Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.07.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLl 1983 27 Fr^bær árangur Islendinga á NIVI fatlaðra barna UM SL. helgi var haldin í Sarps- borg í Noregi norðurlandamót fatlaöra barna á aldrinum 12—16 ára. Þátttakendur voru rösklega 120 börn frá öllum Noröurlöndunum, þar af 25 frá Islandi. Þau voru úr rööum hreyfihamlaðra, þroska- heftra, blindra og sjónskertra og heyrnarlausra. Fréttir hafa nú borist af mjög góöri frammistööu íslensku barn- anna og hlutu þau alls 95 verölaun, þar af 50 gullverölaun, 28 silfur og 17 brons. Næstir í rööinni voru Danir og Svíar meö 40 verölaun hvorir, þá Finnar meö 37 verölaun og Norðmenn meö 36. Þetta er í þriöja sinn sem svona barnamót fatlaöra barna er haldið og hafa íslensk börn veriö meö í þeim öllum. Að sögn fararstjóra gekk ferðin í alla staöi vel og hinn góöi árangur mjög uppörvandi fyrir börnin og áframhaldandi þátttöku þeirra i íþróttastarfinu. Fremri röð frá vinstri: Kristinn Bjarnason, Hreinn Ólafsson, ómar Bogason, Óli Metúsalemsson, Jón B. Ásgrímsson. Aftari röð frá vinstri: Magnús Steinþórsson, Björn Grétar Ævarsson, Bjarni Hjaröar, Stefán Friðleifsson, Magnús Guðmundsson, Jakob Magnússon og Emil Björnsson. Mynd QE. Erfið ferð menntskælinga íþróttafélag Menntaskólans á Egilsstööum spilaði í úrslitum 2. deildar sem haldin voru í Keflavík 12.—13. mars. Er þetta í annaö sinn sem félagið keppir í úrslitum á íslandsmóti, en auk þess keppir liöið á Austurlandsmótum og Bik- arkeppni UÍA. Hefur liöiö jafnan staöiö sig meö ágætum og unnið þessi mót síöastliðin 3 ár. En um síðustu helgi lögöu ÍME- menn land undir fót og spiluðu viö Laugdæli, Breiöablik og ísfiröinga í Keflaík. Var þetta mjög erfiö ferö fyrir þá leikmenn sem hana fóru, en af landfræöilegum og fjárhags- legum ástæöum mættu ekki nema 7 leikmenn í þessa úrslitakeppni. Svo óheppilega vildi til aö strax á 2. mín. fyrsta leiks, sem var á móti Laugdælum, slasaöist einn leik- manna liösins svo ekki var um marga skiptimenn aö ræða eftir þaö. Komu leikmenn heim síöast- liöinn mánudag þreyttir eftir ferö- ina og því miöur meö 3 töp á bak- inu. Úrslitin uröu: ÍME — Laugdælir 72—98 ÍME — Breiðablik 75—88 ÍME — ísafjöröur 71—91 En leikmenn eru ákveönir aö vera með í baráttunni næsta ár og vonast til þess aö þá geti þeir veriö búnir aö æfa í hinu nýja íþróttahúsi sem veriö er aö byggja á Egils- stööum. En æfingaaöstaöa hefur veriö hér vandamál og þó sérstak- lega nú síðari hluta vetrar, þar sem Valaskjálf, sem er félagsheimili staðarins hefur vísaö öllum bolta- íþróttum út úr húsinu. Hefur þetta að sjálfsögöu komiö niöur á æfing- um ÍME. En þeir hafa farið fáeinar feröir í nærliggjandi íþróttahús á Eiöum, sem er í 12 km fjarlægö og á Eskifjörö, sem er í um 45 km fjarlægð. Vonast körfuboltamenn sem og aörir íþróttaunnendur á Egilsstöð- um eftir aö íþróttahús staðarins veröi tekið í notkun næsta haust þar sem þaö mun gjörbreyta aö- stööu til æfinga og keppni bæöi fyrir Egilsstaöabúa og Austfiröinga alla. Vormót HSS að Sævangi FYRSTA frjálsíþróttamót Héraös- sambands Strandamanna á þessu ári var haldiö að Sævangi sunnudaginn 26. júní sl. Kepp- endur á mótinu voru um tuttugu frá sjö félögum. Helstu úrslit uröu þau, að í 100 m hlaupi sigraöi Valdemar Braga- son Geislanum á 12,2 sek, í lang- stökki Guðjón Fr. Jónsson Hnoöra, stökk 5,91 m, í þrístökki Stefán Gíslason Hnoöra, stökk 11,78 m og í hástökki sigraöi Ragnar Torfason Leifi heppna, stökk 1,65 m. Magnús Bragason Gretti sigraöi í öllum köstunum, kastaöi kúlu 11,54 m, kringlu 37,46 m og spjóti 37,62 m. í kvennaflokki sigraöi Fríöa Torfadóttir Leifi heppna í kúlu- varpi, kastaði 8,33 m og í spjót- kasti, kastaöi 23,05 m. í langstökki sigraöi Sólrún Jónsdóttir Hnoöra, stökk 4,13 m. í kringlukasti sigraöi Elín Ragnarsdóttir Gretti, kastaöi 27,02 m. Alls voru um 70 manns á mótinu, þar meö taldir áhorfendur, starfsmenn og keppendur. Fyrir mótið var háður knatt- spyrnuleikur á milli Geislans frá Hólmavík og Neista frá Drangsnesi hjá drengjum 13 ára og yngri. Lauk leiknum meö sigri Geislans 3—0. Njótið góðra veitinga í kaffiteríunni. Nýgrillaðir kjúklingar allan föstudaginn. TILBÚIÐ Á GRILLIÐ LAMBA: kótiíettur—Utrisnciðar framHryggur og rif KINDA: buff-smásteik á pinnum. NAUTA: bufj—framfiryggur OKRYDDAÐ CFXID HAGSTÆÐ MATARINNKAUP Hvítlauks spægipylsa Okkar verö: 356,27 kg Leyft verö: 441,90 kg Vörukynning: Markaössalan kynnir grillrétti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.