Morgunblaðið - 06.10.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
7
Til sölu
Billjardstofa á Reykjavíkursvæðinu. Uppl. í síma
42928 kl. 19 og 20 í dag og á morgun.
Kópavoesbúar
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem:
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
blástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opið fra kl. 9—18 á virkum dögum
og kl. 9—12 á laugardögum.
Pantanir teknar í síma 40369.
Verið velkomin.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
/í
„Old boys“
leikfimi
Ætlað körlum á öllum
„ aldri sem vilja auka þol,
styrk og mýkt.
Upplagt fyrir þá sem eru aö hefja
líkamsrækt. Hressandi, uppbyggj-
andi og megrandi. Kennari Ársæll
Hafsteinsson, íþróttakennari. Tím-
ar mánud. og miövikud. kl. 19.00.
Frjáls afnot af stööinni alla aöra
daga.
ÆriNöASTODIN
ENGIHJALLA 8 * ^46900
Toyota Crown diesel 1982
Rauöur sjálfskiptur m./öllu. Úr-
valsbíll. Verö kr. 450 þús.
Peugeot 505 GR 1982
Hvítur, ekinn 26 þ. km. Fallegur
bíll. Verö kr. 360 þús.
Lada Sport 1981
Gulbrúnn, ekinn 61 þ. km. Gott
útlit. Verö kr. 155 þús.
Citroén GSA Palias 1982
Ljósbrúnn, ekinn aöelns 12 þús
Sem nýr. Verð 265 þús.
Galant 1600 Station 1982
Brúnsans, ekinn 30 þús., 2
dekkjagangar. Verö 280 þús.
(Skipti ath.).
BMW 320 1981
Rauösanseraöur 6 cyl. ekinn aö-
eins 16. þ. km. Sportfelgur, sílsa-
listar, bryngljái á lakki o.fl. Verö
kr. 395 þús. (Skipti ath. á ódýr-
ari).
Colt GL 1982
Grásanz, ekinn 30 þ. km. Útvarp,
segulband, snjódekk og sumar-
dekk. Verö kr. 210 þús. (Skipti á
ódýrari).
Range Rover1974
Drapplitur, ekinn 110 þ. km. Vél,
kassi o.fl. nýyfirfariö. Aflstýri.
Góö innrétting. Verð 240 þús.
Skípti ath.
Honda Accord EX Sport ’80
Silfurgrár. Ath. vökvastýri. Ekinn
41 þ. km. Verö kr. 220 þús.
(Skipti á ódýrari).____________
Ekkert útboð fórfram á Blazer Steingríms 1979_
Neitað að upplýsa|
kaupverð og kjör
Jeppar í stjórnarráðinu
Umræðum um jeppakaup Steingríms Hermannssonar,
forsætisráðherra, er ekki lokiö á síöum dagblaðanna. I
Staksteinum í dag er vakið máls á skrifum Þjóðviljans í
gær um jeppakaup Steingríms 1979. Sú spurning vaknar
þegar litið er á þróun þessara jeppamála í stjórnarráðinu,
hvort það sé ekki best fyrir Steingrím að selja ríkissjóði
nýja, sparneytna jeppann.
Ráðherra-
jeppar
iN'gar ráðherrar lenda í
einhvers konar vandræó-
um og þá sérstaklega
vegna máls eins og bif-
reiðakaupa er skynsamleg-
asta leiðin til að koma í veg
fyrir ad þau breytist í póli-
tísk stórmál aö gera hreint
fyrír sínum dyrum. I’etta
hefur Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráó-
herra, leitast vió aó gera
vegna umtalsins sem það
hefur valdið aó hann keypti
sér nýjan Blazer á vildar-
kjörum, sem ráöherrar
njóta meó samþykki aF
þingis. Hvort sem menn
eru sammála því sem
Steingrímur sagði til dsm-
is í sjónvarpsviðtalinu um
bflamálið á mánudags-
kvöldió eóa ekki ber aó
gefa ráóherranum stjörnu
fyrír að gera glögga grein
fyrír viðhorfum sínum. En í
stuttu máli virðast þau vera
þessi: Ég hef í sjálfu sér
ekkert á móti því aó regl-
unum um ráðherrakjörin
sé breytt en á meóan þær
eru í gildi ætla ég að nota
fríóindin til hins ýtrasta.
Nú eru hins vegar byrj-
aöar umræður um það á
hvaóa kjörum og fyrir
hvaóa verö Steingrímur
keypti gamla Blazerinn,
þennan sem eyddi svo
miklu eldsneyti. Eiganda-
saga hans er á þann veg að
fyrst keypti ríkið þennan
gamla Blazer til afnota
fyrír Steingrím sem land-
búnaöar- og samgönguráó-
herra í ríkisstjórn Olafs Jó-
hannessonar á árunum
1978—79. hegar þessi
stjórn liöaðist í sundur
haustið 1979 seldi ríkið
Steingrími hins vegar bíl-
inn, þótt hann væri jafn
dýr í rekstri og raun ber
vitni, og nú spyr bjóðvilj-
inn af mikilli ákefð: A
hvaða verði keypti Stein-
grímur þennan Blazer-
jeppa haustið 1979 og með
hvaða greiðsluskilmálum?
Við þessari spurningu hef-
ur hjóðviljinn ekki fengiö
neitt svar.
Óþörf tregða
Bifreiðamál ráðherra
heyra undir forsætisráöu-
neytið en Innkaupastofnun
ríkisins seldi Steingrími
Hermannssyni jeppann
1979. hjóðviljanum hefur
teklst að upplýsa að Inn-
kaupastofnunin leitaði
ekki tilboða í ráöherrajepp-
ann áður en hann var seld-
ur. Þá segir Þjóðviljinn að
ríkisbókhald sé reiðubúið
að láta blaðinu í té upplýs-
ingar um söluverð bilsins
(þ.e. kaupverð Steingríms)
og greiðsluskilmála svo
framarlega sem ráðuneyti
gefi fyrirmæli um að það
skuli gert Og þar stendur
hnífurinn í kúnni.
Gísli Vrnason, skrif-
stofustjóri í forsætisráðu-
neytinu, segir í Þjóðviljan-
um í gæn „Það eru alveg
hreinar línur að heimild til
þess að blaðið fái þessar
upplýsingar þarf að fara í
gegnum fjármálaráðuneyt-
ið, enda sitja þar æðstu yf-
irmenn Innkaupastofnunar
ríksins, sem gengu frá
þessum kaupum (þ.e. söl-
unni á ráðherrabflnum til
Steingríms, innsk. Stak-
steina) á sínum tíma, gáfu
út afsal og sáu um þessi
kaup. Ég get ekki gefið
neinum heimild til þess að
láta blaðið fá þessar upp-
lýsingar."
Höskuldur Jónsson,
ráðuneytisstjóri í fjármála-
I ráðuncytinu, segir í Þjóð-
viljanum í gær „Öll við-
skipti á bflum til handa
ráðherra eru á herðum for-
sætisráðuneytisins. Það er
alveg klárt mál og ég mun
því ekki ýta á eftir því að
ríkisbókhald láti þessar
upplýsingar í té. Slíkt er í
verkahring forsætisráðu-
neytisins."
Undir þessa skoðun
Höskulds Jónssonar er
ástæða til að taka, því að
hvað sem líður afskiptum
Innkaupastofnunar ríkisins
af sölu Blazer-jeppans 1979
er Ijóst að ekki hefur verið
unnt að standa að þeirri
framkvæmd nema með
samþykki forsætisráðu-
neytisins, sem sér um eign-
arhald og rekstur ráðherra-
bifreiða. Það hlýtur að vera
forsætisráðuneytið sem
þarf að gefa ríkisbókhaldi
þá heimild sem því er
nauðsynleg til að svara
fyrirspurn Þjóöviljans
hvort heldur hún fari „í
gegnum fjármálaráðu-
neytið" eða ekki. Pólitísk
ákvörðun í þessu máli er
því í höndum Steingríms
Hermannssonar, forsætis-
ráðherra, og miöað við þá
áherslu sem hann leggur á
að ræða mál af hreinskilni
í fjölmiðlum verður því
ekki trúað að óreyndu að
„boltakastið" milli emb-
ættlsmanna í forsætisráðu-
neytinu og fjármálaráðu-
neytinu sé með hans sam-
þyltkL
Ríkis-
/
leyndarmál
Opinberir starfsmenn
eiga að gegna þagmælsku í
starfi og láta hjá líða að
skýra frá því á opinberum
vettvangi sem þeir kynnast
í störfum sínum, ekki síst
þegar það snertir einka-
hagi manna. í þessum um-
ræðum um ráðherrabflana
er oft erfitt að draga mörk-
in á milli einkahagsmuna
og opinberra hagsmuna.
Þjóðviljinn fór til dæmis
langt yflr mörkin að þessu
leyti þegar hann birti mynd
af húsi Steingríms Her-
mannssonar til að árétta
skríf sín um Blazerinn.
Stangaðist sú myndbirting
illa á við viðkvæmni blaðs-
ins þegar Guðmundur Sæ-
mundsson gaf út bókina á
siðasta hausti um valda-
mennina í verkalýöshreyf-
ingunni og birti myndir af
húsum þeirra og heimilum.
En þegar samskipti ráð-
herra og ríkissjóðs eru
komin á það stig sem hér
hefur verið lýst út af þess-
um bflamálum er út í hött
að breyta þeim í ríkis-
leyndarmál.
HLJÓMPLÖTUR - KASSETTUR
Stórkostleg rýmingarsala
Nú setjum vid á útsölu hverja einustu stóra plötu og kassettu sem viö
höfum gefiö út allt fram á þetta ár — og enn er fáanlegt. Þessar plötur
og kassettur veröur alls ekki framar aö finna í verslunum. Aöeins
fáein eintök eru til af sumum plötum og þær veröa ekki endurútgefn-
ar.
EITT VERD Á ÖLLU:
PLATA EÐA KASSETTA A AÐEINS KR. 70.-
rÖHL'S"1
GAMANEFNI
frJÓDLÖG
POPMÚSIK
E\NSÖNGVJR
bimnakvedskapuh
trrSÖ*G U„
OPIÐ í DAG KL. 9—18
SG-HLJÓMPLÖTUR, ÁRMÚLA 38