sendum við þau til viðskiptaaðila okkar erlendis," sagði Leifur Hallgrímsson, bóndi í Vogum 1 í Mývatnssveit, í samtali við blaðamann Mbl. er þar var á ferð fyrir nokkru. Leifur er annar tveggja aðila á landinu sem leyfi hafa til að selja ákveðið magn eggja tiltekinna anda- tegunda úr landi, en hinn aðilinn er einnig búsettur við Mývatn. Þeir hafa leyfi fyrir þessum sérstæðu viðskiptum frá menntamálaráðu- neytinu sem veitti þau með ákveðn- um skilyrðum að fenginni umsögn fuglafriðunarnefndar. Þetta er fyrsta vorið sem Leifur stundar þessi viðskipti, en þau hafa verið stunduð í einhverju formi um áratugaskeið. Leifur sagði að þeir aðilar sem hann seldi egg kæmu í Mývatnssveit og þar væri í raun gengið frá kaup- unum en vegna skilyrða sem bundin voru í leyfinu þá þyrfti hann sjálfur að sjá um að búa um eggin í þar til gerðum umbúðum, flytja þau suður, afla tilskilinna útflutningspappíra, láta menn frá Náttúrufræðistofnun skoða í kassana til að athuga magn og tegundir eggjanna og koma þeim síðan í flugvél. Leifur var ekkert yfir sig hrifinn af þessum reglum, hann sagðist hafa farið fram það á að fá að selja eggin þarna á staðnum eftir ákveðnum og jafnöruggum skilyrðum, en því hefði verið hafnað, þannig að hann yrði sjálfur að eltast við að koma þeim úr landi. Hann sagði um þessi mál al- mennt: „Þetta er fyrst og fremst hagsmunamál okkar heimamanna og kemur í raun einhverri embætt- ismannanefnd í Reykjavík ekkert við. Það erum við sem viljum að hér við Mývatn sé mikið af hverskyns öndum. Öll þessi mál þarf að taka til gagngerðrar endurskoðunar. Það hefur verið unnið geysilegt starf hér við vatnið til að ná upp andavarpi, þar er húsandavarpið gott dæmi. Hún verpir mest þar sem hlúð er að varpinu. Sem dæmi um þetta get ég nefnt, að við skiljum aldrei eftir færri en 6 egg í hreiðrum en samkvæmt fuglafriðunarlögunum þá eru 4 egg lágmark, þannig að heimafólkið hefur fullan áhuga á að hlúa vel að varpinu og þarf ekki að láta neina menn í Reykjavík segja sér fyrir verkum í því efni.“ En hvað er svo fyrir þessa vinnu að hafa? Leifur vildi ekkert láta hafa eftir sér um hvað hann seldi eggin á, en sagði að þar væri um óverulegar upphæðir að ræða, auk þess sem hann seldi ekki nema lítinn hluta þeirra eggja sem hann hefði kvóta fyrir, þar sem eins og er væri aðeins markaður fyrir ákveðnar tegundir eggja. Það væru toppandar- og hús- andareggin sem væru eftirsóttust til útungunar erlendis. Leifur Hallgrímsson bóndi í Vogum 1 IIV areggjum í hendinni en egg annarra anda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.