Morgunblaðið - 21.08.1983, Síða 48
____yglýsinga-
síminn er 2 24 80
rs
_ ^skriftar-
síminn er 830 33
SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983
Hrefnuveiðar:
Ljósmynd/Snorri Snorrasson
Veiðum lýkur um
mánaðamótin
Gissur hviti, einn hrefnubátanna, hefur veitt um 40 dýr í sumar.
GISSUK hvíti er einn þeirra sem
stunda hrefnuveiöar, og er bátur-
inn gerður út frá Brjánslæk. Eig-
endur bátsins eru feðgarnir Guö-
mundur Guðjónsson og Tryggvi
Guömundsson. Blm. Morgunblaðs-
ins haföi tal af Guðmundi, og kvaö
hann sumariö hafa veriö erfitt
vegna tíðarfars, en veiðarnar
hefðu gengiö ágætlega síöustu
daga.
„Það er búin að vera vestanátt
í mest allt sumar, svo við höfum
ekki getað veitt neitt að ráði í
Breiðafirði, og höfum þurft að
fara allt austurá Hornbanka.
Þar er allt krökkt af hrefnu, og
erum við búnir að fá um 40 dýr í
sumar. Veiðarnar eru háðar
ákveðnum kvóta, sem er 200 dýr,
og er því kapphlaup milli báta að
ná sem flestum dýrum yfir
sumarið. Ég býst við að við hætt-
um veiðum um mánaðamótin, og
höldum þá á rækjuveiðar í
haust."
Hrefnan, sem Gissur hvíti
veiðir, er unnin til útflutnings og
er sölunni eingöngu beint til
Japan. Eftir tvö ár verða hrefnu-
veiðar bannaðar, sem og öll
hvalveiði. Við spurðum Guð-
mund álits á banninu.
„Mér líst ekkert of vel á hval-
veiðibannið og tel það fremur
vanhugsað, þótt sjálfsagt sé að
fylgjast með þvi að ekki sé um
ofveiði að ræða. Hvað varðar
hrefnuna, þá virðist nóg til af
henni, og ég sé enga ástæðu til
að banna veiðar á henni."
— Hvað tekur við þegar bann-
ið gengur í gildi?
„Að öllu óbreyttu býst ég við
að förum bara á skak eftir að
veiðar verða bannaðar, og veið-
um með handfæri, en það er ekki
ákveðið ennþá."
Markaðsverð á mjöli og
lýsi fer nú hækkandi
— Vá fyrir dyrum verði engin loðnuveiði á þessu ári, segir Kristján Ragnarsson
Erfitt
viðhald á
skrúðgörðum
„VIÐHALD á skrúögöröum hefur
gengiö upp og ofan í sumar vegna
hins slæma tíöarfars. Því hefur oft
og tíöum verið erfitt aö sinna slætti
þó að viö höfum nýtt þá fáu góðu
daga sem komið hafa í sumar tii
hins ýtrasta og jafnvel unnið um
helgar,“ sagði Hafliði Jónsson, garö-
yrkjustjóri Reykjavíkurborgar, í
samtali við Mbl.
„Austurvöllur hefur t.d. verið
hrein hörmung í sumar og engin
blóm komið upp sökum veðurs.
Hins vegar er mesta furða hve
fólki hefur tekist að halda görðum
sínum í sæmilegu ásigkomulagi.
Er greinilegt að margir garðar í
Reykjavík eru mjög vel hirtir,"
sagði Hafliði. Aðspurður um um-
gengni í skrúðgörðum svaraði
Hafliði að almenningur hefði
gengið illa um þá í sumar, sérstak-
lega í miðbænum.
Tveir ungir
menn réð-
ust á 85
ára konu
TVEIR menn um þrítugt réðust í
gærmorgun á 85 ára gamla konu
við Droplaugarstaði viö Snorra-
braut. Reyndu þeir aö ná af henni
veski og peningum, en tókst ekki.
Ekki er taliö aö þeir hafi unnið
konunni mein, en henni var mjög
brugðið.
Það var um klukka 10 í gær-
morgun, að lögreglunni barst
tilkynning um atburðinn. Er
hún kom á staðinn voru menn-
irnir á brott, en þeir fundust
skömmu síðar og gista nú
fangageymslur lögreglunnar.
Mun annar mannanna hafa haft
frumkvæðið að þessari árás og
hefur hann alloft hlotið dóma
fyrir fólskulegar árásir á fólk.
Mennirnir komu að Droplaug-
arstöðum skömmu fyrir klukkan
10 á bifreið. Þeir reyndu síðan
með höggum og spörkum að
komast inn um aðaldyr hússins,
en tókst ekki þar sem þær voru
læstar. Þeir gengu þá fram með
húsinu og rákust þá konuna,
sem er vistmaður á Droplaug-
arstöðum, þar sem hún var á
morgungöngu.
Heimsmarkasverð bæöi á mjöli og
lýsi hefur hækkað síöustu vikurnar
og nú er mjölið komið í að minnsta
kosti 7 dali á próteineingingu og lýs-
iö á að minnsta kosti 400 dollara
tonnið. Enn hefur ekki verið tekin
ákvörðun um það hvort loðnuveiðar
verði leyfðar á þessu ári. Akvörðun
þar að lútandi bíður niðurstaðna
rannsóknarleiðangurs í október.
Kristján Ragnarsson, formaður og
framkvæmdastjóri LÍÚ, segir vá
fyrir dyrum verði loðnuveiðar ekki
leyfðar á þessu ári.
„Það virðist vera þannig að selj-
endur mjöls og lýsis haldi að sér
höndum, því mjög lítið er um sölur
nú, væntanlega vegna þess að þeir
telja að verð fari hækkandi. Lík-
lega er það ótti við minni upp-
skeru soyjabauna vegna þurrka í
Bandaríkjunum, sem veldur þessu.
Þá hefur það sitt að segja að mjöl
og lýsisframleiðsla Chile og Perú
hefur dottið niður nú í ár. Norð-
menn hafa ekki þorað að selja
meira fyrirfram, en þeir hafa þeg-
ar gert, en þeir eru þegar byrjaðir
að veiða loðnu í Barentshafi. Fyrr
á þessu ári var mjölverðið um 6,30
dalir á próteineinginu og lýsið var
selt á 370 dali tonnið fyrir
skömmu," sagði Kristinn Bald-
ursson, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Síldarverksmiðja ríkissins, í
samtali við Morgunblaðið.
Kristján Ragnarsson sagði í
samtali við blaðið, að þar sem
ljóst væri að ákvörðun um loðnu-
veiðar yrði að bíða niðurstaðna
rannsóknarleiðangursins í haust,
og gæti LÍÚ ekki gert annað en að
leggja á það áherzlu að niðurstöð-
ur lægju fyrir eins fljótt og mögu-
legt væri, svo menn vissu í tíma
hvað yrði. Loðnuveiðar væru nán-
ast lífsnauðsyn fyrir útgerðir
loðnuskipa, verksmiðjur í landi og
þá staði, sem byggt hafa á loðnu-
vinnslu. Mikið væri nú um það að
sjómenn yrðu varir við loðnu á
miðunum og yki það bjartsýni um
að veiðar yrðu leyfðar.
Dr. Jóhannes Nordal eftir álviðræður í London:
Miðaði að samkomulagi
en samningar tókust ekki
„í VIÐRÆÐUNUM sem voru jákvæðar og gagnlegar miðaði í ált að sam-
komulagi án þess að samningar tækjust," sagði dr. Jóhannes Nordal, sem
var í forystu fyrir íslensku nefndinni er ræddi við fulltrúa Alusuisse í
London, þegar Morgunblaðið ræddi við hann um hádegisbiliö á laugardag.
Viðræðunum var þá lokið með ákvörðun um að hittast síðar.
„Okkur miðaði verulega áfram
varðandi flest umræðuefnin en
málið er flókið og kusu viðræðuað-
ilar að láta staðar numið að sinni
til að geta rætt einstaka þætti
nánar við umbjóðendur sína.
Nauðsynlegt er að nægur tími gef-
ist til að kanna öll atriði gaum-
gæfilega áður en lengra er haldið,"
sagði Jóhannes. Hefði verið um
það rætt, að líklega gæti næsti
fundur orðið 6. september.
Jóhannes Nordal vildi ekki ræða
stöðuna í samningaviðræðunum
að öðru leyti, hann sagði að allir
þættir málsins væru samtengdir
og það gæfi ekki rétta mynd af
stöðu málsins nú að taka einstaka
þætti fram yfir aðra.
Sverrir Hermannsson, iðnaðar-
ráðherra, mat stöðuna þannig í
lok viðræðulotu á föstudaginn,
eins og kom fram hér í blaðinu í
gær, að árangur hefði orðið „lítill
sem enginn" í viðræðunum og
„hefði ekkert gengið saman, þetta
væri mjög erfitt mál og þungt
fyrir" og vísaði ráðherrann þá sér-
staklega til þess þáttar, viðræðn-
anna sem snerta hækkun á orku-
verði til álversins. Eins og sést af
ummælum Jóhannesar Nordal
tókst hins vegar að þoka málum
áfram áður en viðræðum lauk
fyrir hádegi á laugardag.
Jóhannes Nordal var væntan-
legur til landsins í gær og eftir
helgina verður ráðherranefnd rík-
isstjórnarinnar í álmálinu, sem i
sitja auk iðnaðarráðherra þeir
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, og Geir Hall-
grímsson, utanríkisráðherra, gerð
grein fyrir stöðu málsins eftir
fundinn í London.
Þetta var þriðji viðræðufundur
fulltrúa ríkisstjórnar fslands og
Alusuisse frá stjórnarskiptum 26.
maí síðastliðinn. í íslensku við-
ræðunefndinni voru auk Jóhann-
esar Nordal, dr. Gunnar G.
Schram, alþingismaður, Guð-
mundur G. Þórarinsson, verkfræð-
ingur, Páll Flygenring, ráðuneyt-
isstjóri, Garðar Ingvarsson, ritari
nefndarinnar, og Hjörtur Torfa-
son, lögfræðilegur ráðunautur. Dr.
Paul Múller var í forystu fyrir sex
manna viðræðunefnd Alusuisse og
var Ragnar S. Halldórsson, for-
stjóri álversins í Straumsvík, í
þeirri nefnd.
Kolmunn-
inn bíður
betri tíma
„ÞAÐ fæst ekki nema smár
kolmunni nú og hann getum við
ekki nýtt. Það er því ekkert ann-
að að gera en að láta hann eiga
sig fram yfir næstu áramót,"
sagði Bjarni Gunnarsson, skip-
stjóri á Eldborginni, í samtali við
Mbl. „Því höfum við ákveðið að
fara á rækju og vinna hana um
borð. Ekki er ákveðið hvert við
förum, en líklega norður eða
austur fyrir og förum hugsanlega
af stað um miðja næstu viku.
Síldin og loðnan eru svo í sigti í
haust," sagði Bjarni.