Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983
rauNDi
í a.s(t igna.sala, llverfisgölu 49.
VERÐMETUM SAMDÆGURS
Höfum fengið í sölu
ódýra 2ja herb. íbúð í
Hafnarfirði
Opiö frá
kl. 13—15
v/«
r
1 SOLUSKRÁIN A SUNNUDOGUM
]1 SLÁID I Á ÞRÁÐINN: T 1 Sim': / 29766 L II / Á
-■ =
Hafnarfjörður
Ný komið til sölu
Vesturbraut
2ja herb. íbúð ca. 50 fm á
jaröfiæö. Mikið endurnýjuð.
Verð 900 þús.
Hraunstígur
3ja herb. falleg íbúð á miöhæð I
steinhúsi.
Hverfisgata
4ra herb. íbúö á efri hæð í
steinhúsi. Sér inng.
Sléttahraun
3ja herb. íbúö á 2. hæö i fjölbýl-
ishúsi. Góðar innréttingar. Sér
þvottahús. Gott útsýni. Bíl-
skúrsréttur. Ákv. sala. Laus
strax.
Breiðvangur
Nýleg efri hæð með 4 svefn-
herb. í tvíbýlishúsi 155 fm. Allt
sér. Bílskúr 80 fm kjallari.
Tjarnarbraut
3ja—4ra herb. íbúð á neðri
hæð í tvíbýlishúsi. Allt sér.
Brattakinn
2ja herb. falleg íbúö óstands.
Sér inng.
Fagrakinn
2ja herb. íbúð um 60 fm í kjall-
ara ósamþ.
Hamarsbraut
5 herb. járnvariö timburhús á
mjög góðum útsýnisstaö.
Markarflöt Garðabæ
4ra—5 herb. neöri hæð í tvíbýl-
ishúsi. Ákv. sala. Allt sér.
Setbergsland
Parhús á einni hæð um 150 fm
með bílskúr. Selst fokheld, full-
frángengin að utan með slétt-
aðri lóð. Uppl. og teikn. á
skrifstofunni.
Opiö í dag kl. 1—4
FASTEIGNASALA
Árna Gunnlaugssonar
Austurgötu 10 — S: 50764
VALGEIR KRISTINSSON, HDL.
Frá fundi eldri borgara á Egilsstöéum. Morgunblaöia/ ólafur
Einar Pétursson mælir fyrir stofnun félags
eldri borgara.
Egilsstaðir:
Tómstundaráð hefur vetrarstarfið
— stofnun félags aldraðra í deiglunni
KgiLsNtöðum, 31. október.
TÓMímJNDARÁÐ Egilsstaðahrepps hefur nú hafið vetrarstarfið af full-
um krafti. Síðastliðinn laugardag var boðað til fundar með eldri borgur-
um og í gær var efnt til skemmtunar fyrir börn og ungmenni í Valaskjálf
í samvinnu og samráði við framkvæmdastjóra héraðsheimilisins.
Síðastliðinn laugardag efndi
tómstundaráð Egilsstaðahrepps
til fundar með eldri borgurum í
sveitarfélaginu — sem munu
vera tæp 10% af heildaríbúatölu
heppsins. Til undirbúnings fundi
þessum hafði tómstundaráðið
fengið nokkra valinkunna borg-
ara af eldri kynslóðinni til liðs
við sig og viðruðu þeir hugmynd-
ir sínar á fundinum um stofnun
félags aldraðra — sem fyrst og
fremst verði tómstundaráði til
aðstoðar í málefnum aldraðra.
Framsögumennirnir, Einar
Pétursson, Björn Sveinsson,
Lára Kjerúlf og Björgvin
Hrólfsson, lögðu eindregið til að
stofna formlega félag aldraðra
og lögðu fram drög að lögum
fyrir slíkt félag.
Fundarmenn virtust flestir á
einu máli um stofnun félagsins
og var kosin sérstök undirbún-
ingsnefnd til framgangs málinu.
Margar hugmyndir komu fram á
fundinum um væntanleg verk-
efni, s.s. þorrablót, ferðalög, opin
hús og fræðslu um félagsleg
réttindamál aldraðra.
Almennur áhugi var ríkjandi
á fundinum og urðu hnallþóru-
tertur og iliaandi kaffi tóm-
stundaráðs ekki til að draga úr
ánægju fundargesta.
í gær efndi tómstundaráð svo
til diskóteks í Valaskjálf fyrir
börn og ungmenni í samvinnu
við framkvæmdastjóra hússins.
Sér tii fulltingis höfðu aðstand-
endur fengið hóp 11 og 12 ára
ungmenna — sem áttu veg og
vanda að framkvæmd diskóteks-
ins í gær.
Að sögn framkvæmdastjóra
Valaskjálfar, Finns Bjarnason-
ar, er ætiunin að hafa hér fram-
hald á og efna til slíkrar sam-
komu mánaðarlega í vetur — og
hafa þá jafnframt opið hús fyrir
eldri borgara.
Tómstundaráð Egilsstaða-
hrepps hefur nú fengið aðstöðu
fyrir starfsemi sína í Safnahús-
inu við Laufskóga.
Formaður tómstundaráðs Eg-
ilsstaðahrepps er Guðlaug
Ólafsdóttir en Inga Þóra Vil-
hjálmsdóttir er tómstunda-
fulltrúi.
— Ólafur
Viðtalstími
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12.
Er þar tekið viö hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum
og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér viötals-
tíma þessa.
Laugardaginn 19. nóv-
ember veröa til viðtals,
Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson og Einar
Hákonarson.
Einar
Vilhjálmur
Nýtt nafn á Líf:
Hátt á annað þúsund
tillögur hafa borizt
— segir Magnús Hreggviðsson, stjórnarformaður Frjáls framtaks
„VIÐBRÖGÐ fólks hafa verið ótrú-
lega mikil og jákvæð í okkar garð,
sem sézt bezt á því, að hátt á annað
þúsund tillögur að nýju nafni i blaðið
hafa borist til okkar þessa þrjá daga,“
sagði Magnús Hreggviðsson, stjórn-
arformaður Frjils framtaks, í samtali
við blm. Mbl. en eins og kunnugt er
af fréttum felldi Hæstiréttur þann
dóm fyrir helgi, að fyrirtækinu væri
óbeimiit að nota nafnið Líf i blað sitt.
þar sem nafnið væri of líkt nafni
bandaríska blaðsins Life.
„Síminn hefur ekki stoppað hjá
okkur síðan á mánudag og það hafa
sex starfsmenn verið eingöngu í því
að svara í símann og ræða við fólk,
sem hefur undantekningarlaust
lýst furðu sinni á dómi Hæstaréttar
og komið með tillögur að nýju nafni
á blaðið," sagði Magnús Hregg-
viðsson ennfremur.
„Við munum vinna úr ábending-
um fólks á næstu dögum og getum
væntanlega tilkynnt nýtt nafn á
blaðið innan tíðar. Annars vil ég
koma á framfæri sérstöku þakklæti
okkar til þess mikla fjölda, sem hef-
ur haft samband við okkur. Þessar
hringingar sýna hug fólks mjög vel
til þessa máls,“ sagði Magnús
Hreggviðsson, stjórnarformaður
Frjáls framtaks að endingu.