Morgunblaðið - 20.08.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983
7
Þakka öllum þeim sem glöddu mig á áttræöisafmæli
mínu með gjöfum, skeytum og blómum!
Guð blessi ykkur öU.
Tómas Sveinsson,
Faxastíg 13.
Vestmannaeyjum.
Kæru vinir,
Alúðarþökk til þeirra er minntust mín 13. ágúst.
Lifið heil! Krístbjörg Sveinbjarnardóttir
Sjálfboðaliða vantar
í byggingarvinnu og málningarvinnu. Hringið í síma
21204.
Samtök um kvennaathvarf
Ökukemsla — Hæfnisvottorð — GreiðsUtort
Guðjón Hansson símar 74923 — 27716.
iÞresti Ólafesyni boðin
rimmfóld verkamannalaun
*■ titt1111 , . .. .mnsmm" setfir I
Lít á þetta sem uppsögn,“ segir
1 Ualldór Biörnsson varaformaftun
Nýr forstjóri Dagsbrúnar
Það er til marks um þau vandræði sem Guðmundur J. Guð-
mundsson stendur nú frammi fyrir í Dagsbrún aö hann skuli segja
eftirfarandi í Morgunblaðinu eftir að meirihluti stjórnar Dagsbrúnar
hefur samþykkt tillögu hans um að ráða Þröst Ólafsson, forstjóra
Dagsbrúnar. Guðmundur J. sagði: „Ég kannast ekki við aö Þröstur
Ólafsson hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri Dagsbrúnar. Hann
hefur hvorki sótt um þaö starf, né gert ákveðnar launakröfur í því
sambandi.“ Stjórn Dagsbrúnar klofnaöi þó um ráðningu Þrastar á
fimmtudaginn og tillögu Guömundar J. um hana. Var Guðmundur
J. kannski í Stykkishólmi á þessum stjórnarfundi Dagsbrúnar sem
haldinn var í Reykjavík?
„Gáfumaður“ í
Dagsbrún
Fáir hafa verið harðorð-
ari f garð „gáfumanna-
hópsins" í Alþýðubanda-
laginu en Guðmundur J.
Guðmundsson, alþingis-
maður, forseti Verka-
mannasambands íslands
og formaður verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar. Hef-
ur Guðmundur J. oftar en
einu sinni fundið þessum
hópi allt til foráttu og talið
hann ásamt Þjóðviljanum
veikasta blettinn á Alþýðu-
handalaginu. Nú bregður
hins vegar svo einkenni-
lega við að Guðmundur J.
klýfur stjórn Dagsbrúnar
með því að krefjast þess að
einn af „gáfumönnum" Al-
þýðubandalagsins, Þröstur
Olafsson, fyrrum aðstoðar-
maður Ragnars Arnalds {
fjármálaráðuneytinu, verði
ráðinn forstjóri Dagsbrún-
ar á fimmröldum verka-
mannalaunum. Telur Guð-
mundur J. þessa ráðstöfun
nauðsynlega til að styrkja
Dagsbrún. Veikleiki Al-
þýðubandalagsins verður
þannig að styrkleika
Dagsbrúnar að mati Guð-
mundar J. enda ekki sama
hvar „gáfumennirnir" eru
eða hvort þeir keppa um
þingsæti við Guðmund J.
eða ekki. Ef marka má yf-
irlýsingar stjórnarmanna i
Dagsbrún í tilefni af því að
tillaga Guðmundar J. um
ráðningu Þrastar var sam-
þykkt mun hún ekki að-
eins leiða til þess að Guð-
mundur J. fái sterkan al-
þýðubandalagsmann á
skrífstofuna, heldur hafa
það og í för með sér að þeir
Dagsbrúnarmenn hrökkl-
ast af skrifstofunni sem
Guðmundur J. hefur helst
talið skyggja á sig þar og
skal þá sérstaklega nefnd-
ur Halldór Björnsson,
varaformaður Dagsbrúnar.
Gert upp innan
flokksins
Allt bcndir til þess að til-
laga Guðmundar J. um
ráðningu Þrastar Olafsson-
ar muni leiða af sér meiri
boðafiill innan Alþýðu-
bandalagsins en Dags-
brúnar. Þannig hefur veríð
haldið á málum í stjórn
Dagsbrúnar um langt ára-
bil að ákvarðanir þar eru í
einu og ölhi f samræmi við
það sem hentar Alþýðu-
bandalaginu flokkslega,
hafa félagsmenn nauðugir
viljugir látið þetta yfir sig
ganga. Af þessu hefur hins
vegar leitt að stjórnarmenn
hugsa fyrst til stöðunar
innan Alþýðubandalagsins
og síðan um það hvað fé-
lagsmennirnir í Dagsbrún
kunni að vilja. Klofningur-
inn innan stjórnar Dags-
brúnar vegna nýja forstjór-
ans mun þvf fyrr koma til
kasta |>eirra Svavars
Gestssonar og Olafs R.
Grímssonar, keppinauta
Guðmundar J. um þingsæti
f Reykjavík, en hafnar-
verkamannanna sem með
félagsgjöldum eiga að
borga nýja forstjóranum
hin fimmföldu Dagsbrún-
arlaun.
Auðvitað er það ekkert
einkamál Alþýðubanda-
lagsins hvernig háttað er
ráðningu manna f for-
stjórastöðu hjá Dagsbrún,
en þannig er það þó í reynd
eins og koma mun í Ijós f
cftirleiknum nú þegar allt
| logar { illindum innan
Dagsbrúnar. Hitt er þó Ifk-
legt að Halldór Björnsson
muni ekki vilja sækja mál
sitt gegn Guðmundi J. inn-
an Alþýðubandalagsins
heldur kjósa að snúa sér
beint til félagsmannanna í
Dagsbrún sem hann hefur
mun mciri tengsl við en
Guðmundur J.
Heiðursfélagi
vinnuveitenda
Þegar Þröstur Ólafsson
var aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra var hann
ómyrkur í máli er honum
þótti nóg um launakröfur
opinberra starfsmanna. Af
því tilefni voru þessar hug-
leiðingar birtar f Stakstein-
um 30. maí 1981:
„Staðfesta í kjaravið-
ræðum endist sjaldan lengi
hjá ríkisstjórnum, fyrr eða
síðar láta þa‘r undan þrýst-
ingi. Fyrir það sæta þær
jafnan gagnrýni vinnuveit-
enda, sem finnst ríkisvald-
ið sýna ábyrgðarleysi og
láta ótta við atkvæðamissi
ráða meiru en raunhæft
mat á stöðu þjóðarbúsins
I og öðrum lykilþáttum. Inn-
an Vinnuveitendasam-
bands íslands ríkir því
mikil ánægja með ítrekaða
hörku Þrastar Ólafssonar
gagnvart kröfum opinberra
starfsmanna. Munu uppi
hugmyndir innan Vinnu-
vcitendasambandsins að
gera Þröst að heiðursfé-
laga þess. Ólíklegt er, að
vinnuveitendur séu reiðu-
búnir að útnefna Þröst
stru bæði vegna þess að
þeir vilja ekki styggja
Ragnar Arnalds, fjármála-
ráðherra, sem kynni að
telja sig standa nær heiðr-
inum miðað við tignarröð,
og hins að Þröstur er yfir-
lýstur marxisti og kynni
hann að hafna nafnbótinni
á þeim forsendum, að hún
samrýmist ekki kenning-
unni um að allir menn séu
jafnir.“
Nú hefur meirihluti
stjórnar Dagsbrúnar hafn-
að kenningunni um að allir
menn í þjónustu félagsins
og innan þess skuli vera
jafnir í launum svo ræki-
lega að hinn nýráðni for-
stjórí ætti ekki að þurfa að
óttast reiði vinar verkalýðs-
ins, Karls Marx, þótt hann
veitti heiðursfélaga-nafn-
bót vinnuveitenda viðtöku.
Heildsölubirgöir:
Agnar Ludvigason hf.
Nýlendugötu 21,
sími 12134.
^
Er móða á rúð-
unum hjá þér?
Ef til vill getum við leyst þetta
hvimleiða vandamál fyrir þig.
Viö veitum frekari upplýsingar og tökum á
móti pöntunum af öllu landinu.
Símar: 91-79846, 42867, 96-22308, 93-
7369 og 99-1697.
Fjöltak hf., Dalalandi 6 — Reykjavík
Askriftarsíminn er 83033