Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983 Útgefandi nMofeifr hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. SÍS fór yfir mörkin Lesendur Morgunblaðsins eru nú orðnir mun fróð- ari en þeir voru fyrir viku um þá samninga sem íþróttasamtök hafa gert við ýmis fyrirtæki um fjár- stuðning. Upphaf þessa máls var það að Morgunblaðið birti samning Sambands ís- lenskra samvinnufélaga (SÍS) og Frjálsíþróttasam- bands íslands (FRÍ) hinn 12. ágúst síðastliðinn. I forystu- grein daginn eftir lýsti blað- ið skoðun sinni á þessum samningi og gagnrýndi harkalega tvö ákvæði hans. I fyrsta lagi að í samningnum heitir FRÍ því að nota 75 þúsund króna „íþróttastyrk- inn“ frá SÍS eins og unnt er „til kaupa á vörum og þjón- ustu hjá Sambandinu, kaup- félögunum og samstarfs- fyrirtækjum þessara aðila" eins og það er orðað. I öðru lagi heitir FRÍ því að fyrir þessar sömu 75 þúsund krón- ur fái fulltrúi SÍS „að sitja alla fréttamannafundi FRI á árinu (1983, innsk. Mbl.) og skýra þar frá þætti sam- vinnuhreyfingarinnar í sam- bandi við næstu viðburði hverju sinni." Kallaði Morg- unblaðið fyrra atriði samn- ingsins nauðungarákvæði og hið síðara sölu á blaða- mannafundum og lýsti því yfir að fulltrúar þess myndu ekki sækja slíka fundi. Með samanburði við þá samninga, sem birtir hafa verið síðan um auglýsinga- viðskipti annarra fyrirtækja en SÍS við íþróttahreyfing- una, geta lesendur Morgun- blaðsins auðveldlega kynnt sér að þessi ákvæði í samn- ingi SÍS eru einstæð, með þeim er farið yfir mörkin. Hvað svo sem fulltrúar SÍS segja, eða talsmenn Sam- vinnuferða sem er „sam- starfsfyrirtæki" SÍS svo að ekki sé meira sagt, þá hefur í engum öðrum samningum sem í blaðinu hafa birst ver- ið að finna ákvæði um sam- bærilegt efni. í Tímanum í gær er í rit- stjórnargrein lýst óþreyju eftir því að Morgunblaðið birti samning Knattspyrnu- sambands íslands (KSÍ) og Eimskipafélags íslands og gefið til kynna að í honum sé að finna ákvæði um sölu á blaðamannafundum. Morg- unblaðið birti þennan samn- ing í gær. Þar er ekki að finna neitt ákvæði um það, að Eimskip hafi rétt til að hafa fulltrúa á öllum blaða- mannafundum KSÍ. Hins vegar tekur KSÍ að sér að efna til blaðamannafundar til að segja frá samstarfi sínu við Eimskip. í samningi SÍS og FRÍ er hins vegar svo um hnúta búið að SÍS efnir til blaðamannafundar um styrkveitinguna til FRÍ og FRÍ tekur að sér að „eftir öllum þeim leiðum" sem FRÍ „eru tiltækar“ að sjá til þess að sem rækilegast verði sagt frá þessum blaðamanna- fundi SÍS! I fyrstu forystugrein Morgunblaðsins um þetta mál laugardaginn 13. ágúst sagði meðal annars um samning SÍS og FRÍ: „Morg- unblaðið varar við slíkum „viðskiptum" og hvetur íþróttahreyfinguna til að gera þá samninga eina sem eru í samræmi við þá reisn, það stolt og þann tilgang sem henni heyrir til. Og SÍS skal bent á, að stunda frekar aðrar fjárfestingar en kaup á blaðamannafundum og annan áróður en þann sem gerður er í skjóli þeirrar sér- stöðu fjármuna og valds, sem það ræður yfir.“ Allir þeir samningar sem Morgun- blaðið hefur síðan birt sýna að þessi ábending til SÍS sér- staklega var réttmæt þar sem aðeins í samningum þess við FRÍ og Handknatt- leikssamband íslands (HSÍ) í ár, og Körfuknattleikssam- band íslands (KKÍ) í fyrra, er að finna ákvæði sem fara yfir þau mörk er Morgun- blaðið hefur metið eðlileg frá upphafi umræðnanna um þetta mál. Allir þeir sem fylgst hafa með þessum umræðum um fjáröflunarleiðir íþrótta- hreyfingarinnar hljóta að undrast hve hörundsárir talsmenn SÍS hafa verið og hve mikla áherslu málgagn þeirra, Tíminn, hefur lagt á að drepa málinu á dreif en Þjóðviljinn hefur verið í hlutverki Ketils skræks. Hér er alls ekki um pólitískt mál að ræða heldur frásagnir af samningum sem gerðir hafa verið í nafni fjöldahreyfinga og stórfyrirtækja en á SIS verður í senn að líta á sem fjöldahreyfingu og stórfyr- irtæki sem ætti eðli sínu samkvæmt að fagna því þeg- ar tekin eru til meðferðar á opinberum vettvangi samn- ingar hreyfingarinnar við íþróttafélög, sem eiga að vera frjáls og engum háð. ís- lenska íþróttahreyfingin ákvað á sínum tíma að taka þátt í Ólympíuleikunum í Moskvu, af því að forráða- menn hennar töldu óeðlilegt að blanda saman pólitík og íþróttum. Þeir hljóta einnig allir að vera einhuga um það að óeðlilegt sé að blanda saman viðskiptum og íþrótt- um með þeim hætti sem gert hefur verið í samningunum við SÍS. HREINN LOFTSSON AFINNLENDUM VETTVANGI Samskipti SÍS og FRÍ: Misneyting gegn fé- vana íþróttahreyfingu? Frétt Morgunblaðsins á föstudag í fyrri viku um svonefndan íþróttastyrk Sambandsins hefur vakið mikla athygli. En þar sem for- ystumenn í íþróttahreyfingunni og dagblöð hafa reynt að drepa málinu á dreif, þykir rétt að rekja hér í örfáum orðum þau atriði sem máli skipta þessu viðvíkjandi. Á undanförnum árum hefur Sam- band íslenskra samvinnufélaga veitt samtökum íþróttamanna til- tekna fjárhæð til eflingar starfsem- inni. Samkvæmt reglum um veit- ingu þessarar fjárhæðar hafa íþróttasamtökin sótt um og fram- kvæmdastjórn SÍS síðan úthlutað fénu og tilkynnt val sitt ár hvert á blaðamannafundum. Þar hefur ver- ið látið í veðri vaka að um „styrk" Sambandsins til íþróttahreyfingar- innar væri að ræða. Reglur um veitingu íþróttastyrks SÍS eru einnig sakleysislegar, þar er talað um að „efla íþróttastarfsemi f landinu" og þó að þar sé ennfremur rætt um, „að auka þekkingu ísl. íþróttafólks á samvinnumálum og samvinnustarfi", þá þurfa menn í sjálfu sér ekki þess vegna að efast um gott hugarfar þeirra Sambands- manna. Sama má segja um það ákvæði í reglunum, þar sem segir, að „styrkveitingin veitir Samband- inu heimild til að virkja starfsemi viðkomandi íþróttagreinar til upp- lýsinga um samvinnuhreyfinguna", vegna þess, að í sama ákvæði er sleginn sá varnagli, að sú „virkjun" sé háð samkomulagi íþróttamann- anna sjálfra. Þegar Morgunblaðið komst yfir samning þann sem Sambandið hafði gert við Frjálsíþróttasamband Is- lands, um íþróttastyrkinn, var á hinn bóginn ljóst, að hér var alls ekki um „styrk“ að ræða. Það var einkum 2. grein þessa samnings sem stakk í stúf við þann yfirlýsta til- gang, en þar segir orðrétt: „Frjáls- íþróttasambandið notar þetta fé eins og því er unnt til kaupa á þjón- ustu og vörum hjá Sambandinu, kaupfélögunum og samstarfsfyrir- tækjum þessara aðila.“ En í samn- ingnum voru fleiri atriði sem alls ekki gátu samrýmst styrkveitingu. Ákvæði voru um, að FRÍ heimil- aði Sambandinu „að nota starfsemi og aðstöðu FRÍ og umsvif frjáls- íþróttalandsliðanna, bæði heima og erlendis, til auglýsinga og fræðslu um samvinnuhreyfinguna á hvern þann hátt sem Sambandið óskar og eðlilegt getur talist“. Einnig skyldi kynna „styrkveitinguna" með þeim hætti „sem verðugt er og viðgengist hefur um styrkveitingar til menn- ingarmála". Þá skyldi fulltrúi Sam- bandsins eiga þess kost að sitja alla fréttamannafundi FRÍ og „skýra þar frá þætti samvinnuhreyfingar- innar í sambandi við næstu viðburði hverju sinni". Samningnum fylgdi sérstök áætl- un um samstarf FRÍ og SÍS, þar sem m.a. var ákveðið, að „ákveðnum hópum samvinnustarfsmanna" og „viðskiptavinum ákveðinna sam- vinnuverslana" skyldu afhentir boðsmiðar að „ákveðnum leikjum", og, „að forystumenn samvinnu- hreyfingarinnar verði heiðursgestir FRI á ákveðnum stórmótum, hér- lendis og erlendis". Þá var í áætlun þessari ákvæði um, að áróðri um samvinnuhreyfinguna verði dreift í möppum þátttakenda á námskeið- um og ársþingi FRÍ. Af öllum þessum lestri er ljóst, að eitthvað vildi nú samvinnukerlingin fá fyrir sinn snúð. Auðvitað var þetta stórfrétt og Morgunblaðið veitti henni þann sess í blaðinu sem vert var. Samningurinn var birtur í heild sinni föstudaginn 12. ágúst og forystumönnum samningsaðila veitt færi á að tjá sig um samningsskil- málana. í leiðara blaðsins laugar- daginn 13. ágúst var vakin athygli á tvískinnungnum og bent á með hvaða hætti auðhringurinn með- höndlaði févana íþróttasamtök með hálfgerðum nauðungarsamningi: Seldar væru auglýsingar fyrir smá- pening undir því yfirskyni að um „styrk til menningarmála" væri að ræða. En í leiðara Morgunblaðsins var jafnframt sagt: „Ekki er Morgun- blaðinu kunnugt um frekari sölur á þessum vettvangi en greint er frá í fréttum í gær, en ekki er ólíklegt, að víðar séu maðkar í mysunni og hliðstæðir hlutir eigi eftir að koma upp í viðskiptum íþróttaforystu við fjársterk og yfirgangssöm fyrir- tæki.“ í leiðaranum var ennfremur vakin athygli á því siðleysi, að blaðamannafundir væru í raun seld- ir „styrkveitandanum" og jafnframt bent á þá leynd sem hvílt hefði yfir samningsgerðinni. Morgunblaðið varaði við slíkum „viðskiptum" en undirstrikaði um leið stuðning sinn við íþróttahreyfinguna sem slíka og æskulýðsstarfið sem þar er unnið. Viðbrögð íþrótta- forystunnar Viðbrögð forystumanna þeirra íþróttasamtaka er þegið hafa „styrk" Sambandsins voru öll á eina bókina lærð. Raunar bar Erni Eiðssyni, formanni FRÍ og Friðriki Guðmundssyni formanni HSf, ekki saman um hvort þetta væri við- skiptasamningur eða styrkur. Örn taldi að um gagnkvæman samning, eða viðskiptasamning, væri að ræða þar sem SÍS fengi nokkuð í sinn hlut, e.t.v. nokkuð mikið miðað við samningsupphæðina (þ.e. 75 þús. kr.). Örn sagði þó, að ekki væri rétt að tala um kvaðir heldur ákveðin tilmæli um viðskipti við SÍS. Friðrik sagði að þetta væri styrk- ur sem fylgdu aðeins tilmæli en ekki kvaðir. Hann talaði þó um „eðlilega viðskiptahætti". Friðrik tortryggði tilgang Morgunblaðsins og óttaðist að skrif blaðsins myndu hafa þau áhrif, að fyrirtæki hrökkluðust frá því að styðja við bakið á íþrótta- hreyfingunni. Ellert B. Schram, formaður KSÍ, sagði á hinn bóginn, að Knatt- spyrnusambandið hefði ekki sótt um „íþróttastyrk" Sambandsins á sínum tíma, m.a. vegna þess að menn hafi vitað af þeim kvöðum, sem honum fylgdu. „Við höfum ekki áhuga á að gangast undir slíkar kvaðir hvorki hjá Sambandinu né öðrum,“ sagði Ellert. Þegar frá fyrstu fréttum Morgun- blaðsins leið varð vart við þann ótta íþróttaleiðtoga, að frétt blaðsins myndi hafa áhrif á fjárstuðning SÍS og annarra stærri fyrirtækja til íþróttahreyfingarinnar. íþróttaleið- togarnir voru svo óttaslegnir við mátt SÍS auðhringsins, að þeir tóku að sér að verja hann. Talað var um „neikvæð" og „ósanngjörn" skrif Morgunblaðsins. Þeir tóku á sig hin umdeildu samningsákvæði og töldu skrif blaðsins verða „íþróttahreyf- ingunni fjötur um fót í hinni eilífu baráttu um fjármagn". I einu orði sagt hafa þeir forystumenn íþrótta- samtaka, sem gengið hafa SÍS í hönd, legið kylliflatir fyrir hags- munum auðhringsins. En þó að vitaskuld sé framkoma Sambandsmanna forkastanleg, má ekki gleyma þætti íþróttaforystunn- ar. Það er ekki hægt að selja allt fyrir peninga. Það kann að vera réttmætt að selja auglýsingar á búningum, í ritum og skrám, en það er rangt að skrifa undir ákvæði þar sem auglýsandinn „mælist til þess" að hann og hans undirsátar sitji einir að öllum öðrum viðskiptum íþróttahreyfingarinnar. Samningar íþróttasamtaka við önnur fyrirtæki, sem birtust í Morgunblaðinu í gær,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.