Morgunblaðið - 06.10.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
3
Fræðslustjórinn í Reykjavík:
Fer sjálfkrafa
út af launaskrá
— en á launum meðan hún gegnir starfinu
„Á HVERJU ári gerist það með hundr-
uð starfímanna hjá ríkinu, mestmegn-
is kennara, að þeir falla sjálfkrafa út
af launaskrá þegar ráðningartími
þeirra eða setningartími er útrunninn.
Þannig var með Áslaugu Brynjólfs-
dóttur, fræðslustjóra í Reykjavík.
Fyrir áramótin hafði okkur borist ósk
um að halda henni inn á launaskrá
fyrir októbermánuð, eða á meðan ekki
væri búið að ganga frá hennar máli, en
þegar sú ósk kom var þegar búið að
tölvukeyra laun mánaðarins. Hún fær
greidd sín laun í þessari viku,“ sagði
Indriði H. Þorláksson, deildarstjóri
launadeildar fjármálaráðuneytisins, í
samtali við blm. Morgunblaðsins.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
rann út um mánaðamótin sá tfmi,
sem Áslaug var sett til að gegna
starfi fræðslustjóra f Reykjavík.
Hún hefur óskað eftir að verða skip-
uð í embættið, eins og venjulegast er
með embættismenn sem settir hafa
verið í eitt ár, en Ragnhildur Helga-
dóttir menntamálaráðherra hefur
vísað erindinu til umsagnar fræðslu-
ráðs Reykjavíkur. Á meðan gegnir
Áslaug starfinu áfram án þess að
vera í það formlega sett eða skipuð.
Þar sem forrit launatölvu fjármála-
ráðuneytisins gerði ráð fyrir að hún
félli út af launaskránni um þessi
mánaðamót fékk hún ekki sín laun
fyrsta vinnudag mánaðarins, „enda
þarf sérstakar aðgerðir til að halda
henni á skránni og fyrirmæli um
þær aðgerðir bárust of seint frá
menntamálaráðuneytinu," eins og
Indriði Þorláksson orðaði það.
Selskrokkahakkavélin brotin:
Beið lægri hlut fyr-
ir útselsskrokki
Selskrokkahakkavélin, sem
Landsmiðjan smíöaði í sumar fyrir
Hringormanefnd, reyndist ekki sem
skyldi er hún var prófuð. Var hún
ekki vanda sínum vaxin og varð að
lúta í lægra haldi fyrir hálffrosnum
útselsskrokkum. Er vélin nú í endur-
bySK'ngu hjá Landsmiðjunni.
Áð sögn Björns Dagbjartssonar,
formanns Hringormanefndar, var
vélin fyrst reynd með fiskúrgangi
og smærri stykkjum og gekk henni
vel að melta þá fæðu. Þegar loka-
æfingin fór fram var hún mötuð á
hálffrosnum útselsskrokkum.
Höfðu þeir betur í viðureigninni
við hakkavélina og brotnaði hún í
átökunum. Ætlunin var að senda
vélina norður til Grenivlkur og
hafa hana þar i fóðureldhúsi loð-
dýrabúsins Grávöru. Verður vélin
send þangað að lokinni endur-
byggingu, ef talið verður að hún
valdi hlutverki sínu að fullu.
Menntaskólinn við Hamrahlíð:
Lyftan gæti verid
tilbúin um áramót
„ÞETTA MÁL á allt að vera komið í
fullan gang eftir um það bil viku. Þá
mun liggja fyrir hvaða lyftu við hyggj-
umst kaupa, búið verður að panta hana
og undirbúningur uppsetningar haf-
inn,“ sagði Örnólfur Thorlacius, rektor
Menntaskólans við Hamrahlíð, í sam-
tali við Morgunblaðið um lyftu fyrir
fatlaða nemendur í skólanum. Morg-
unblaðið hefur undanfarið rakið sögu
þessa máls og tafir þess innan skóla og
utan.
Örnólfur sagði að skólayfirvöld
hefðu nú fengið á hreint að þeim
væri heimilt að panta lyftuna og
ganga frá málinu. „Eg er einmitt að
fara út úr húsinu til að skoða lyftu
af sömu tegund og við höfum fengið
eitt tilboð um. Sú lyfta gæti verið
komin upp um áramót en við viljum
kynna okkur þetta mjög vel. Við höf-
um fengið fleiri tilboð og erum
ákveðnir í að láta setja hér upp al-
menna lyftu, sem nýtist fleirum en
okkar fötluðu nemendum. Eftir viku
getum við væntanlega sagt frekari
fréttir af þessu máli,“ sagði örnólfur
Thorlacius.
New York:
íslendingar heiðra
ívar Guðmundsson
Á FJÖLMENNRI samkomu íslend-
ingafélagsins í New York nýlega til-
kynnti formaður félagsins, Kristján
Ragnarsson læknir, að stjórn félagsins
hefði einróma kjörið ívar Guðmunds-
son aðalræðismann fyrsta heiðursfé-
laga íslendingafélagsins.
Formaður færði ívari skrautritað
skjal og gat þess I ávarpi, að „ívar
hefði á undanförnum árum unnið
frábært starf í þágu Islands og Is-
lendinga og vina íslands í heims-
borginni og nágrenni. Hann hefði og
eflt norræna samvinnu á staðnum.
Fyrir þægilegt viðmót og vilja til að
leysa hvers manns vanda hefði ívar
hlotið virðingu og vinsældir meðal
íslendinga og vina íslands".
Á samkomunni skemmtu þær
Selma Guðmundsdóttir og Rut
Magnússon með píanóleik og söng
við góðar undirtektir áheyrenda.
fvar Guðmundsson
Fyrir3500króna
útborgun
færöu 26 Philips
litsjónvarp
heim í stofu
strax í dag!
Nú setjum við nýtt met í sjónvarpstilboðum.
Við bjóðum 26"CS-1006 Philips litsjónvarp
með innan við 10% útborgun
og eftirstöðvar má greiða á allt að 8 mánuðum.
Pað fæst líka á frábæru staðgreiðsluverði,
aðeins kr. 35.900.-.
Við komum tækinu heim í stofu, stillum það og þið fáið
vetrardagskrá sjónvarpsins eins góða
og mögulegt er.
Þetta köllum við
sveigjanleika í samningum.
I I
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655