Morgunblaðið - 06.10.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
Sævar efstur á
haustmóti TR
SÆVAR Kjarnason er efstur á haust-
móti Tafirélags Reykjavíkur, sem nú
stendur yfir. liann hefur lagt alla
andsta-Ainga sína art velli að loknum
fjórum umferóum. í fyrrakvöld sigr-
aói hann íslandsmeistarann Hilmar
Karlsson og Benedikt Jónasson í
bióskákum og skaust upp á toppinn.
Margeir Pétursson og Jóhann
Hjartarson eru í 2.-3. sæti með
Fiskmarkaðir:
Þokka-
legt verð
SAMKVÆMT upplýsingum
Landsambands íslenskra út-
vegsmanna er markaóur nú
þokkalegur fyrir fisksölur á
breskum og þýskum fiskmörk-
uóum. Mikið er af fiski á bresk-
um markaði og er þaó vegna
góós afla heimaháta, en ef um
góóan fisk er aö ræða, má eftir
sem áður fá gott verð fyrir afla
íslensku bátana.
Gjafar VE seldi í Hull á
mánudag 54,2 tonn fyrir
1.417,500 þúsund, meðalverð
26,14 krónur. Hegranes var í
Cuxhaven á mánudag og
þriðjudag og seldi 187,4 tonn
fyrir 3.335,2 þúsund, meðal-
verð 17,18 krónur. Skarfur GH
seldi 50,2 tonn í Hull á 1.271,9
þúsund, meðalverð 25,36 krón-
ur. Otur seldi 179,8 tonn á
2.759 þúsund, meðalverð 15,35
krónur.
þrjá vinninga og Róbert Harðarson
hefur tvo og hálfan vinning og
biðskák þar sem hann stefnir til
vinnings. Arnór Björnsson er með
tvo vinninga og biðskák, en hann
gerði sér lítið fyrir og sigraði al-
þjóðlega meístarann Margeir Pét-
ursson, en Arnór er aðeins 17 ára
gamall.
Elvar Guðmundsson, TR, Halldór
G. Einarsson og Benedikt Jónasson
hafa hlotið einn og hálfan vinning,
Dan Hansson hefur einn vinning og
á tvær biðskákir, Karl Þorsteins
hefur einn vinning og biðskák,
Hrafn Loftsson hefur engan vinn-
ing og á eina biðskák en lestina rek-
ur Islandsmeistarinn Hilmar
Karlsson, hann hefur tapað öllum
skákum sínum.
Fjögur umferðarslys í gær
Mnrgunblaðið/Júlíus.
FJÖGUR SLYS urðu í umferóinni í gær — þar af uróu tvö
börn fyrir bifreió, — en enginn slasaðist alvarlega. Stúlka
varó fyrir bifreió á leið heim frá ísaksskóla þegar hún var
að fara yfir gangbraut í Stakkahlíð. Meiðsli hennar
reyndust ekki alvarleg.
f hádeginu varð drengur fyrir bifreið til móts við Ár-
múla 23. Hann slasaðist ekki alvarlega. Þá fauk maður
fyrir bifreið skammt frá Hótel Sögu laust fyrir klukkan
sex og kona féll í strætisvagni á Háaleitisbraut laust fyrir
sjö. Meiðsii þeirra reyndust ekki alvarleg.
Breyttur afgreiðslutími í
Hagkaupum á laugardag
,,VH) HÖFUM náð fullu samkomulagi
við okkar starfsfólk. Á milli 20 og 30
manns af þessum 60 manna hópi sem
þarna á í hlut treystir sér til að vinna
til sjö, en hinir sem ekki treysta sér til
þess hætta klukkan sex. Við teljum að
ha-gt sé að halda opnu með þennan
mannskap og reiknum með að byrja
strax á laugardaginn með nýja af-
greiðslutímann, hafa þá opið frá níu til
fjögur,“ sagði Gísli Blöndal hjá Hag-
kaupum, í samtali við Mbl. í gær, en
undanfarna daga hafa staðið yfir við-
ræður á milli fulltrúa starfsfólks og
yfirmanna Hagkaupa, vegna fyrirhug-
aðra breytinga á afgreiðslutíma í versl-
un Hagkaupa í Skeifunni.
„Það var eindregin ósk starfs-
fólksins að byrja klukkan níu, en
ekki tíu, eins og við höfðum hugsað
okkur til að lengja ekki vinnutím-
ann,“ sagði Gísli. „Við urðum fúslega
við þeirri ósk, og því verður opið hjá
okkur frá níu til sjö frá mánudegi til
fimmtudags, frá níu til níu á föstu-
dögum og til fjögur á laugardögum.
Harma að margir virðast
fara bónleiðir til búðar
— segir félagsmálaráðherra um skuldbreytingu lána
„MÉR FINNST bankarnir nokkuð óbilgjarnir. Þcgar ríkisstjórnin leitaði eftir
samkomulagi um skuldbreytingu lána var fyrst leitað eftir 10—12 ára lánum,
en síðan var fallist á tilboð bankakerfisins um 8 ára lán, eins og gert var 1981.
Okkur fannst þetta útaf fyrir sig geta gengið,“ sagði Alexander Stefánsson
félagsmálaráðherra, þegar Mbl. innti hann álits á ummælum Jónasar Haralz
bankastjóra í Mbl. í gær þess efnis að lán sem væru til lengri tíma en fjögurra
ára væru langtímalán og því þyrfti ekki að skuldbreyta þeim.
„Ég reiknaði alltaf með því að lánum hefur verið gengið. Bæði af
bankarnir yrðu eins sveigjanlegir
og mögulegt væri, þannig að samn-
ingar næðust innan þessa ramma.
Mér sýnist margt benda til að mis-
jafnlega sé á þessu tekið og það
verður að harma að margir virðast
fara bónleiðir til búðar.
Ég viðurkenni að erfitt er að
skilgreina þetta. Það er eins með
þetta eins og svo margt í viðskipt-
um undanfarið — í þessu verð-
bólgufári sem gengið hefur yfir, að
misjafnt hefur verið hvernig frá
hálfu banka og lántakenda.
Aðalatriðið í mínum huga var
það að bankakerfið almennt gengi
til samkomulags um það að gera
eins vel við fólk í vandamálum þess
og frekast yrði unnt. Sem betur fer
verður maður víða þess var, að
bankar og sparisjóðir framkvæma
skuldbreytingar þannig að við-
skiptavinir geti staðið í skilum. Að-
alatriðið er að fólk geti staðið í
skilum. Ég hef lagt á það r íka
áherzlu að bankarnir veiti hús-
byggjendum viðráðanleg lán.
A síðasta fundi ríkisstjórnarinn-
ar var ákveðið að ég og viðskipta-
ráðherra færum til viðræðna við
fulltrúa viðskiptabanka og spari-
sjóða, bæði til þess að freista þess
að fá fram meiri rýmkun á reglum
og reyna að fá samkomulag um að
bankarnir taki að sér fram-
kvæmdalán til aðila í byggingar-
iðnaði — bæði byggingarsam-
vinnufélaga og verktaka, sem áður
hafa sótt þessi lán til Byggingar-
sjóðs ríkisins. Þetta mundi létta
mikið á byggingarsjóði og færa
okkur nær því markmiði, sem hlýt-
ur að verða í framtíðinni, að bank-
arnir komi smátt og smátt meira
inn í húsnæðismál," sagði Alexand-
er Stefánsson.
„Við sem staðið höfum í forsvari
húsbyggjenda, lítum svo á að fjög-
urra ára lán sé skammtímalán en
ekki langtímalán," sagði Pétur J.
Eiríksson er hann var inntur álits
á skilgreiningu bankastjóra Lands-
bankans.
Afgreiðslutíminn á laugardögum
gildir þó einungis að vetrinum til.
Að öðru leyti er þetta mál í hönd-
um þeirra, sem ber að semja um af-
greiðslutíma verslana. Við höfum á
annað ár leitað eftir því að reglum
um afgreiðslutíma verslana yrði
breytt, en án nokkurs árangurs. Við
tókum því þá ákvörðun að breyta
okkar afgreiðslutima einhliða og
láta reyna á kerfið. Því það er alveg
ljóst að verslanir í Reykjavík hafa
mun verri samkeppnisaðstöðu vegna
þessarar reglugerðar en nágranna-
sveitarfélögin."
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavíkur,
hefur undanfarið átt viðræður við
fulltrúa starfsfólks Hagkaupa og var
síðasti fundurinn í gær. Bertha Bier-
ing, trúnaðarmaður starfsfólksins,
sagði blaðamanni Mbl. það í gær, að
málið væri nú komið á það stig að
Kaupmannasamtökin hefðu óskað
eftir viðræðum við VR um verslun-
artíma í Reykjavík almennt. „Á
meðan á þeim viðræðum stendur
semja yfirmenn Hagkaupa sérstak-
lega við það fólk sem treystir sér til
að vinna til sjö,“ sagði Bertha.
Magnús L. Sveinsson sagði að
VR-menn hefðu fyrir sína parta fall-
ist á að taka upp viðræður við Kaup-
mannasamtökin og einnig þyrfti
Vinnuveitendasambandið að koma
inn í þá mynd. „Næsta skrefið er,“
sagði Magnús, „að þessir aðilar hefji
viðræður á breiðum grundvelli um
þessi mál.“
Páll Sæmundsson
stórkaupmaður látinn
PÁLL Sæmundsson, stórkaupmaður,
er látinn, 71 árs að aldri. Hann var
fæddur í Reykjavík þann 15. septem-
ber 1912, sonur hjónanna Sæmundar
Magnússonar, verkstjóra og konu
hans, Guðmundínu Guðlaugar Páls-
dóttur.
Páll heitinn stundaði nám við
Uldals Handelsskole í Stafangri
1931—32 og gerðist verzlunarstjóri
hjá KRON þegar hann kom heim frá
námi. Árið 1941 gerðist ht nn með-
eigandi Gísla Jónssonar frá Bíldu-
dal í verzluninni Liverpool, sem þá
var til húsa í Hafnarstræti 5. Síðar
varð hann einkaeigandi. Árið 1955
flutti Liverpool í stórhýsi á Lauga-
veginum, sem Páll reisti. Síðar
leigði hann KRON verzlunina. Árið
1975 setti hann á fót heildverzlun
Páls Sæmundssonar.
Páll var formaður Kaupmanna-
samtaka íslands á árunum
1956— 60. Sat í stjórn Eimskipafé-
lags íslands 1963—67. Hann var
gerður að heiðursfélaga Kaup-
mannasamtakanna og sæmdur gull-
merki samtakanna.
Árið 1940 kvæntist hann eftirlif-
andi konu sinni, Eygerði Björns-
dóttur og eignuðust þau sjö börn.
Markaðsverð á lýsi
lækkar um 10 prósent
iHHI
Mynd Mbl. Kriðþjófur,
A námskeiöi hjá ökukennurum
Ökumönnum gafst í gærkvöldi einstakt tækifæri til þess að hressa upp á aksturs-
hæfileika sína og rifja upp þau atriði, sem ef til vill höfðu gleymst frá því þeir
tóku bílpróf. Ökukennarar í samvinnu við Umferðarráð, tryggingarfélögin og
Bifreiðaeftirlit ríkisins héldu námskeið þar sem hin margvíslegustu atriði í
sambandi við bifreiðir og umferð voru rifjuð upp.
HEIMSMARKAÐSVERÐ á lýsi
hefur á síðustu dögum lækkað um
rúm 10% eða úr 440 til 450 dölum
lestin í um 400 dali. Að sögn Jóns
Reynis Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra Síldarverksmiðja
ríkisins, stafar þetta aðallega af
auknu lýsisframboði Japana.
Markaðsverð á mjöli hefur hins
vegar staðið nokkuð í stað.
Sagði Jón Reynir, að Japanir
væru stærstu seljendur lýsis í
Vestur-Evrópu og hefði því aukið
framboð þeirra talsverð áhrif.
Markaðsverð á lýsi og mjöli hefði
hækkað fyrir um það bil mánuði í
kjölfar samdráttar í soyjabauna-
framleiðslu Bandaríkjanna og
hruns ansjósustofnsins við strend-
ur Perú í kjölfar heits straums,
sem þar er kallaður „jólabarnið“!
Markaðsverð á mjöli væri nú um 8
dalir á hverja próteineiningu. Jón
Reynir sagði ennfremur, að þrátt
fyrir þessa verðlækkun á lýsi væri
það nú miklum mun hærra en í
fyrra og fyrr á þessu ári, en þá fór
það niður í um 300 dali lestin.