Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 19 50.000. farþeginn með Herjólfi frá áramótum V eHtmannaeyjum, 17. nóvember. ELÍSABET Arnoddsdóttir, hjúkr- unarfræðingur og húsmóðir í Vestmannaeyjum, hlaut höfðing- legar móttökur þegar hún steig um borð í Herjólf sjöleytið í morg- un, áður en skipið lagði upp i sína daglegu áætlunarferð til Þorláks- hafnar. Elísabet reyndist vera 50 þús- undasti farþeginn með skipinu á þessu ári og færði ólafur Run- ólfsson, forstjóri útgerðar Herj- ólfs, henni fagran blómvönd af þessu tilefni. Aldrei fyrr hafa farþegaflutn- ingar verið meiri með Herjólfi en í ár. Mesti fjöldi, sem fluttur hafði verið á einu ári til þessa, var 48.030 farþegar árið 1981. Nú er farþegatalan hins vegar komin upp í 50 þúsund og hálfur annar mánuður til ársloka. Á þessu ári eru ferðir skipsins orðn- ar 323 og hefur skipið flutt 155 farþega í hverri ferð að meðaltali. Herjólfur hóf siglingar milli Eyja og Þorlákshafnar 7. júlí 1976. Hefur skipið alls flutt 328.076 far- þega og 66.980 bifreiðir, auk mik- ils magns af alls konar varningi. Alls eru ferðir skipsins orðnar 2.517 og er ákaflega sjaldgæft að ferðir falli niður hjá skipinu, sem hefur tryggt öruggar samgöngur við Eyjar. — hkj. MorgunblaÓid/Sigurgeir. 50.000 farþeginn sem feróast með Herjólfi milli Vestmannaeyja og Þorláks- hafnar kom um borð á fimmtudagsmorgun klukkan um 7.00 Það var Elísa- bet Arnoddsdóttir og á móti henni tóku ión R. Eyjólfsson, skipstjóri, og Ólafur H. Runólfsson, framkvæmdastjóri. Færðu þeir frúnni blómvönd. Frá upphafi, í júlfbyrjun 1976, hafa samtals ferðast 328.076 farþegar með Herj- ólfí. 22 VO mi Þrjar goðar Dereraltid noget man er god til, man skal bare finde ud af, hvad det er —r •jhlOí*] ✓ whatafeelms S0KEN KKAGH JACOBSEN Laugardag frumsýning kl. 2.30 Sýning kl. 5. Sunnudag sýnd kl. 5. Mánudag sýnd kl. 5. It s as far as you can 30. Foringi og fyrirmaður Laugardag sýnd kl. 7. Sunnudag sýnd kl. 7 og 11.15 Mánudag sýnd kl. 7 og 11.15. Sunnudag synd kl. 9. Mánudag sýnd kl. 9. Skipulag miðsvæðisins afgreitt í borgarstjórn Á fundi borgarstjórnar á fimmtudag var nýtt skipulag að miðsvæði nýja miðbæjarins í Kringlumýri samþykkt með 12 at- kvæðum sjálfstæðismanna. Fyrir viku var tillögunni vísað' til umsagnar í umhverfismálaráði og í bókun meirihluta ráðsins kemur fram að ráðið telji að um- hverfismynd svæðisins sé jákvæð, einkanlega torg á milli Borgar- leikhúss, Borgarbókasafns og stórmarkaðar. Ráðið vekur at- hygli á þeim nýmælum sem felast í yfirbyggðri göngugötu stórmark- aðarins, þar sem borgarbúar munu eiga þess kost að njóta fjöl- breyttrar verziunargötu í skjóli fyrir veðri og vindum. Að ráðið telji að tillaga í heild sé góður grundvöllur fyrir frekari vinnu á deiliskipulags- og hönnunar- grundvelli og vekur athygli á nokkrum atriðum sem huga þurfi að við nánari úrvinnslu þess. Varða þær ábendingar hönnun torgsins m.t.t. skjóls, gróðurs og efnisvals á yfirborði, götutengsl yfir Kringlumýrarbraut, meðal annars m.t.t. umferðar fatlaðra, gangstíga meðfram Miklubraut- inni, yfirbragð bílastæða, hönnun aðalgötunnar inn í hverfið og óskar ráðið eftir því að fá að fylgj- ast með frekari úrvinnslu varð- andi gatnahönnun, útivistarsvæði, torg og götustíga um svæðið. Þrír fulltrúar í umhverfisráði sátu hjá við atkvæðagreiðslu á umsögn ráðsins um tillöguna. í bókun Guðlaugs Gauta Jónssonar og Guðrúnar Ólafsdóttur kom m.a. fram að þau teldu að skipulag göngustíga og útivistarsvæða væri á slíku frumstigi að ekki væri tímabært að taka afstöðu til til- lögunnar að svo komnu máli. I bókun Álfheiðar Ingadóttur segir m.a. að skipulagstillagan beri þess merki að hún væri unnin án minnsta samráðs við umferðar- nefnd og umhverfismálaráð. Gerði hún jafnframt athugasemdir varðandi aðstöðu gangandi fólks og opin svæði. Á fundi borgarstjórnar í gær lagði Álfheiður fram tillögu um að afgreiðslu málsins væri frestað og skipuiagið yrði skoðað m.t.t. ábendinga umhverfismálaráðs. í máli Davíðs Oddssonar borg- arstjóra kom fram að hann teldi ekki efni til frestunar, hann teldi allar ábendingar umhverfismála- ráðs vera til bóta og að tillit yrði tekið til þeirra við frágang á þessu svæði. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður skipulagsnefndar mót- mælti fullyrðingum Álfheiðar Ingadóttur um að ekki hefði verið haft samráð við umhverfismála- ráð eða umferðarnefnd. Umferð- arnefnd hefði fjallað um málið a.m.k. á tveimur fundum sínum eftir að málinu var vísað til henn- ar á sínum tíma og varðandi um- ferðarþáttinn á svæðinu þá ynnu umferðarsérfræðingar á vegum borgarskipulags að þeim málum.' Kvaðst hann hins vegar vilja benda á svæðið við nýopnaðan stórmarkað við höfnina þar sem augljóst væri að ekki hefði verið hugað að þessum þáttum sem skyldi við það svæði. I máli Huldu Valtýsdóttur, formanns umhverfismálaráðs kom fram að hún efaðist ekki um það, að tillit yrði tekið til sjón- armiða ráðsins við endanlega úr- vinnslu á svæðinu. Við atkvæðagreiðslu um málið gerði Hilmar Guðlaugsson borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins grein fyrir atkvæði sínu og sagðist gera fyrirvara um aðkomu að norðan um göng undir Miklu- brautina, sem ráð er fyrir gert í skipulagstillögunni. Kvað hann óljóst á hvern hátt hún yrði fram- kvæmd. Að öðru leyti greiddi hann atkvæði með tillögunni eins og hún lá fyrir. ____________0,5 1 á aöeins 29.60-______________________ 5 bragðtegundir: Jarðaber , blandaðir ávextir, sveskjur, trefjaog mandarínur HAGKAUP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.