Morgunblaðið - 21.08.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.08.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983 5 Fjórði þáttur Fnimskógarævintýra verður í dagskrá sjónvarps kl. 18.30 og nefnist hann Fuglaparadís. Hann er tekinn upp í Bharatpur á Indlandi en þar er stærsta griðland fugla í Asíu. í þættinum kynnumst vð mörgum tegundum fugla, svo sem storkum og hegrum, og við fylgjumst með þeim þegar þeir veiða fisk, para sig og byggja hreiður. Landbúnaðar- mál kl. 9.45: Aðalfundur Stéttarsam- bands bænda Á dagskrá hljóðvarps kl. 9.45 er þátturinn Landbúnaðarmál. Um- sjónarmaður er Óttar Geirsson. — í þættinum ræði ég við Inga Tryggvason, formann Stéttarsambands bænda, sagði Óttar. — Hann segir okkur frá aðalfundi stéttarsambandsins og helstu málefnum sem þar verða á dagskrá, en það eru efnahags-, sölu- og framleiðslu- mál. f lokin ræðum við svo lítil- lega um horfur í landbúnaði vegna tíðarfarsins. Ingi Tryggvason Lífæð Louisiana Á dagskrá sjónvarps kl. 21.15 á mánudag er bresk heimildarkvikmynd sem fjallar um Missisippifljót og það landsvæði sem því tengist. Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað við fljótið t.d. virkjanaframkvæmdir, skipastigagerð og árveita en þetta hefur stofnað náttúru og lífríki á þessum slóðum í hættu auk þess sem ósar fljótsins í Louisiana eru í hættu við að hverfa. Út og suður kl. 10.25: Bandarísk lögfræði Á dagskrá hljóðvarps kl. 10.25 er þátturinn Út og suður í umsjá Friðriks Páls Jónsson- ar. í þessum þætti segir Dr. Gunnlaugur Þórðarson frá ferð til Washington og New York í vor. Þetta er fyrri hluti. — Við fórum þrjátíu ís- lenskir lögmenn, í maí síðast- liðnum, til Washington og New York, sagði Dr. Gunn- laugur. Þarna kynntum við okkur störf lögfræðinga, lög og dómstóla. Dr. Gunnlaugnr Þórðarson Jersey Frakkland Sumarhus og Tívolí á sama stao % 23. ágúst Uppselt 30. ágúst (Mögulegt aö framlengja) Bráöskemmtileg nýjung fyrir fjölskylduna sem vill stanslaust Tivoli- fjör i sumarleyfinu án aukakostnaöar. Gist verður i sumarhúsum viö Pony Park, einn stærsta Tívoligarö Hollands. Innifalinn i veröi ferðarinnar er frjáls aögangur að öllum tækjum, leikjum og sýningum í Pony Park og bílaleigubill aö auki! Verödæmi: 4 saman i húsi kr.10.600.- Barnaafsláttur kr. 4.000,- Heildarverð fyrir 4ra manna fjölskyldu aðeins kr. 34.000,- Innifaliö: Flug til og frá Amsterdam, gisting i sumarhúsi og ókeypis aðgangur að Pony Park, bílaleigubill af A-flokki iviku, ótakmarkaöur kilómetrafjöldi, allar nauðsynlegar tryggingar og söluskattur Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 3 vikur 26. ág. - 16. sept. Einstakt tækifæri fyrir sóldýrkendur og fagurkera: Við sameinum í einni ferö ósvikna sólarferö á ævintýraeyjuna Jersey og bráö- skemmtilega rútuferð meö viðkomu í Amsterdam, Brussel, Paris, Orleans, Luxembourg og víöar. Verð Kr. 35.500.- Innifalið: Flug til og frá Amsterdam, rútuferö um Holland, Belgíu, Luxembourg og Frakkland, hótelgisting m/hálfu fæöi, vikudvöl á Jersey, ferjuferðir, fjöímargar skoðunarferðir og islensk fararstjórn. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.