Morgunblaðið - 06.10.1983, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
22
Norska Nóbelsverðlaunanefndin:
Persónugervingur þess
er þráir frið og frelsi
Osló, 5. október. AP.
HÉR Á EFTIR fer opinber tilkynning norsku Nóbelsverðlaunanefndarinn-
ar, sem dreift var um heim allan er verðlaunaveitingin var tilkynnt:
„Norska Nóbelsverðlauna-
nefndin hefur veitt Lech Walesa
friðarverðlaun Nóbels fyrir árið
1983.
Við ákvörðun sína tók nefndin
hliðsjón af framlagi Walesa til að
tryggja verkamönnum rétt sinn
til að setja á stofn eigin verka-
lýðsfélög þrátt fyrir að hann
þyrfti að færa persónulegar fórnir
fyrir vikið.
Þetta framlag er mikilvægur
liður í víðtækri baráttu fyrir rétti
manna til skipulagningar um
heim allan — mannréttinda eins
og það hefur verið skilgreint af
Sameinuðu þjóðunum.
Störf Walesa einkennast af
stálvilja til þess að leysa vanda-
mál þjóðar sinnar með samninga-
umleitunum og án þess að grípa
nokkru sinni til ofbeldis. Hann
hefur reynt að koma á viðræðum
á milli samtakanna, sem hann er í
forsvari fyrir, Samstöðu, og yfir-
valda. Nefndin lítur á Walesa sem
persónugerving þess, sem þráir
frið og frelsi, eins og fólk gerir um
alla veröld þrátt fyrir misjafnar
aðstæður.
Nefndin hefur í nokkrum tilvik-
um við afhendingu friðarverð-
launanna lagt áherslu á, að bar-
áttan fyrir mannréttindum sé
jafnframt barátta fyrir friði.
Ennfremur telur nefndin, að til-
raun Walesa til að komast að frið-
samlegri lausn vandamálanna í
heimaíandi hans muni leiða til
minnkandi spennu á alþjóðavett-
vangi.
Á öld, þar sem slökunarstefna
og friðsamleg lausn deilumála er
mikilvægari en nokkru sinni, er
framlag Lech Walesa fordæmi,
jafnframt því að vera uppörv-
andi.“
Lech Walesa ásamt konu sinni, Danutu, og börnum á göngu í Gdansk. Lífvörður hans fylgir í humátt á eftir.
Lech Walesa á heimili sínu.
Stormasamur ferill
rafvirkjans frá Popowo
Osló, 5. október. AP.
Lech Walesa, handhafi friðarverðlauna Nóbels 1983:
Segist ætla að gefa pólsku
kirkjunni peningaupphæðina
Osló, 5. október. AP.
LECH WALESA, leiðtogi Samstöðu — hinna bönnuðu verkalýðs-
samtaka í Póllandi, tilkynnti í kvöld, að hann myndi biðja ættingja
sinn að veita friðarverðlaunum Nóbels viðtöku fyrir sína hönd, er
honum var tilkynnt að hann væri handhafi þeirra í ár. Jafnframt
tilkynnti hann, að hann myndi gefa peningaupphæðina, sem er
verðlaunaveitingunni samfara, til rómversk-kaþólsku kirkjunnar í
Póllandi. llpphæðin nemur um 190.000 dollurum, eða sem svarar 5,3
milljónum ísl. króna.
LECH WALESA fæddist þann 29.
september árið 1943 í borginni Pop-
owo í Póllandi. Hann Uerði rafvirkj-
un og hóf störf sem slíkur hjá Len-
ín-skipasmíðastöðinni í Gdansk árið
1966. Hann kvæntist konu sinni
Danutu árið 1969 og eiga þau 7
börn.
Þegar hvað róstusamast var í
Póllandi árið 1970 og Gomulka
tók við af Gierek í embætti aðal-
ritara pólska kommúnistaflokks-
ins átti Walesa sæti í 27 manna
nefnd innan Lenín-skipasmíða-
stöðvarinnar, sem sá um að skipu-
leggja aðgerðir. Athafnasemi
hans í starfi verslunarafgreiðslu-
manns leiddi til þess að honum
var sagt upp störfum árið 1976.
Neyddist hann til að grípa hvert
það starf er bauðst til þess að
brauðfæða fjölmenna fjölskyldu
sfna.
Sumarið 1980 gerði óróleiki
vart við sig að nýju á meðal
verkamanna í Lenin-skipasmíða-
stöðinni í Gdsansk. Walesa var
hjálpað til að komast inn á mót-
mælafund verkamannanna og var
kjörinn leiðtogi þeirra eftir að
hann lagði til að þeir héldu til í
stöðinni. Fjöldi verkfalla fylgdi í
kjölfarið víðs vegar um landið og
voru þau flest rakin til áhrifa
Walesa. Svo fór að lokum, að yfir-
völd neyddust til að beygja sig og
semja við hann.
Afleiðing samningaviðræðn-
anna var Gdansk-samkomulagið,
sem gert var 31. ágúst 1980, þar
sem verkamönnum var veittur
verkfallsréttur og veitt leyfi til að
hefja skipulagningu sinna eigin
verkalýðsfélaga án nokkurrar
íhlutunar stjórnvalda. í kjölfar
þessa var iitið á Samstöðu sem
sjálfstæða verkalýðshreyfingu
þótt forráðamanna hennar og
stjórnvalda greindi oftlega á um
hina eiginlegu stöðu hennar. Kaþ-
ólska kirkjan studdi allan tímann
við bakið á Walesa og því til
stuðnings heimsótti hann páfa í
Róm í janúar 1981.
1 febrúar það sama ár varð Jar-
uzelski forsætisráðherra landsins
og sambandið á milli Samstöðu og
yfirvalda fór stórlega versnandi á
næstu mánuðum. Herlög voru sett
á í landinu í desember 1981 og
forystumenn Samstöðu, þar á
meðal Walesa, voru handteknir.
Walesa var í haldi í næstum heilt
ár. Honum var sleppt í nóvember
í fyrra og hóf síðan fyrra starf
sitt við Lenín-skipasmíðastöðina
að nýju.
Talsmaður pólsku stjórnar-
innar sagði á hinn bóginn í
morgun að það, að leiðtogi hinna
bönnuðu verkalýðssamtaka,
Samstöðu, hefði hlotið verðlaun-
in varpaði rýrð á ágæti verð-
launanna. Hann tók fram, að
þetta væri hans einkaskoðun,
ekki stjórnvalda. Dró hann jafn-
framt í efa að stjórnin myndi
nokkuð láta frá sér fara í tilefni
verðlaunaveitingarinnar.
Alexander Malachowski, einn
107 manna samstarfsnefndar
Samstöðu, sagði, að verðlauna-
veitingin staðfesti að Walesa
væri mikill andlegur leiðtogi í
Póllandi. „Við í Samstöðu erum
himinlifandi. Það er málstaður-
inn, sem öllu máli skiptir."
Walesa var í morgun út-
nefndur friðarverðlaunahafi
Nóbels fyrir árið 1983 fyrir
störf sín í þágu hinna frjálsu
verkalýðssamtaka í landinu.
Hann er fyrsti Pólverjinn,
sem hlotnast þessi heiður, og
aðeins annar aðilinn frá aust-
antjaldslöndunum til að fá
verðlaunin. Sovéski andófs-
maðurinn Andrei Sakharov
hlaut friðarverðlaunin 1975.
Að sögn Nóbelsverðlauna-
nefndarinnar var Walesa val-
inn vegna framlags síns til
„Ég er afskaplega ánægður því
með þessari verðlaunaveitingu
hefur Lech Walesa verið heiðr-
aður fyrir hönd alls hins þjáða
pólska almúga," sagði Henryk
Jankowski, skriftafaðir Walesa
og náinn vinur hans. „Walesa
hefur verið ataður auri í miklum
mæli að undanförnu. Þær að-
ferðir eru þeim, sem beita þeim,
til hneisu," bætti Jankowski við.
„Gott, gott,“ sagði Jozef
Glemp, yfirmaður kaþólsku
kirkjunnar i Póllandi, er hann
frétti að Lech Walesa hefði hlot-
ið friðarverðlaun Nóbels fyrir
árið 1983. Jóhannes Páll páfi II
lét ekkert eftir sér hafa í sam-
bandi við verðlaunaveitinguna.
Yfirmaður kaþólsku kirkjunnar
þess að tryggja pólskum
verkamönnum aðild að frjáls-
um verkalýðsfélögum í land-
inu. Hefði hann ekki hvikað
frá stefnu sinni þótt öryggi
hans og fjölskyldu hans hafi
verið í hættu.
Þá sagði nefndin ennfrem-
ur, að Walesa „hefði unnið
einarðlega að því að leysa
vandamál þjóðar sinnar með
samningaumleitunum og án
þess nokkru sinni að grípa til
ofbeldis".
Walesa komst fyrst í heims-
fréttirnar að nokkru ráði
í Bandaríkjunum, John R. Roach
erkibiskup, sagði verðlaui.aveit-
inguna vera „stórkostlegan heið-
ur fyrir stórkostlegan leiðtoga
frelsis og mannréttinda".
Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti lýsti yfir ánægju sinni
með verðlaunaveitinguna er
hann frétti af henni, að því er
talsmaður Hvíta hússins, Larry
Speakes, sagði. Hafði hann eftir
forsetanum, að hann væri
ánægður með þá viðurkenningu,
sem Lech Walesa og allir þeir,
sem barist hafa lengi og dyggi-
lega fyrir friðsamlegri breyt-
ingu, hefðu fengið með útnefn-
ingunni.
Allir þeir óbreyttu borgarar,
sem AP-fréttastofan ræddi við á
götum úti í Varsjá, lýstu yfir
ánægju sinni með verðlaunaveit-
inguna. Ummæli eins og „Ég er
himinlifandi", „Réttlætinu hefur
verið fullnægt" og „Þetta er eins
sumarið 1980 við stofnun
Samstöðu í kjölfar átakamik-
ils sumars. Samstaða var
fyrsta verkalýðsfélagið án að-
ildar stjórnvalda í austan-
tjaldslöndunum. Stjórnvöld í
Póllandi bönnuðu starfsemi
Samstöðu.
Friðarverðlaun Nóbels hafa
verið afhent 64 sinnum frá því
árið 1901 er þau voru fyrst
veitt. Árið 1978 komu þau í
hlut Anwar Sadat, Egypta-
landsforseta, og Menachem
Begins, þáverandi forsætis-
ráðherra ísraels, 1979 fékk
móðir Theresa verðlaunin,
1980 Adolfo Perez Esquivel
frá Argentínu, 1981 flótta-
mannastofnun Sameinuðu
þjóðanna og í fyrra fengu þau
Alva Myrdal frá Svíþjóð og
Alfonso Garcia Robles frá
Mexíkó verðlaunin.
og köld vatnsgusa framan í
stefnu stjórnvalda" gefa til
kynna hver viðbrögð fólks voru.
Leiðtogar ítalskrar verka-
lýðshreyfingar lýstu velþóknun
sinni á útnefningunni og sögðu
hana viðurkenningu á baráttu
Lech Walesa. Sögðu þeir Walesa
hafa fórnað persónulegu öryggi
sínu og fjölskyidu sinnar í þágu
baráttu sinnar. „Þetta eru verð-
laun fyrir hugrekki sanns verka-
lýðsleiðtoga," sagði Pierre Carn-
iti, einn verkalýðsleiðtoganna úr
röðum kristilegra demókrata.
Alþjóðasamband verkamanna,
sem verið hefur harðort í garð
pólskra yfirvalda, fagnaði út-
nefningunni og sagði að hún
myndi verða pólskum verka-
mönnum hvatning. „Það gleður
mig, að verðlaunanefndin skuli
hafa veitt verkamanni þessa við-
urkenningu," sagði forseti sam-
bandsins.
„Walesa heiðraöur fyrir hönd
hins þjáða pólska almúga"
— segir skriftafaðir hans og vinur, Henryk Jankowski
Wa.shington, Varsjá, Vatikaninu, Genf, 5. október. AP.
LECH WALESA, sem vard fertugur sl. fimmtudag, var úti í skógi að tína
sveppi, er fréttin um að hann hefði hlotið friðarverðlaun Nóbels barst í
morgun. Hann hefur að undanfornu verið i leyfi frá vinnu vegna raaga-
sárs. Kona hans, Danuta, sagðist hins vegar vera „afar glöð“.