Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 * Ur greinargerð Þorvalds Búasonar: Afurðalánin uppspretta fjármuna vegna vaxtakjara Hér fer á eftir annar kafli, sem Morgunblaðið bírtir úr greinargerð Þorvalds Búasonar, eðlisfræðings, um rekstrarkostnað vinnslustöðva landbúnaðarins, afurðalán, niður- greiðslur o.fl. Það skal enn ítrekað að krónutölur í þessum texta eru í gömlum krónum á verðlagi septem- bermánaðar 1980. Eitt þúsund gaml- ar krónur frá september 1980 svara til 47 kr. í nóvember 1983. Þá er rétt að hafa í huga að tölur í töflum varða 1000 kg af dilkakjöti. Til að fá mynd af heildarupphæðum fyrir landið allt þarf að margfalda þær tölur með u.þ.b. 10500. Miðað við landið allt greiddu vinnslustöðvar þannig u.þ.b. 23 milljónum minna til baka af haustlánum en þær fengu lánað haustið 1980. Það svarar til u.þ.b. 1 milljón kr. á verðlagi í dag. Af afurðalánum greiddu vinnslu- stöðvar árið 1980—1981 1,2 milljörð- um kr. minna til baka, en þeir fengu að láni, sem svarar til nær 55 millj- óna kr. á verðlagi í dag. Af rekstrar- lánum greiddu vinnslustöðvarnar 175 milljónum kr. minna til baka en fengið var að láni, sem svarar til rúmlega 8 milljóna kr. á verðlagi í dag. Miðað við að gert væri upp við bændur samkvæmt reglu 2, sem svo er kölluð í greinargerðinni, hefðu bændur borið minna úr býtum en tii var ætlast, sem næmi rúmlega 150 milljónum kr. eða rúmlega 7 milljón- um kr. á verðlagi í dag. Ails má því ætla, að verðbólgan hafi fært vinnslustöðvunum á silfurfati 73 milljónir kr. 1980—1981 á verðlagi nóvember 1983, miðað við forsendur greinargerðarinnar. Haustlán til vinnslustöðva Haustið 1980 fengu vinnslu- stöðvar lánað upp í afurðalán þeg- ar í september og síðan aftur í október, en í nóvember komu af- urðalán til útborgunar. Upphæð haustlána á 1.000 kg afurða er hér fengin með því að deila heildar- failþunga viðkomandi haust upp í heildarlánsupphæð. Lántökugjald 1% var reiknað af lánsupphæð, en lánin að öðru leyti greidd upp ásamt vöxtum (miðað við 29% ársvexti) í nóvember. Lántöku- gjaldið hélzt sem lántökugjald fyrir afurðalánin. Tafla VIII gefur yfirlit yfir hreyfingar fjármuna vegna haustlána. 11. og 2. dálk eru færðar lántökur og endurgreiðslur á breytilegu verðlagi. í 3. og 4. dálk eru sömu upplýsingar færðar á föstu verðlagi. Samkvæmt niðurstöðutölum töflunnar hefur verið greitt minna til baka, en fengið var að láni, sem nemur 4.431 kr. Hagur vinnslustöðvar af þessu láni er reyndar enn minni. Lántökugjaldið var ekki endur- greitt heldur flutt yfir á afurða- lánin. (2.209 kr. á föstu verðlagi.) Þessi lán hafa nú verið aflögð. Afurðalán Vegna þeirra vaxtakjara, sem gilda um afurðalán, má segja að þau séu uppspretta fjármuna. Þau voru á 29% og 33% nafnvöxtum þegar verð- bólga mældist um 50%. Allar fram- leiðslugreinar njóta þessara lána. Afurðalán eru tvenns konar og á tvenns konar kjörum. 50,25% af skilavirði birgða mega á hverjum tíma standa sem lán á 29% vöxt- um. Við lántöku í nóvember er tekið 1% lántökugjald. Þetta lán er hér kallað A-lán. 21% af skila- virði birgða í lok næsta mánaðar á undan mega á hverjum tíma standa sem lán á víxilvaxtakjör- um (þ.e. 33% á þeim, sem hér um ræðir). Gert er ráð fyrir 0,65% þjónustugjaldi af þessum síðar- töldu lánum (sjá skýrslu starfskil- yrðanefndar, jan. 1982), sem hér eru kölluð B-lán. Skilaverð breyt- ist á þriggja mánaða fresti. Til að fá mynd af hreyfingu fjármuna og lána er í 2. dálki í töflu færðir 0,4975 (= 0,5025x0,99) hlutar skila- virðis birgða næstu mánaðamóta á undan, sem gefur upplýsingar um höfuðstól A-láns á hverjum tíma og í 3. dálk eru færðir 0,2086 (= 0,2100x0,9935) hlutar skilavirðis birgða næstu mánaðamót á undan, sem gefa þá upplýsingar um höf- uðstól B-láns á hverjum tíma. (Tekið hefur verið tillit til áhrifa lántökugjalda.) Lántökugjald hef- ur nú fallið niður. í 4. og 5. eru færðar breytingar á 2. og 3. dálki milli mánaða (nema fyrsta breyting er milli nóvember og janúar). Þær tölur gefa til kynna, hve stór hluti lán- anna hefur gjaldfallið í viðkom- andi mánuði. í 7. og 8. dálk er færður hinn gjaldfallni hluti ásamt vöxtum, (og tekið tillit til þess, að endurgreiða þarf lántöku- kostnað). í töflu IX eru dregnar saman hreyfingar A- og B-lána á föstu verðlagi. Niðurstöður í 2. og 4. dálki sýna, að af A-láni er greitt 82.226 kr. minna til baka, og af B-láni 28.025 kr. minna til baka, en upphaflega fékkst að láni. Verðbólgan og vaxta- kjör mala skuldurum gull. Rekstrarlán til bænda (eða vinnslustöðva?)! Umrædd lán eru í raun veitt vinnslustöðvum, þótt tilgangurinn sé að fjármagna rekstur sauðfjár- búa. Hvernig lánsféð ratar til bænda, er með mismunandi hætti. Sumar vinnslustöðvar skipta láns- upphæðinni á viðskiptareikning bænda eftir magni afurða næsta haust á undan, aðrar ráðstafa þeim til þeirra bænda, sem það árið þurfa sérstaklega á lánum að halda. Þessi endurlánastarfsemi hefur ekki verið „kortlögð“ og ekki hefur verið unnt að fá hreinar línur í lánamyndina. Hér er gert ráð fyrir að vinnslu- stöð leggi rekstrarlán inn á við- skiptareikning bænda og öll við- skipti bænda við ráðstöfun þessa rekstrarfjár sé við eða gegnum vinnslustöð. Er þá nærtækt að ætla, að meðhöndla megi lánið eins og það hafi verið veitt vinnslustöð beint. I viðauka 1 er sérstaklega fjallað um þessi rekstrarlán og sett upp líkan, sem virðist gefa vísbendingu um að þessi forsenda sé sæmilega traust. Lánsupphæð á 1.000 kg og dreif- ing útborgana á mánuði er fundin út frá upplýsingum Seðlabanka ís- lands um heildarútlán á mánuði í þessu skyni vorið 1981 og heild- arfallþunga haustið 1980. í 1. dálk í töflu XI eru færð haf- in lán eftir mánuðum, í 2. dálk vaxtagreiðsla (nafnvextir 29%) og í 3. dálk endurgreiðsla. í 4. og 5. dálk eru hafin lán og endur- greiðslur færðar á föstu verðlagi. í niðurstödutölum í 5. dálki kemur fram, að 16.585 kr. minna hefur ver- ið greitt til baka, en upphaflega fékkst að láni. Vegir verðbólgunnar eru e.t.v. órannsakanlegir, en marg- ar krónur rata þó leiðina í vasa þeirra, sem fá ódýr lán. Greiðslur til bænda Greiðslur til bænda fyrir sauð- fjárafurðir eru með mismunandi hætti. Meginregla er, að bændur fái 80% heildargreiðslunnar í nóvember og eru þá ekki reiknaðir vextir. 20% eiga þeir að fá í aprfl og reiknast þá innlánsvextir á þá greiðslu frá nóv- ember að telja. Litið er svo á, að bændur eigi afurðirnar og vinnslustöð sé einungis með þær í- umboðssölu. Verð breytist á þriggja mánaða fresti. Þegar af- uiðirnar hafa verið seldar er reiknað meðalverð og bændum greiddur mis- munur á meðalverði og upphaflega áætluðu verði í nóvember (1981) og reiknast vextir af þeirri upphæð frá nóvember árinu áður (1980). Gera má greinarmun á tveimur reglum um greiðslur til bænda. 1) Greiðslurnar eru einfaldlega innt- ar af hendi, bændur fá ávísun, peninga, eða lagt er inn á banka- reikninga bænda. 2) Greiðslan fer fram með þeim hætti að á við- skiptareikninga bænda eru færðar inneignir. Bændur taka síðan út vörur eða peninga jafnt og þétt eftir þörfum (og eign). Fyrrnefndi hátturinn verður hér kallaður regla 1 en hinn síðari regla 2. Regla 1 á sennilega við t.d. þar sem Sláturfélag Suðurlands á í hlut. Bændur hafa þar ekki viðskiptareikninga. Regla 2 á hins vegar sennilega oftast við, þegar vinnslustöð er rekin í tengslum við kaupfélag og verzlun. Hlutdeild Sláturfélags Suðurlands í markaði í þessu samhengi er einungis um 15%, svo reikna má með því, að regla 2 sé meginregla. Töflur XII og XIII eru yfirlit yf- ir greiðslur til bænda samkvæmt ofangreindum tveimur reglum. í 1. dálki í töflunum er sýnt grund- vallarverð á hverjum tíma og end- anlegt gundvallarverð eða meðal- verð í nóvember-línu (sjá (1) línu í töflu II). Upphæðin, sem greiða á bændum byggist á grundvallar- verði í sept. 1980, en 1,85% eru dregin frá grundvallarverði, — svokölluð sjóðagjöld. í 2. dálk eru færðar greiðslur til bænda (tafla DII) eða úttektir frá mánuði til mánaðar (tafla XIII). í 3. dálk eru færðar vaxtagreiðslur, í 4. dálk heildargreiðslur. Loks eru heild- argreiðslur færðar á föstu verð- lagi í 5. dálk. Ef fylgt er reglu 1 kemur í Ijós að bændur hafa borið meira úr býtum, en áætlað var í sept. 1980, eða 187.809 kr. miðað við 1.000 kg D1 (sjá töflu XII). Myndin er allt önn- ur ef fylgt er reglu 2. Þá hefur dæm- ið snúizt við, bændur myndu bera minna úr býtum, sem næmi 14.556 kr. samkvæmt þeirri reglu. Þessi tvö dæmi sýna hve afger- Yfirlit yfir hre TAKl.A yfingar rekstrarlána til bænda XI (vinnslustöóva ?) !, (miðað vió 1.000 kg D1) f yr ir árið sept. 1980 - ág. 1981. 1 2 3 4 5 llaf in Vextir Endurgr. Hafin lán Endurgr. 1 án ásamt f as t ásamt vöxt. vöxtum verðlag fast verðl. kr. kr. kr . kr. kr . 1980 sept. okt. nóv. des. 1981 j an • febr. marz 153.943 121.246 apr í 1 66.632 51.120 ma I 334.692 249.279 júní 35.231 25.595 júl í 48.251 34.220 ág- 48.251 33.163 sept. okt. nóv. - 102.033 789.033 498.038 687.000 514.623 498.038 -514.623 -16.585 TAFl.A XII Yfirlit yfir gre ióslur til bænda fyrir sauófj árafurðir samkvæmt reglu 1 (mióaó við 1.000 kg Dl> árið sept . 1980 til ág. 1981. 1 2 3 4 5 Grundv.- Greitt Vextir Greiðs1a Greiðsla veró til gr. til samt. samt. á bænda bænda föstu verðl kr/kg kr. kr. kr. kr. 1980 sept. okt 2.378 nóv. " 1.867.206 1.867.206 1.740.049 des. 2.707 1981 j an. febr. M - marz 2.945 2)68.075 apr í 1 " 466.801 534.876 410.357 ma í jún í 3.360 júlí ag- sept. okt. nóv. 2.824) ai50.659 588.408 371.403 2.521.809 -2.334.000 Umfram áætlun 187.809 1) Endanlegt eda meóa1grundva11arveró. 2) Gert hefur verió ráó fyrir, aó vextir séu reiknaóir vió greiðslu til bænda. Yfirlit yfir greióslur til TAFLA XIII bænda fyrir sauófiárafuróir samkvæmt reglu 2 (miðaó vió 1.000 kg Dl) ár i ð sept. 1980 til ág. 1981. i 2 3 4 5 Grundv. Ottektir Vaxtagr . Ottektir Ottektir verð bænda samt. samt. á föstu verðl kr/kg kr. kr. kr. kr. 1980 sept. 2.378 okt. " nóv. " 194.501 194.501 181.255 des . 2.707 194.500 194.500 175.750 1981 jan. 194.501 194.501 168.068 febr. 194.500 194.500 161.027 marz 2.94 5 194.501 194.501 153.189 apr í 1 194.500 194.500 149.220 ma í 194.501 194'. 501 144.864 juní 3.360 194.500 194.500 141.304 júl í 194.501 194.501 137.940 ág • 194.500 194.500 133.680 sept_. 194.501 194.501 130.160 okt. 194.501 ,223.578 418.079 271.584 nóv. '(2.824) 437.749 n50.659 588.408 371.403 2.319.444 _______-2.334.000 Vai.tar á áætlun -1A.556 1) Endanlegt eóa meðalgrundva11arveró. 2) Gert hetur verið ráð fyrír, að vextir séu reiknaðír við greiðslu til bænda eða í lok árs (nóv. - okt.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.