Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 21 Á síðasta áratug hefur orðið bylting í útgáfu ljóðabóka. Það hefur aukizt mjög, að höfundar gæfu út eigin bækur og liggja eflaust ýmsar ástæður til þess. Kostnaður hefur lækkað, sumir höfundar vilja ráða miklu meira um útlit bóka sinna en forlög eru reiðubúin að leyfa þeim, sumir fá ekki útgefið hjá forlögum. Ég veit ekki, hvort bókaforlög hafa gerzt tregari til að gefa út ljóða- bækur samhliða því, að auðveld- ara hefur orðið fyrir höfundana sjálfa að koma verkum sínum á framfæri á eigin kostnað. Kannski hafa ljóðin versnað. Ég hef ekki hugmynd um það, hver þessara skýringa kann að reyn- ast rétt. En Jóhann árelíuz, höf- undur þessarar bókar, gaf hana út á eigin kostnað og hafði mikið fyrir því að koma henni í þann búning, sem hann taldi viðeig- andi. Það hefur raunar verið nokkurt fyrirtæki og „ekki áhættulaust auralausu skáldi", eins og höfundurinn orðar það við mig. Enda þurfti hann að hafa mikið fyrir því að koma bókunum til kaupenda, bóksala og annarra, sem áhuga höfðu á þessu fyrirtæki. Það er áhætta og erfiði að gefa út bók. Þessi bók er raunar í vandaðra broti en tíðkazt hefur með þær ljóða- bækur, sem höfundar hafa gefið út á eigin kostnað. Hún hefur því kostað sitt. Ljóðin í þessari bók eru samin á árabilinu 1971 til 1982. Mér sýnist þau vera af ekki ósvipaðri gerð og þau Ijóð, sem hafa verið ort af ungum skáldum á þessum tíma. Það er í þeim lífsþróttur, uppgjör við hass, áhrif frá dæg- urtónlist, öðrum ljóðskáldum. í fyrsta ljóðinu má til dæmis greina áhrif frá einu þeirra skálda, sem eru af þeirri kyn- slóð, sem fyrst orti órímað og óstuðlað á íslenzku. Það heitir: ég vil mála mitt líf: ég vil mála mitt líf mjúkum harmónískum litum blátt áfram beint upp og niður ég vil skreyta augu mín sýnum villtum dýrum hráu kjöti ungu grænmeti heitu brauði ég vil lifa skóginn vindinn vatnið andrúmió allt með höfuð mitt þungt milli handa ég vil mála mitt líf. En það er ekki einungis að hér sé að finna tilvísanir, leyndar og ljósar, til annarra skálda og rit- höfunda af kynslóð atómskálda, heldur er hér að finna mun fjöl- breytilegri gróður sem sprottinn er úr jarðvegi þeirrar kynslóðar, sem nú er að fara í fullorðins- skóna, búin að slíta barnsskón- um. Henni hefur ekki allt tekizt vel og þurft að glíma við gátur, sem birtust í nýjum búningi, eins og eilífðargáturnar gera ævinlega. Það er rétt eins og al- valdurinn vilji sífellt reyna hverja nýja kynslóð og býður henni upp á sífellt nýjan vanda að leysa, sem er þó, þegar allt kemur til alls, ávallt hinn sami. Það er til að mynda ekkert nýtt, að ungt fólk þurfi að lifa mikil átök, sveiflast á milli ólíkra skoðana á réttu og röngu í öldu- róti mikilla atburða. Mér finnst sem fulllítið kenni hinna stærri atvika, sem snert hafa kynslóð höfundarins síðastliðinn áratug eða svo. Þau atvik, sem hér er ort um, eru mörg hver mjög einkaleg. Slík yrkisefni eru að sjálfsögðu jafnmerkileg og önn- ur, en þau verða svolítið einhæf, nema frá þeim sé sagt af þeim mun meiri íþótt. „Hin granna Paradís", sem hér er nefnd, og er sú Paradís, sem skilur á milli gæfu og ógæfu, er merkileg skepna og afar erfitt að höndla hana og enn erfiðara að lýsa henni. Það er einn kosturinn á bókinni, að höfundurinn gerir sér grein fyrir, að hana er ekki að finna í mörgum þeim lífsgild- um, sem kynslóð hans taldi vera mikilvægust og dýpst. Þau reyndust vera tálsýn ein. Ég veit ekki, hvort þessi bók mun teljast þung á vogarskálum skáldgyðjunnar, þegar fram líða stundir. Ég er löngu hættur að þykjast kunna skil á þeim eig- indum ljóðabóka. En hún er ein- læg og sönn á sinn hátt og mér þótti hún nokkuð skemmtileg. Guðmundur Heiðar Frímannsson er menntaskólakennari i Akureyri og skrifar reglulega um bókmennt- ir í Morgunblaðið. A:cord á Honda bílum árg. ’83 Civic 3h beinsk. Civic 3h sjálfsk. Civic 3h „sport“ Uppseldur Civic 4h Sedan beinsk. Civic 4h Sedan sjálfsk. Quintet 5h beinsk. Accord 3h beinsk. Accord 4h Sedan beinsk. Accord 4h Sedan beinsk. EXS Accord 4h Sedan sjálfsk. EXS Prelude 2h beinsk. EX Prelude 2h beinsk. EX + P.S. Var Nú aðeins Lækkun kr. 259.600 238.500 21.100 293.800 273.500 20.300 311.400 291.900 19.500 312.000 287.200 24.800 320.500 297.200 23.300 361.500 339.100 22.400 382.500 326.000 56.500 396.100 341.100 55.000 434.500 374.200 60.400 451.200 384.500 66.700 447.500 422.700 24.800 458.000 432.900 25.100 Öll verð miöuð viö bankagengi Yen: 0.11998 og tollgengi Yen: 0.11998. Góðir greiösluskilmálar Tökum notaða bíla uppí Opið 1—5 í dag. A ISLANDI Vatnagörðum 24, Símar 38772 — 39460 — 82089

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.