Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 40
^Auglýsinga- síminn er 2 24 80 ^^Lskriftar- síminn er 830 33 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983 Illa horfir með kornræktina: Bændur jafiivel farn- ir að beita á akrana „ÞAÐ lítur illa út með kornið eins og annað á þessu hörmung- arsumri,“ sagði Eggert Ólafsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyja- fjöllum, f samtali við Mbl. er hann var inntur eftir því hvernig útlitið væri með kornuppskeruna í ár. Eggert hefur ræktað korn á Þorvaldseyri í 20 ár og sagði hann að þetta væri erfiðasta kornræktarsumarið þann tíma og reyndar sagðist hann ekki hafa lifað annað eins sumar. Hann sáði korni í 9 hektara í ár, sem er heldur meira en áður. Sagði hann að 2—3 hekt- arar væru alveg ónýtir en sumt liti ekki eins illa út og hefði skriðið aðeins eftir síðustu mánaðamót. Sagði Eggert að enn væri ekki vonlaust með einhverja uppskeru ef haustið yrði gott, enda myndi hann þá láta það standa eins lengi og mögulegt væri. „Maður fær mikla reynslu út úr þessu sumri," sagði Eggert, „því ef hægt er að rækta korn á sumri sem þessu þá er það alltaf hægt.“ Mbl. hefur þær spurnir frá þeim svæðum öðrum sem kornrækt er stunduð að þar sé útlit jafnvel enn verra en á Þorvaldseyri. í Landeyjum eru sumir bændur jafnvel farnir að beita kúm á kornakrana og í Þykkvabænum þar sem kart- öflubændur rækta korn til að hvíla kartöfluakrana, eru menn vondaufir um að nokkurt korn fáist í haust. Guðlaugur Árnason í Eyrartúni á einum kornakri sínum í Þykkvabæ. Myndin er tekin í byrjun ágúst. Morgunbladió/Guðjón. Stórlaxa- veiði í Vatnsdalsá MIKLA athygli hefur vakið hversu stór sá lax hefur verið að meðaltali, sem veiðst hefur í Vatnsdalsá í sumar. Mbl. fékk þær upplýsingar í veiðihúsinu við ána í gær, að meðalþungi laxa í sumar væri sennilega í kringum 12 pund, sem er óvenjulega mikið. Mun fleiri mjög stórir laxar hafa og veiðst í Vatnsdalsá í sumar en í öðrum ám, einn 25 punda, þrír 24 punda, tveir 22 punda og margir 17—21 punda. Sji nánar „Eru þeir fá’ann?" á miðopnu. að Fyllt að stöplum Borgarfjarðarbrúar „Þetta er sandbotn og eru álarn- ir alitaf að breyta sér, þetta er alltaf á hreyfingu," sagði Bjarni Fjólublár þúsund króna seðill og tíu króna peningur NÚ ER verið að vinna að hönnun nýs þúsund króna seðiis og tíu króna myntar, sem ráðgert er að koma í umferð næsta vor. Að sögn Stefáns Þórarinssonar hjá Seðlabankanum felst í þeim hugmyndum um útlit seðilsins, sem liggja fyrir, að á framhlið seðilsins verði mynd af Brynjólfí biskupi Sveinssyni, en á bakhlið- inni Brynjólfskirkja í Skálholti. Hins vegar verða fjórar loðnur á annarri hlið 10 króna myntarinn- ar og landvættirnar fjórar á hinni. Stefán sagði að nú færi fram undirbúningsvinna að hönnun þessara gjaldmiðla, en við- skiptaráðherra þyrfti síðan að samþykkja þær tillögur um út- lit þeirra sem hér um ræðir. í drögum að þúsund króna seðl- inum er gert ráð fyrir að hann verði fjólublár, en tíu króna peningurinn úr sömu - málm- blöndu og 5 krónu myntin. Að- spurður um ástæðu þess að ráðist var í að hanna þessa nýju gjaldmiðla kvað Stefán vera þá að því miður þyrfti sí- fellt að vera að endurskoða þá vegna hinnar miklu verðbólgu sem hér hefur verið undanfar- in ár. Hann sagði að lokum að sömu aðilar önnuðust undir- búning hönnunar þúsund kr. seðilsins og 10 króna myntar- innar og teiknuðu þá verðmiðla sem nú væru í umferð, þ.e. Auglýsingastofa Kristínar og Þröstur Magnússon. Johansen, tæknifræðingur hjá Vegagerðinni í Borgarnesi, í sam- tali við Mbl., en Vegagerðin var þrjá daga í þessari viku að setja grjótmulning og möl að þremur stöplun Borgarfjarðarbrúarinnar sem grafist hafði frá. Bjarni sagði að brúin væri ekki í neinni hættu en þeir mældu botninn þarna allt- af reglulega til að fylgjast með breytingum, en þessi uppfylling núna væri tilraun til að hemja sandinn Sýningargestir virða fyrir sér „leynivopn“ Álafossmanna, ullarkanínu, sem rekur ættir sínar til Himalajafjalla. MorginibiaóiA/Emiiía Iönsýningin hófst í gær IÐNSÝNINGIN í Laugardalshöll hófst síðdegis í gær. Er þetta yfír- gripsmesta sýning sinnar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi, en um 120 fyrirtæki taka þátt í sýningunni. Margt var um mann- inn í Höllinni í gær, boðsgestir mættu klukkan fjögur og hlýddu á setningarræður, en klukkan sex var sýningin opnuð öllum almenn- ingi. Það er fjölmargt fróðlegt og nýstárlegt á sýningunni, eins og til dæmis ullarkanínur, sem Ála- fossmenn sýna í sínum bás. Þessar angórukanínur komu fyrst til landsins fyrir tæplega tveimur árum og er ætlunin að blanda ull af þessum kanínum saman við ull sauðkindarinnar og fá þannig mýkra og léttara hráefni. Fyrstu flíkurnar hafa þegar verið unnar úr þessari ull- arblöndu og eru þær til sýnis á iðnsýningunni. Einar Egilsson, verslunar- stjóri hjá Álafossi, tjáði blaða- manni að þessar kanínur kæmu hingað til lands frá Þýskalandi, en væru upprunnar frá Hima- lajafjöllum. Það munu vera rúmlega þúsund kanínur á land- inu þegar, en af hverri kanínu, fæst um eitt kilógramm af ull á ári. Iðnsýningin í Laugardalshöll er opin um helgina frá klukkan 13 til 22, en á virkum dögum er opið á milli 15 og 22. Sýningunni lýkur þann 4. september. Sjá nánari frásögn af Iðnsýningunni bls. 5. Lítill árangur af ál- viðræðum í London næsti fundur verður 6. september „FUNDURINN gekk erfíðlega og árangurinn er lítill sem enginn. Þessari tilraun lýkur í kvöld,“ sagði Sverrir Hermannsson, iðnað- arráðherra í samtali við Morgun- blaðið í gærkveldi, þegar blaðið leitaði fregna hjá honum af gangi álviðræðna, sem hófust í London í gærmorgun. Sverrir sagði að það hefði ekk- ert gengið saman, þetta væri mjög erfitt mál og þungt fyrir. Hann bjóst við að formaður nefndarinnar, Jóhannes Nordal, kæmi heim í dag, en í upphafi var fremur gert ráð fyrir að áframhaldandi fundarhöld yrðu í dag. Það væri fyrst og fremst orkuverðið sem strandaði á. „Svisslendingarnir vilja ekki borga það orkuverð sem við telj- um okkur þurfa að fá og fyrr en þeir eru búnir að sýna nægjan- legan lit í sambandi við það, get- um við ekki farið að ræða aðra hluti í samningnum. Það er ekki auðhlaupið að ná samkomulagi og ég gerði mér engar gyllivonir, eins og á þessu máli hefur verið haldið í fortíðinni. Ég á helst von á því að næsti fundur verði í Sviss 6. september, en nú er ein- mitt verið að ræða dagsetningu næsta fundar," sagði Sverrir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.