Morgunblaðið - 21.08.1983, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 21.08.1983, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983 Fiskmarkaður á torgi við Tryggvagötu ofan steinbryggju. Húsið sem bíður flutnings er komið frá Pósthússtrsti 2 og stóð lengi síðar við Tryggvagötu. FISKMARKAÐUR OG FISKSALAR í REYKJA VÍK Fiskmarkaður sá er efnt var til á vegum Bæjarútgerðar Reykja- víkur í nýliðinni viku varð tilefni þess að gömul mynd, er lengi hafði legið í skúffu og beðið þess að með henni væri ritað greinarkorn, var nú tekin fram og þess freistað að afla upplýsinga um mannlíf og mannvirki er hún birtir. Á myndinni sést hópur fólks er bograr yfir fiskkOssum og borðum. Af myndinni verður ráðið að þar eru karlar fleiri en konur. Samt má greina nokkrar. Hávaxin kona á ljósum kjól, síðum, vekur at- hygli. Hún er mittisnett og hefir fléttað hár sitt. Skammt frá henni, nær miðjum hópnum, mun fisksali hampa nýveiddum fiski, en að baki tveggja stúlkna, er standa næst miðju, má sjá hlaðið borð þar sem gnótt af fiski bíður afhendingar. Skammt frá stúlkun- um tveim, nær lesendum, er vog allmikil fyrirferðar og næst hand- vagnar tveir, hjólbðrur og sitt- hvað fleira er heyrir til á athafna- svæði. Eftir því sem næst verður komist mun myndin tekin í júní- mánuði 1919. Magnús ólafsson, kunnur ljósmyndari, faðir ólafs konunglegs myndasmiðs er einnig var frægur af iðn sinni, tók mynd- ina. Lengst til vinstri stendur hús á stokkum og bíður flutnings. Þar mun vera hús er margur í flokki aldraðra Reykvíkinga kannast við. Þegar myndin er tekin er þess skammt að bíða að því verði komið fyrir á grunni við Tryggvagötu. Þar voru síðan til húsa skrifstofur Sameinaða gufuskipafélagsins, á efri hæð. Niðri var nýlenduvöru- verslun- og afgreiðsla til skipa. Erlendur ó. Pétursson Vestur- bæingur veitti skrifstofu Samein- aða forstöðu, en versluninni stjórnaði Theódór Siemsen, kunn- ur maður í kaupsýslustétt, bróðir Árna Siemsen konsúls í Lubeck. Bryggjan er gengur í sjó fram (á miðri mynd) er Steinbryggjan. Hún hvarf síðar undir hafnar- mannvirki. Við bryggjuna liggur vélbáturinn Sjöfn við landfestar. Sjöfn var útilegubátur frá ísa- firði. Samkvæmt bókum Reykja- víkurhafnar tekur Sjöfn vatn hinn 8. júlí 1919 og greiðir kr. 2,50 fyrir. Sjöfn kann að hafa fært Reykvík- ingum fisk í soðið um leið og skipverjar slökktu þorstann og brynntu sér og bátnum. Við stefni Sjafnar og einnig við skipshlið gefur að líta smábáta. Kænur þessar, eða árabátar vekja minningar reykvískra drengja um fyrstu sjóferðir. Héðan lagði margur í fyrstu för. Hjá sumum var látið nægja að róa í næsta færeyskan kútter að verða sér úti um kexköku hjá góðviljuðum fær- eyskum húfumanni. Öðrum varð róðurinn æfing og undirbúningur að ævistarfi, áratuga sjósókn, fiskveiðum eða farmennsku. Luktin á miðri mynd, yst til hægri, mun vera gaslukt. Þetta er fyrir daga rafljósa. Þrímöstruð skonnorta liggur við landfestar framundan vöru- geymsluhúsum sem merkt eru Eimskipafélagi íslands. Þar gefur að líta Francis Hyde, 383ja smá- lesta ameríska skonnortu með gufuhiálparvél. Þjóðkunnir menn, þeir Ólafur Davíðsson, útgerðar- maður og ólafur Johnson, stór- kaupmaður, hafa skipið í förum. Flytur það einkum vörur á vegum O. Johnson & Kaaber. Guido Bernhöft stórkaupmaður var um þessar mundir sölumaður hjá frænda sínum, Ólafi Johnson. Guido minnist þess að Francis Hyde hafi komið úr ameríkuför þetta ár og flutt heim tóbak, te, kex og margskonar varning. Is- lendingar voru ekki miklir te- drykkjumenn á þessum árum. Aft- ur á móti höfðu þeir sölumenn spurnir af því að Færeyingar tækju te framyfir flesta hress- ingardrykki og tókst því O.J.&K. að selja þeim talsvert af þeim hluta farmsins. Af kexinu er það að segja að það var framleitt hjá National Biscuit Company. Segir Guido að skammstöfum þess sé Nabisco og fyrirtæki O.J.&K. hafi umboð fyrir það enn í dag. Morgunblaðið getur þess að Francis Hyde sigli héðan hinn 1. júlí 1919 með síldarfarm áleiðis til Svíþjóðar. Sé flett upp í skipshafnaskrám frá árinu 1919 kemur í Ijós að skipstjóri um þessar mundir er Guðmundur Sigurðsson, 1. stýri- maður, Markús Grímsson, 2. stýri- maður, Friðrik Ólafsson. Friðrik var síðar skólastjóri Sjómanna- skólans og bæjarfulltrúi í Reykja- vík um skeið. Kunnur maður, sjó- liðsforingi á Fyllu og síðar lengi skipstjóri á skipum Landhelgis- gæslunnar. Þetta vor, 1919, er skipshöfn skráð á Francis Hyde í Reykjavík hinn 3. maí. Launahæstur er Guð- bjartur Guðbjartsson, 1. vélstjóri. Hann fær 742 krónur á mánuði skv. samningi. Friðrik Ólafsson, 2. stýrimaður, er 23 ára. Laun hans eru ákveðin 350 krónur á mánuði. Kokkurinn er 18 ára. Honum er skammtað smátt, 150 krónur. Þjónninn fær 200 krónur. Sama upphæð kemur í hlut háseta. Yngsti maður um borð er Hjört- ur Hjartarson lempari. Hann er 16 ára. 1. stýrimaður, Markús, fær 570 krónur á mánuði. f viðbótarklausu sem skráð er í ráðningarsamningi segir: „Hlekkist skipinu á af völdum ófriðarins greiðist umsamið kaup þangað til heim er komið og 500 krónur fyrir fatatjón, en stýri- menn fái 1.000 krónur og vátrygg- ing vélstjóra reiknist eftir samn- ingi milli Eimskipafélags fslands og vélstjórafélags fslands dags. 16. nóv. 1917.“ Fróðlegt er að fylgjast með viðbrögðum aldraðra Reykvíkinga er skoða myndina og freista þess að glöggva sig á því sem fyrir augu ber. Aðalsteinn Guðmunds- son, lengi verkstjóri Olíuverslunar fslands, minnist þess að hafa eign- ast sín fyrstu gúmmístígvél þá er Francis Hyde lagði að landi. Guð- mundur skipstjóri hafði keypt þau handa Aðalsteini. Stígvélin voru svört vaðstígvél með rauðri stjörnu og ljóma ekki síður f endurminningunni, en daginn sem við þeim var tekið. Um leið og Að- alsteinn minnist vaðstígvélanna góðu rifjar hann upp nöfn reyk- vískra ökumanna, en á myndinni sjást hestvagnar, ökumenn tveir mætast, annar á leið að skipshlið, en hinn kominn úr augsýn, að heita má. Aðalsteinn telur upp nokkra kunna ökumenn í Reykja- vík á þessum árum. Fyrstan má nefna Guðmund, föður Karólínu vefkonu á Ásvallagötu og þeirra systkina. Hann byggði Þórodds- staði, rismikinn bæ og reisulegan við Öskjuhlíð. Nafni Guðmundar, einnig ökumaður, bjó lengi á Njálsgötu 15 a. Þá má nefna Sig- ursteindór, föður Ástráðs skóla- stjóra og Bjarna starfsmanns í Haraldarbúð. Vesturbæingar muna Sigursteindór vel er hann ók kolum frá Kol & Salt. Og ekki má gleyma blessuðum hestunum er biðu húsbænda sinna þolinmóðir og tuggðu heyvisk úr strigapoka meðan varningi var komið í hús eða hlaðið á vagn. En hvað um fisksalana? Hve- nær koma þeir „inn í myndina", eins og sagt er nú á bullöld. Um þá stétt manna mætti rita langt mál. Svo mjög var um þá deilt á sinni tíð. Ýmist hafnir til skýjanna eða hrópaðir niður, allt eftir því hvernig „kaupin gerðust á Eyr- inni“. Allt frá aflaskiptunum frægu í Galíleu, þar sem brauðið kom eins og til uppbótar á lítinn fisk, naumast upp í nös á ketti, hafa fisksalar lengst af verið í ónáð og mátt þola margskyns glósur. Dæmi frá árinu 1919. Dagsbrún, blað verkalýðs og al- þýðu ritar í júnímánuði um sölu á heilagfiski á fisktorginu: „Fisksalarnir á fisktorginu hafa nú upp á síðkastið storkað bæj- arbúum með því að flytja þangað heilagfiski, en neitað að selja það fyrir hámarksverð. En aftur á móti hefir sala til utanbæjar- manna og útlendinga gengið mjög greiðlega. T.d. hafa Borgfirðingar fengið það heimsent og útlend skip, sem hingað hafa komið. Fyrir nokkrum dögum barst hingað á torgið talsvert af heilag- fiski frá ísfirskum bát (eða bát- um) og þóttust menn þá eiga á góðu von. En viti menn; fisksal- arnir þverneituðu að selja bæjar- mönnum annað en úrkastið (smæstu smálúðurnar), og eftir stutta stund var kominn á torgið enskur botnvörpungsskipstjóri, og var honum vegið og selt allt það, sem ætilegt þótti (nokkur þúsund pd), en bæjarmönnum var gefinn kostur á að kaupa stórþorsk, löngu, ufsa og karfa." Nokkru síðar birtir „Dagsbrún" örstutt samtal er það segir að hafi heyrst á fiskitorginu:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.