Morgunblaðið - 01.07.1983, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983
17
Þrír nýútskrifaðir foringjar í Hjálpræð-
ishernum: Frá vinstri: Erlingur Níels-
son, Rannveig María Níelsdóttir og Dan
Albert Bárnes.
Ljósm. Mbl. Rax.
dæmis sálfræði, ræðumennsku og fé-
lagsstörf og einnig er um að ræða
ýmsar valgreinar. Mikill hluti kennsl-
unnar er verklegur, við erum send út
í þjóðfélagið til að æfa okkur á því
sviði sem við komum til með að starfa
á. Einu sinni á ári erum við send út í
hópum í 10 daga herferð, einnig er
páskaferð allra nemenda skólans,
sem er trúboðsferð, og síðan störfum
við í 4 mánuði sem foringjar undir
leiðsögn annarra, en þessi tími hefur
að vísu verið styttur nú í 2 mánuði,"
sagði Rannveig.
„Foringinn er leiðtogi þess safnað-
ar sem hann vinnur í. Hann heldur
samkomur fyrir börn og fullorðna,
sinnir sálusorg fyrir þá sem til hans
leita, tekur við gjöfum sem síðan er
útdeilt til hinna þurfandi og selur
blað Hjálpræðishersins, sem hér á
landi heitir Herópið. Einnig förum
við út á meðal fólks og boðum fagnað-
arerindið í orði og verki, en það er
aðalverkefni okkar," sagði Rannveig.
Eins og áður gat er Rannveig
hingað komin til þess að ganga í
hjónaband. Hún var spurð hvað tæki
við hjá þeim hjónum. „Við höfum
fengið skipun um að vinna í söfnuðin-
um í Elverum í Heiðmörk í Noregi og
við verðum þar bæði foringjar. Við
vitum ekki hve lengi við verðum þar,
því við erum undir skipunarfyrir-
komulagi. Við verðum í Elverum
þangað til okkur verður skipað að
fara annað. Þetta er spennandi, en
getur verið þreytandi," sagði Rann-
veig.
Eg kann mjög vel við þetta starf.
Þegar ég fór út þá þekkti ég ekkert til
þess, þótt ég hafi verið í Hjálpræðis-
hernum hér á íslandi. Hreyfingin er
stór í Noregi og raunar öllum heimin-
um og ég er stolt af því að tilheyra
slíkri hreyfingu, því þar fæ ég að
þjóna Drottni og breiða það út sem ég
hef sjálf fundið," sagði Rannveig
María Níelsdóttir.
areggin
ana
fývatnssveit. Hann heldur á tveimur húsand-
tegunda eru í fötunni. Moritunblaðia/ Guðjðn
Karfavinnsla á Rússland stöðvuð:
Hlutur karfa í afla
togara takmarkaður
— Þýðir minni afla og verri afkomu, seg-
ir Sævar Brynjólfsson, skipstjóri á Breka
„ÞAÐ ER Ijóst að þetta hefur í for
með sér minni afla og lakari af-
komu,“ sagði Sævar Brynjólfsson,
skipstjóri á Breka frá Vestmannaeyj-
um, er Morgunblaðið bar undir
hann afleiðingar þess, að ekki má
lengur frysta karfa á Rússlands-
markað og karfaafli Vestmanneyja-
togara hefur verið takmarkaður við
þriðjung af heildarafla. í dag gengur
í gildi bann frystihúsa við vinnslu
karfa fyrir Rússlandsmarkað. Af
þeim sökum hefur togurum sunnan-
og suðvestanlands verið beint á aðr-
ar veiðar og karfaafli þeirra tak-
markaður. Kemur þetta í kjölfar sí-
aukins karfaafla og þess, að löngu er
búið að frysta upp í sölusamninga
þessa árs við Rússa og langt komið
með að framleiða upp í næsta árs
samning.
„Við höfum beint þeim tilmæl-
um til skipstjóra togara, sem
leggja upp hjá okkur, að hlutur
karfa í afla þeirra verði ekki meiri
en V4 nú fyrst í stað. Það sem af
karfa berst til okkar verður reynt
að framleiða á aðra markaði, aðal-
lega Bandaríkjamarkað. Þetta
Sævar Brynjólfsson, skipstjóri.
verður ákaflega erfitt fyrir skipin,
þar sem mikill meirihluti afla
þeirra hingað til hefur verið karfi,
en við ætlum að reyna þetta og sjá
hvernig fer. Bátaafli hér hefur að-
allega verið ýsa svo ekki hefur
þurft að setja neinar takmarkanir
á bátana," sagði Guðmundur
Karlsson, framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar í Vetsmannaeyjum, í
samtali við Morgunblaðið.
„Við höfum beint skipunum á
veiðar á öðrum tegundum, aðal-
lega þorski, öðrum bolfiski og
grálúðu, en síðan verður haldið
áfram að vinna karfa í aðrar
pakkningar en á Rússland, sér-
staklega fyrir Bandaríkin og
Vestur-Evrópu. Nú eru til dæmis 5
skip frá okkur fyrir vestan og eitt
í höfn og er það í samræmi við
þessi nýju viðhorf. Þá höfum við
rætt við skipstjórana um að halda
karfaaflanum í lágmarki. Sam-
tíma þessu er einnig verið að
reyna að auka sölustarf fyrir
karfa á aðra markaði og þá aðal-
lega ferskan," sagði Björgvin Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Bæjarútgerðar Reykjavíkur.
„Maður verður vís: að snúa sér
að einhverju öðru en karfanum
eftir að ákveðið hefur verið að
takmarka veiðar á honum. Hvern-
ig það gengur er erfitt un að
segja, að minnsta kosti er ekki .'óg
af þorski til að bæta upp mismui,-
inn. Við erum nú á grunnunum við
Karfa landað úr togara.
suðausturströndina og þá aðallega
á ýsu og gengur þokkalega. Það
gefur alveg augaleið að ekki verð-
ur hægt að halda sama aflamagni
og áður þegar karfinn má ekki
vera nema þriðjungur aflans,
þetta þýðir bara minni afla og
verri afkomu. Frá áramótum má
segja að um 60% aflans hafi verið
karfi, þannig að þetta verða mikil
viðbrigði," sagði Sævar Brynjólfs-
son, skipstjóri á skuttogaranum
Breka frá Vestmannaeyjum.
Fjórðungsmótið á Melgerðismelum:
Krystall langefstur í B-flokki gæðinga
Melgerdismelum, 30. júní. Frá Valdimar
Kristinssyni tídindamanni Mbl.
MÓTSSTÖRF hófust hér á
Melgerðismelum klukkan 10 í
gærmorgun er byrjað var að dæma
B-flokk gæðinga. A sama tíma hóf-
ust dómar kynbótahrossa og var
byrjað á hryssum sex vetra og eldri.
Veður hefur verið hið ákjósanleg-
asta, léttskýjaö og hlýtt.
Eftir forkeppni í B-flokki er
Krystall frá Kolkuósi efstur með
8,77 í einkunn. Annar varð Aron
frá Litlu-Grund með 8,59. f þriðja
sæti varð Léttir með 8,50. Aðrir
sem á eftir komu eru Þröstur frá
Kjartansstaðakoti með 8,33,
Njörvi með 8,25, Smyrill frá
Hvammstanga með 8,22, Gim-
steinn frá Vindheimum með 8,19
og Glær Sauðárkróki með 8,19.
Þessir átta hestar mæta í úrslit-
um á sunnudag klukkan 16.
Dómsstörf gengu mjög vel gæð-
ingakeppni og kynbótadómum.
Gæðingadómum lauk um þrjúleyt-
ið en kynbótadómum um sjöleytið.
Tölvuvæðingin, sem nú er reynd
í fyrsta sinn á móti sem þessu,
hefur gefið mjög góða raun og
hleypir notkun hennar aukinni
spennu í keppnina, því aðalein-
kunn hvers hests er kynnt fljót-
lega eftir að hann hefur lokið
keppni. Röð átta efstu hesta
hverju sinni er stöðugt á sjón-
varpsskerm sem staðsettur er í
áhorfendabrekkunni.
Um klukkan hálf sjö í gær lauk
keppni unglinga 13 til 15 ára og
varð efstur Einar Hjörleifsson á
Tvisti með 8,09. Annar varð Vignir
Sigurðsson á Hrappi með 7,90,
þriðji Gestur Stefánsson á Háfeta
með 7,88. Fjórði varð Jón A.
Jónsson á Litla Rauð með 7,83,
fimmti Inga M. Stefánsdóttir á
Djákna með 7,82, í sjötta sæti
Sonja Grant á Prúð með 7,77,
sjöunda Sigurhanna Sigtryggs-
dóttir á Dagfara 7,77 og í áttunda
sæti varð Olafur Kristjánsson á
Komma með 7,62. Þessi átta mæt-
ast síðan í úrslitakeppni á sunnu-
dag.
Um klukkan fimm í gær höfðu
600 manns keypt sig inn á svæðið
og telja forráðamenn mótsins að
um þúsund manns og 400 hross
séu á svæðinu. Búist er við mikilli
aðsókn að mótinu seinni partinn í
dag eftir vinnutíma þar sem veður
er svo gott sem raun ber vitni.
{ dag hefst dagskrá með dómum
á stóðhestum qg dómum í A-flokki
gæðinga. Ungíingakeppni í yngri
flokk hefst klukkan 15.30 og að
henni lokinni, um klukkan 18.
hefjast svo undanrásir kappreiða.
Kvöldvaka byrjar svo um klukkan
21. Mikil ánægja ríkir meðal móts-
gesta með alla aðstöðu og aðbún-
að.
„Hef aldrei kynnzt
öðrum eins mathák“
— segir Torfi Einarsson, „fóstri“ selkópsins Jóhönnu
„JÓHANNA hefur það fínt hjá
mér og étur alveg rosaiega. í dag
hefur hún étið 4 grálúðuflök og tvö
ýsuflök og ég hef aldrei kynnzt
öðrum eins matháki. Hún kom
hingað vestur í gær og var þá dálít-
ið óróleg, en er nú farin að spekj-
ast,“ sagði Torfi Einarsson, lög-
reglumaður í Hnífsdal í samtali við
Morgunblaðið á mánudag, en
hann fóstrar nú selkópinn Jó-
hönnu, sem fyrir nokkru fannst í
Kópavogi.
Torfi sagði ennfremur, að
hann hefði útbúið fyrir hana
smálaug í gömlum báti við húsið
hjá sér og notaði hún hana á
milli þess, sem hún væri í elt-
ingaleik við hundinn á túninu.
Hann sagðist enn ekki vita hve
lengi hún yrði hjá honum, það
þyrfti að fita hana og venja við
kalt vatn áður en henni yrði
sleppt. Þá sagðist hann ekki vilja
sleppa henni þar sem skotglaðir
veiðimenn gætu náð henni. Hún
yrði hugsanlega það gæf af upp-
eldinu, að hún sæktist eftir fé-
lagsskap manna, og þá væri bezt
að sleppa henni þar sem hún
fengi að vera í friði. Því gæti vel
verið að hann sleppti henni á
Pollinum. Þar væri bannað að
skjóta og selur fengi oftast að
vera þar í friði. Ef hún neitaði
síðan að fara þegar að því kæmi,
fengi hún að vera. Torfi sagði að
sig hefði alltaf langað til að vita
hvort hægt væri að temja seli og
væri gaman ef svo væri.og hún
vildi vera.