Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.08.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1983 27 Bókabrennur Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson Gerhard Sauder Hrg.: Die Biicher- verbrennung — Zum 10. Mai 1933. Carl Hanser Verlag 1983. „Það var aðeins upphafið, þar sem menn brenna bækur, brenna menn að lokum fólk," (Heine: Úr Almansor, sorg- arleik). Bókabrennur eru jafn gamlar bókagerð, valdhafar hafa á öllum tímum látið bera á bál óæskilegar bækur, bæði veraldlegir og kirkju- legir valdhafar. Bókabrennur til forna náðu til takmarkaðra hópa innan samfélaganna, en bóka- brennurnar 10. maí 1933 í þýskum borgum áttu sínar forsendur í oft ómeðvitaðri, oft meðvitaðri andúð hluta þjóðarinnar á því sem stundum er nefnt æðri menning. Þessi afstaða er ekki ný af nálinni og er til með öllum þjóðum, en í Þýskalandi var hún nýtt af hinum nýju valdhöfum og féll mjög vel að hugmyndafræði þeirra. Þessi af- staða til menningar er oft falin, menn veigra sér við að láta slíkt í ljósi, nema mjög gott tilefni gefist og á þessum árum var ýtt undir þessa afstöðu og hún réttlætt. Nasistar töldu brýnt að hreinsa marxísk og júðsk áhrif úr þýskri menningu, en grannt skoðað var það yfirskin, öll menning var þessu liði andstyggð. Þeir bann- færðu ekki verk Goethes, en það var af heigulshætti, þeir skekktu og bjöguðu verk ýmissa þýskra höfunda til þess að geta logið þá að hugmyndafræði sinni, t.d. Nietzsche, og þeir svívirtu sögu þýskrar menningar með athöfnum sinum. Fyrsta stigið var bókabrennan og það leið ekki langur tími þegar hafist var handa um að brenna fólk. í þessu riti er safnað saman heimildum að undirbúningi og framkvæmd bókabrennanna. I Að lesa milli línanna Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Knut Hamsun: Að haustnóttum, skáldsaga Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi þýddi lltg. Almenna bókafélagið 1983 Knut Hamsun er meiri meistari flestum í því að segja margt á ein- faldan og tæran hátt. í bókum hans verður að lesa meira milli línanna en skrifað er, hér er vissu- lega talað hljótt. Að haustnóttum kom fyrst út hjá Helgafelli 1946 og er sjalfsagt löngu uppseld og því fagnaðarefni að hún skuli gef- in út aftur. Reyndar er það dap- urlegt, hversu tiltölulega fáar bækur Hamsuns hafa verið þýdd- ar á íslenzku, en það er svo sem ekki á hvers manns færi að snúa þeim svo að skáldinu sé sá sómi sýndur sem bækur hans kalla á. Að haustnóttum kom út á for- lagi Gyldendals 1906 og er Hams- un þá kominn á fimmtugsaldur og hún er með síðari bókum, sem snúast um hann sjálfan öðru fremur og þær hugsanir sem á hann sóttu. í ágætum formála Jóns Sigurðssonar með fyrri út- gáfunni segir að tvær merkingar felist í heiti þessarar sögu, sem heitir á norsk „Under höststjern- en“, hún gerist að hausti og haust- fölvi sé tekinn að færast yfir ævi þess manns, sem er lýst I sögunni en það er Hamsun sjálfur. Þó átti Hamsun eftir að skrifa tugi bóka eftir þetta og var raunar að skrifa fram á tíræðisaldur, ég man að vísu ekki nákvæmlega hve gamall hann var þegar Grónar götur komu út, en alténd var höfundur yfir nírætt vel. Augljóst er á þess- um „reynslubókum" hans sem Að haustnóttum telst með í, ásamt Sulti, Viktóríu, Pan ofl. að á yngri árum hefur Hamsun verið svarts- ýnn á að maðurinn — hann — myndi halda hæfni sinni til tján- ingar öllu lengur en fram að sex- tugsaldri. Vonleysi og þunglyndi hrjá hann þegar aldurinn fer að færast yfir og eins og mörgum höfundum er tamt er aldrei fjarri kvíðinn við hrörnunina og að geta ekki skrifað af þeim krafti sem áður var. Það er í raun ekki þörf á því að rekja söguþráð bókarinnar Að haustnóttum. Líkja má henni við ljóð og það er mikið gleðilegt að Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi skuli hafa komið nokkrum bókum Hamsuns yfir á íslenzku. Fyrir Hamsun-aðdáendur, sem eru margir hérlendis, er sönn nautn að lesa þær bækur sem Jón þýddi og hreint makalaust að ekkert missir sín í þýðingunni, sem er bara snilldarleg í einu orði sagt. En það er líka dapurlegt að honum skyldi ekki endast aldur til að færa okkur enn fleiri bækur en hann þýddi. Kápusíða bókarinnar er óvenju- leg og umdeilanleg. Þegar ég fékk hana i hendur og hafði ekki séð höfundarnafnið hélt ég að þarna væri á ferðinni einhvers konar mynda- eða kynningarbók um landslag og náttúru. Samt er káp- an falleg við nánari kynni. inngangi rekur útgefandinn laus- lega frásagnir um bókabrennur fyrri alda. Síðan rekur útgefandi forsendurnar og réttlætingu þess- ara athafna frá sjónarhorni nas- istanna. Eldurinn skyldi eyða óhreinum áhrifum, svo að hinn hreini aríski kynstofn mætti blómstra og þýsk æska gæti erft hreint land og hreina aríska menningu. Þýsk-arísk þjóðmenning skyldi ríkja og þýsk alþýða skyldi erfa heiminn. Nasistarnir voru margir hverjir sprottnir upp úr „lág- menningarumhverfi" og voru haldnir fordómum gagnvart öllum og öllu, sem reis upp úr meðal- mennskunni og þegar þeir náðu völdunum hefndu þeir sín heldur en ekki. Svartir listar voru birtir þar sem skráð voru nöfn og verk þeirra höfunda sem töldust ekki „sannir Þjóðverjar", verk þeirra töldust siðspillandi og „andger- mönsk". Þarna voru skráðir flest- allir þeir höfundar, sem hæst bar á Þýskalandi, svo sem: Thomas Mann, Broch, Döblin, Heinrich Mann Seghers, Werfel o.fl. o.fl., einnig erlendir höfundar, þýddir á þýsku og öll verk varðandi marx- isma og aðrar kenningar sem stönguðust á við nasíska hug- myndafræði. Allir höfundar af gyðingaættum og þeir sem tengdir voru gyðingum, bæði þýskir og erlendir, voru bannfærðir. Undirbúningur að þessum ráð- stöfunum var hafinn í blöðum og með bréfum og tilkynningum til háskóla og bókasafna, stúdenta- samtökum nasista var att til að- gerða. Síðan hófst „karnivalið", æskufólk og stúdentar fóru syngj- andi um stræti allra stórborga Þriðja ríkisins, undir kyndlum og fánum, bílar hlaðnir bókum stefndu á brennustað og þar var bálkösturinn hlaðinn og kveikt í. Frammámenn héldu hjartnæmar ræður um framtak þýskrar æsku. Ýmsir þessara ræðumanna voru prófessorar og þeim varð tíðrætt um hreinsun þýskrar menning- arhelgi, átak til eflingar „þýsks anda“ og nýrrar kynhreinnar ar- ískrar menningar framtíðarinnar. Gífurlegur mannfjöldi fylgdist með þessu sjónarspili og þegar tók að brenna og logarnir hófust til himins, kváðu við fagnaðaróp fjöldans og „hinn glæsilega og dugmikia þýska æska hóf sigur- sönginn". Höfundurinn rekur atburðina 10. maí í helstu stórborgum Þýskalands og birtir ræður sem haldnar voru. Hann ræðir einnig viðbrögð manna í nágrannalönd- unum og viðbrögð þeirra, sem áttu bækur í bálköstunum, en flestir þeirra voru þá annaðhvort flúnir úr landi eða þá í fangabúðum. Áhugi almennings á bókabrenn- unum var einnig snar þáttur þeirrar andlegu farsóttar " sem geisaði í Þýskalandi þessi ár, sjúklegt ofstæki, hatur og terror- ismi afskræmdu hegðun manna og mat gagnvart hver öðrum og öðr- um þjóðum. Uppblásin þjóðernis- hyggja, skrípamynd eðlilegs mats á þjóðlegum verðmætum, var pískuð upp af manngerð, sem ólst á hatri og öfund og andkristni. Þróttheima og Þróttar (á Þróttarsvæöi viö Holtaveg) Laugardag kl. 13-17 Bikarkeppni 2. flokks, Þróttur — Valur kl. 13.00. Afsakiö; 14 manna hljómsveit, Jómbí og töframaöurinn, fallhlífarstökk o.fl. o.fl. Kaffiveitingar. Um kvöldið kl. 9-1 Dansleikur: Hljómsveitirnar KIKK og MOGO HOMO, flugeldasýning á miðnætti. Fra FANTA Notaðir í sérf lokki Chrysler Lebaron Árg. 1978. 8 cyl Lúxus bíll með öllum þæglndum og auk þess er hann fallega dökkblár. Plymouth Volare Premier ST Árg. 1980. Hvítur meö viöar- litum á hliöum. Draumabíll fjölskyldunnar. Talbot Samba Árg. 1982. Léttur, nettur og huggulegur bíll á góöu veröi. Einn sá sparneytnasti. Skoda 120 L Árg. 1981. Gulur á lit og ekinn aöeins 17.000 km og ekki bruölar hann meö bensíniö þessi. og hér er annar ekki síöri Skoda 120 GLS Árg. 1982. Ekinn 14.000 km. SK® DA ®cme€r Opið 1—5 í dag JOFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.