Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983 Skáli Úivistar í Básum. Ferðafélagið Útivist: Skálinn í Básum vígður Ferðafélagið Útivist vígði skála sinn í Básum á Goðalandi við Þórsmörk laugardagin 6. ágúst við mikla viðhöfn. Sérstök vígsluferð var farin uppeftir og tóku á þríðja hundrað manns þátt í henni, ungir jafnt sem gamlir. Þrjú ár eru síðan hafist var handa við að reisa skálann í Bás- um, og er hann fyrsti fjallaskáli þessa unga félags. Er hann byggð- ur í sjálfboðavinnu Útivistarfé- laga. Fest voru kaup á gömlu húsi sem átti að fara að rífa og var það flutt í pörtum inn í Bása. Hall- grímur Benediktsson hefur síðan stjórnað allri framkvæmd og verið yfirsmiður. Ólafur Sigurðsson teiknaði nýtt útlit á húsið og var það stækkað um einn þriðja, en grindin af gamla húsinu notuð. Litla teiknistofan gaf teikningar af skálanum innanhúss, og voru þær gerðar af Lovísu Christians- sen, en innréttingarnar og hús- gögn allt frá olíulömpum og uppúr eru gjafir frá Útivistarfélögum. Skálinn er stór og rúmar 70—80 manns í gistingu. Gott svefnloft er uppi, en kojupláss í sal niðri. Skál- inn hefur verið í notkun frá sumr- inu 1981, en ekki fullfrágengin fyrr en nú í sumar, þegar einnig var gengið frá fullkominni snyrti- aðstöðu við skálann. Blm. Mbl. brá sér með í vígslu- ferð Útivistar, sem þrátt fyrir úr- hellisrigningu tókst með ágætum. Skálinn var formlega tekinn í notkun með skemmtilegri vígslu- athöfn, þar sem lesin voru ljóð, haldnar ræður og sungið mikið. Að því búnu dreif mannskapurinn sig í vígslukaffi og vínarbrauð.^og stóð það á endum að sólin gægðist fram úr skýjunum í sömu mund og síðasta sopanum var rennt niður. Sólin hefur verið sjaldséð f sumar og var henni að vonum vel fagnað og biðu menn ekki boðanna með að fara út. Sumir völdu að ganga um stórbrotin gil og fjöll, en aðrir völdu sér létta gönguleið um skóg- inn. Þau allra yngstu létu sér það nægja að rölta kringum skálann og niður að bæjarlæknum. Þegar kvölda tók var safnast saman á ný og haldin ósvikinn Útivistarkvöld- vaka og kyrjaðar vísur fram á nótt. Heimferðardagurinn rann upp fyrr en varði, og rútubílstjór- arnir sigldu hratt og örugglega yf- ir rúmar tuttugu ár og sprænur. Við rigninguna höfðu orðið miklir vatnavextir og margar árnar voru hrikalegar að sjá. Við bæinn Ægi- síðu var áð og skoðaðir þar hellar sem taldir eru vera frá tímum Papa. Áfram var haldið og um kvölmatarleytið vorum við í Reykjavík á ný og þetta skemmti- lega ferðalag að baki. m-e- Þröngt máttu sáttir sitja á Útivistarkvöldvökunni, enda yfir 200 manns í þessari vígsluferð. Flaggskip Útivistar og aldursforsetar, Gísli Albertsson, Eyjólfur Halldórsson og Hallgrímur Jónasson heiðraðir. Ljósmyndir: oiga FLEXIS. Or$ið stendur íyrir fjölhœíni, aðlögun, sveigjanleika. Með nánast einu handtaki má breyta innréttingum FLEXIS skápanna og laga þá að nýjum aðstœðum. Engar áhyggjur þarl að hafa þó t.d. flutningur standi fyrir dyrum eða nýr fjölskyldumeðlimur sé á leiðinni. Innréttinga- möguleikarnir eru ótœmandi, og staðlað- ar einingar úr vönduðu hráefni gera skápana ótrúlega auðvelda í uppsetningu. FLEXIS er því orð að sönnu. REXIS, .konungur klœðaskápanna”, er prýddur öllum kostum FLEXIS skápanna, en rennihurðirnar gera hann sérstaklega hentugan þar sem gólf- rými er lítið. AXEL EYJOLFSSON HUSGAGNAVERSLUN SMIÐJUVEGI 9 200 KÖPAVOGI SIMI 91 43577

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.