Morgunblaðið - 21.08.1983, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983
t
Mágur minn og fööurbróðir,
ÞORSTEINN SIGURJÓNSSON,
Sólvangí,
Hafnarfiröi,
er látinn. Útför hans fer fram frá nýju Fossvogskapellunni, þriöju-
daginn 23. ágúst kl. 10.30.
Guörún Þorbjörnsdóttir,
Stefanía Runólfsdóttir.
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
EYRÍÐUR ÁRNADÓTTIR,
er lézt 9. þ.m. veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík, þriöju-
daginn 23. ágúst kl. 13.30.
Oddbjörg Siguróardóttir,
Katrfn Siguröardóttir og
Magnús Helgason,
Hermann Sigurðsson og
Elinborg Óladóttir,
Siguröur G. Sigurösson.
t
Móöir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
MATTHILDUR HALLDÓRSDÓTTIR,
Austurbrún 2,
veröur jarösungin frá Langholtskirkju, þriöjudaginn 23. ágúst kl.
13.30.
Lárus Kjartansson, Ragnhildur Jónsdóttir
og börn.
Hildur Harðardóttir, Bjarni Haröarson,
Halldóra Haröardóttir og fjölskyldur.
t
Útför bróöur okkar,
PÁLS KR. SIGURÐSSONAR
fró Laxamýri,
Sörlaskjólí 13,
fer fram frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 23. ágúst kl. 3.00.
Systkinin.
t
Útför systur minnar,
STEINGERÐAR ÁRNADÓTTUR
frá Grenivík,
fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 22. ágúst kl. 1.30.
Gunnhildur Árnadóttir.
t
Útför fööur okkar og afa,
ÞORKELS BERGSSONAR,
Miötúni 16,
Selfossi,
fer fram frá Kotstrandarkirkju, þriöjudaginn 23. ágúst kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjúkrahús Suöurlands eöa
aðrar líknarstofnanir.
Börn og barnabörn.
t
Kveöjuathöfn fööur okkar,
KOLBEINS KRISTINSSONAR,
frá Skriöulandi,
veröur í Fossvogskirkju, mánudaginn 22. ágúst kl. 10.30.
Solveig Kolbeinsdóttir,
Hallfríöur Kolbeinsdóttir.
t
Þökkum auösýnda samúö og hlýhug vegna fráfalls
PÁLS S. PÁLSSONAR,
hæstaréttarlögmanns,
Skildinganesi 28, Reykjavfk.
Guórún Stephensen,
Stefán Pálsson, Þórunn Pálsdóttir,
Sesselja Pálsdóttir, Sígþrúöur Pálsdóttir,
Páll Arnór Pálsson, Anna Heióa Pálsdóttir,
Signý Pálsdóttir, fvar Pálsson,
tengdabörn og barnabörn.
Minning:
Guðmundur Vernharðs-
son fv. skólastjóri
Fæddur 26. mars 1903.
Dáinn 10. ágúst 1983.
Stundum kemur það fyrir, að ég
hugsa ákaflega sterkt til einhvers,
sem ég hef kynnst. Er þá oft sá
hinn sami eða sú hin sama að
kveðja jarðlífið. Þetta gerðist í
fyrradag. Þá varð mér mjög hugs-
að til eins forvera míns í starfi. í
dag heyrði ég svo andláts hans
getið í útvarpinu. Hann lést í
fyrradag og hafði þá staldrað
heldur betur við á þessari jörð, eða
í áttatíu ár. Fyrir þremur árum
heimsótti ég þau hjón að Neðstu-
tröð 4 í Kópavogi. Þar bjuggu þau
lengst af síðan þau fluttust utan
af landi, eftir að hafa verið þar
blómaskeið lífsins. í kaupstað var
hægara um vik en í sveit að koma
börnum til mennta. Slíka sögu má
segja um svo marga, sem vilja að
börn þeirra komist áfram og verði
helst foreldrunum langtum fremri
í sókn til mennta og frama. Guð-
mundur vildi, að börn þeirra
hjóna sæktu fram á menntabraut.
Það hefur líka ræst.
Guðmundur Vernharðsson var
fæddur á Hvítanesi í Ögursveit við
fsafjarðardjúp hinn 26. mars 1903.
Voru foreldrar hans Vernharður
Einarsson hreppstjóri og kennari
um skeið, bóndi í Hvítanesi um
langa hríð, og Jóna Runólfsdóttir,
bónda í Heydag vestra, Jónssonar.
Vernharður varð nokkuð aldraður,
dó árið 1937, 67 ára. Jóna lést árið
1928 aðeins 52 ára að aldri. Faðir
Vernharðs var Einar, sonur Hálf-
danar Einarssonar prests að Eyri
í Skutulsfirði, en sonur hans var
sálmaskáldið alkunna síra Helgi
lektor, síðar forstöðumaður
Prestaskólans, d. 1894. Sonur
Helga var svo sem alkunna er dr.
theol. Jón biskup (1866—1942).
Faðir Guðmundar, sem hér er
minnst, og Jón biskup voru
bræðrasynir. Frá Hálfdani pró-
fasti Einarssyni var Dr. Jón bisk-
up þriðji maður, en Guðmundur
skólastjóri Vernharðsson fjórði
maður. Sést af þessari upptaln-
ingu, að Guðmundur var vel ætt-
aður. Hinn kunni athafnamaður í
Bolungarvík, Einar Guðfinnsson,
og Guðmundur Vernharðsson voru
bræðrasynir. f þessari ætt eru
ekki aðeins lærdómsmenn, heldur
einnig athafnamenn, samanber
syni Einars í Bolungarvík. Móðir
Vernharðs, föður Guðmundar, var
Kristín, dóttir ólafs prests Thor-
bergs á Breiðabólstað í Vesturhópi
(1792—1873). Hann var faðir
Bergs landshöfðingja Thorbergs.
Guðmundur átti einnig í móður-
ætt til stórmenna að telja. Kemur
í ljós, að Bergur landshöfðingi var
ömmubróðir hans. Kona Einars
Hálfdanarsonar, Kristín, var syst-
ir Bergs. Læt ég þá þessari upp-
talningu lokið, en sný mér að
manninum sjálfum, sem ég geri
hér tilraun að minnast.
Menntun sína hlaut Guðmundur
úr ýmsum áttum. Hann naut að-
eins farkennslu heima í sveit
sinni. Milli fermingar og tvítugs
stundaði hann nám einn vetur í
gagnfræðaskólanum á ísafirði.
Var það vel virt menntastofnun og
stóð fyrir sínu.
Að loknu þessu námi hóf Guð-
mundur barnakennslu á heima-
slóðum, og sýnir það út af fyrir sig
hversu mikið traust fólk hefur
borið til hans á jafn ungum aldri.
Guðmundur varð búfræðingur frá
Hvanneyri 21 árs. Kenndi hann að
því námi loknu á heimaslóðum allt
til þess tíma, að hann settist í öld-
ungadeild, sem sett var á fót í
Kennaraskóla íslands haustið
1933 og útskrifaði mjög marga
kennara vorið eftir. Höfðu þeir,
sem þá fengu full kennararéttindi
eftir eins vetrar nám, stundað
kennslu lengi og öðlast mikla
reynslu í starfi. Höfðu aldrei fyrr
fram að þeim tíma útskrifast jafn
margir kennarar frá Kennara-
skóla íslands. Áttu þeir eftir að
skila miklu og góðu lífsstarfi.
Munu nú allir hafa lokið sér af, en
nýir menn tekið við.
Með full réttindi upp á vasann
ræðst Guðmundur sem kennari í
Ásahrepp í Rangárvallasýslu. En í
Þykkvabæinn flyst hann 1936 sem
skólastjóri og dvelur þar hvorki
meira né minna en í rúma tvo ára-
tugi. Þar keypti hann sér jörðina
Önnu-Part. Ræktaði þar græn-
meti og hafði skepnur. öll ræktun
var Guðmundi einkar hugleikin.
Kartöflur ræktaði hann að sjálf-
sögðu, líkt og aðrir Þykkva-
bæingar, en í minna mæli. Verk-
maður var Guðmundur lipur, hey-
skaparmaður ágætur. Áður en
hann kvæntist og setti saman bú í
Þykkvabæ, var hann oft í kaupa-
vinnu hjá bændum í Þykkvabæn-
um. Hældu bændur honum mjög í
mín eyru fyrir vinnubrögðin. En
vitanlega var kennslan og skóla-
stjórnin ævistarfið. Guðmundur
þótti einkar lipur kennari. Skrif-
ari var hann góður og gekk vel frá
öllu. Léttlyndur var hann og gat
spaugað. Hann var nokkuð bráð-
lyndur, en fáa menn hef ég hitt,
sem voru jafn fljótir að gleyma og
hann. Það var fljótt úr honum,
eins og sagt er. Guðmundur átti
vitanlega sínar erfiðu stundir í
starfi. En hann stóð alltaf jafn
réttur. Erfiðir nemendur gerðu
honum stundum lífið leitt, líkt og
öðrum kennurum. Þegar ég tók við
skólastjórn í Þykkvabæ haustið
1957 af Guðmundi, sagði hann mér
að ég tæki við nokkrum erfiðum
strákum af sér. Það fannst mér nú
ekki frásagnarvert. Alltaf eru ein-
hverjir sem hafa gaman af að
stíða lærifeðrum sínum. Annars
t
Hjartans þakkir til allra er vottuðu okkur samúö og heiðruöu
minningu
GUÐMUNDAR í. VILHJÁLMSSONAR,
Bergstaöastræti 6c.
Þórný Jónadóttir,
Þórlaug Guömundsdóttir, Höröur Sigmundsson,
Vilhjólmur Guómundason, Guórún Björnsdóttir.
t
Okkar innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö
andlat og útfarir feöganna
VALTÝS JÓNSSONAR JÓNS G. JÓNSSONAR
verslunarmanns og fyrrv. gjaldkera
Hamrabergi 38, R. Víóimel 40, R.
Kristlaug Gunnlaugsdóttir,
Gunnlaugur Valtýsson, Elín Eiríksdóttir,
Jón S. Valtýsson, Ásta Björnsdóttir,
Valtýr E. Valtýsson, Björk Einisdóttir,
og
Valtýr örn, Siguröur Steini, Elísa Rós,
Davíð, Elías Kóri og Jónas.
fannst mér fólk bera hlýjan hug
til Guðmundar sem kennara á
þessum fyrrnefnda stað. Hann var
mannlegur, hafði yndi af að
blanda geði við fólk og var eins við
alla. Slíkt hlýtur að afla mönnum
vinsælda þar sem fólk er með
ómengað hugarfar. Félagsmaður
þótti Guðmundur með ágætum.
Hann mætti á öll mannamót á
staðnum og spilaði bridds.
Haustið 1957 hélt Guðmundur
burt úr Þykkvabæ með fjölskyldu
sinni. Man ég nú ekki hvort þeim
hjónum var haldið samsæti, en
þeirra var a.m.k. saknað. Og rætur
á báða bóga, hans og fjölskyldu
annars vegar og íbúa staðarins
hins vegar, slitnuðu aldrei. Guð-
mundur gerðist kennari við Kópa-
vogsskóla og kenndi þar fram und-
ir sjötugsaldur. Hafði hann þá
kennt á fimmta áratug. Má teljast
vel að verki staðið, ekki síst þegar
þess er gætt að nú finnst flestum
kennurum nóg að hætta, þegar
þeir hafa náð að uppfylla hina
svonefndu 95-ára reglu. Áður voru
kennarar að strekkja við að halda
áfram til sjötugs. Þótti jafnvel
hart að þurfa þá að leggja upp
laupana. Já, tímarnir breytast og
mennirnir með. Ekki veit ég
hvernig kennslan hefur gengið hjá
Guðmundi í Kópavogi. Hann hélt
a.m.k. út sinn tíma og kvartaði
ekki. Hann átti sér held ég enga
óvildarmenn. Hann vann störf sín
af trúmennsku og má með sann-
girni meira krefjast? Ég veit, að
Guðmundur vinur minn var ekki
án galla, fremur en aðrir menn.
En þægilegri mann en hann er
vart hægt að hugsa sér.
Guðmundur kvæntist árið 1944
Guðrúnu Guðmundsdóttur Sæ-
mundssonar frá Sælingsdal i
Dalasýslu. Hún er fædd árið 1917.
Börn eignuðust þau hjón fjögur.
Þau eru: Auður, Guðsteinn Vigfús,
Harpa og Aðalheiður Hrönn. Öll
fædd í Þykkvabæ. Gott var að
heimsækja þau hjón. Alúðin var
ekkert smjaður, ekkert sást við
neglur skorið, eins og faðir minn
sagði, er hann minntist frú Óskar
á Kjalarlandi. Ég vann um skeið
nálægt heimili þeirra hjóna, á
Bókasafni Kópavogs. Þá bar mig
oft að garði að Neðstutröð 4. Við
Guðmundur rifjuðum þá upp
minningar frá sameiginlegum
starfsvettvangi, röbbuðum um
mannlífið á staðnum fyrr á tíð
o.fl. Vegna búsetu úr bænum hitt-
umst við sjaldan síðari árin.
Ég sem þessar línur rita taldi
mér ljúft og skylt að minnast for-
vera míns, Guðmundar Vern-
harðssonar. Með samúðarkveðjum
frá mér og mínum til aðstandenda
hans.
Borgarfirði eystra,
Auöunn Bragi Sveinsson.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!