Morgunblaðið - 20.08.1983, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983
Óveður í rénun
en tjónið mikið
Franskur hermaður stendur vörð á götu í N’djamena, höfuðborg Chad.
Fyrrverandi herforingi
viðriðinn dauðasveitir
BuenoN Aire.s, 19. ágúst. AP.
DÓMARI, sem rannsakar umsvif
dauðasveita hægri sinna á miðjum
síðasta áratug, stefndi í dag Emilio
Massera aðmíráli, fyrrum ráð-
herra, vegna aðildar hans að
mannhvarfi.
Þetta er í fyrsta skipti sem
fyrrum yfirmaður í her landsins
hefur verið stefnt fyrir meinta
aðild að hvarfi manna af pólitísk-
um ástæðum.
Massera var yfirmaður í sjóher
Argentínu og sat í herstjórninni
frá 1976 til 1978. Hann hefur ver-
ið í haldi frá 17. júní sl. vegna
aðildar að hvarfi og meintu morði
kaupsýslumannsins Fernando
Branca 1977.
Dómarinn yfirheyrði Massera í
fimm stundir í gær áður en hann
stefndi honum formlega fyrir að-
ild að herferð gegn vinstri
sinnum.
Dómarinn rannsakar ásakanir
mannréttindahreyfinga og fyrr-
um yfirmanns í lögreglu landsins,
sem er í útlegð, um að dauða-
sveitirnar hafi rænt, pyntað og
myrt fjölda fólks, sem grunað var
um að eiga aðild að hryðjuverka-
samtökum vinstri manna.
Hermt er að dauðasveitirnar
hafi verið settar á laggirnar 1974
meðan Isabella Peron sat á for-
setastóli. í þeim voru nýfasistísk-
ir hermenn og lögreglumenn, sem
staðráðnir voru í að útrýma því
sem þeir kölluðu „marxísku ógn-
unina".
I kjölfar þess að frú Peron var
steypt 1976 settu nýju valdhaf-
arnir baráttuna gegn undirróð-
ursmönnum á oddinn. Mannrétt-
indahópar segja milli 6 og 15 þús-
und manns hafa horfið, í því sem
herinn hefur kallað „skítuga
stríðið", sem lauk 1979 er tekist
hafði meira og minna að útrýma
starfsemi hryðjverkamanna.
Þakkað að hlaupa í skarðið
Dr. Joshua Nkomo, stofnandi Afríkubandalags Zimbabwe, þakkar varamanni sínum, Josiah Chinamano, fyrir
að líta eftir hagsmunum flokksins í fjarveru hans. Nkomo, sem óttaðist um líf sitt í Zimbabwe, hélt í útlegð til
London í mars, en snéri aftur á þriðjudaginn var.
Talsvert var um rán og grip-
deildir í Galveston og Houston og
á annað hundrað manns verið
fangelsaðir fyrir þjófnað.
Af sexmenningunum sem týnt
hafa lífi í fellibylnum, fórust
fimm er þeir urðu fyrir trjám
sem rifnað höfðu upp með rótum.
FLORENCIO CAMPOMANES, forseti Alþjóðaskáksambandsins, FIDE,
tjáði blaðamamönnum í dag að hann hefði boðið ungverska stórmeistaranum
Zoltan Ribli til fundar við sig til að skýra frá óskum sínum varðandi
áskorendaeinvígin.
Ribli var úrskurðaður sigurveg-
ari í einvígi við Vasily Smyslov,
þar sem Smyslov mætti ekki til
leiks í Abu Dhabi í Sameinuðu
furstadæmunum, þar sem einvígi
þeirra Ribli skyldi fara fram.
Campomanes sagði að Ribli
hefði sent sér telex-skeyti 9. ágúst
og lýst stuðningi við ákvörðun
sína og spurt hvar og hvenær
hann ætti að tefla gegn Viktor
Korchnoi, sem úrskurðaður var
sigurvegari í einvígi við Gary
Kasparov, sem ekki mætti til leiks
í áskorendaeinvígi í Pasadena í
Kaliforníu.
Hins vegar hafi Skáksamband
Ungverjalands 18. ágúst sagt í
skeyti að Ribli vildi nú tefla við
Smyslov. „Ég vil komast að hinu
sanna áður en ég gef þessu gaum.
Ég vil fá að vita frá fyrstu hendi
hvað Ribli vill,“ sagði Campoman-
es.
„Og ef Ungverjar leyfa Ribli
ekki að koma til Luzern verð ég að
gera ráð fyrir að fyrsta skeytið
lýsi raunverulegum óskum hans
sjálfs," sagði Campomanes.
Sexburum
heilsast vel
Blankenberge, Bí-lgíu, og Neptune,
New Jersey, 19. ájfúst. AP.
KONA nokkur belgísk, 23 ára að
aldri, sem ekki hafði áður alið
barn, átti nú í vikunni sexbura,
fimm drengi og eina stúlku, og
heilsast þeim öllum mjög vel að
því er yfirlæknir sjúkrahússins
sagði í dag.
Þetta er í fyrsta sinn, sem
sexburar fæðast í Belgíu, og
sagði yfirlæknirinn, að „meira
en 80% líkur væru fyrir, að þeir
lifðu allir“. Móðir þeirra hafði
áður átt í erfiðleikum með að
verða þunguð en þá voru henni
gefin frjósemislyf með þessum
árangri. Börnin voru tekin með
keisaraskurði tveimur vikum
fyrir tímann og vógu fimm til
sex merkur.
í Bandaríkjunum átti önnur
kona margbura í dag, fimm tals-
ins, þrjá drengi og tvær stúlkur,
en óvíst þótti hvernig þeim
myndi reiða af. Þeir vógu þrjár
til fimm merkur og voru einnig
fyrstu börn móður sinnar.
Berezhkov í
Moskvu á ný
Moskvu, 19. ágúst. AP.
SEXTÁN ára sonur sovézks sendi-
ráðsstarfsmanns, sem sagt er að hafi
beðið um að fá að vera í Bandaríkj-
unum, kom aftur til Moskvu í dag og
Handtökur
á írlandi
lA-tlerkenny, írlandi, 19. á||úst. Al*.
LÖGREGLA hefur nú í haldi þrjá
meinta hryðjuverkamenn úr röðurn
írska þjóðfrelsishersins eftir að
henni tókst að frelsa systur og
stjúpföður uppljóstrarans Harry
Kirkpatricks úr höndum mannræn-
ingja.
Hryðjuverkamenn, sem segja að
þagga verði niður í uppljóstrurum
með því að drepa þá, hafa þó eig-
inkonu Kirkpatricks enn á sínu
valdi og óttast nú lögregla um líf
hennar.
Lögregluyfirvöld í Dyflinni
segjast halda að hryðjuverka-
mennirnir haldi Elizabeth Kirk-
patrick í Donegal-héraði í norður-
hluta írska lýðveldisins. Kirk-
patric, sem er tuttugu og fjögurra
ára gömul, var rænt 18. maí í Belf-
ast.
sagðist „ekkert óttast“. Sovétmenn
mótmæltu að drengnum yrði veitt
landvistarleyfi í Bandarfkjunum og
báru við friðhelgi sendiráðsstarfs-
manna.
Andrei Berezhkov, og faðir
hans, Valentin, brostu breitt á
stuttum fundi með bandarískum
fréttamönnum, sem biðu þeirra á
flugvellinum í Moskvu. „Ég er
mjög ánægður að vera kominn aft-
ur,“ sagði unglingurinn. Aðspurð-
ur um hvort hann hefði verið
ánægður að yfirgefa landið, þar
sem sagt er að hann hafi óskað að
búa, svaraði hann að bragði: „Já.
Ánægður að fara.“
Örfáum klukkustundum eftir
komu feðganna til Moskvu skýrði
fréttastofan Tass frá því að utan-
ríkisráðuneytið hefði sent banda-
ríska sendiráðinu orðsendingu þar
sem segði að „stjórn Bandaríkj-
anna hefði í máli þessu gert sig
seka um gróft brot á skuldbind-
ingum sínum samkvæmt Vínar-
sáttmáianum um sendiráðsmál".
Fréttastofan sagði að Berezhkov-
fjölskyldan hefði verið utan
bandarískrar lögsögu og hefði því
ekki verið réttlátt að neita
drengnum um leyfi til að yfirgefa
Bandaríkin unz hann hefði opin-
berlega borið til baka frásagnir
um að hann hefði sent Banda-
ríkjaforseta beiðni um að fá að
vera.
Galveston, 19. ágúst. AP.
Þjóðvarðliðar aðstoðuðu í dag
við að koma í veg fyrir rán og grip-
deildir í borgum og bæjum í Texas,
sem orðið hafa illa úti af völdum
feliibylsins „Alicia”, sem nú er í
rénun og kallaður hitabeltisstorm-
ur.
Rúmlega 330 þúsund heimili í
Houston voru enn rafmagnslaus
og rúmlega þrjár milljónir íbúa
þar hvattir til að sjóða sér
drykkjarvatn. Að minnsta kosti
sex manns hafa týnt lífi í felli-
bylnum.
Veðurhæðin í fellibylnum var
185 km á klukkustund og honum
fylgdi fjögurra metra há flóð-
bylgja. Heilu húsin splundruðust
í veðrinu, tré rifnuðu með rótum
og tjón á bifreiðum og bátum og
mörgum mannvirkjum var til-
finnanlegt.
Flóðbylgjan olli miklu tjóni
allt frá Galveston við ströndina
að Houston, sem er 80 km inn í
landi.
Óveðrið færðist til norðvesturs
í dag með gífurlegri úrkomu i
mið- og norðurhlutum Texas. Úr-
koman mældist til dæmis allt að
2,5 sentimetrar á klukkustund í
Dallas og var flóðahættu lýst
víða í ríkinu.
ERLENT
Campomanes vill
ræða við Ribli