Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÖVEMBER 1983 Verður er verka- maðurinn launa - um hlutfall — eftir Árna Johnsen í þingræðu fyrir skömmu á Al- þingi gerði ég samanburð á lægstu tekjum verkafólks og námslána- möguleikum sem íslenzka þjóðfé- lagið býður menntamönnum sín- um. Laun eru eitt og lán eru annað og í rauninni er ónákvæmt að bera þar saman, nema að því leyti að bæði verkamaðurinn og námsmað- urinn eiga að hafa framfæri sitt af þeirri fjárupphæð sem um er að ræða í hvoru tilviki, verkamaður- inn af 10.960 kr. á mánuði, en námsmaðurinn af 13.000 kr. á mánuði. Þennan mismun kalla ég hrópandi óréttlæti, ekki vegna þess að námsmaðurin sé of sæll af þeirri fjárupphæð sem hann getur fengið að láni, heldur vegna þess að það er til skammar fyrir þjóð- félagið að lægstu laun skuli vera svo lág sem raun ber vitni. Sam- anburðurinn á lægstu launum og námslánum kemur til vegna þess að hlutfallið á milli þessara tveggja þátta hefur raskazt hrika- lega verkamanninum í óhag á undanförnum 6 mánuðum, en á þeim tíma hafa námslán hækkað um liðlega 30% umfram launa- hækkanir til verkafólks. Þá eru lánakjör námsmanna mun hag- stæðari en þau kjör sem almennir lántakendur eiga kost á í banka- kerfi landsmanna. Fárra kosta völ í vegtyllum Það er ástæðulaust að vega í þann knérunn að námsmenn hafi úr of miklu að moða, svo mikilvæg sem menntun er í nútímaþjóðfé- lagi. Nám, menntun og þekking er ein arðsamasta fjárfestingin í nútímaþjóðfélagi og veigamikill þáttur mannréttinda, en ég þekki fáa menntamenn sem ekki hafa fulla samúð með þeim lægst laun- uðu í þjóðfélaginu og eiga fárra kosta völ í vegtyllum og forrétt- indum sem svo margur hærra launaður býr við, hvort sem um er að ræða stjórnmálamenn, emb- ættismenn eða sæmilega vel laun- aða einstaklinga í ýmsum at- vinnugreinum. Það er hins vegar sorgleg stað- reynd að óstjórn á efnahags- og atvinnumálum landsins hefur ver- ið slík um árabil að launabilið er sífellt að breikka og að sama skapi vex tortryggnin í samfélagi þar sem tillitssemi stéttar við stétt hefur um langan aldur verið kjöl- festa þjóðfélagsins. námslána og Launaskekkja vegna óstjórn- ar um árabil Þótt ef til vill sé unnt að gagn- rýna námslán til einstakra aðila í þjóðfélaginu, er fjarri því að ég sé að leggja alla námsmenn að jöfnu og tilgangurinn er ekki sá að gera þá tortryggilega í augum þeirra sem minnst mega sln, enda tryggja námslánin að þeir sem minna mega sín geti stundað nám við sama borð og þeir sem betur eru settir fjárhagslega. Ástæða er til að tryggja betur að fjármagn sjóðsins nýtist þeim sem mest eru þurfandi og skila eðlilegum árangri. Fyrrgreindur saman- burður leiðir hins vegar í ljós skekkju sem hefur orðið á stuttum tíma varðandi möguleika fólks til þess hreinlega að lifa frá degi til dags, skekkju sem talsmenn Lána- sjóðs námsmanna hafa staðfest í samtali við mig að þeim þyki mjög miður að skuli vera staðreynd þótt þeir á hinn bóginn séu þakklátir fyrir að halda sínum hlut. Það er vert að minnast á það í þessari umræðu, sem er vissulega við- kvæm, að það er ef til vill ekki sízt iáglaunafólkið sem gleðst og fagn- ar yfir því, að námsmenn þurfi ekki að lepja dauðann úr skel, því það hefur sízt efni á því að veita börnum sínum þá miklu fjárhags- legu aðstoð, sem nauðsynleg er í langskólanámi. Það hlýtur hins vegar að þurfa að gagnrýna og iagfæra í því þjóðféiagi sem býður upp á svo lága lægstu launaskala sem raun ber vitni. Þar hefur miðstýring af hálfu ríkisvalds brugðizt samhliða því að ráðandi forystumenn í verkalýðshreyfing- unni hafa alið á vaxandi launa- mismun. Nú er launafólk í landinu að súpa seyðið af þessum mistök- um, en ef við náum því að kveða verðbólguna í kútinn, efla fram- leiðni og hagsæld til sjávar og sveita eigum við alla möguleika á að rétta tiltölulega fljótt við með ríkulegri tekjum til handa þeim sem vinna við framleiðsluna og fleyta samfélagi okkar áfram frá degi til dags. Refsað fyrir að vinna Sé gerður samanburður á lægstu launum verkafólks og námslánakjörum, er að sjálfsögðu talsverður munur þar á að mörgu leyti. í fyrsta lagi þarf launþeginn ekki að greiða til baka af launum sínum nema skatta og skyldur, en námsmaðurinn eykur skuldir sín- ar. Námsmaðurinn á að greiða lán lægstu launa Árni Johnsen „Mismunurinn í fjárupp- hæðum á þessu tímabili er því liðlega 30%, því náms- lánin hafa hækkað um 48,9% á sama tíma og laun hafa hækkað um 14,3%. Launafólk hefur þannig orðið að taka á sig skerð- ingu verðbóta á laun á sama tíma og námslánþeg- inn hefur sitt á þurru. sín aftur en kjörin eru mjög hag- stæð og námslánakerfið býður upp á það að hluti námsmanna greiði aldrei aftur alla þá upphæð sem fengin var að láni. Þá eru hæstu námslán einnig miðuð við það að námsmaðurinn hafi sem minnstar tekjur sjálfur, en það er spurning hvort það sé skynsamlegt að refsa þannig þeim sem vill vinna og get- ur unnið með námi, en hossa þeim sem leggur sem minnst hönd á plóginn í almennri vinnu í þjóðfé- íaginu. Skerðing hjá launafólki en ekki námsmönnum Lánshlutfall á nemanda er 95% af framfærslukostnaði þeim sem Lánasjóður námsmanna miðar við, en það eru í dag kr. 13.681 þannig að 95% af þeirri upphæð eru 13.000 kr. Til þess að náms- maður fái fullt námslán má hann hafa haft 11.265 kr. í laun á mán- uði yfir þrjá sumarmánuðina, eða alls 33.795 kr., en það sem náms- maðurinn hefur umfram þá upp- hæð í launum yfir sumarið dregst frá námslánum hans fyrstu þrjá mánuði skólaársins. Ef námsmað- urinn hefur til dæmis haft 13.000 kr. umfram 33.795 yfir sumarið, þá fellur niður til hans fyrsta námsiánagreiðsla þegar skóli hefst að hausti. Lánasjóður námsmanna byggir á ákveðnu til- búnu kerfi þar sem ætlunin er að úthluta ákveðnu fjármagni með því að taka afmarkað tillit til ým- issa þátta, svo sem maka náms- manns, tekna maka, eða barna á framfæri námsmanns. Ef maki er heimavinnandi fæst 50% námslán fyrir hann, og börn námsmanna gefa einnig möguleika á lánahluta. Þá er komið að þeim þætti sem ég lagði út frá í samanburði á lægstu launum verkafólks og námslánum sem boðið er upp á I okkar þjóðfélagi í dag. í sumar og haust hefur útreikningur á fram- færslukostnaði og fjáröflunar- möguleikum verkafólks og náms- manna skekkzt svo um munar. Framfærslukostnaður náms- manna hefur hækkað sífellt, en framfærslukostnaður verkafólks og annarra launþega hefur ekki fylgt eftir. Á tímabilinu marz-maí var framfærslukostnaður náms- manna 9.131 kr., en þá voru lægstu laun verkafólks kr. 9.581 kr. 1. júní hækkaði framfærslukostnaður námsmanna um 23,37% og náms- lán samkvæmt því, en iaun þeirra lægst launuðu hækkuðu þá um 10% og önnur laun um 8% vegna verðbótaskerðingar stjórnvalda í baráttunni við verðbólguna og að- gerðum til þess að ná stjórn á efnahagsmálum landsins. 1. sept- ember sl. hækkaði framfærslu- kostnaður námsmanna síðan aftur um 21.,45% eða í kr. 13.681, en al- menn laun hækkuðu ekkert fyrr en 1. okt. sl. og þá um 4%. Mis- munurinn í fjárupphæðum á þessu tímabili er þvl liðlega 30%, því námslánin hafa hækkað um 48,9% á sama tíma og laun hafa hækkað um 14,3%. Launafólk hefur þann- ig orðið að taka á sig skerðingu verðbóta á laun á sama tíma og námslánþeginn hefur sitt á þurru. Þannig búa námsmenn á þessu ári því jafnvel við betri kjör en örorkuþegar sem fengu hærra bótahlutfall em var aðeins rétt ofan við almennar launahækkanir. 6.000 af 10.000 námsmönnum njóta námslána Um 10 þúsund manns hafa rétt til að sækja um lán hjá Lánasjóði námsmanna og hér er því um að ræða fjármagn sem varðar 5—10% af þegnum landsins. Um 60% námsmanna sækja um lán úr Lánasjóðnum, eða um 6.000 námsmenn og þar af eru um 4.000 við nám hérlendis, en um 2.000 er- lendis. Um 4.000 námsmenn sækja um lán ár eftir ár, en 1.500—2.000 sækja um annað hvert ár eða jafn- vel þriðja hvert ár. Um 70% af námslánþegum sem nema hér heima stunda háskólanám og all- flestir af þeim 2.000 sem nema er- lendis og njóta námslána, en aðrir lánþegar stunda nám við hin ýmsu fræðslustig landsins, svo sem iðn- nám, fiskvinnslu, hjúkrunarnám, tækninám, vélskólanám og fleira. Mikill munur á lánakjörum Námsmönnum er ætlað að leggja inn lokapróf til Lánasjóðs- ins að loknu námi og hefja endur- greiðslur á lánum þremur árum síðar, en sjóðurinn hefur haft öðr- um hnöppum að hneppa en fylgj- ast með lokaprófum. Hins vegar er kerfi sjóðsins tölvuvætt og þremur árum eftir að síðasta umsókn kemur frá námsmanni gerir tölv- an ráð fyrir fyrstu endurgreiðslu. Námslánin eru verðtryggð en vaxtalaus og lánakjörin eru þann- ig að lánþegi á að greiða 3,75% af árslaunum sínum, nánar tiltekið útsvarsstofni. Maður sem var með 200 þús. kr. í útsvarsstofn á árinu 1982 og á að hefja endurgreiðslu námslána á þessu ári, greiddi 4.398 kr. 1. febr. sl. og 9.542 kr. 1. sept. sl. eða alls 13.880 kr. sem eru þá vegna mikillar verðbólguhækk- unar 6,94% af árslaunum hans, en þessi einstaklingur getur verið að greiða skuld sem er á bilinu frá 200 þús. kr. til 1 milljón kr. og jafnvel meira ef menn hafa verið í dýru sérfræðinámi erlendis. Verð- bólgulækkun kemur námsmönn- um sérlega vel til góða I endur- greiðslu lána. Einstaklingur I hópi almennra launþega sem þarf að greiða árs- vexti af 200 þús kr. bankaláni með 37% vöxtum þarf hins vegar að greiða kr. 74.000 í vexti á ári, svo þarna er augljós munur á lána- kjörum enda er unnt að greiða námslánin til baka á nokkrum áratugum. Þingmaður, til dæmis, sem hefur 38 þúsund kr. í laun á mánuði og skuldar Lánasjóði námsmanna a.m.k. 200 þúsund kr. þarf að greiða alls 31.230 kr. á ári í afborgun námslána. Reikna má með að þeir sem skulda tiltölulega lítið í námslánum muni greiða upp skuld sína verðtryggða en vaxta- lausa, ef þeir vinna reglulega á annað borð að loknu námi, en hins vegar er kerfið þannig byggt upp að þeir sem skulda mikið munu aldrei greiða upp alla sína skuld, enda er reiknað með 80—90% skil- um í sjóðinn. Vonandi skilar sú rækt sem við leggjum við öflun þekkingar, til handa ungu fólki lands okkar, þeim arði að kjör þeirra lægst launuðu verði mannsæmandi, að sá skilningur dafni að við eigum að byggja land á stétt með stétt þar sem verkamaðurinn er verður launa sinna, hvort sem unnið er að framleiðslu, þjónustu eða við öfl- un þekkingar I þágu þjóðarinnar. Arni Johnsen er alþingismaður Sjálísíæðisflokksins tyrir Suður- landskjördæmi. Alþjóðleg vörusýning í Laugardalshöll á næsta ári: Búist við þátttöku 200 fyrirtækja í fiskiðnaði Alþjóðlega vörusýningin kynnt, talið frá vinstri: Patricia Foster, John V. Legate, Þórleifur Ólafsson og Sigmar B. Hauksson. „ICELANDIC Fisheris Exhibit- ion“ nefnist alþjóðleg vörusýning í fiskiðnaði og sjávarútvegi, sem haldin verður í Laugardalshöllinni í Reykjavik dagana 19. til 23. sept- ember 1984. Það er breska fyrir- tækið Industrial and Trade Fairs Ltd. sem gengst fyrir sýningunni í samstarfi við umhoðsaðila sinn hér á landi, Alþjóðlegar vörusýningar sf. sem er fyrirtæki í eigu þeirra Þórleifs Olafssonar, ritstjóra, Sig- mars B. Haukssonar, útvarps- manns, Eiríks Tómassonar, lög- fræðings, og Péturs J. Eiríkssonar, hagfræðings. A blaðamannafundi, sem efnt var til í Reykjavík í tilefni ákvörðunarinnar um sýninguna kom fram, að þegar væri mikill áhugi fyrir henni erlendis. Um 200 fyrirtæki taka líklega þátt í sýningunni, og fjöldi manna víðs vegar um heim hefur þegar látið í ljós áhuga á að koma, svo sem frá Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Grænlandi, Færeyjum, Bretlandi og ýmsum löndum á meginlandi Evrópu. John V. Legate, framkvæmdastjóri, og Patricia Foster, sölustjóri hjá Industrial Trade Fairs, sem hér eru stödd þessa dagana, sögðu að helsta áhyggjuefnið væri að Laugardalshöll væri of lítil og hótelrými í Reykjavík væri takmarkað. — En meðal annars þess vegna væri septembermán- uður valinn, er aðalferðamanna- tíminn væri liðinn. Gott sam- starf sögðu þau vera við Flug- leiðir hf. vegna þessa máls, og myndi fyrirtækið auglýsa ferðir hingað til lands vegna sýningar- innar. Á blaðamannafundinum kom fram að upphaf þess að ákveðið var að halda sýninguna hér á landi, mætti rekja til sýningar í Kaupmannahöfn nýlega. Þar hefði komið í ljós mikill áhugi fyrirtækja í fiskiðnaði að setja upp sýningu í Reykjavik, auk þess sem Þórleifur ólafsson, rit- stjóri Fiskifrétta, hefði rætt þessa möguleika við hið breska fyrirtæki. Fulltrúar þess komu síðan hingað til lands í septem- ber síðastliðnum, og litu á að- stæður, og var þá ákveðið að efna til sýningarinnar á næsta ári. Stofnuð hefur verið ráðgjafa- nefnd til að aðstoða og leiðbeina íslenskum fyrirtækum vegna sýningarinnar, og eiga I nefnd- inni sæti fulltrúar eftirtalinna aðila: Alþjóðlegar vörusýningar sf., sjávarútvegsráðuneytið, Fiskifélag íslands, Félag ísl. iðnrekenda, Útflutningsmiðstöð iðnaðarins, Landssamband ísl. útvegsmanna, Verslunarráð ís- lands, SÍF, S.H., sjávarafurða- deild Sambandsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.