Morgunblaðið - 21.08.1983, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983
35
[ radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Til sölu
Muller mjólkurtankur 2400 lítra. Verö 120
þús. Uppl. í síma 96-43102, á kvöldin.
Jörö til sölu
Jöröin Sunnudalur í Kaldrananeshreppi,
Strandasýslu, er til sölu ef viðunandi tilboð
fæst.
Uppl. í síma 95-3143, eftir kl. 7 á kvöldin.
Fyrsta flokks ís
Fyrsta flokks ís til fiskiskipa er til sölu hjá
okkur. Mjög stuttur afgreiöslutími. íslager
tekur 300 lestir og hægt er aö afgreiöa 36
lestir á klukkustund.
P/F Bacalao, Þórshöfn,
Færeyjum. Sími 11360.
Skuldabréf
Höfum kaupendur aö óverðtryggðum og
verötryggöum skuldabréfum.
Austurstræti veröbréfasala,
Austurstræti 9, sími 28190.
Loftpressa
Notuð loftpressa 2ja til 6 rúmmetra óskast
keypt. Upplýsingar í símum 34788 og 85583
mánudag og þriöjudag.
Steintak hf.
Öskjuhlíðarskóli
óskar eftir dvalarheimilum fyrir nemendur
utan af landi skólaáriö 1983—1984.
Upplýsingar í síma 23040 eöa 17776.
Innanhússarkitektúr
í Danmörku
Ung stúlka sem hefur hug á námi í innan-
hússarkitektúr í Kaupmannahöfn, gæti hugs-
aö sér að vera í samfloti með annarri, sem
færi í sama nám. Sé áhugi fyrir hendi, sendið
þá nafn, heimilisfang og símanúmer í bréfi til
blaösins, merkt: „Innanhússarkitektúr — 107“
fyrir 25. september.
Lagerhúsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu 200—300 m2
húsnæði á jaröhæö fyrir húsgagnalager.
Æskileg staðsetning: Skeifusvæöi.
Nánari upplýsingar gefur Gísli Blöndal á
skrifstofu okkar Skeifunni 15.
HAGKAUP
Erlent sendiráð
óskar-að taka á leigu einbýlishús eöa íbúö
meö 3—4 svefnherb. miösvæðis í stór-
Reykjavík. Nánari uppl. veittar í síma 29100 á
skrifstofutíma.
Fulbrightstofnunin
óskar aö taka á leigu íbúö fyrir bandaríska
fjölskyldu í fjóra mánuöi frá 10. september
nk. íbúöin þarf aö vera 3—4 herbergi meö
húsgögnum.
Upplýsingar í síma 10860 klukkan 2—6 e.h.
alla virka daga.
Bílddæling vantar íbúð
Ungur Bílddælingur í góöri atvinnu óskar eftir
lítilli íbúö. Góöri og reglusamri umgengni heit-
iö svo og öruggum greiöslum. Vinsamlegast
hringiö í síma 28757 frá 2—5 e.h.
Magnús.
Skrifstofuhúsnæði
Óskum eftir 50—100 fm skrifstofuhúsnæði til
leigu á góöum stað í borginni.
Markaðsþjónustan, sími 26911.
Skeifunni15
---------------------—-----------
Húsnæði á Seltjarnarnesi
Óskum eftir aö taka á leigu 4ra, 5—6 herb.
íbúö á Seltjarnarnesi í 8—12 mánuöi. Allt
fyrirfram. Trygging um góöa umgengni ef
óskaö er. Upplýsingar í síma 45193 eöa
11757.
Þroskahjálp á
Suðurnesjum
óskar sem fyrst eftir lítilli íbúö eöa herb. meö
aðgangi aö baöi og eldunaraðstööu fyrir er-
lendan sjúkraþjálfara. Uppl. í síma 92-3330.
Atvinnuhúsnæði óskast
Óskum eftir vörugeymsluhúsnæði á leigu.
450—550 fm, þarf aö vera með einhverju
útisvæöi. Upplýsingar um leigukjör og staö-
setningu sendist afgr. blaösins merkt: „D —
3543 — Vörugeymsla" fyrir 15. september
1983.
Bergþór Aðalsteins-
son Hafnarfirði
Fæddur 11. ágúst 1912
Dáinn 3. ágúst 1983
Hinn 11. ágúst sl. var Bergþór
Aðalsteinsson jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju. Hann var
fæddur þann sama dag árið 1912 í
Hvammi, Þistilfirði, sonur hjón-
anna Aðalsteins Jónassonar og Jó-
hönnu Sigfúsdóttur sem þar
bjuggu. Bergþór var sjötti í röð-
inni af 11 systkinum.
Mér er ljúft að minnast Berg-
þórs frænda míns, hann þekkti ég
frá bernskudögum mínum og allt
fram á hinstu stund. Þegar vinir
hverfa á braut fer maður ósjálf-
rátt að huga að því sem liðið er og
hvað sé framundan, því enginn
veit hvað morgundagurinn ber í
skauti. Bergþór ólst upp við þau
kjör og störf er tíðkuðust til sveita
á hans uppvaxtarárum. f Hvammi
var mannmargt og oft glatt á
hjalla, kunni Bergþór því vel og
kunni að gleðjast á góðri stund. A
ég margar góðar minningar frá
þeim dögum er við báðir áttum
heima fyrir norðan.
Bergþór giftist ekki en átti
heimili hjá Birni bróður sínum og
konu hans, Hönnu Friðjónsdóttur.
Lengst af bjuggu þeir bræður
saman í Hvammi. Þegar Björn og
Hanna brugðu búi í Hvammi og
fluttu til Þórshafnar flutti Berg-
þór með þeim þangað. Á Þórshöfn
bjó fjölskyldan nokkur ár en flutti
til Hafnarfjarðar 1970. Þeir bræð-
ur gerðust starfsmenn Hafnar-
fjarðarbæjar og störfuðu þar til
dauðadags, en Björn lést 29. júlí
1979. Veit ég, að sambúð Bergþórs
við félagana í bæjarvinnunni var
góð og ánægður var hann er við
ræddum þau mál. Hann tók til
þess hve vel honum líkaði vinnan
og aðbúnaður allur á þeim vett-
vangi. Undir þetta munu félagar
hans geta tekið heils hugar.
Sambúð Bergþórs við fjölskyldu
Björns var með eindæmum góð,
enda mikið fyrirmyndarheimili
sem gott var að koma á. Börn
Björns og Hönnu, Hólmfríður
Bergþóra, Aðalheiður Jóhanna og
Guðmundur, voru frænda sfnum
til mikillar gleði og var gagn-
kvæmt traust og vinátta milli
þeirra. Oft var hann gestur þeirra
og bjó hjá Bergþóru nöfnu sinni og
Jóni Inga um tíma eftir lát bróður
síns.
Bergþór var hamhleypa til
vinnu, ákafinn leyndi sér ekki og
fór hann ekki dult með ef verkin
gengu ekki nógu vel. Trúmennsk-
an sat í fyrirrúmi og ekki var ver-
ið að hugsa um verkalaunin. Man
ég þann mikla ákafa sem hann
sýndi oft við heyskapinn í gamla
daga og reyndar allt sem hann tók
sér fyrir hendur.
Þá var einn þáttur í fari Berg-
þórs sem var aðdáunarverður, það
var hversu góður hann var við
okkur krakkana. Þá var orðið
„kynslóðabil" ekki til og aldurs-
munurinn til góðs eins.
Þegar ég lít yfir farinn veg
minnist ég frænda míns með
þakklæti fyrir elsku hans í minn
garð, það var gott fyrir lítinn
dreng að eiga góðan frænda.
Margt fleira vildi ég segja, en læt
hér staðar numið.
Það var mannmargt á heimili
Hönnu Friðjónsdóttur að Lauf-
vangi 16 eftir jarðarförina. Sýndi
hún, börn hennar og fjölskyldur
þá sem áður þann hug er þau báru
til Bergþórs frænda. Blessuð sé
minning hans.
Eftirlifandi systkinum, Hólm-
fríði og Jónasi, svo og Hönnu,
Beggu, Heiðu, Guðmundi og fjöl-
skyldum sendi ég mínar bestu
kveðjur.
Aðalsteinn J. Maríusson
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
veröa að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. f
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
SVAR
MITT
eftir Billy (iraham
„Þú ert maðurinn!“
Ég veit ekki, hvað eg get gert fyrir góða vinkonu mína. Hún er
trúfost í starfinu fyrir söfnuðinn, en er sífellt að setja út á
nágranna sína og sparar þá ekki gífuryrðin.
í Biblíunni, í 2. Sam. 11—12, segir frá því, er Davíð
drýgði tvær alvarlegar syndir. Guð vildi áminna
hann og sendi þjón sinn á hans fund. Hann sagði
honum sögu um ríkan mann, sem hafði tekið eina
lamb fátæklings til að búa gesti sinum máltíð.
Þegar Davíð heyrði söguna, hitnaði honum i
hamsi eins og von var og hét hinum seka refsingu.
Spámaður Guðs sagði þá við Davíð: „Þú ert maður-
inn!“ Er Davíð heyrði þessa ásökun sannfærðist
hann um synd sína.
Kannski væri yður hyggilegt að segja vinkonu yð-
ar sögu til að leiða henni fyrir sjónir, hve syndsam-
legt það er að tala illa um aðra. Lýsið fyrir henni,
hvernig hægt er að hella úr poka fullum af fiðri, en
við getum ekki safnað því saman aftur, það hefur
fokið út í veður og vind. Eins er auðvelt að blaðra og
gagnrýna, en það verður aldrei bætt að fullu.
Verið hreinskilin við þessa konu. Með hegðun
sinni varpar hún rýrð á nafn hans, sem hún kennir
sig við. Biðjið fyrir henni, og biðjið með henni, ef
hún er fús til þess. Guð getur breytt því, sem hvorki
þér eða hún getið breytt, og hann vill gera það.