Morgunblaðið - 20.08.1983, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983
15
Atvik og endurminning
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Hannes Pétursson: 36 LJÓÐ. 50 bls.
Idunn. Reykjavík, 1983.
Stund og staðir heitir ein bóka
Hannesar Péturssonar. Vísar það
heiti ekki aðeins til ljóðanna í
þeirri bók heldur yrkisefna
skáldsins yfirhöfuð. Skáldið horfir
tíðum út frá tilteknum kunnugleg-
um sjónarhóli og skyggnist þaðan
vítt of veröld alla.
Og smáatvik — svo smá sum
hver að við köllum þau naumast
atvik heldur svipleiftur — geta
verið undarlega þaulsætin I
endurminningunni ekki síður en
svokallaðir stórviðburðir. Heim-
kynni við sjó, síðasta ljóðabók
Hannesar á undan þessari, var {
bókstaflegum skilningi staðbund-
in, þar var ljóðunum valið eins
konar baksvið. 1 36 ljóðum eru það
hins vegar liðin atvik sem verða
skáldinu að yrkisefni, hversdags-
leg oftar en hitt. Hestar á hlaup-
um í haga, ganga um kirkjugarð
fyrir norðan, hermaður á stríðsár-
unum að bursta skóna sína, hvild
á lækjarbakka — öll geta þessi
smáu tilvik skírskotað til stærri
miða og orðið skáldi tilefni til að
hugleiða rök lífs og dauða. Tím-
inn, líðandin, hverfleikinn hefur
oft orðið Hannesi Péturssyni hug-
leikið yrkisefni. Og svo er enn hér.
Með því að rifja upp liðin atvik
sem varðveitast ljóslifandi í
hugskotinu minnir skáldið á að
allt er forgengilegt, að sérhver
dagur líður að kvöldi og ekkert er
ódauðlegt. Og því nákvæmari og
trúverðugri sem sú endurminning
er, sem bundin er tiltekinni stund
og stað, því augljósari verður jafn-
framt sú staðreynd að engu and-
artaki verður haldið kyrru, að allt
hverfur að lokum inn í sama
myrkrið. Hver er þá tilgangurinn?
»Hverfur þá sálin svo hróplega
snauð/ heim, inn í myrkrin köld
og auð?« spurði Pétur Gautur.
Hannes Pétursson veltir hinu
sama fyrir sér í ljóði því sem i
bókinni er auðkennt með tölunni
25 og er á þessa leið:
Htí KKti þ»ð ekki verió
vilji llöfundariiiN —
tílfaagnr
wm 088 tekst aldrei að skilja
að hver maður sofni
svefninum endalauaa
hverfi til þa^narinnar
|>aðan sem hann kom?
Hví skyMi vera merkingarlaust
að mynnast út í þöf(nina
þá dularfullu þojjn
m*m drýpur af stjörnunum?
Hér er ekkert staðhæft, ljóðið
endar með spurningamerki. En
allt heldur áfram. Þótt andartak
hverfi kemur annað í þess stað.
Ljós og myrkur skiptast á. Ljóð,
sem Hannes yrkir um endurminn-
ingu sína af tunglmyrkva fyrir
þrjátíu og fimm árum, verður
þannig meira en umhverfis- og
náttúrulýsing, það býr líka yfir
víðtækari tilvistarlegri skírskot-
un:
(Im nokkra stund
slær nöturlegum Hkugga
hesturinn blár
á hundinn sem er gulur.
Ilm nokkra stund
eins ojj nú sé að Ijúka ferðinni.
Svo halda þeir áleiðis
og ekkert hefur raskazt
hesturinn okkar blár
og hundurinn okkar pilur.
Hvort sem horft er lengra eða
skemmra út frá hinu beina efni
þessa ljóðs geymir það ærið lífs-
magn í sjálfu sér. Náttúrulýsingar
Hannesar eru raunsæjar, meitlað-
ar, naktar. Þær eru jafnan fáorðar
og oft með óvæntum athugunum
og niðurstöðum sem beina athygl-
inni jafnt að hinu sýnilega sem að
hinu tilfinningalega. Ljóð það,
sem auðkennt er með tölunni 19,
endar t.d. á þessum línum:
Cleði þín
og gleði mín er hið fyrsU
sem glampar í lygnunni.
Ef til vill má orða þetta svo að
fyrir sjónum skáldsins sé hver sá
blettur, þar sem maður hefur stig-
ið fæti sínum, persónulegur sögu-
staður, jafnvel þótt þar hafi ekki
gerst annað en það að maður hafi
tekið eftir umhverfinu og geymi
mynd þess í huga sér. Mannleg
skynjun og reynsla er oftast tengd
stund og stað. Og staður orkar á
mann fyrst og fremst vegna þeirra
endurminninga sem við hann eru
tengdar. Hannes Pétursson hefur
alltaf verið trúr átthögum sínum.
Þegar hann skoðar lífið í víð-
tæku samhengi eru einstakar
minningar þaðan gjarnan hafðar
að viðmiðun. Bernskuheimilið er
þá tákn öryggis og friðar »í skjóli
veggjanna, skjóli hússins*. Þar á
móti finnur ungur piltur anda
köldu í næðingum höfuðborgar-
innar þegar þar er komið á
námsbrautinni að hann verður að
fara þangað í skóla. Ljóðið, sem er
hið tuttugasta og niunda í röðinni,
vísar til þess en við það er sett
ártalið 1946. Það er á þessa leið:
Hannes Pétursson
Bot(v|ötgr
é(t d»K eftir d*K
bdruðborKUKötur
KenK éK ókunnuKur.
IIHftiarlaunnr rÍKninKar:
hrióar vatnn.
Kilífar rÍKninKar.
Kilíft Suó-Vesturland ...
Sumarió er aó hrapa
f hryójum reKnsinn
Kult «K rautt ofan úr trjám
í traók K»róa of strieta.
t»K éK hrapa sjálfur
heiman frá mér út f óvissu.
Tveim árum síðar er skólapilt-
urinn ungi tekinn að renna augum
til skáldskapar, Ijóðlistar. Og lítur
vitanlega upp til svo göfugrar iðju:
ÉK hef upp
hjarta mitt til skýjanna!
Alla tíð síðan hefur skáldið
gengið að listinni með alúð og
virðingu. Nákvæmni í orðavali og
sjálfsagi hefur einkennt hvaðeina
sem Hannes Pétursson hefur sent
frá sér. Ljóð hans eru byggð á
gaumgæfitegri íhugun. Þar er allt
í ákjósanlegum skorðum. Þó horft
sé vítt og breitt til allra átta er
einmitt hinu smáa oft lýst með
hvað mestri varfærni. Og Hannes
hefur í Ijóðum sínum lagt sérstaka
rækt við hina ósviknu endurminn-
ing. Hann er líka fundvís og næm-
ur á það sem helst einkennir stað
og stund:
llallaö er Humri.
Ileiöin kólnar í rót.
Hér er ort fyrir augað og
stemmninguna. Þegar gránar í rót
á heiðum er haust í nánd; jörðin er
orðin köld. Hér er miklu lýst með
fáum orðum. Það er fyrst og
fremst þetta gagnorða raunsæi í
staðháttarlýsingum og endur-
minningu sem gerir ljóðin áleitin.
Og því aðeins verða svo áhrifa-
mikil sem raun ber vitni þau sann-
indi um líf og dauða sem skáldið
minnir á að jafnan er skírskotað
til einfaldra lífssanninda, náttúr-
legra svipmynda sem maður sér
fyrir sér eins glöggt og í raunveru-
leikanum. Allt eru þetta sígild að-
alsmerki ljóðlistar.
Leiðrétting
í BRÉFI sem birtist í Velvakanda
17. ágúst sl. undir fyrirsögninni
„Hættum að herja landið", mis-
prentaðist eitt orð í síðustu setn-
ingunni. Þar stóð „Hættum að
herja landið og erjum í staðinn",
en þarna átti að standa: „Hættum
að herja landið og erjum í stað-
inn“.
Bréfritari er beðinn afsökunar á
þessum mistökum.
og
notaöir
Lada 1200
Lada 1200 Station
Lada Safír
Lada Canada
Lada Sport
kr. 139.400
kr. 150.600
kr. 159.900
kr. 188.800
kr. 267.100
Bílasoludeildm.
, er opm
ídag írá kl. 1-4
Tökum notaða, vel með farna Lada-bíla upp í nýja.
Verð frá kr.
174.900