Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983 SVFÍ aðstoðar varnarliðið ÞYRLA frá varnarliðinu, sem var að æfíngum í nánd við Langjökul í fyrrakvöld, þurfti að lenda norður af Þórisjökli á Kaldadalsleið, sökum þess að aðvörunarljós í mælaborði sýndi að eitthvað var að. Þegar til kom reyndist einn þyrluspaða þyrl- unnar bilaður og reyndist nauðsyn- legt að skipta um hann á staðnum, til að gera þyrluna flughæfa á ný. Varnarliðið hafði samband við Slysavarnafélagið og var ákveðið að best væri að flytja nýjan spaða landleiðina upp á Kaldadal. Menn frá hjálparsveitinni Tryggva á Selfossi tóku á móti bíl frá varn- arliðinu með þyrluspaðann, sem er um 30 feta langur, á Þingvöllum og fylgdu honum upp á Kaldadal. Vel gekk að skipta um spaða og fór þyrlan aftur í loftið um hálf- áttaleytið í gærkveldi. Hannes Hafstein hjá Slysvarna- félaginu sagði að það væri gaman að geta aðstoðað varnarliðsmenn, þeir hefðu svo oft aðstoðað okkur. Þarna væri á ferðinni gagnkvæm samvinna. Verðlagsráð: Ákvörðun Á FUNDI Verðlagsráðs í gærmorgun var frestað ákvörðun í deilumáli gos- drykkjaverksmiðjanna Vífílfells og Sanitas um ólöglega viðskiptahætti og ákveðið að afla frekari gagna í málinu. Þá hafði Sanitas óskað eftir fresti til að leggja fram gögn og sam- kvæmt lögum er skylt að veita slík- an frest. frestað Þá var á fundi Verðlagsráðs samþykkt 20% hækkun á fargjöld- um Strætisvagna Kópavogs og 3xk% hækkun á möl og sandi til Björgunar hf. Á dagskrá fundar- ins í gærmorgun var einnig hækk- un á sementi, en sú hækkun var ekki afgreidd. Ljómarall 1983: Lada-bílar í þriðja og fjórða sæti HAFSTEINN og Birgir höfðu náð fímm mínútna forystu á þá Halldór og Tryggva á Toyota Corolla í Ljómarallinu í gær þegar þremur leiðum var lokið. Ásgeir og Júlíus á Escort, sem voru í öðru sæti lengi vel féllu úr keppni með úrbrædda vél. Lada-bflar standa mjög vel í keppninni, Ævar og Árni á Lada 1600 voru fjórðu, tveim mínútum á undan Lada 1600 Ríkharðs og Atla. Lancer Jóns og Halldórs er í fímmta sæti á undan Toyota Celica Skot- anna Tom Davies og Philip Walker, sem fóru sér hægt í gær. Ævar Sigd. og Ægir eru sjöttu á Subaru, eftir ágætan akstur. Tími efstu manna: Hafsteinn 7,16, Halldór 12,23, Ævar 13,42, Ríkharður 15,31, Jón Sigþ. 15,41, Tom 17,44 og Ævar 21,25. Slysaalda síðdegis í gær SLYSAALDA reið yfir Reykjavík- urborg í gær og á innan við tveim- ur klukkustundum höfðu orðið þrjú slys, þar sem fímm voru fluttir á slysadeild. Fyrsta slysið varð kl. 15.50 á Hagatorgi. Þar varð gang- andi vegfarandi fyrir fólksbfl. Meiðsli hans munu ekki hafa verið mjög alvarleg, en hann mun hafa slasast á höfði. Annað slysið var í Árbænum. Á móts við blokkina Hraunbæ 14—22 ók bifreið í veg fyrir bifhjól með þeim afleiðingum að bifhjólið lenti á vinstra fram- horni bifreiðarinnar. Ökumaður bifhjólsins og farþegi sem var með honum köstuðust af hjólinu og voru báðir fluttir á slysadeild. Þeir munu hafa skorist á fótum. Þriðja og síðasta slysið varð kl. 17.15 á Bústaaðaveginum skammt fyrir vestan verslun- armiðstöðina Grímsbæ. Bifhjóli var ekið aftan á bíl og köstuðust ökumaður þess og farþegi sem var með honum upp á bílinn. Annar þeirra mun hafa fót- brotnað, en hinn slasast minna. Hjá slysarannsóknadeild lög- reglunnar fengust þær upplýs- ingar að oft yrðu flest slysin þegar akstursskilyrðin væru góð, eins og þau voru í gær. „Vitaskuld verðbólgan sem alla er að drepa“ — segir Jónas Rafnar um greiðsluerfiðleika almennings í bönkum „ÞAÐ ER óneitanlega mikið um það að fólk fari fram á skuldbreytingar, þ.e. lengingar á lánum og frestun á greiðslu afborgana og vaxta," sagði Jónas Rafnar, bankastjóri Útvegs- bankans, þegar Morgunblaðið spurði hann hvort nú væru áberandi miklir erfíðleikar hjá fólki að standa í skilum við bankana. Jónas vildi ekki gera of mikið úr því, en sagði þó að ekki væri vafamál að það væri þrengra í búi hjá mörgum en oft áður. „Ég held líka að menn fari var- legar í allar fjárfestingar og sýni meiri gætni. Þá er eitt athyglis- vert: Menn virðast koma mun fyrr en oft áður til að fá skuldbreyt- ingu. Ef maður er t.d. með skammtímaskuld, sem á að greið- ast, þá var algengt hér áður að menn kæmu svona tveimur til þremur dögum fyrir gjalddaga, eða jafnvel daginn fyrir gjald- daga, og töluðu um að þeir ættu erfitt með að standa í skilum. Nú koma menn mun fyrr,“ sagði Jón- as Rafnar. Hann sagði að viðskiptabank- arnir hefðu skilning á því að verð- bólgan væri almenningi þung í skauti. „Það er vitaskuld verðbólg- an sem alla er að drepa og það er verðbólgan sem við þurfum að losa okkur við,“ sagði Jónas Rafnar að lokum. Bragi Hannesson, bankastjóri Iðnaðarbankans, tók mjög í sama streng. Hann sagði það greinilegt að um þessar mundir ætti fólk erf- iðara með að standa í skilum en oft áður. „Á hinn bóginn er erfitt að meta hve mikil breyting hefur orðið hér á,“ sagði Bragi. Hann sagði ástæðurnar fyrir þessum greiðsluerfiðleikum fólks þær, að menn gerðu sér ekki alltaf næga grein fyrir því hvað verðtrygging- in hefur að segja þegar til greiðslu kemur. Hann sagði einnig að al- gengt væri að menn bæðu um skuldbreyiingar, en einnig lýsa erfiðleikarnir sér í því að fólk ræður hreinlega ekki við að greiða af lánum, fjárhæðin væri þá orðin meiri heldur en það hafði gert sér grein fyrir í upphafi. Átiikin í stjórn Dagshrúnar Þröstur Ólafsson: Fimmföld verkamanna- laun, ekki rétt „ÞETTA er ófrágengið og ég hef ekkert um það að segja að svo stöddu. Ég get ekki séð að það sé svo fréttnæmt þó einhver maður út í bæ ráði sig í vinnu,“ sagði Þröstur ólafsson, þegar hann var spurður um viðræður við hann um ráðningu sem fram- kvæmdastjóra Dagsbrúnar. „Það er alveg rétt, að þess hef- ur verið farið á leit við mig, að ég komi þarna til starfa og hefur verið gert alllengi. Ég hef ekki flýtt mér til svars og hef svarið ekki ennþá. Hins vegar á ég von á því, að við formaður Dags- brúnar eigum viðræður um helg- ina og við sjáum til hvort það gengur saman," sagði Þröstur. — Kom það þér á óvart að það skyldi verða ágreiningur um þetta? „Ég veit ekki hvað skal segja um það. Það var ekki verið að taka ákvörðun um, hvort ég yrði ráðinn, heldur var formanninum gefin heimild til viðræðna við mig. I ljósi þess koma þessi viðbrögð mér á óvart," sagði Þröstur. „Ég hef að sjálfsögðu verið spurður um það, hvað ég myndi geta hugsað mér í laun,“ sagði Þröstur aðspurður um hvort ákveðnar upphæðir hefðu verið ræddar í viðræðum um ráðningu hans. „Ég setti fram lauslegar hugmyndir og nefndi ákveðna valkosti í því sambandi, en að það hafi þýtt fimmföld verka- mannalaun, það er ekki rétt. Annars vil ég helst ekki ræða launamál mín opinberlega," sagði Þröstur að lokum. Ólafur Ólafsson: Mjög neikvæð- ur gagnvart ráðningu Þrastar „GUÐMUNDUR var búinn að ræða hugsaniega ráðningu Þrastar við mig, en ég var mjög neikvæður og sagði honum það,“ sagði ólafur ólafsson, einn stjórnarmanna í verkamannafé- laginu Dagsbrún, aðspurður um þær deilur sem komu upp á fundi stjórnar félagsins um ráðningu Þrastar ólafssonar, hagfræð- ings, í stöðu framkvæmdastjóra verkamannafélagsins Dagsbrún- ar. „Það er bæði að ég var ekki ánægður með afstöðu Þrastar, þegar hann var aðstoðarmaður fjármálaráðherra og eins finnst mér þau laun sem þarna er rætt um taka út yfir allan þjófabálk og ég sagði við Guðmund að mér fyndist við ekki geta litið framan í okkar umbjóðendur ef við sam- þykktum þau. Mér finnst það mjög hæpið að samþykkja svona umdeilda ráðningu með atkvæð- um varamanna í stjórn, en þrír varamenn stjórnar eru allir með ráðningunni. Svona vinnubrögð verða bara til að sprengja félag- ið,“ sagði Ólafur. „Það hefur yfirleitt ríkt ein- drægni í stjórn Dagsbrúnar þann tíma sem ég hef starfað þar. Mér þykir mjög fyrir því að það sé óeining innan stjórnar- innar. Ég trúi því ekki að Þröst- ur komi til félagsins, ef hann sér fram á það að stjórn félagsins klofni út af því,“ sagði ólafur að lokum. Garðar Steingrímsson: Sagði mig úr stjórn vegna vinnubragða formanns „MÉR BER að sitja í stjórninni þar til mitt umboð rennur út, sem er í janúar næstkomandi, en ég mun ekki taka þátt í störfum stjórnar og það er vegna vinnu- bragða formanns," sagði Garðar Steingrímsson, sem sagði sig úr stjórn Dagsbrúnar á fundi henn- ar þegar ráðning Þrastar ólafs- sonar var þar rædd. „Stúlka sem hefur unnið hjá okkur í 17 ár og leysti Sigurð Guðgeirsson af þegar á þurfti að halda, sótti um starf hans, þegar hann lést. Ég lýsti því yfir fyrr í sumar, að ef ekki yrði rætt við stúlkuna myndi ég segja af mér. Þegar ljóst var að henni yrði boðið útborgun bóta og af- greiðsla, þá lét ég bóka að ég segði af mér í samræmi við fyrri yfirlýsingu mína,“ sagði Garðar. Garðar sagði að hann gæti ekki betur séð en þetta væri van- hugsað frá upphafi og að þetta væri aðför að varaformanni fé- lagsins, því ætlunin virtist vera að Þröstur tæki yfir mikið af nú- verandi starfsvettvangi hans. Hann hefði ítrekað reynt að fá uppgefna stöðu félagssjóðs, til að taka við launum þeim sem umrædd hefðu verið, en ekki fengið nein svör. Þá sagði Garð- ar það jaðra við siðleysi að fá þessa samþykkt fram með til- styrk varamanna í stjórninni. „Það er hægt að taka undir þau orð formannsins að félagið hafi orðið fyrir áföllum á árinu, en af hverju vill Guðmundur breyta stöðu varaformanns og ekki bjóða sínum varaformanni sömu starfsskilyrði og hann naut sjálfur meðan hann var varaformaður," sagði Garðar að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.