Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983 37 m ww VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI ^ TIL FÖSTUDAGS , ...............*—• ■ • • ^JjTj •»,*•* PíSB «•- •«••• ••*••*»* t , ii ir-v ***^ f a r sk:i, p ♦ Þökk og kveðja til stjórnenda Farskips Þórarinn Þórarinsson fri Eiðum skrifar. „Ágæti Velvakandi. Fyrr í sumar barst mér og 39 öðrum ellilífeyrisþegum tilboð frá Farskip hf. um ferð til Skotlands á lækkuðu verði — tilboðsverði eins og það heitir í verslunum. Auk skemmtimöguleika um borð í ms. Eddu, sem ekki eru fáir, var okkur boðið í bílferð til Edin- borgar, þar sem gist var á fínna hóteli en ég hef áður kynnst hvað allan innri búnað snertir. Áður en til gistingar kom, var skyggnst um í Princes Street sem talin er ein fegursta gata veraldar. Næsta dag, sunnudaginn 7. ágúst, var fyrst ekið á mikinn útimarkað, markaður þessi er haldinn á hverjum sunnudagsmorgni, allt árið, nema að sunnudag beri upp á jóla- eða nýársdag, og gerðu margir þar góð kaup. Síðan var haldið til Edinborgarkastala og hann skoðaður, af þeim er það vildu, en allmargir höfðu verið þar áður. í kastalanum, hinni fornu höll Skotakonunga, er margt að sjá, þótt ekki verði hið forna kon- ungafólk öfundað af húsakynnun- um ... Þegar ekið var til baka að minnismerki Walters Scott í Prinsessustræti, mættust þar allir ferðafélagarnir. Áður en endan- lega var lagt af stað, var blóma- klukkan sem er rétt hjá fyrr- nefndu minnismerki, skoðuð og að henni dáðst, en hún hefur gengið í 400 ár. Á leiðinni útúr borginni ók okkar ágæti bílstjóri framhjá ýmsum þekktustu byggingum í Kveðja til Halldórs á Drykkjubóli Eiríkur Eiríksson sendi Vclvakanda þetta erindi, sem er kveðja til Halldórs á Drykkjuhóli. Drífa frá Drykkjuhóli djarfmæltar greinar stæltar. Háðung og hroka settar heilræðaklausur veilar. Fjúka með fúlar stökur, flatrímið snilli glatar. Skeiðtregur skáldafákur skokkar á höstu brokki. borginni sem sem Edinborgar- háskóla. Víðfrægum háskóla í undurfagurri byggingu, þar sem Magnús Magnússon, vinur okkar úr sjónvarpinu, var eitt sinn heið- ursrektor. Næstu nótt var gist í New-Castle við ágætan aðbúnað. Á leiðinni til og frá Edinborg var Guðni Þ. Guðmundsson, organleikari Bústaðakirkju, farar- stjóri og honum til aðstoðar Ingi- björg Marteinsdóttir, söngkona. Liprari og geðþekkari leiðsögu- menn eru áreiðanlega vandfundn- ir. Návist þeirra og framkoma bókstaflega yngdi okkur upp, gamla fólkið. Guðni kom með nikkuna sína aftur í bílinn og spil- aði eftir óskum fólks hvert lagið á fætur öðru, sungu flestir og áreið- anlega allir þegar sungið var „Ólafur reið með björgum fram“ og Ingibjörg söng forsönginn í há- talarann. Fram í sungu áreiðan- lega allir. Þau Ingibjörg og Guðni skemmtu einnig í skipinu og fórst það forkunnar vel. Auk þeirra, skemmti Ingveldur Hjaltesteð, óperusöngkona, og telur sá er hér segir frá, hana eina af glæsi- legustu söngkonum, sem við ís- lendingar höfum eignast í seinni tíð. Hjá Ingveldi fer það allt sam- an sem prýða má eina söngkonu, geysivítt raddsvið, raddstyrkur, svo af ber, tóngæði og framkoma á sviði. Naut þó rödd hennar sín hvergi nærri sakir lélegs hljóm- burðar í salnum, þar sem sungið var. Síðasta daginn á skipinu brá Róbert Arnfinnsson sér í gerfi Fiðlarans á þakinu og fataðist hvergi, fremur en endranær. Fyrir alla þessa ágætu skemmt- un og leiðsögn þökkum við hjónin. Þykist ég vita að undir þá þökk taki allt okkar ágæta samferð- afólk. Þá vil ég ekki gleyma rútu- bílstjóranum, sem ók okkur norð- ur til Edinborgar og aftur til baka, ef einhver er þess umkominn að skila því. Að endingu færi ég stjórnend- um Farskips hugheilar þakkir fyrir „Tilboðið" sem reyndist hið besta í hvívetna. Hótunarbréf í stad ítrekunar Ólafur Eliasson hringdi Mig langar að minnast aðeins á Brunabótafélag íslands, sem ég hef átt viðskipti við í þrjátíu ár. Þannig er að ég var að fá hótunar- bréf frá þeim vegna vanskuldar upp á átta hundruð krónur. Er sökin að sjálfsögðu mín, þó kont- órar þessarar stofnunar, sem og margra annara, séu ekki opnir nema á þeim tímum sem vinnandi fólki er ómögulegt að komast þangað. Það sem mér finnst óhæft við þetta bréf er, að í því er hótun um að húseign mín verði seld vegna vanskilanna. Þetta finnst mér mikil ókurteisi, því vissulega vita þeir tryggingamenn að svona vanskuldir verða greiddar og hefði þeim nægt að senda ítrekunarbréf í stað hótunar. „Góðan daginn Grindvíkingur“ Margrét Ámadóttir hringdi og bað lesendur Velvakanda að láta vita ef þeir kynnu framhald á vísu sem byrjar svo: Góðan daginn Grindvíkingur, gott er veðrið. Einnig væri gaman að fá nafn höfundar ffa þeim, Grindvíking- um sem öðrum, sem þekkja vís- una. Vekjum athygli útlendinga á umhverfinu íslendingur skrifar: „Mér finnst nú kominn tími til að við íslendingar bendum þeim erlendu mönnum sem hingað koma á, að landið okkar er ekki svæði sem þeim leyfist að fara um eftir vild. Þetta á bæði við um ferðamenn og sérstaklega þá sem nú eru hingað komnir til að þeysa um landið í rall-akstri, sem ugg- laust veldur spjöllum á náttúr- Þessum útlendingum, sem eru stórmóðgaðir yfir því að geta ekki farið um landið eftir eigin geð- þótta, á að vísa úr landi ef þeir geta ekki borið virðingu fyrir því landi sem þeir eru í. Þeir geta þá farið til síns heima og valdið nátt- úruspjöllum þar, en látið vera að koma til íslands til slíkra verka." GÆTUM TUNGUNNAR Heyrst hefur: Þeir fóru í sitthvora áttina. Ekki mun talið rangt að segja: Þeir fóru sinn í hvora áttina. En best færi: Þeir fóru í sína áttina hvor. Snoghöj Fokehöjskole er norrsenn lýöháskóli sem nær yfir ýmis norræn viðfangsefni t.d. getur þú valiö á milii margra tilboöa: hljómlist, bókmenntir, vefnaöur, keramik, samfélagsfræöi, sálfræöi o.fl. Þú munt hitta marga nemendur frá hinum Noröurlöndunum, og farið veröur í kynnisferðir, til Noröurlanda. Námskeióstímabil 31/10—21/4 eöa 2/1 — 21/4 Skrifió eftir nýrri stundaskrá SNOGHÖJ NORDISK FOKEHÖJSKOLE, DK 7000 Federlcia Flug og bíll á einstöku verði Viö bjóöum flug til Amsterdam og glæsilegan bilaleigubíl á verði sem á sér enga hliöstæðu í íslenskum ferðatilboðum. Brottfarardagar: September: 2, 9, 20. Verð frá kr.9.706.- Miöað við fjóra í bílaleigubil í A-flokki i eina viku. Barnaafsláttur kr. 4.000. Innifaliö: Flug til og frá Amsterdam, bilaleigubíll, ótakmarkaöur kílómetrafjöldi, allar nauðsynlegar tryggingar, og söluskattur Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.