Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.11.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1983 13 Eaffihúsasýningar Myndlist Bragi Ásgeirsson Það er mikið rétt hjá Ólafi M. Jóhannessyni, að sýningar skipti meira máli en kaffið, sem kann að vera drukkið á staðnum. Og það skiptir máli í hvaða um- hverfi sýningin er haldin og þannig stenst ég ekki freisting- una og get góðrar sýningar rek- ist ég inn á kaffihús þar sem ein slík er í gangi. Það vel veit ég til hlutanna að ég get fullyrt að þau kaffihús, sem ég þekki og hafa það fyrir venju, að setja nokkuð reglulega upp sýningar, gera það sjaldnast til að „... prómótera veitingasölu," sei, sei, nei. Þau gera það öllu frekar til að lífga upp á veggina og til að skapa vissan menningarlegan andblæ, og svo til að halda fram verkum listamanna. Sjálfur naut ég þess nokkrum sinnum fyrir tveim áratugum er það voru nær ein- ungis útlendingar er keyptu verk eftir mig — og minnist þess þakklátum huga. Vísast er það æðra stig menn- Ólafur M. Jóhannesson ingar, að fjölmiðlar ... prómot- eri fyrir hljómplötum og íþrótt- um, sem þeir gera og enda af mikilli virkt, en nóg um það ... Annað mál er, að tímarnir eru breyttir og fjöldi sýningarsala á höfuðborgarsvæðinu, er taka þarf tillit til, orðinn slíkur, að það hefur lengi kallað á nýtt form og endurmat almennrar listrýni. Þá er eðlilegt að þróun- in verði sú, að jafnvel menning- arlegar kaffihúsasýningar mæti nokkrum afgangi. Yfirleitt geta erlendir fjölmiðlar ekki slíkra sýninga nema að það séu ein- hverjir miklir bógar í listinni sem í hlut eiga eða sérlega at- hyglisvert framtak sé á ferðinni er ástæða þykir að vekja athygli á. Það þykir mér nú einmitt með sýningu Ólafs M. Jóhannessonar í veitingahúsinu Mensu við Lækjargötu. Myndir hans komu mér mjög á óvart fyrir næma Ijóðræna tilfinningu og ágætt form sem litaskyn. Sumar myndirnar þóttu mér beinlínis óvenju fallegar og með því betra sem gert er á þessu sviði hér- lendis. Fullkomlega lausar við alla tilgerð og „flottheit", — sem sagt blessunarlega opinskáar og gerandanum til mikils sóma. Annað mál er, að það er fjarska erfitt að skoða myndir á þessum stað yfir höfuð fólks enda ekki gert ráð fyrir endurtekningu á framtakinu. En það var þó gott sem slíkt. Rannveig Pálsdóttir Persónulega vildi ég bíða frek- ari umfjöllunar þar til bókin er komin út, er var tilefni sýn- ingarinnar, því að þá gefst mér tóm til að skoða þær í næði. - O - í leiðinni er vert að geta þekkilegrar sýningar Rannveigar Pálsdóttur á Mokka. Rannveig er útskrifuð úr vefnaðarkennara- deild Myndlista- og handíða- skóla fslands (1979) og er þetta fyrsta sýning hennar. Rannveig sýnir 17 myndir sem flestar eru gerðar á þessu ári og minnist ég einkum myndar nr. 8, sem er lík- ust óræðu ljósbliki á bláum grunni svo og myndarinnar „Við sjóndeildarhring“ (9), sem er byggð upp á hugmyndafræði- legan hátt. — Báðar þessar sýningar falla undir það, sem vert er að fjalla um væru þær settar upp í einhverjum viðurkenndum sýn- ingarsal borgarinnar og einnig í menningarlegu kaffihúsi ef því verður við komið. Nvju hljómtækin IOMEER Kynnum í dag írákl.10— 16.00 Sýnum sérstaklega nýju línuna í ,,Pickup“ frá orlofons Gestum gefst kostur á að kynnast af eigin raun frábærum tóngæóum og möguleikum ORTOFON SUPRA KAPLAR Sérstakir hátalarakaplar fyrir þá ALLRA kröfuhöröustu gt- 4stórglæsilegar hljómtækja samstæður HUÐMBÆR HUOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 m íeðw'’ X A5 2x4ow Sa«^st* Kr. 36.261,-*' X-A7 2 X 54W Kr. 41.030,-gr X-A9 2 X 78W m. tónjafnara Kr. 62.975, \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.