Morgunblaðið - 21.08.1983, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983
29
MAHATMA
Kvíkmyndír
Sæbjörn Valdimarsson
STJÖRNUBÍÓ:
GANDHI
Leikstjóri: Richard Attenborough.
Handrit: John Briley. Kvikmynda-
taka: Biily Williams, Ronnie Tayl-
or. Tónlist: Ravi Shankar. Fram-
leióandi: Attenborough. Aðalhlut-
verk: Ben Kingsley, Ian Chaleson,
Edward Fox, Candice Bergen, Sir
John Gielgud, Trevor Howard,
John Mills, Martin Sheen, Saeed
Jaffrey, Roshan Seth, Rohini Hatt-
angady. Bresk, frumsýnd 1982.
Sýningartími 189 mín.
Það má fullyrða að fáar mynd-
ir hafa vakið jafnmikla athygli
og umtal og Gandhi, á undan-
förnum árum. Og kemur margt
til. Þó það líti einkar hjákátlegt
út í dag, þá átti gerð þessarar
miklu myndar geysi erfitt upp-
dráttar. Attenborough gekk með
hugmyndina hátt á annan ára-
tug án þess að augu fjármögnun-
armanna iðnaðarins opnuðust.
Það var svo ekki fyrr en undir
lok síðasta áratugs, er hið ný-
stofnaða National Film Deve-
lopement á Indlandi, ákvað að
leggja talsvert fé í gerð myndar-
innar, að Gandhi fór að fæðast.
Þá loks komu fjársterkir ein-
staklingar og fjármögnunar-
fyrirtæki til sögunnar.
En þegar til kom, er myndin
var komin vel á veg, vildi ekkert I
hinna stóru kvikmyndarisa
dreifa henni um heimsbyggðina.
Kvikmyndamógúlarnir hristu
höfuðið er minnst var á hina
rösklega þriggja tíma mynd um
„hálf-beran, indverskan fakír".
Sumir þeirra hafa örugglega
„hrist af sér höfuðið", er vel-
gengni myndarinnar kom i ljós.
Þegar Columbia tók svo loks
að sér dreifingu Gandhi, töldu
flestir það hina mestu óráðsíu.
En það kom íljótlega í ljós að
fyrirtækið hafði veðjað á réttan
hest. Myndin sló umsvifalaust I
gegn hvarvetna sem hún var
sýnd og hefur sópað að sér öllum
eftirsóknarverðustu kvikmynda-
verðlaunum í ár.
Vandamálin við gerð þessarar
miklu myndar hafa verið mörg
og flókin. Það erfiðasta að
þjappa saman langri ævi og
störfum Gandhis með kvik-
myndina í huga. Ákveða hvað
skyldi standa og hvaða persón-
um og atburðum sleppa að ein-
hverju eða öllu leyti. Án þess að
skilja nokkurn eftir særðan eða
móðgaðan. Og um þennan þátt
hefur nokkuð verið deilt, hjá því
hefði ekki verið komist. Við sjá-
um aðeins goðsögnina Gandhi.
Þrátt fyrir að undirritaður
hafi til þessa grátlega lítið þekkt
til þessa mikla heimspekings,
mannvins og stjórnmálamanns,
(utan örfárra, óglöggra bernsku-
minninga um tágrannan, austur-
lenskan öldung sem tókst að
halda saman þjóð sinni með
tóman ask að vopni), þá tel ég
víst að sú mynd sem okkur býðst
geti tæpast verið betri. í þessu
sambandi má geta þess að þeim
mikla stórmyndasmið, David
Lean, stóð myndgerðin til boða,
en hann treysti sér ekki að tak-
ast á við þetta margslungna
verkefni.
Annað undirstöðuvandamál
sem Attenborough leysir af
snilld er val Kingsleys í hið erf-
iða hlutverk Gandhis, en með því
siglir hann myndinni í heila
höfn. Eftir að nokkur styrr hafði
staðið um hvor yrði ráðinn í hið
heimssögulega hlutverk, John
Hurt eða Kingsley, var sá síðar-
nefndi blessunarlega valinn,
þvert ofaní álit flestra. Erfitt er
að ímynda sér Gandhi í höndum
annars leikara, (hér er ekki verið
að draga mikla hæfileika Hurts,
Guinnes, né margra annarra í
efa, sem orðaðir voru við hlut-
verkið í einn eða annan tíma),
svo djúpt virðist hann sökkva
sér í hlutverkið auk þess sem það
hæfir honum líkamlega betur en
öðrum.
Svo mikið hefur verið rætt og
ritað um efni Gandhi að undan-
förnu að óþarft er að tíunda efni
hennar. En myndin fylgir lífs-
hlaupi Gandhis frá vendipunkt-
inum, er honum, þá nýútskrifuð-
um lögfræðingi, er hrundið úr
klefa sínum á 1. farrými í s-afr-
íkanskri járnbrautarlest sakir
litarháttar síns. Þá hefst hin
ofbeldislausa, ævilanga barátta
hans fyrir jafnrétti allra trú-
arbragða og þjóðflokka. Réttlæti
til handa öllum og andleg and-
staða gegn styrjöldum.
Við fylgjumst síðan með
Gandhi halda austur yfir hafið
til föðurlandsins þar sem honum
er tekið sem þjóðhetju eftir
rösklega tuttugu ára friðsam-
lega jafnréttisbaráttu í S-Afr-
íku. Þá verða þáttaskil því hann
snýr sér alfarið að sjálfstæði
síns ástkæra föðurlands. Og
sameiningu hinnar miklu stór-
þjóðar sem einkum klofnaði í
Múhameðstrúarmenn og Hindúa
og lauk á svo hörmulegan hátt
30. janúar 1948.
Það dylst engum að Atten-
borough er mikilhæfur leikstjóri
sem kann að sigrast á hinum
margvíslegustu vandamálum og
lætur ekki bugast við mótlæti
frekar en maðurinn sem hann
gerir að viðfangsefni f þessari
stórbrotnustu mynd níunda ára-
tugarins til þessa.
Sérstök tök og mikla skipu-
lagshæfileika sýnir Atten-
borough í fjöldaatriðunum. Þau
eru margvísleg, víðfeðm og gefa
áhorfandanum tilfinningu fyrir
þeim milljónahundruðum sem
byggja þetta fjarlæga land.
Áður er getið afreks Kingsl-
eys, það er einsog leikarinn og
Gandhi séu eitt. Öll önnur hlut-
verk eru vel mönnuð, einkanlega
er eiginkonu Gandhi vel borgið í
næmum, kyrrlátum leik Rohini
Hattangady, sem aldrei hafði
áður staðið framan við kvik-
myndatökuvél; eins er Edward
Fox eftirminnilegur sem hersh-
öfðinginn Dyer, sem stóð fyrir
blóðbaðinu í Jallinwala Bagh og
átti eftir að leiða til fullkominn-
ar samstöðu Indverja gegn hin-
um bresku nýlendukúgurum.
Áður er minnst á handrit John
Brileys. Einsog hann kryfur
æviskeið Gandhis, gæti það
betra verið? Þá eru búningar,
leikmynd og kvikmyndataka
með miklum ágætum. Tónlist
Ravi Shankar er látlaus, hógvær
og heillandi, trú anda og boðskap
myndarinnar. Sem ég vona að
megi hljóma í flestra hjörtum.
IDNFCTJINfi A
19/8-4/9 * U
I IAUGARDALSHÖLL
FÉLAG ÍSLENSKRA ÐNREKENDA 50ÁRA
ERINDI OG UMRÆÐUR
Á IÐNSÝNINGU ”83
Þriðjudaginn 23. ágúst
Aö selja íslenskar iðnaðarvörur
á erlendum markaði
Úlfur Sigurmundsson, framkvæmdastjóri
Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins
Jens Pétur Hjaltested, skrifstofustjóri
Útflutningsmiðstöðvar iðnarins
Þriðjudaginn 30. ágúst
Tölvur í iðnaði
a. Tölvur vió stjórnun
Gunnar Ingimundarson, viðskipta-
fræðingur hjá F.í.l.
b. Tölvur við hönnun og vöruþróun
Páll Kr. Pálsson, deildarstjóri
tæknideildar F.í.l.
c. Tölvur við framleiðslu
Elías Gunnarsson, vélaverkfræðingur
Fimmtudaginn 1. september
Iðnaður — f ramtíðarsýn
a. Hvaða iðnaður?
Ólafur Davíðsson, framkvæmdastjóri
F.í.l.
b. Að þróa nýjar vörur
Páll Kr. Pálsson, deildarstjóri
tæknideildar F.í.l.
Erindin verða flutt að Hótel Esju, 2. hæð,
og hefjast alla dagana kl. 17:00.
Islensk framtíó
á iónaði byggö
IERA
Isskápar og Frystískápar
á SÉRTILBOÐI
AFE268 — Isskápur, 340 lítra meö 33
lítra frystihólfi.
H. 144 cm B. 60 cm D. 64 cm
Verö kr. 14.460-
AFE523 — Frystiskápur, 140 lítra meö
sérstökum hraöfrysti.
H. 85 cm B. 55 cm D. 60 cm
Verð kr. 14.280-
HLJOMBÆR
HLJÐM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999