Morgunblaðið - 06.10.1983, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983
(IIIONIiK
DATSUN
Vetrarskoðun fyrir
Chrysler, Simca Talbot
og Datsun Nissan bifreióir
1. Vélarþvottur.
2. Rafgeymasambönd hreinsuö.
3. Viftureim athuguö.
4. Rafgeymir og hleösla mæld.
5. Skipt um platínur.
6. Skipt um kerti.
7. Loftsía athuguö.
8. Skipt um bensínsíu.
9. Vél stillt.
10. Kælikerfi þrýstiprófaö
11. Frostþol mælt.
12. Öll Ijós yfirfarin og
aöalljós stillt.
13. Hemlar reyndir.
14. Frostvari settur á
rúöusprautu.
TALBOT
NIS5AN
Innifalið: Kerti, platínur, bensínsía og frostvari.
Pantið tíma í síma 84363.
Verð m/ söluskatti
4 cl. 1340,-
6 cl. 1634,-
8 cl. 1935,-
Eldur í Varnarliðsvél:
Bifreiðaverkstæði Þórðar Sigurðssonar
Ármúla 36.
Héraðssýningar hrúta á Suðurlandi
Syðra-I^ngholti, 26. september.
EINS og mörgum mun kunnugt,
fara fram búfjársýningar á landinu
með vis.su millibili eftir ákveðnum
reglum í búfjárræktarlögunum,
þ.e. á fjögurra ára fresti. Þar á
meðal eru hrútasýningarnar sem
eru nokkur viðburður fyrir áhuga-
sama sauðfjárræktarmenn. í sum-
um sveitum eru reyndar haldnar
hrútasýningar á hverju hausti, þ.e.
aukasýningar þar sem ungir hrútar
eru sýndir.
Nú á þessu hausti eru haldnar
hrútasýningar í Sunnlendinga-
fjórðungi. Eftir að sýningarnar
hafa verið haldnar í hverri sveit
er efnt til Héraðssýninga í
hverri sýslu þar sem fallegustu
hrútarnir eru sýndir. Nú stendur
Högni á Grafarbakka er saman-
rekinn holdakökkur. Hann hlaut
silfurskjöldinn sem keppt hefur
verið um á fjögurra ára fresti frá
árinu 1934.
fyrir dyrum að halda héraðssýn-
ingar á Suðurlandi, að Eystra-
Geldingaholti í Gnúpverjahreppi
sunnudaginn 9. október fyrir
Árnessýslu og að Húnkubökkum
í V-Skaftafellssýslu 16. október.
Hefjast báðar kl. 14.
Hér í Hrunamannahreppnum
var haldin hrútasýning sl.
sunnudag og komu á annað
hundrað hrútar til keppni í
þessa „fegurðarsamkeppni"
hrútanna. Níu voru valdir til að
mæta til leiks að Geldingaholti
þann 9. októbrr. Það er metnað-
armál margra bænda að eiga
fagurt og arðsamt búfé ekki síst
góða og fallega hrúta.
Sig. Sigm.
Maður í haldi vegna
gruns um íkveikju
KLDUR kom upp í gamalli farþega-
og vöruflutningaflugvél Varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli á laugar-
dagmorgun klukkan 05.30, að sögn
Tíminn leitar
til flokksmanna
um fjárframlög
BI.ADSTJÓRN dagblaðsins Tím-
ans mun á næstunni leita til félaga í
Framsóknarflokknum um fjárframlög
til að styrkja fjárhag og rekstur blaðs-
ins, sem á við nokkra fjárhagsörðug-
leika að etja, að því er Tíminn hefur í
gær eftir llákoni Sigurgrímssyni, for-
manni blaðstjórnarinnar.
Hákon ber þar til baka fréttir ís-
lendings á Akureyri, sem Mbl. sagði
frá sl. sunnudag, um að Samband
íslenskra samvinnufélaga myndi á
næstunni kaupa Tímann. „Þessi
frétt er algjörlega úr lausu lofti
gripin,“ hefur Tíminn eftir Hákoni
Sigurgrímssyni. „Það hefur aldrei
komið til greina að Sambandið yfir-
tæki rekstur Tímans."
blaðafulltrúa Varnarliðsins, sem
sagði að greiðlega hefði gengið að
slökkva eldinn.
„Slökkviliðið var komið á
vettvang innan fárra mínútna og
slökkvistarfi var lokið eftir um
það bil hálfa klukkustund, enda
eru miklir sérfræðingar á ferð-
inni,“ sagði blaðafulltrúinn.
Það kom fram hjá blaðafull-
trúanum, að fljótlega hefði vakn-
að sá grunur að um íkveikju
hefði verið að ræða og var einn
varnarliðsmaður hnepptur í
varðhald vegna málsins, sem er í
rannsókn.
Vélin sem er af gerðinni C-118
er um 30 ára gömul og var stað-
sett inni í flugskýli á vellinum,
þegar eldsins varð vart. Vélin er
mikið skemmd, en ekki urðu
skemmdir á öðrum vélum, eða
flugskýlinu.
Loks má geta þess, að slökkvi-
liðsstjóri bandaríska hersins í
Norfolk í Virginíu í Bandaríkjun-
um var fenginn hingað til lands
til að aðstoða við rannsókn máls-
ins.
Þrír fallegustu hrútarnir í Hrunamannahreppnum, f.v. Kormákur Ingvarsson á Sólheimum með Stubb, besta
veturgamla hrútinn, Eiríkur Kristófersson á Grafarbakka með Högna, fallegasta hrútinn fæddan í sveitinni og
Elín Kristmundsdóttir Haukholtum með Odd sem stóð efstur af eldri hrútunum.
Mun lægri hitunarkostnaður
— segir Kristinn Baldursson um
„kúluhúsið“ á Arnarnesi
„HÚSID er um 350 fermetrar að
stærð, það er tveggja hæða og inni í
þessum fermetrafjölda er tvöfaldur
bílskúr," sagði Kristinn Baldursson,
tæknifræðingur, í samtali við blaða-
menn Morgunblaðsins í gær, er
spurst var fyrir um „kúluhús" sem
Kristinn og félagi hans á Teiknistof-
unni Vídd sf. eru að byggja á Arn-
arnesi.
Kristinn sagði húsið vera
steinsteypt, og að nokkru byggt á
fyrirmyndum sem til væru í
Bandaríkjunum. Húsið er til sölu
á almennum markaði og sagði
Kristinn verð þess vera sambæri-
legt við álíka stór steinhús. Ekki
væri hins vegar vafi á að byggja
mætti hús sem þetta ódýrara, en
eðlilega væri fyrsta húsið dýrara
bæði í byggingu og hönnun. í
Bandaríkjunum kæmi svo annað
til í sambandi við lík hús; hitun-
arkostnaður væri mun minni en
venjulegra húsa, og víða þætti það
mjög mikilvægt atriði.
Kristinn sagði að lokum, að
óvíst væri um framhaldið, hvort
þeir myndu byggja fleiri kúluhús,
það færi eftir því hvernig þessu
yrði tekið, en lögun þess hefði
bæði kosti og galla fyrir væntan-
lega íbúa þess.
Kúluhúsið, sem Vídd sf. er að byggja
á Arnarnesi í Garðabæ.
Skipadeild SIS:
Frysti- og gáma-
skip til Bandaríkja-
siglinga í smfðum
SKIPADEILD Sambands íslenskra
samvinnufélaga hefur gengið frá
smíðasamningi við breska fyrirtækið
Appledore Shipbuilders Ltd. um
smíði á sérhönnuðu frysti- og gáma-
skipi. Skipið er smíðað vegna endur-
skipulagningar á flutningaþjónustu
fyrirtækisins á milli fslands og
Bandaríkjanna.
í fréttatilkynningu frá Skipa-
deildinni segir að skip þetta muni
auka hagsmuni í flutningum á
frystum fiski til Bandaríkjanna,
jafnframt því sem flutningsgeta
fyrirtækisins á gámum muni stór-
aukast. Skipið mun flytja frystan
fisk til Bandaríkjanna og vera í
gámaflutningum í bakaleiðinni og
mun með þessu móti sparast
rekstrarkostnaður. í þessu sam-
bandi verður viðkomuhöfnum í
Bandaríkjunum fjölgað og boðið
uppá reglubundnar siglingar með
gáma til og frá New York og Nor-
folk/ Portsmouth auk þess sem nú
er siglt til Gloucester í Massa-
chusetts og Halifax í Kanada.
Nýja skipið verður um 3000 lest-
ir að burðargetu. Það er teiknað af
Óttari Karlssyni skipaverkfræð-
ingi eftir hugmyndum Axels
Gíslasonar framkvæmdastjóra
Skipadeildarinnar en skipasmíða-
stöðin breska fullteiknar það.
Heildarrúmmál frystiklefa verður
165000 teningsfet og getur það
flutt 164 tuttugu feta gámaein-
ingar. Verð skipsins er um 235
milljónir króna með lántökugjöld-
um og vöxtum á byggingartíma og
gert er ráð fyrir afhendingu í
október 1984, segir að lokum i
fréttatilkynningu Skipadeildar
SÍS.
Teikning af gáma- og frystiskipi því sem SÍS er aö láta smíóa í Bretlandi.