Morgunblaðið - 06.10.1983, Side 27

Morgunblaðið - 06.10.1983, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1983 27 Grindavík: Fjölbreytt dagskrá í tilefni umferðarviku (>rindavík, 5. október. MÁNUDAGINN 3. október hófst umferðarvika hér í Grindavík. Endurskinsmerkj- um var dreift til bæjarbúa, og fræðsla var á vegum björgun- arsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík um meðferð mót- orhjóla og léttra bifhjóla. Á þriðjudag fór fram umferðar- fræðsla í grunnskólanum á vegum foreldra- og kennarafélagsins í Filipps- eyjadagar í Hótel Loftleiðum FÖSTUDAGINN 7. október hefj- ast Filippseyjadagar að Hótel Loftleiðum og lýkur þeim að kvöldi mánudagsins 10. október. Dansflokkur fri Filippseyjum mun sýna þarlenda dansa og einnig fer fram sýning á þjóðbún- ingum eyjaskeggja. Matsveinn frá Filippseyjum sér um að til- reiða ýmsa gómsæta þjóðarrétti úr fiski og kjöti. Meðan á Filippseyjadögun- um stendur verður sýning á munum frá eyjunum og ferða- skrifstofan Farandi annast ferðakynningu. Sömuleiðis mun sölustjóri Philippine Air- lines í London, Norman Blaun, verða á staðnum og veita upp- lýsingar um ferðir til Filipps- eyja. Þetta er í fyrsta sinn, sem fram fer kynning á Filippseyj- um í Hótel Loftleiðum, en mjög mikil aðsókn var að japönskum dögum hótelsins fyrir skömmu. Félagsvist og dans SKEMMTIFÉLAG Góðtemplara ætlar eins og undanfarin ár að fara af stað með skemmtikvöld, félagsvist og dans. Fyrsta kvöldið á þessu hausti er föstudaginn 7. október og verður spiluð félagsvist frá klukkan 21.00 til 22.45, en þá hefst dansinn. SGT býður öllum — segir í fréttatilkynningu frá félag- inu — sem vilja skemmta sér án áfengis að koma. o INNLENT Grindavík og lögreglunnar. Þar var dreift endurskinsmerkjum. í dag var lögreglan með verklega kennslu og fylgdi 6 ára börnum um götur bæjarins og var lög- reglustöðin heimsótt. Á morgun, fimmtudag, verður opið hús hjá Styrktarfélagi aldr- aðra á milli 15 og 18. Þar mun umferðarnefnd Grindavíkur og lögreglan rabba við fólkið. Klukk- an 20.30 verður almennur borg- arafundur í grunnskólanum. Á föstudag verður leikskóli Grinda- víkur heimsóttur af lögreglunni og börnin frædd um umferðarmál. Foreldrar eru hvattir til að koma og aðstoða lögregluna við umferð- arfræðsluna sem hefst kl. 13. Eftir skólatíma verða hjóla- brautir settar upp fyrir börnin til afnota á skólaplaninu. Á laugar- dag verður börnum leiðbeint um meðferð hjóla. Umferðarnefnd Grindavíkur, lögreglan í Grindavík, JC Grinda- vík, björgunarsveitin, Lions- -klúbburinn, foreldra- og kennara- félag grunnskólans, Styrktarfélag aldraðra og kvenfélagið standa að umferðarviku í Grindavík. Fréttaritari. Guðrún og Bolli, Ragnheiður Arnardóttir og Harald G. Haraldsson, í hlutverkum sfnum. Guðrún sýnd á ný hjá Leikfélaginu Á fóstudagskvöldið hefjast að nýju sýningar hjá Leikfélagi Keykjavíkur á leikritinu Guðrún eftir Þórunni Sigurð- ardóttur, en verkið er byggt á Laxdæla- sögu og er fyrsta tilraun í meira en hálfa öld til að lífga fornsögur okkar á leiksviði. Það var frumsýnt í fyrravetur við ágætar undirtektir en í verkinu er einkum fjallað um Guðrúnu Ósvífurs- dóttur og samband hennar við þá fóst- bræður Kjartan og Bolla. Með hlut- verk þeirra fara Ragnheiður Elfa Arn- ardóttir, Jóhann Sigurðarson og Har- ald G. Haraldsson. Leikritið gerist á íslandi og í Nor- egi um og upp úr árinu 1000. Aðrir leikendur eru Soffía Jakobsdóttir, Valgerður Dan, Jón Hjartarson, Jón Júlíusson, Aðalsteinn Bergdal og Hanna María Karlsdóttir. Tónlist, sem eru töluverð í sýningunni, er eftir Jón Ásgeirsson, leikmynd og búninga gerði Messíana Tómasdóttir og leikstjóri er Þórunn Sigurðar- dóttir. Ákveðið hefur verið í samráði við Fræðslustjóra að gefa nemendum framhaldsskólanna kost á sýningum á verkinu og er skólastjórum, kenn- urum, svo og öðrum hópum, sem áhuga hafa, bent á að hafa samband við skrifstofu Leikfélagsins. Perusala á Akranesi Á FOSTUDAGINN kemur munu fé- lagar í Lionsklúbbi Akraness ganga í hús á Akranesi og bjóða bæjar- búum Ijósaperur til kaups. Eru perurnar seldar til ágóða fyrir Áhaldakaupasjóð Sjúkra- húss Akraness, en um langt árabil hefur klúbburinn aflað með þess- um hætti fjár til að gefa Sjúkra- húsinu fjölmörg lækninga- og rannsóknatæki, segir í fréttatil- kynningu, sem Mbl. hefur borist. Akurnesingar hafa ætíð brugð- ist vel við perusölu Lionsmanna og þannig stutt I verki sjúkrahús sitt með myndarlegum hætti. Er ekki að efa að svo verður einnig að þessu sinni. KVÚLDSÝNING limmtudaq Opið til 10 í kvöld SÝNUM: ^fAípAÍ INÝJA BÍLA: ^984 árgerðirnar af'. Mazda' Mazda' Mazda T 3000 vörubil NOTAÐA B^uðum mazda Glæsilegt urval með 6 mánaða annats: árg. etann Gerð tg2 7.000 323 1300 3 dyta tg2 29 000 929 Station si.sk- ,82 u.000 626 1600 4 dyra ,81 40 000 626 1600 4 dyra ,8l 52 000 626 2000 2 dyra H ^ 3i .000 323 1300 Saloonsi.sK. l4.000 323l300 3dyrasi.sK. ^ 34000 626 2000 4 dyra ,80 33.0OO 929 4 dyra si.sk. &esfB£ Fólksbíll/Stationbíll Nýr framdrifinn MAZDA 626 5 dyra Hatchback margfaldur verdlaunabíll. Vél: 102 höDIN Viðbragð: 0-100 km 10 4 sek. Vindstuðull: 0.35 Farangursgeymsla: 600 litrar m/nidurfelldu aftursæti Bensineyðsla 6.3 L/100 km á 90 km hraða STILL-LONGS ULLARNÆRFÖT NÆLONSTYRKT DÖKKBLÁ FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA SOKKAR MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI REGNFATNAÐUR KULDAFATNAÐUR VINNUFATNAÐUR VINNUHANSKAR KLOSSAR GÚMMÍSTÍGVÉL ÖRYGGISSKÓR X SMÍOAJÁRNSLAMPAR BORÐLAMPAR HENGILAMPAR VEGGLAMPAR OLÍUOFNAR GASLUKTIR OLÍUHANDLUKTIR OLÍULAMPAR 10, 15, 20 LÍNA VASALJÓS LUKTIR FJÖLBREYTT ÚRVAL ARINSETT FÍSIBELGIR VIÐARKÖRFUR INDVERSKAR KÓKOSDYRA- MOTTUR 5 STÆRÐIR GÚMMÍMOTTUR MOTTUGÚMMÍ RYÐEYÐIR — RYOVÖRN • VÉLATVISTUR í 25 KG BÖLLUM HVÍTUR OG MISL. GRISJUR f RÚLLUM VÍR- OG BOLT AKLIPPUR Sími 28855 Opiö laugardaga 9—12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.