Morgunblaðið - 01.07.1983, Síða 23

Morgunblaðið - 01.07.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ1983 23 Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa: Mótmælir harð- lega efnahags- ráðstöfunum EFTIRFARANDI fréttatilkynning hefur borist Mbl. Almennur félagsfundur Stéttar- félags íslenskra félagsráðgjafa, haldinn þann 22.06. '83, mótmælir harðlega nýgerðum efnahags- ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar. Efnahagsráðstafanirnar bein- ast alfarið að því að skerða tekjur launafólks með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir rekstrargrund- völl heimilanna og atvinnuöryggið í landinu. A meðan launafólki er gert að taka alfarið á sig efnahagsvanda þjóðarinnar, fá framleiðendur og milliliðir sinn hlut óskertan. Fyrirheit um félagslegar úrbæt- ur til þeirra sem við þrengst kjör búa eru enn óljós og þær sem séð hafa dagsins ljós eru svo takmark- aðar að fjarstæða er að meta þær sem raunhæfar úrbætur. Stjórn Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa. Skeljungur h.f. Höfóar til .fólksíöllum starfsgreinum! StorgimM&foifr Óskar Ingibergsson Keflavík - Sextugur Það er reyndar ekkert sér við það að menn eigi sextugsafmæli, en mun vart álitamál, að ævistörf hinna sextugu eru misjöfn og margvísleg. En meiningin með þessu afmælisávarpi er sú, að minnast lítillega sjómannsins, skipstjórans, óskars Ingibergs- sonar sem verður sextugur í dag. Hann mætti mér á götu hér í bæ fyrir tveim dögum. Er nokkuð að frétta, spyr ég, og svarið er, já, já alltaf nóg að frétta. Óskar var nefnilega að koma frá Englandi á sínu skipi, hafði fiskað í skipið og siglt með aflann, tæp 60 tonn. Óskar verður ekki heima á afmæl- isdaginn, og fer sennilega ekki á sjóinn í næsta túr vegna lasleika. En hver vill giska á það hvað þessi Um 100 manns sóttu þjálfun- arnámskeið fyrir ökumenn NÝLEGA var haldið þjálfunar- námskeið fyrir ökumenn að til- stuðlan Bifreiðaeftirlits ríkisins, tryggingarfélaganna, Umferðar- ráðs og Ökukennarafélags ís- lands. Nálega eitt hundrað manns sóttu námskeiðið, og fræddust þar um allt sem viðkemur bflum, við- haldi þeirra, meðferð, tryggingum og akstri í bæjum og á þjóðvegum. Þá gátu þeir sem námskeiðið sóttu einnig fengið akstursæfingu um bæinn undir leiðsögn ökukennara. Meðal þess sem fram kom á námskeiðinu er hversu gífurlegt tjón er á bifreiðum hér á landi ár hvert. Það má sjá m.a. á síhækk- andi iðgjöldum tryggingarfélag- anna, en í fyrra voru bætt 12.369 tjón í ábyrgðartryggingum bif- reiða þrátt fyrir að lögreglu- skýrslur sýndu einungis 7.622 tjón. Heildarkostnaður tryggingarfé- laganna vegna umferðaróhappa á síðasta ári var hvorki meira né minna en 232.565 þúsund sem svarar verði á eitt hundrað einbýl- ishúsum. sextugi drengur hefur farið marg- ar sjóferðir um ævina. Ég komst að því í þessu stutta samtali, að Óskar er búinn að vera skipstjóri frá því að hann var 23 ára, með öðrum orðum í 37 ár. Það mætti nú reyndar ímynda sér það að sjómaður, skipstjóri í 37 ár, ætti myndarlega bók á hillunni hjá sér, ef allar sjóferðirnar væru skráðar þar, en hvað um það, þú hefur verið gæfumaður, Óskar minn, aldrei misst mann frá borði og alltaf siglt skipi heilu í höfn. Það er ekki óviðeigandi að þess sé minnst hér, hver munur er á lífi sjómannsins og hinna, sem leggj- ast til hvíldar heima í svefnher- berginu sínu, á sama tíma sem skipstjórinn leggur frá landi undir dimma og kalda skammdegisnótt- ina, já og oft í tvísýnu veðurútliti. Óskar byrjaði skipstjórn á bát innan við 30 tonn. En hann hefur uppskorið að verðleikum enda aflakóngur um skeið. í dag er hann stýrimaður en Karl sonur hans er skipstjórinn. Óskar vantar réttindi á þeirra glæsilega veiði- skip, Albert ólafsson KE 39, um 180 tonn. Máltæki segir: „Það er ekki gott að maðurinn sé einsamall". Þess verður að geta hér að Óskar og Hrönn kona hans eiga 4 syni og 3 dætur allt menntuð og mannvæn- leg börn. Kona Óskars hefur stutt mann sinn með ráði og dáð. Út- gerðin á sitt ágæta sjóhús með allri nútíma tækni. Ég var staddur á heimili þeirra nú nýverið. Þá sagði Hrönn eina athyglisverða setningu. Hún var þessi: „Ég er búin að vera sjómannskona yfir 30 ár.“ Já, við getum hugleitt hvað hún meinar með þessum fáu orð- um. Fyrirgefðu mér, Óskar, þessi ummæli um þig. Ég óska þér til hamingju með daginn og ófarnar veiðiferðir um ókomin ár. V.R. Við opnum Shellstöð í Njarðvík Nýja Shellstöðin að Fitjum í Njarðvík hefur verið opnuð. Allt hefur verið snyrt og snurfusað og gljáfægðarbensíndælurnar bíða þess með óþreyju að fá að fylla hjá þértankinn. í tilefni opnunarinnar bjóðum við meðan birgðir endast: Sætaáklæði með 40% afslætti. Sjúkrakassa með 40% afslætti. Pér gefst einstakt tækifæri til að spara verulegar upphæðir um leið og tankurinn er fylltur. Pað borgar sig að skreppa suðureftir! Verið velkomin að Fitjum, - frá okkur fer enginn með tóman tankinn. Shellstöðin Njarðvík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.