Morgunblaðið - 21.08.1983, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983
39
Evrópameistarar Frakka í bridge í opnum flokki 1983. Myndin er tekin við verðlaunaafliend-
ingu í lokahófi Evrópumótsins, sem fram fór í Wiesbaden síðari hluta júlímánaðar. Lengst til
hægri á myndinni er Eric Jensen, forseti Evrópusambandsins, en lengst til vinstri O. Patino,
forseti Alþjóðabridgesambandsins.
Franska kvennaliðið lét sitt ekki eftir liggja á Evrópumótinu og sigraði hollensku sveitina í
lokaumferðinni og hirti þar með Evrópumeistaratitilinn, en þessar sveitir voru efsUr og jafnar
fyrir lokaumferðina. Það var ekki laust við að það mætti sjá tár í augnkrók þegar franski
þjóðsöngurinn var leikinn. Lj6sm. Mbl. Arnór
Bridge
Arnór Ragnarsson
Aðalfundur Bridge-
félags Reykjavíkur
Aðalfundur Bridgefélags
Reykjavíkur 1983 verður haldinn
í menningarmiðstöðinni við
Gerðuberg mánudaginn 29.
ágúst kl. 20.30.
Dagskrá fundarins verður
þessi:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
3. Verðlaunaafhending fyrir síð-
asta keppnistímabil.
Félagsmenn eru hvattir til að
fjölmenna og eru verðlaunahaf-
ar síðasta árs sérstaklega
minntir á fundinn, en þeir eru:
Ásmundur Pálsson, Jón
Hjaltason, Georg Sverrisson,
Karl Sigurhjartarson, Guðlaug-
ur Jóhannsson, Kristján Blön-
dal, Guðmundur Sveinsson,
ólafur Lárusson, Hermann
Lárusson, Sigurður Sverrisson,
Hjalti Elíasson, Símon Símon-
arson, Hörður Arnþórsson, Sæ-
var Þorbjörnsson, Hörður
Blöndal, Valur Sigurðsson, Jón
Ásbjörnsson, Þorgeir Eyjólfs-
son, Jón Baldursson og Örn Arn-
þórsson.
Stjórn Bridgefélags
Reykjavíkur.
JR dró úr aðsókn
í sumarbridge
Sumarbridge var sl. miðviku-
dag og dró það nokkuð úr að-
sókn. Þættinum hefir borist eft-
irfarandi frá ólafi Lárussyni
keppnisstjóra:
Þrátt fyrir landsleikinn og
vini okkar frá Dallas í sjónvarp-
inu sl. miðvikudag, mætti vel yf-
ir 50 pör í sumarbridge. Spilað
var í 4 riðlum og urðu úrslit sem
hér segir (efstu pör):
A-riðill:
Vigdís Guðjónsdóttir
— Inga Bernburg 276
Nanna Ágústsdóttir
— Sigurður Ámundason 272
Sigfús Þórðarson
— Kristmann Guðmundsson 236
Kristín Þórðardóttir
— Jón Pálsson 234
B-riðill:
Guðmundur Pétursson
— Jón Baldursson 216
Helgi Jónsson
— Jakob R. Möller 203
Óli Már Guðmundsson
— Sigtryggur Sigurðss. 193
Sigríður Pálsdóttir
— Óskar Karlsson 185
C-riðill:
Georg Sverrisson
— Kristján Blöndal 189
Ásgeir P. Ásbjörnsson
— Hrólfur Hjaltason 174
Hannes Gunnarsson
— Ragnar Óskarsson 172
Björn Eysteinsson
— Helgi Jóhannsson 169
D-riðill:
Steinberg Ríkharðsson
— Þorfinnur Karlsson 128
Esther Jakobsdóttir
— Sigurður Sigurjónsson 119
Bragi Hauksson
— Sigríður S. Kristjánsd. 115
Og staða efstu manna að lokn-
um 12 kvöldum í sumarbridge er
þá þessi:
Hrólfur Hjaltason 20,5 stig
Jónas P. Erlingsson 18,5 stig
Gylfi Baldursson 17,0 stig
Esther Jakobsdóttir 17,0 stig
Sigurður B. Þorsteinss. 16,0 stig
Guðmundur Pétursson 16,0 stig
Sigfús Þórðarson 14,0 stig
Sigtryggur Sigurðsson 11,5 stig.
Að öllu forfallalausu verður
stefnt að því, að ljúka sumar-
bridge 1983, fimmtudaginn 8.
september nk., því búast má við
að félögin hefji starfssemi sína
uppúr miðjum septembermán-
uði. Þetta þýðir að síðasta kvöld
í stigakeppni verður 1. septem-
ber (sem telur til stigasöfnunar)
og 8. september verður verð-
launaafhending og létt sumar-
spilamennska, líkt og venja hef-
ur verið undanfarin ár.
Það verður að segjast, að þátt-
taka hefur aldrei verið meiri í
sumarbridge heldur en nú og er
það vel. Vonandi láta þessir
„nýju“ spilarar sjá sig í vetur
hjá félögunum, og raunar efast
ég ekki um að þeir komi til með
að gera það. Slíkur er áhuginn.
Og þá er ekkert annað en að
minna á næsta fimmtudag.
Spilamennska hefst í síðasta
lagi kl. 19.30 í Domus.
Allir velkomnir.
Kr. 25.271.- Kr. 17.490.-
VERÐLISTAVERÐ
OKKAR VERÐ
SÆNSK-ÍSLENZK
VERDBYLTING
Á ELECTROLUXBW200
UPPÞVÖTTAVÉLUM
Vid gerdum gód kaup með því að kaupa 213 Electrolux BW 200
GOLD uppþvottavélar í einu lagi. Þannig fengum við verulegan
afslátt sem kemur þér til góða.
Fullkomin uppþvottavél á afsláttarverði, ein hljóðlátasta vélin
á markaðnum - frábær þvottakerfi (með sparnaðarrofa) - öfl-
ugar vatnsdælur sem þvo úr 100 ltr. á mínútu - þrefalt yfirfalls-
öryggi - Ryðfrítt 18/8 stál í þvottahólfi - Barnalæsing á hurð -
Rúmar borðbúnað fyrir 12-14 manns.
Fullkomin Electrolux BW 200 uppþvottavél á tilboðsverði sem
þú trúir tæpast - og ekkert vit er í að hafna.
Vörumarkaöurinn hl.
ÁRMÚLA ÍAS 86117